Morgunblaðið - 29.05.1998, Blaðsíða 23
Dúndursprengja
' fataefnum!
FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 1998 23
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Borís Jeltsín reynir að sefa fjárfesta vegna fjármálaumrótsins
Segir Rússland eiga næga
varasióði til að afstýra hruni
Moskvu. Reuters.
Trúðslæti 1 Pétursborg
LÖGREGLUMAÐUR reynir að ná manni í trúðsbúningi sem truflaði
göngu lúðrasveitar rússneska hersins í miðborg Pétursborgar í gær
þegar íbúar borgarinnar héldu upp á 295 ára afmæli hennar.
BORIS Jeltsín, forseti Rússlands,
reyndi í gær að sefa erlenda fjár-
festa og sagði að Rússar hefðu
næga varasjóði til að afstýra fjár-
málahruni. Forsetinn ræddi við for-
sætisráðherra, fjármálaráðherra og
seðlabankastjóra landsins á skyndi-
fundi í Kreml og lagði áherslu á að
þeir þyiftu að einbeita sér að því að
verja rúbluna. Oleg Vjúgín, aðstoð-
arfjármálaráðherra Rússlands,
sagði hins vegar að Rússar þyrftu
meiri aðstoð frá Alþjóðagjaldeyris-
sjóðnum (IMF) til að geta unnið sig
út úr kreppunni.
Rússnesku fjármálamarkaðirnir
brugðust vel við þeirri ákvörðun
seðlabankans í fyrradag að þrefalda
vexti sína til að verja rúbluna. Rúss-
neska verðbréfavísitalan RTS
hækkaði um 5,66% eftir að hafa
lækkað um tæp 11% daginn áður.
Gengi rúblunnar hækkaði einnig í
gær gagnvart dollarnum.
„Erlendir fjárfestar geta treyst
því að það verður ekkert hrun á
fjármálamörkuðum Rússlands,"
sagði Jeltsín eftir fundinn í Kreml.
„Við höfum næga varasjóði ef allt
fer á versta veg en við viljum ekki
vera alltaf á ystu nöf.“ Forsetinn
boðaði til fundarins vegna hættunn-
ar á að umrótið á fjármálamörkuð-
unum stefndi pólitískum stöðug-
leika og umbótastefnu stjórnarinn-
ar í hættu. Hann sagði að gera
þyrfti gangskör að því að efla skatt-
heimtuna til að minnka fjárlagahall-
ann og ná fé af fyrirtækjum og ein-
staklingum sem hafa svikið undan
skatti. „Við þurfum að beita þá
hörðu. Við vitum hverjir þeir eru.“
Óska eftir nýju láni
Aðstoðarfjármálaráðherrann við-
urkenndi að stjórninni hefði ekki
enn tekist að afstýra hættunni á
fjármálahruni. Hann sagði að næsta
lán Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sem
á að nema 670 milijónum dala, and-
virði 48 milljarða króna, myndi ekki
duga og frekari aðstoð myndi gera
rússnesku stjórninni kleift að leysa
fjármálavandann fljótt.
Helsti sérfræðingur Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins í fjármálum
Rússlands, John Odling-Smee, fór
til Moskvu í gær til að semja um
næstu lánveitingu sjóðsins. Búist er
við að IMF fallist á að veita fyrr-
nefnt lán strax og hugsanlega
einnig skammtímalán að andvirði að
minnsta kosti 5 milljarða dala, 355
milljarða króna.
Jeltsín kvaðst ætla að hringja í
leiðtoga erlendra ríkja, m.a. Bill
Clinton Bandaríkjaforseta og
Helmut Kohi, kanslara Pýskalands,
til að óska eftir stuðningi þeirra.
Clinton kvaðst bera fullt traust til
stjórnar Sergejs Kíríjenkos forsæt-
isráðherra.
„Hvaða kreppa?“
Haft var eftir Sergej Dúbínín
seðlabankastjóra að Jeltsín hefði
sagt honum og Míkhaíl Zadornov
fjármálaráðherra að einbeita sér að
því að verja rúbluna. Zadornov
sagði að fjármálakreppan myndi
ekki skerða lífskjör rússnesks al-
mennings.
Margir Moskvubúar virtust ekki
enn hafa áttað sig á fjármálavand-
anum. „Hvaða kreppa? Líf okkar er
eilíf kreppa,“ sagði einn borgarbú-
anna. „Hvað hefur breyst?"
Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch
IBCA sagði að „djarfar aðgerðir" af
hálfu rússneskra stjórnvalda
myndu koma í veg fyrir að lánshæf-
iseinkunn Rússlands yrði lækkuð.
Annað matsfyrirtæki, Standard and
Poor’s, sagðist vera að endurskoða
lánshæfismat sitt á ríkissjóði Rúss-
lands og til greina kæmi að lækka
einkunnina. Verði það gert þurfa
Rússar að greiða hærri vexti af lán-
um sem þeir taka á alþjóðlegum
fjármagnsmarkaði.
JjölíreijU o<j ferski ,
— beint frá Jtalíu
Framloitt á Itallu. Dreiling Kexvorksmiðj,
■ n ^TfSÍ
Dinber
humar
ólíour
Nú eru síðustu forvöð að gera dúndurkaup á
fataefnum í Rúmfatalagernum við Smáratorg!
Tilboðið stendur aðeins í dag, föstudag og
á morgun, laugardag. Allt á heildsöluverði.
Bútasaumsefni (aðeins 399,-), flísefni (690,-)
og tískuefni (399,- / 690,- og 990,-) í
pils, kjóla, buxur, blússur, boli, jakka o.fl.
Rúmfatalagerinn Smáratorgi kynnir: