Morgunblaðið - 29.05.1998, Blaðsíða 25
MORGUNB L AÐIÐ
FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 1998 2 5
ERLENT
Reuters
ÁSTRALSKA sundkonan Susie Marony, sem hyggst
synda frá Mexíkó til Kúbu á tveim dögum.
232 km sund til
Fidels Castros
Mexíkóborg. Reuters.
SUSIE Marony, 23 ára áströlsk
sundkona, ætlar ekki að láta
hákarla og marglytt ustungur
aftra sér frá því að synda frá
Mexíkó til Kúbu í von um að
hitta Fidel Castro, leiðtoga
landsins.
Marony bjó sig í gær undir
232 km sund frá þorpinu Puerto
Morelos í Mexíkó til Kúbu og
fari allt að óskum verður þetta
lengsta sund sögunnar í hafi.
„Við heyrðum orðróm um að
Fidel Castro kynni að koma til
okkar - og við vonum að hann
láti verða af því,“ sagði Marony.
Hún hyggst heQa sundið innan
sólarhrings og gerir ráð fyrir að
það taki tvo daga.
Marony varð fyrst allra til að
synda frá Kúbu til Flórída í
fyrra og hún synti þá 174 km á
einum sólarhring.
Hún kveðst ekki hafa áhyggj-
ur af hákörlunum þar sem hún
hyggist synda í flotbúri. Hún
viðurkennir þó að marglyttum-
ar geti gert henni lífið leitt og
segir að það eina sem hún geti
gert til að veija sig sé að smyija
sig með lanólíni til að komast
hjá stungum í andlitið.
ástœður til
nýjan Nissan
ABS hemlalæsivörn
Loftpúðar fyrir ökumann og farþega
Fimm þriggja punkta öryggisbelti
Fimm höfuðpúðar
Nýtt ytra útlit
Ný áklæði
Samlitir speglar
„Clear-lens“ framlugtir
Fjarstýrðar samlæsingar
Nýir ferskir litir
NATS þjófavörn
Aukin hljóðeinangrun
Þriggja ára ábyrgð
Sex ára ryðvarnarábyrgð
Verðkr. 1.445.000,-
15 góðar
að kaupa
Almera *
(jleáilt'ga ferdahetgi!
Ptii) veröur engin
bílasýning um lietgina,
cn Ingvar llelgason
apnar aftur þridjudaginn
Auglýst eftir fjármála-
snillingi í Rúmeníu
Búkarest. Reuters.
RADU Vasile, forsætisráðhen-a
Rúmeníu, bauðst í gær til að end-
urskíra torgið fviir framan stjói-n-
arskrií'stofurnar' og heita það eftir
hveijum þeim, sem fundið gæti
lausn á fjánnálum ríkisins.
Rompres, ríkisfréttastofan
rúmenska, hefur eftir Vasile, að
hann hafi lofað Poul Thomsen,
fulltnia IMF, Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins, gagnvart Rúmeníu, að
skíra Sigurtorgið eins og það
heitir nú í höfuðið á honum ef
hann gæti greitt úr fjármálum
nimenska ríkisins.
„Eg heiti því að nefna torgið
fyrir framan Sigurhöllina eftir
Thomsen eða hverjum þeim, sem
fundið getur lausn á fjármálun-
um,“ sagði Vasile en Thomsen
kemur til Rúmeníu á næstu dög-
um til að meta umbæturnar í
efnahagslífinu og ræða um end-
umýjaða lánsheimild Rúmemu-
stjórnai' hjá IMF.
Opinberlega er áætlað, að
rúmensk fyrirtæki skuldi ríkinu
um 500 milljarða ísl. kr. og er að-
allega um að ræða fyrirtæki, sem
hafa einokunaraðstöðu á ýmsum
sviðum. Erlendar skuldir ríkisins
eru eitthvað innan við 600 millj-
arða kr.
Verzlunarskóli íslands
Innritun nýnema vorið 1998
Nýútskrifaðir grunnskólanemar
Umsóknarfrestur um skólavist í Verzlunarskóla íslands
rennur ut föstudaginn 5. juní kl. 16.00.
Verzlunarskóli Islands getur nú innritað 280 nemendur til náms í 3. bekk.
Berist fleiri umsóknir verður valið úr þeim á grundvelli einkunna í
samræmdum greinum á grunnskólaprófi. Reiknað er meðaltal samræmdra
einkunna og skólaeinkunna. Eldri umsækjendur, og þeir sem hafa stundað
nám í erlendum grunnskólum, eru þó metnir sérstaklega.
Námsbrautir Verzlunarskóla Islands hafa verið endurskipulagðar og geta
nemendur, sem nú innritast, valið eftirtaldar námsbrautir til stúdentsprófs:
Braut Sérkenni
Alþjóðabraut: Samskipti á erlendum tungumálum. Saga og menning helstu viðskiptalanda, alþjóðastofnanir og starfsemi þeirra.
Hagfræðibraut: Viðskiptagreinar, stærðfræði og tungumál. Góður grunnur að háskólanámi í hagfræði og öðrum þjóðfélagsgreinum.
Málabraut: Fimm erlend tungumál í kjarna. Góður grunnur að háskólanámi í erlendum tungumálum og málvísindum.
Stærðfræðibraut: Stærðfræði, raungreinar og viðskiptagreinar. Góður grunnur að háskólanámi í verkfræði og raunvísindum.
Viðskiptabraut: Rekstur og stjórnun fyrirtækja. Stofnun og rekstur eigin fyrirtækis. Góður grunnur að háskólanámi í viðskiptagreinum.
• Á fyrsta ári eiga nemendur val milli þýsku og frönsku en að öðru
leyti stunda allir sama nám.
• Að loknu fyrsta námsári er valið milli brauta.
. Sérkenni hverrar brautar mótast af því framhaldsnámi sem stefnt er
að og þeirri þjálfún sem nemendur fá til starfa í atvinnulífinu.
. Verslunarpróf er tekið að loknu tveggja ára námi á öllum brautum.
Umsóknareyðublaðfylgir grunnskólaskírteinum en það má
einnigfá á skrifstoju skólans ogþar sem sameiginleg
innritun í framhaldsskóla fer fram.
Upplýsingar um nám er að finna á heimasíðu skólans
http://www.verslo.is. Þar er einnig hægt að ieggja Ínn fyrirspurnir og
umsókn um skólavist.
Opið hús
verður í Verzlunarskóla Islands þriðjudaginn 2. júní 1998 kl.
15.00-18.00. Þar munu kennarar og námsráðgjafar veita upplýsingar
um námið í skólanum og taka á móti umsóknum.
Verið velkomin.