Morgunblaðið - 29.05.1998, Blaðsíða 26
26 FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Eðal-
dans
LISTPANS
Burgarlcikhúsið
NEDERLANDS DANS THEATER
II OG III.
Fimmtudagfurinn 28. maí 1998.
EINN stærsti listviðburður lista-
hátíðar þetta árið er án efa heim-
sókn Nederlands Dans theater II
og III. Flokkurinn var stofnaður ár-
ið 1959 af hópi listamanna sem klu-
fu sig úr Het Nederlands Ballet.
Astæða þess var listrænn ágrein-
ingur en þessi nýstofnaði dansflokk-
ur vildi feta nýjar leiðir og brúa bil-
ið milli hefðbundins balletts og nú-
tímadans. Jirí Kylián hefiu- verið
listrænn stjómandi flokksins síða-
sliðin 20 ár og hefur flokkurinn að-
setur í borginni Haag í Hollandi.
NDT er skipt í þrjá hópa eftir aldri
dansara og eru það II og III sem
sækja okkur heim að þessu sinni.
Yngri hópurinn NDT II er stofnað-
ur 1978. Hann samanstendur af 14
dönsurum á aldrinum 17 til 22 ára.
NDT III er hins vegar stofnaður
1991 og eru í honum afburða dans-
arar sem allir eru yfir fertugt.
TJn ballo (NDTII). Danshöfundur:
Jirí Kyián. Tónlist: Maurice Ravel.
Fyrsta dansverk á dagskrá var „Un
ballo“ eftir Jirí Kylián. Það er dans-
LISTIR
ur fái að gert. Ald-
ur dansaranna átti
vel við efnið. Verk-
ið er skondið og til-
finningaþrungið í
bland. I því eru
áhrif tíma og hraða
á manneskjuna
sýnd á snjallan
hátt. Dansararnir
voru samstilltir og
svipsterkir eins og
verkið sjálft.
Mellantid (NDT II).
Danshöfundur: Jo-
han Inger. Tdnlist:
John Lurie, Henryk
Mikolaj Gorecki,
Robert Moran, Ga-
vin Bryars o.fl.
„Mellantid" var
síðasta verkið á
dagskrá. Hér
komu yngri dans-
ararnir aftur við
sögu. Þetta verk er
Morgunblaðicl/Halldór
ÚR UN Ballo (NDTII) eftir Jirí Kylián á sýningu Nederlands Dans Theater II og III í Borgarleikhúsinu í gærkvöld.
að af sex pörum sem tilheyra yngri
dönsurum NDT. Kerti hanga í loft-
inu og dauf lýsing gefur verkinu
kyrrð og rómantískan blæ. Dans-
gerðin hefur yfirbragð klassísks
balletts enda varla annað hægt þeg-
ar samið er við ljúfa tóna Maurice
Ravel. Bogin hné, olnbogar og
snöggar höfuðhreyfingar sem
minntu á höggmyndir eru einkenn-
andi fyrir dansstíl verksins. Dans-
ararnir eru vel þjálfaðir og var
verkið afar vel dansað. Það er ein-
falt, ljóðrænt en jafnframt dálítið
gamaldags í bland.
The Old Man and Me (NDT HI).
Danshöfundur: Hans Van Manen.
Tónlist J.J. Cale, Igor Stravinsky,
Wolfgang Amadeus Mozart.
„The Old Man and Me“ er dansað af
elstu dönsurum NDT. Verkið er
dans tveggja dansara, karls og
konu, og fjallar að um samskipti
þeirra á milli. Virðuleiki og fágun
einkennir þetta dansverk. Það hefur
yfir sér rólegt yfirbragð þar sem
minningar persónanna eru sýndar
með því að slökkva og kveikja á
ljósum á víxl svo til verða myndbrot
af eftirminnilegum augnablikum
þeirra.
Compass (NDT III). Danshöfundur:
Jirí Kylián. Tónlist: Karlheinz
Stockhausen.
Þriðja verk kvöldsins „Compass"
hefst á fíngerðum handa- og höfuð-
hreyfingum fjögurra dansara sem
sitja á stólum sem stillt er upp í
hring. Risastór pendúll snýst yfir
höfði þeirra við klukknatif og bjöllu-
hljóm. Dansararnir túlka tímann
sem líður taktfast án þess að nokk-
ungt, ferskt og
spennandi, allt í
senn. Diskókúla
birtist fyrir ofan
sviðið og ýktur diskódans er stiginn.
Rauðar rósir falla af himnum ofan
og dansari reynir að fljúga. Verk
þetta er hlaðið skemmtilegum hug-
myndum, kímni og geislar af lffs-
gleði.
Það er óhætt að mæla með þess-
um danskokkteil. Hér finna allir
eitthvað við sitt hæfi. Verkin fjögur
spanna breitt svið hvað varðar hug-
myndir og stíl. Nú fer hver að verða
síðastur að næla sér í miða á seinni
sýninguna sem er í kvöld, 29. maí.
Þetta er gæs sem vert er að grípa.
Lilja Ivarsdóttir
SUMARSPRENGJA
íþróttagallar á ótrúlegu verði.
Glansefni og bómullarfóðraðir
- 4 litir.
Nr. 2 -14 aðeins 2.990.
Nr. S - XXXL aðeins 3.990.
SPORTVÖRUVERSLUNIN
SPARTA
Laugavegl 49 -101 Reykiavlk ■ sfml 551 2024
Nýkomnar
útskriftarskólatöskur,
skjalatöskur,
flugstjóratöskur,
innkaupatöskur á hjólum
ferðatöskur og
innanklæðaveski.
Gott verð
15% afsláttur
af seðlaveskjum
f maí
LEÐURVÖRUVERSLUN
LAUGAVEGI 58, SÍMI 551 3311