Morgunblaðið - 29.05.1998, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 1998 21
UR VERINU
Morgunblaðið/Gunnar Hallsson
AFLI smábáta sem gera út frá Bolungarvík hefur verið mikill undan-
farið og hafa þeir landað yfir 500 tonnum það sem af er maímánuði.
Þormóður rammi-Sæberg hf. á Siglufírði
Bolfiskvinnsla
hefst á nýjan leik
ÞORMÓÐUR rammi-Sæberg hf.
og Gunnlaugur Oddsson útgerðar-
maður eru að stofna einkahlutafé-
lag um rekstur reykhúss Þormóðs
ramma á Siglufirði og jafnframt að
hefja bolfiskvinnslu í húsinu. Þor-
móður rammi hætti bolfiskvinnslu
fyrir ári.
Þormóður rammi hefur lagt í
töluverðan kostnað við endurbætur
á reykhúsinu en það hefur verkefni
við að reykja lax íþrjá til fjóra
mánuði á ári.
Róbert Guðfinnsson, stjórnarfor-
maður fyrirtækisins, segir að til að
auka nýtingu verksmiðjunnar verði
hluti af flakavinnslubúnaði Þor-
móðs ramma, sem staðið hefur
ónotaður frá því bolfiskvinnslu var
hætt, fluttur í reykhúsið og útbúið
lítið frystihús sem rekið verður
samhliða reykingunni.
Stofnað verður sjálfstætt einka-
hlutafélag um þennan rekstur og
mun Gunnlaugur Oddsson útgerð-
armaður reka það. Gunnlaugur
gerir út tvær trillur og mun fyrir-
tækið einbeita sér að því að vinna
afla þeirra og annan bolfiskafla
sem á land berst á Siglufirði.
Róbert reiknar með að tíu til
fimmtán manns fái vinnu hjá nýja
fyrirtækinu.
Góð afla-
brögð
íBol-
ungarvík
Bolungarvík. Morgunblaðið.
AFLABRÖGÐ smábáta í Bolung-
arvík hafa verið með afbrigðum
góð að undanförnu. Líflegt var
við höfnina þegar fréttaritari átti
þar leið um sl. mánudagskvöld,
en þann dag lönduðu 26 bátar
samtals rúmu 61 tonni. Aflahæst-
ur var Guðmundur Einarsson IS
með 8 tonn en hann rær með
línu. Aflahæstur handfærabáta
var Bjarney með 3,7 tonn eftir
daginn.
Það sem af er maímánuði er
heildarafli, sem landað hefur
verið af smábátum í Bolungarvík,
rúm 500 tonn. Aflahæstur er
Guðmundur Einarsson ÍS sem
landað hefur rúmiega 60 tonnum
úr 18 róðrum.
A þessu ári hefur orðið mikil
fjölgun smábáta í Bolungarvík og
eru nú gerðir þaðan út um 40
svokallaðir hraðfiskibátar.
----------------
Varað við
geislun í
norskum
fiski
YFIRVÖLD í Egyptalandi vöruðu
nýlega við sjávarafurðum frá Nor-
egi vegna hættu á, að þær væru
geislavirkar. Er viðvörunin komin
frá sendiherra landsins í Ósló.
Upphaf þessa máls er raunar
frétt í egypsku vikublaði en í henni
sagði, að geislavirkur fiskur væri á
leiðinni til landsins. Var þar vitnað í
viðskiptafulltrúa Egyptalands í
Noregi og eftir honum haft, að
þetta ætti við um fisk frá Noregi og
Skotlandi. Með fréttinni birtust
myndir af fyrirsögnum í norskum
blöðum vegna frétta um geislun frá
Sellafield-kjarnorkuendurvinnslu-
stöðinni.
Norðmenn selja Egyptum fisk
fyrir um 700 milljónir íslenskra
króna árlega og því er landið ekki
mjög mikilvægur markaður fyrir
norskar sjávarafurðir almennt. Sum-
ir framleiðendur selja þó allmikið
þangað og fyrir þá gæti verið um al-
varlegt mál að ræða. Alvarlegra þyk-
ir þó hitt, að fréttir af þessu tagi,
þótt ástæðulausar séu, fari víðar um.
I augnablikinu vona Norðmenn, að
þetta muni lognast út af.
„HEYRi DU GÓÐI!
EKKITAI KA ÞAÐ ÚT
ÁI WIÉR“
Eiginkona sem reykir ekki, var alltaf að biðja hann um að hætta að reykja
Við vitmn hvað er erfitt að hætta að reykja
Fólk sem aldrei hefur reykt á ekki gott með að skilja hve
þörfin fyrir sígarettu getur verið óbærileg. Jafnvel þeir sem
hafa fullan hug á að hætta, geta lotið í lægra haldi þegar
sígarettan er annars vegar. Þeir sem aldrei hafa reykt halda
oft að það að hætta sé einungis spuming um að taka sjálfan
sig taki og hafa viljann að vopni. En það að hætta að reykja
hefur ekki bara með viljastyrk að gera.
77/ er eðlileg skýring á því afhverju erfitt er að bœtta
Þegar þú hættir að reykja getur þú þurft að berjast við mikil
fráhvarfseinkenni vegna þess að líkaminn saknar nikótínsins
sem hann er vanur að fá. Til að standast reykbindindi með
sem minnstum óþægindum, getur þurft meira en viljastyrk.
Góð reyklaus leið er að nota nikótínlyf til að minnka þörf
líkamans á nikótíni smám saman og komast þannig yfir
erfiðustu vikurnar eftir að reykingum er hætt.
Að minnka þötfina er leið til að hætta
Nikótínlyf innihalda nikótín í ákveðnum
skömmtum sem nægja til þess að minnka
nikótínþörfma og þú ert laus við tjöru og
kolmónoxíð úr sígarettureyknum. Nikótín ér ekki krabba-
meinsvaldandi efhi og þú munt ekki verða háður nikótíni
með því að nota nikótínlyf; sem reykingamaður ert þú
þegar orðinn háður nikótíninu en nikótínlyf voru þróuð til
að draga úr fráhvarfseinkennum og auðvelda fólki að hætta
að reykja.
Að ná árangrí
Þú getur aukið möguleika þína á að standast reykbindindi
með því að nota Nicorette®, leiðandi vörumerki um allan
heim fyrir nikótínlyf, allt ffá því Nicorette® nikótíntyggi-
gúmmí, fyrsta nikótínlyfið, var markaðssett.
Mismunandi einstaklingar, mismunandi þarfir, mis-
munandi leiðir til að hætta
I dag er hægt að fá Nicorette® sem tyggi-
gúmmí, forðaplástur og innsogslyf án lyf-
seðils. Nicorette® nikótínlyf koma ekki í stað
viljastyrks, en geta veitt þér stuðning þegar þú
ákveður að hætta að reykja.
8K8SS
• mcorette:
NICDRETTE
Við stöndum meðþér
Nicorette® innsogslyf samanstendur af munnstykki sem í er sett rör sem inniheldur nikótín. Nicorette® innsogslyf er ætlaö til aö auðvelda fólki aö hætta að reykja.
Algengur skammtur er a.m.k. 6 rör á dag en þó ekki fleiri en 12 á dag í a.m.k. 3 mánuði og venjulega ekki lengur en 6 mánuði. Nicorette® innsogslyf getur valdið
aukaverkunum eins og hósta, ertingu í munni og hálsi. Höfuðverkur, brjóstsviði, ógleði, hiksti, uppköst, óþægindi i hálsi, nefstífla og blöðrur I munni geta einnig komið
fram. Við samtímis inntöku á gestagenöstrógen lyfjum getur, eins og við reykingar, veriö aukin hætta á blóðtappa. Nikótin getur valdið bráöum eitrunum hjá börnum og
er efnið því alls ekki ætlað börnum yngri en 15 ára nema í samráði við lækni. Gæta skal varúðar hjá þeim sem hafa hjarta- og æðasjúkdóma. Þungaöar konur og
konur með barn á brjósti ættu ekki að nota lyfið nema í samráði við lækni.
Lesiö vandlega leiðbeiningar sem fylgja hverri pakkningu lyfsins.
Markaösleyfishafi: Pharmacia & Upjohn AS, Danmörk. Innflytjandi: Pharmaco hf., Hörgatúni 2, Garðabær.