Morgunblaðið - 29.05.1998, Page 28
28 FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
„Hlið sunnan-
vindsins“
MYNDLIST
Listaliátfð
lláðhús Reykjavfkur
MYNDVERK FRÁ MÓSAMBIK
MALANGATANA,
CHISSANO, MUCAVELE
Opið alla daga á tíma Ráðhússins.
Til 7. júní. Aðgangur ókeypis.
EIN af forvitnilegri framkvæmd-
um á listahátíð er kynning þriggja
myndlistarmanna frá Mósambik í
sýningaþró og almenningi Ráðhúss-
ins.
Rýmið er mikið hrátt og opið
gímald, og erfitt að koma sýningum
við í því hálfu hvað þá öllu saman-
lögðu, nema þá helst innsetningum
og sviðsmyndum eins og dæmin
sanna. Og þótt heildarsvipurinn sé
allur annar eftir nokkra andlitslyft-
ingu, skortir enn á þann hlýleika og
nálgun sem er svo nauðsynleg í allri
þeirri grámósku sem einkennir
bygginguna og fáir aðrir en arki-
tektar og innvígðir eru uppnumdir
af. Vankantarnir sem enn eru fyrir
hendi gera það eðlilega að verkum,
að mun erfiðara en ella er að komast
í samband við myndverkin sem
njóta sín mörg hver engan veginn.
Aukinheldur er lýsingn brotin og á
köflum beinlínis slæm, að ekki sé
minnst á er sólarblettir dreifa sér
um endiiangan gólfflötinn, sem við-
bótarinnlegg frá himnafestingunni.
Listamennirnir þrír, sem allir
hafa litla formlega menntun, eru
sagðir hafa verið í framvarðasveit
neðanjarðarhreyfingar listamanna í
Mósambík sem börðust fyrir sjálf-
stæði þjóðar sinnar á sjötta og sjö-
unda áratugnum. Einnegin fulltrúar
þeirra sem telja menninguna rétti-
lega hafa verið eitt öflugasta vopnið
í frelsisstríðinu, það er hún alltaf í
einhverju formi. Pað er Þróunar-
samvinnustofnun íslands, sem
stendur að sýningunni og sýnir hér
mikilsvert framtak, en hins vegar er
alls ekki gott að átta sig á því hve
skilvirkt sýnishorn afrískrar listar
um er að ræða, né hver séu hin sér-
stöku einkenni Mósambískrar listar.
Til þess er almennt upp-
lýsingastreymi um
framvinduna á þessari
öld fulllítið, eiginlega
ekkert utan verkanna
sjálfra, sem telst slakt.
Hins vegar má sjá mikið
úrval afrískrar listar
fyrri tímaskeiða og fram
á þessa öld á mannfræði
og þjóðháttasöfnum víða
um heim og þá ekki síst
Musée de 11 Homme í
París, þar sem skrifari
hefur verið tíður gestur
í áranna rás. Þá vekur
það tortryggni þegar
viðhöfð eru yfirmáta
stór orð um einstaka
þátttakendur í sambandi
við slíkar og á þennan
hátt meingallaðar fram-
kvæmdir, sem fá þá
helst svip af afmarkaðri
og vafasamri markaðs-
setningu, því þær eiga
að geta sannað sig án
þeirra. Þá er þetta ekki
fyrsta sýningin frá Af-
ríku sem gistir Island, eins og haldið
er á lofti, minni hér aðeins á högg-
myndasýningu sem kaupsýslumað-
urinn Gylfi Guðmundsson og kona
hans stóðu fyrir á Kjarvalsstöðum
um árið. Kunnugleg stílbrot úr fortíð
og nútíð eru nefnilega merkjanleg í
verkum allra þessara hstamanna,
sem eru að visu í eðli sínu frumstæð,
en svipað vinnuferli og t.d. hjá Va-
lente Malangatana (f. 1936) þekkir
maður frá verkum hámenntaðra og
heimsþekktra bóga Parísarskólans,
svo sem Roberto Echaurren Matta
(1911-) sem er frá Santiago de Chile
og jafnaldra hans Wilfredo Lam frá
Sagua la Grande, Kúbu (1911-1982).
það segir okkur að menn ausa af
keimlíkri uppsprettu í Afríku og
Suður Ameríku, en tilbrigðin eru
óendanleg. Myndir Matta og Lam
byggja á fomum sagna- og tákn-
heimi er fjallar um árekstra alheims
og jarðneskra gilda, ófreski og duld-
um, ásamt ástríðuþrunginni tog-
streitu við nútímann og eyðileggingj
una sem þeim hremmingum fylgir. í
framhjáhlaupi má nefna að í öðru
formi má rekja skyldleika við þá í
hinum stóru flekum Errós, sem sótti
sitthvað í smiðju þeirra á sínum
tima. Þá skerá myndir Alberto
Chissano (f. 1935) sig lítið úr því
sem maður hefur áður séð og er víða
söluvarningur á listamarkaði í vestr-
inu. Blíðar og þokkafullar myndir
Esteavo Mucavele (f. 1941) leiða
loks hugann að ýmsum nævistum
vestursins, og hvað að okkur snýr,
Isleifi Konráðsyni.
Skyldleikinn við Lam og Matta og
raunar marga fleiri kemur greini-
lega fram í málverkum Ma-
langatana, sem hvorki skortir duldir
né ástþrungnar vísanir. Nokkrar
myndir vöktu öðru fremur athygli,
svo sem rauða myndin, Kona sem
horfir í spegil en sér ekki sjálfa sig -
Vandamál stríðsins við Renamó
(1993-94), eiturgræna myndin Söng-
ur endurkomunnar 1993-94, Sólin á
bak við tunglið, 1993 og Veggmynd,
1994, allar málaðar í akryl á striga.
Malangatana er sagður frægastur
þremenningana og hefur sýnt verk
sín víða um heim, að auk eins konar
menningarsendiherra lands síns og
ekki einhamur í listum, dansar,
ESTEAVO Mucavele, Sólin yfir Indlandshafí, 1998, olía á striga.
ALBERTO Ciasso, Albínói og
veikindi, 1993, tré.
syngur, leikur á hljóðfæri og hefur
samið skáldverk. Málverk Estevao
Mucavele eins og æpa á innileika og
nálgun sem ekki er fyrir hendi á
staðnum og vegna lýsingarinnar er
erfitt að gera upp á milli þeirra, en
myndirnar Tunglið yfir Indlandshafi
(1998) og Klettafjöll (1997) báðar ol-
ía á striga eru sérlega hugþekkar.
Skúlptúrar Aiberto Chissano njóta
sín margir hverjir afspyrnu illa á
gólfi og stöllum og helst kemst mað-
ur í samband við hinar frumlegu lág-
myndir, Gríma, (1989) sem er gerð í
afgangshlut úr málmi og Albínói og
veikindi, (1993), unnin í tré. LítO-
mótlegur fjórblöðungur er það eina
sem gesturinn fær upp í hendurnar
og í sundurlausu ritmálinu eru
ósannfærandi upplýsingar. Hvernig
getur til að mynda Chissano verið
„trúlega þekktasti listamaður Mó-
sambik", en Malangatana heims-
frægasti? Einmitt þessvegna og að
stranglega er bannað að taka ljós-
myndir á staðnum, í fyrstu jafnvel
til birtingar í stærsta dagblaði
landsins, gerir það að verkum að
rýnirinn komst í vamarstöðu. Þegar
verið er að kynna þjóðargersemar
er hann vanastur því að gangurinn
sé annar.
Afríka er víðfeðm heimsálfa, þjóð-
ir hennar margar og allar fullyrð-
ingar um mesta málara álfunnar eru
stór orð að standa við. Það sem ég
veit helst er að í hinni eiginlegu
Austur-Afríku, það er að segja suð-
urhluta Tansamu og norðurhluta
Mósambik hefur þróast sérstæð og
merkileg grímu- og fígúrulist, er
tengist nafninu Makonde, og víð-
þekkt hefur orðið, á seinni tímum,
einnig fyrir fjöldaframleiðslu fyrir
túrista, sér í lagi svonefnt seithani
(=djöfull) úr íbenviði, á ýmsa vegu
hlutlægt mótaður og smekklaus
söluvarningur.
Eftir nokkrar heimsóknir á sýn-
inguna og rannsóknir í uppsláttar-
bókum um myndlist álfunnar, er það
helst trúa mín að enn hafi ekki ratað
hingað uppranalegt og safaríkt úr-
val Mósabískrar né Afrískrar listar í
fortíð og nútíð. En þakka ber þetta
sýnishorn með virktum.
Bragi Asgeirsson
í blaðaukanum Húsinu og garðinum verður að finna /msan fróðleik um viðhald húsa
og garðrækt en nú fer í hönd mikill annatími hus- og garðeigenda.
</>
Z
u.
UJ
-I
<
Q
LU
Z
• Viðhald húsa
• Fjármögnun á endurbótum húsa
• Sumarbústaðir
• Heitir pottar
• Dúkkukofar og leiktæki
• Gróðurhús
Þakefni og málning
Lýsing við hús og í görðum
Sólpallar og skjólgirðingar
Hellulagnir
Blóm, tré og annar garðagróður
O.fl.
Skilafrestur auglýsingapantana er til
kl. 12 þriðjudaginn 2. júní
Allar nánari upplýsingar veita sölu- og
þjónustufulltrúar á söludeild sérauglýsinga í síma 569 1139.
fRðrgratMitfrtö
AUGLÝSINGADEILD
Sími: 569 1111 • Bréfasími: 569 1110 • Netfang: augl@mbl.is