Morgunblaðið - 29.05.1998, Qupperneq 24
24 FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Reuters
DANSKIR kjósendur greiða atkvæði ura Amsterdam-sáttmálann á kjörstað í Fredericia.
Danska atkvæðagreiðslan um Amsterdam-sáttmálann
Skiptar en skýrar
skoðanir meðal Dana
Andóf gegn sjálfumgleði Dana og van-
traust á samstarfí sem leiddi til þess að
Danir yrðu æ háðari öðrum þjóðum voru
nokkur af þeim sjónarmiðum sem Sigrún
Davíðsdóttir heyrði hjá dönskum kjós-
endum í gær þegar þeir greiddu atkvæði
um Amsterdam-sáttmálann.
ÞAÐ eru margvísleg sjónarmið
sem danskir kjósendur vísa til í
þjóðaratkvæðagreiðslunni um
Amsterdam-sáttmálann. Þótt
sáttmálinn sé flókið mál að taka
afstöðu til kemur á óvíirt hve
kjósendur virðast hafa skýrar en
jafnframt ólíkar forsendur fyrir
afstöðu sinni. Þegar kjósendur
voru spurðir, nýkomnir úr kjör-
klefanum í Löngulínuskóla á
Austurbrú í Kaupmannahöfn,
vafðist það ekki fyrir neinum að
skýra af hverju þeir greiddu at-
kvæði eins og þeir gerðu. Þótt
skoðanakannanir hafi sýnt að
15-20 prósent kjósenda voru óá-
kveðin fram á síðustu stundu virt-
ust ekki margir óvissir í þeim
hópi, sem Morgunblaðið ræddi
við. Þeim bar þvert á móti öllum
saman um að það hefði verið auð-
velt að ákveða sig.
„Húrra fyrir þjóðríkinu“
„Nei, það var ekkert erfitt að
ákveða sig,“ segir Mogens Aa-
sted, kennari á miðjum aldri, ný-
kominn úr kjörklefanum. „Eg
hef verið andstæðingur frá upp-
hafi, var á móti aðildinni 1972 að
Evrópusamstarfinu þá, alltaf
kosið nei og líka núna.“ Astæðan
hefur alltaf verið sú sama.
„Húrra fyrir þjóðríkinu," segir
hann glaðbeittur. Hans nei er
vinstra-nei og hann er ekki
ánægður með að vera kominn í
slagtog við ysta hægrivænginn.
Umræðuna segir hann hafa borið
þess merki að efnið er þungt.
„Fólk sem hefur reynt að lesa
sáttmálann skilur ekki baun.“
Hann var trúaður á að sáttmál-
inn yrði samþykktur, en aðeins
naumlega.
Mæðgurnar Solveig og
Hansine Petersen áttu heldur
ekki í vandræðum með að ákveða
sig, því þær hafa einnig alltaf kos-
ið gegn Evrópusamstarfinu. „Það
er öldungis ekki á þetta að
treysta og sé ein grein samþykkt
þá kemur strax önnur á eftir. Ég
vil ekki láta njörva Dani niður á
þennan hátt,“ segir hin roskna
Hansine. Birte Brandenburg
sveiílar sér upp á hjólið sitt og
segist heldur ekki hafa átt erfitt
með að gera upp hug sinn. Hún
er listakona og í hennar huga
skipta umhverfismálin mestu,
auk þess sem hún kýs heldur
aukið norrænt samstarf en evr-
ópskt og því segir hún nei. Um-
ræðunni hefur hún ekki fylgst
mikið með, því hún hafði þegar
mótaðar skoðanir.
Danir vilja halda
sig fyrir sig
Lone Hilden er komin yfir
fimmtugt og segist hafa verið and-
stæð aðild Dana að Evrópusam-
starfinu 1972, en nú sé samstarfið
komið á og ekki þýði að hamla
gegn því. „Ég segi líka já til að
andæfa sjálfumgleði Dana, sem
vilja bara loka sig inni í eigin
landi, halda sér fyrir sig. Ég er
heimsborgari og þoli ekki þessa
afstöðu."
Carsten Holmstrup er á fer-
tugsaldri, vinnur sem aðstoðar-
maður á skóladagheimili og ætlar
í kennaranám í haust. „Ég segi já,
en alls ekki af því ég styðji stjóm-
ina,“ segir hann. Hann gat í fyrsta
skipti kosið í Evrópukosningunum
1986 og sagði þá já, eins og æ síð-
an. „Allir vinir mínir eru jafnaðar-
menn og þeir segja nei allir sem
einn.“ Af þeim aðspurðu er
Holmstrup sá eini, sem trúir á að
samningurinn verði felldur. „Það
mun standa mjög á jöfnu, en ég
held samt að hann nái ekki í
gegn.“
Austurbrú er norður af mið-
bænum, nær frá vötnunum og út
að Hellerup. Hverfið er dæmigert
miðstéttarhverfi, þar sem margar
barnafjölskyldur hafa sest að und-
anfarin ár, en þar býr einnig tölu-
vert af eldra fólki. I þremur und-
anfömum þjóðaratkvæðagreiðsl-
um um Evrópusamstarfið hefur
hlutfall andstæðinga í Kaup-
mannahöfn verið á bilinu 55-64
prósent. Það eru því aðrir lands-
hlutar en höfuðborgin, einkum
Suður-Jótland, sem hafa haldið
Dönum við Evrópuefnið.
Samið á síðustu stundu
Ósló. Reuters.
HLUTI norskra kennara og
sjúkraliða hóf verfall í gærmorgun
en gengið var frá samningum við
flest önnur félög opinberra starfs-
manna í fyrrinótt.
Um 5.000 kennarar í félagi há-
skólamanna og 4.000 sjúkraliðar
sættu sig ekki við þá samninga, sem
tókust að lokum við flest félögin, en
Reidar Webster ríkissáttasemjEiri
segir, að þeir hafi til jEifnaðar kveðið
á um 6% kauphækkun. Er það meiri
hækkun en yfirleitt hefur verið
samið um á síðustu árum.
Norska ríkisstjórnin miðaði við
það í fjárlögunum, að kauphækk-
anir á árinu færu ekki yfir 3,5% en
í endurskoðaðri fjárlagaáætlun nú í
þessum mánuði er sú tala komin í
5%. Lagði stjórnin á það ríka
áherslu, að launþegar stilltu kröf-
um sínum í hóf vegna þess, að
hætta væri á, að upp úr syði í efna-
hagslífinu.
Christer Pettersson ekki ákærður
aftur fyrir morðið á Olof Palme
Hæstiréttur tel-
ur nýjar vísbend
ingar ónógar
Stokkliólmi. Reuters.
HÆSTIRETTUR Svíþjóðar hafnaði
því í gær, að mál Christers Petters-
sons yrði tekið upp aftur en hann vai’
á sínum tíma dæmdur og síðan sýkn-
aður af morðinu á Olof Palme, for-
sætisráðherra Svíþjóðar, í febrúar
1986.
I úrskurði réttarins segir, að þær
nýju vísbendingar, sem saksóknarar
hafi lagt fram, nægi ekki til að
ákæra Pettersson aftur. Þær eru, að
um kvöldið er Palme veit myrtur í
miðborg Stokkhólms hafi sést til
Pettersons í sömu götunni en hann
hélt því fram, að hann hefði verið
heima hjá sér.
Dómararnir benda á, að meira en
12 ár séu liðin frá því Palme var
myrtur og í því ljósi verði að líta
vitnisburð þeirra, sem nú segjast
hafa séð Pettersson í miðborginni 28.
febrúar 1986. Minna þeir líka á, að
þeim, sem gætu hjálpað við að leysa
málið, hafi verið heitið nærri 500
milljónum ísl. kr. og einmitt þess
vegna verði að sýna sérstaka að-
gæslu við mat á upplýsingum.
Pettersson enn inni
í myndinni
Pettersson, áfengis- og fíkniefna-
neytandi og margdæmdur þjófur,
sem að auki hefur verið dæmdur fyr-
ir að myrða mann með byssusting,
fagnaði niðurstöðu hæstaréttar og
sagði, að nú gæti hann loksins um
frjálst höfuð strokið, „farið í sund og
gert það, sem mér líkar“.
Magnus Nordangard, talsmaður
saksóknaraembættisins, sagði er úr-
skurður hæstaréttar lá fyrir, að
haldið yrði áfram að rannsaka málið
í von um fleiri vísbendingar og Pett-
ersson væri enn inni í myndinni.
Vitað er, að einn maður var að
verki er Palme var skotinn er hann
var að koma af kvikmyndahúsi
ásamt Lisbet, konu sinni. I maí 1986
var Pettersson yfirheyrður en sleppt
að því loknu en í desember 1988 var
hann handtekinn og þá benti Lisbet
á hann við sakbendingu.
Engar beinar sannanir
í júlí 1989 fann héraðsdómur í
Stokkhólmi Pettersson sekan um
morð og dæmdi hann í ævilangt fang-
elsi en áfrýjunarréttur sýknaði hann
í nóvember sama ár vegna skorts á
sönnunum. Engar tæknilegar sann-
anir voru fyrir hendi, morðvopnið
hefur ekki fundist og rétturinn taldi,
að Lisbet kynni að hafa skjátlast er
hún benti á Pett-
ersson. Voru hon-
um dæmdar
þrjár milljónir ísl.
kr. í skaðabætur.
í desember
1995 sagði næt-
urklúbbseigand-
inn Sigge Ce-
dergren, að hann
Christcr hefði látið Pett-
Pettersson ergson fó Magn.
um-skammbyssu á svipuðum tíma og
Palme var myrtur. Cedergren lést
skömmu síðar.
Saga Sprengjumannsins
í mars 1997 sagði lögfræðingurinn
Pelle Svensson frá því, að skjólstæð-
ingur sinn, Lars Tingström,
Sprengjumaðurinn svokallaði, hefði
játað á banabeði, að hann hefði með-
an hann var enn í fangelsi lagt á ráðin
um að myrða Palme til að hefna sín á
þjóðfélaginu. Sagði hann, að Petters-
son hefði verið einn af fjórum mönn-
um í þessu samsæri. Hafa ýmsir orðið
til að draga þessa frásögn í efa.
í desember sl. fóru saksóknarar
fram á, að Pettersson yrði ákærður
aftur og studdu það nýjum vitnis-
burði um, að Pettersson hafi verið á
sömu slóðum og Palme kvöldið ör-
lagaríka. Því hefur nú verið hafnað.
-------»♦■».....
Nýfundnaland
Þorskkvót-
inn aukinn
AKVEÐIÐ hefur verið að tvöfalda
þorskkvótann við suðurströnd
Nýfundnalands og verður hann
20.000 tonn á þessari vertíð. Kemur
þetta fram í kanadíska dagblaðinu
The Globe and Mail.
Mjög hart hefur verið lagt að al-
ríkisstjórninni í Kanada að auka
þorskkvótann og David Anderson
sjávarútvegsráðherra segir, að farið
hafi verið eftir ráðleggingum fiski-
fræðinga við þessa ákvörðun.
Við Nýfundnaland eru tveir þorsk-
stofnar, suður- og norðurstofn, og
það var norðurstofninn, sem stóð að-
allega undir veiðinni á árum áður.
Hann virðist alveg vera hruninn og
þess sjást lítil sem engin merki, að
hann sé að rétta við.
ESB-ríki semja um gagnkvæma viðurkenn-
ingu á dómum í fjölskyldumálum
Skref í átt að sam-
ræmdu réttarsvæði
Brussel. Reuters.
DÓMS- og innanríkisráðherrar Evr-
ópusambandsins (ESB) skrifuðu í
gær undir samning sem á að tryggja
meðal annars að hjónaskilnaðir, sem
gerðir eru í einu aðildarlandi sam-
bandsins, séu viðurkenndir í öllum
hinum. Vonir eru bundnar við að
þessi samningur leysi mörg flókin
barnsforræðismál, þar sem foreldr-
amir hafa hvor sitt ríkisfangið.
Samkvæmt hinum svokallaða
Brussel Il-samningi verða öll ESB-
löndin 15 skuldbundin til að viður-
kenna dómsúrskurði hvers annars
um fjölskyldumál á borð við skilnaði,
ógildingu giftinga og barnsforræðis-
mál.
Staðfesting þessa samnings er tal-
in vera stærsta skrefið í þá átt að
EVRÓPA^
koma á fót sameiginlegu réttarsvæði
í ESB frá því Maastricht-sáttmálinn
var undirritaður 1992.
„Áður gaztu verið giftur í einu
landi en fráskilinn í öðru. Nú verður
komið reglu á þetta,“ tjáði Anita
Gradin fréttamönnum að lokinni
undirritun samningsins í Brussel, en
hún fer með dóms- og innanríkismál
í framkvæmdastjórn ESB.