Morgunblaðið - 29.05.1998, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 1998
MARGRÉT
ÁGÚSTSDÓTTIR
+ Margrét
Ágústsdóttir
fæddist í Vest-
mannaeyjum 1. júní
1914. Hún iést á
Landakotsspítala
20. maí síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Ágúst Árna-
son, smiður og
kennari í Vest-
manneyjum, f. 18.
ágúst 1871 í Mið-
mörk undir Eyja-
fjöllum, d. 2. aprfl
1957, og Ólöf Ólafs-
dóttir, húsmóðir, f.
28. október 1884 í Hlíðarenda-
koti í Fljótshlíð, d. 21. júlí 1963.
Systur Margrétar eru: Guðrún,
f. 21. júlí 1907, Sig-
ríður, f. 13. október
1910, og Lóa, f. 13.
október 1920. Upp-
eldissystkinin voru
tvö, en foreldrar
Margrétar ólu upp
Þuríði Vigfúsdóttur
frá átta ára aldri og
einnig Óskar, f. 13.
febrúar 1926, son
hennar og Guðjóns
Úlfarssonar.
Margrét var ógift
og varð ekki barna
auðið.
títför Margrétar
fór fram í kyrrþey að hennar
eigin ósk 27. maí.
Með örfáum orðum viljum við
minnast móðursystur okkar Mar-
grétar Ágústsdóttur eða Grétu
frænku sem nú er horfin úr þessu
jarðlífí eftir erfið veikindi. Gréta
fæddist og ólst upp í Baldurshaga í
Vestmannaeyjum. Foreldrar hennar
voru Ólöf Ólafsdóttir og Ágúst Árna-
son, sem var fjölhæfur smiður og síð-
ar kennari við Bamaskólann í Vest-
mannaeyjum um 30 ára skeið. Ágúst
gegndi fjölda trúnaðarstarfa í Vest-
mannaeyjum auk þess sem aðalá-
hugamál hans voru bókmenntir. Við
þessar aðstæður ólst hún upp með
systrunum þrem og tveimur uppeld-
issystkinum. Gréta stundaði hefð-
bundna skólagöngu og fór meðal
annars til náms að Laugarvatni í tvo
vetur. Hún minntist tímans á Laug-
arvatni með miklum hlýhug. Síðan
vann hún hjá Landssímanum í Vest-
mannaeyjum þar til hún fluttist til
Reykjavíkur þar sem hún starfaði
um tíma hjá KRON á Skólavörðu-
stíg. Árið 1953 hóf hún störf hjá
Landssímanum í Reykjavík þar sem
hún vann við símagæslu í meira en
30 ár eða þar til hún lét af starfi
vegna aldurs.
Gréta giftist aldrei en hélt heimili
með foreldrum sínum meðan þau
lifðu, fyrst í Vestmannaeyjum og síð-
ar í Reykjavík. í mörg ár bjuggu
systurnar Gréta og Sigríður móðir
okkar við Háteigsveginn og var þá
samgangur milli þeirra mikill enda
voru þær alla tíð miklar vinkonur og
studdu hvor aðra í gleði og sorg. Það
leið varla sá dagur að þær töluðu
ekki saman og vitum við að Grétu
var mikill styrkur að móður okkar í
veikindum sínum. Eins voru sterk
tengsl milli allra systranna og hittust
þær að jafnaði vikulega í kaffi eða
mat meðan heilsa þeirra leyfði. Við
systurnar nutum ástar og umhyggju
Grétu sem tók af áhuga þátt í lífi
MINNINGAR
okkar, svo og barna okkar þegar þau
uxu úr grasi.
Hún var einstaklega barngóð,
fylgdist með öllum systrabörnunum
og fjölskyldum þeirra af einlægum
áhuga og það veitti henni mikla gleði
þegar vel gekk. Minnisstæðar eru
einstaklega fallegar gjafir, sem
ávallt voru gefnar af miklum hlýhug
enda hafði hún í raun meiri áhuga á
að gefa en þiggja.
Gréta var miklum mannkostum
búin. Hún mátti ekki vamm sitt vita,
var sérstaklega orðvör, trygglynd og
mikill vinur vina sinna. Hún lifði
fremur einfóldu lífi, en hafði yndi af
ferðalögum og ferðaðist víða bæði
heima og erlendis. Var hún þá jafnan
í góðra vina hópi enda varla hægt að
hugsa sér traustari ferðafélaga.
Síðustu ár ævi sinnar bjó Gréta í
fallegri íbúð eldri borgara við Lind-
argötu í Reykjavík. Því miður entist
henni ekki heilsa til að njóta ævi-
kvöldsins þar, því stuttu eftir að hún
fluttist þangað fór að halla undan
fæti. Þar tókst henni þó að halda
heimili í anda sinnar kynslóðar sem
kaus að halda sjálfstæði sínu í
lengstu lög.
Með þessum orðum kveðjum við
ástkæra frænku okkar en við trúum
því að Gréta sé hjá frelsara þessa
heims því í Biblíunni segir Jesús:
„Hver sem trúir á mig mun lifa þótt
hann deyi.“
Ólöf E. Óladóttir,
Sigrún F. Óladóttir.
Minningarnar streyma fram nú
þegar komið er að þvi að kveðja
Grétu móðursystur mína. Ég hugsa
til bernsku minnar og sé fyrir mér
ömmu mína, afa og Grétu, samofin
þrenning. Hún bjó hjá þeim alla tíð
og annaðist þau þar til yfir lauk.
Hún hafði unun af ferðalögum,
ferðaðist mikið bæði innan lands og
utan og var ætíð tilhlökkunarefni að
heyra ferðasöguna því hún hafði
þann eiginleika að segja svo
skemmtilega frá.
Samviskusemi, heiðarleiki, þessar
dyggðh- prýddu svo sannarlega
Grétu, stundum fannst mér nóg um
en allt skyldi standa eins og stafur á
bók. Hún var bæði greind og
skemmtileg og frábær gestgjafi,
fylgdist alltaf vel með öllum þjóðmál-
um alla tíð.
Gréta hafði gaman af garðrækt og
bar garðurinn á Háteigsveginum
þess vel vitni. Gat hún gleymt sér
tímunum saman við vinnu sína þar.
Við systrabörnin hennar Grétu
vorum börnin hennar og nutum við
þess og síðan ekki síður okkar böm
og barnabörn. Nú að leiðarlokum vil
ég þakka fyrir hönd systkina minna
og afkomenda okkar allra þá ást,
tryggð og umhyggju sem hún sýndi
okkur alla ævi.
Elsku Gréta mín, far þú í friði.
Þei, þei og ró.
Þögn breiðist yfir allt.
Hniginn er sól í sjó.
Sofþúiblíðriró.
Við höfum vakað nóg.
Værðar þú njóta skalt.
Þei, þei og ró.
Þögnbreiðistyfirallt.
(Jóhann Jónsson.)
Ólöf Ágústa Karlsdóttir.
Margrét Ágústsdóttir, ömmusyst-
ir mín, er nú látin. Margrét eða
Gréta eins og við kölluðum hana var
búin að vera veik í nokkum tíma en
það var ekki fyrr en undir það síð-
asta að maður gerði sér grein fyrir
hversu alvarleg veikindi hennar
vom.
Gréta eignaðist engin börn en hún
var okkur, yngstu kynslóðinni í fjöl-
skyldunni, sem amma. Hún fylgdist
með okkur vaxa og dafna og gladdist
með okkur þegar vel gekk. Hún gaf
okkur alltaf svo fallegar gjafii- og
maður vissi að á bak við hverja gjöf
var einlæg velvild í okkar garð.
Gréta hugsaði alltaf fyrst og
fremst um aðra og vildi helst ekki
þiggja neitt frá neinum. Það mátti
alls ekki eyða peningunum í hana og
Gréta keypti sér aldrei óþarfan hlut.
En hún var alltaf mjög hrifin af fal^
legum hlutum og mat það mikils
þegar maður sýndi henni nýja kápu
eða kjól sem maður hafði fengið.
Síðast þegar ég heimsótti Grétu,
sýndi ég henni stúdentadragtina
mína og þá sá ég gamla glampann í
veiku augunum hennar hinsta sinni.
Gréta mun ekki sitja við borð í út-
skriftarveislunni minni en ég veit að
hún mun vera með okkur öllum í
anda.
Sá sem eftir lifir
deyr þeim sem deyr
en hinn dáni lifir
í hjarta og minni
manna er hans sakna.
Þeir eru himnamir
honum yfír.
(Hannes Pét.)
Elsku Gréta, með söknuð í hjarta
kveð ég þig. Þakka þér fyrir allt sem
þú gafst mér. Blessuð sé minning
þín.
Sigríður Sunna Aradóttir.
Elsku Gréta, við kveðjum þig með
söknuði en geymum minninguna um
allar góðu stundirnar. Ekki hvarflaði
að okkur um síðustu jól er þú komst
til okkar eins og öll önnur jól að það
væru þín síðustu hér hjá okkur. Nú^
ertu komin á friðsælan og góðan stað
þar sem þér líður vel eftir öll veik-
indin sem þú hefur þurft að kljást
við.
Kallið er komið,
komin er stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefúr hér hinn síðsta blund.
(V. Briem.)
Hvíl þú í friði.
Huida og Tinna Ósk.
+ Sigurbjörg Sig-
urbjörnsdóttir
fæddist á Geitagili í
Orlygshöfn 1. janú-
ar 1919. Hún lést á
Hrafnistu 13. aprfl
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
hjónin Ólafía Magn-
úsdóttir frá Hnjóti í
Örlygshöfn og Sig-
urbjörn Guðjónsson
frá Geitagili, en þau
bjuggu síðar lengi í
Hænuvík við Pat-
reksfjörð. Alls voru
börn þeirra lijóna
10. Eftirlifandi systkini Sigur-
bjargar eru Aðalheiður Una,
húsmóðir í Reykjavík, Guðjón
Björgvin, fv. bóndi og oddviti í
Tálknafirði, og Valtýr Agnar,
Með Sigurbjörgu Sigurbjörnsdótt-
ur frá Hænuvík er horfin ein af þeim
fjölmörgu sem í hógværð og hlé-
drægni þjónaði öðrum alla ævi, en
mátti í staðinn oft lúta að litlu, enda
engar sérstakar kröfur gerðar til
frægðar eða frama.
Hún Ninna frænka, eins og hún
var jafnan nefnd af ættingjum, ólst
upp í allstórum systkinahópi hjá for-
eldrum sínum, Ólafíu Magnúsdóttur
og Sigurbirni Guðjónssyni sem
lengst af bjuggu í Hænuvík við Pat-
reksfjörð. Hjá þeim lærði hún ráð-
deild, heiðarleika og samviskusemi
og lagði rækt við sína meðfæddu
hæfileika, hagleik og tónlistargáfu.
Veganestið sem hún fékk úr fóður-
garði var því vandað og entist vel á
lífsins grýttu brautum.
Á ungum aldri var Ninna heit-
bundin sveitunga sínum, Sigurjóni
Ingvarssyni írá Geitagili og lífið virt-
ist blasa við. En þetta var á stríðsár-
unum og Ninna fékk að kenna á því
brjálæði sem þá réð ríkjum í hinum
vestræna heimi. Hinn 24. ágúst 1942
var gerð loftárás á togarann Vörð
sem Sigurjón hafði ráðið sig á. Skot
fyrst bóndi í Hænu-
vík, síðar verka-
maður í Tálkna-
firði, síðast í
Reykjavík. Látin
eru Ester, húsmóðir
á Minni-Borg í
Grímsnesi, Bjarni,
lengst af bóndi og
ýtusljóri í Hænuvík,
auk fjögurra sem
létust í æsku, þeirra
Búa; Huldu, Gyðu
og Ástu.
Sigurbjörg eign-
aðist eina dóttur
barna, Ólafíu Sig-
rúnu Helgadóttur. Faðir hennar
var Helgi Elíasson, bóndi á
Hvallátrum.
Sigurbjörg var borin til graf-
ar í kyrrþey 22. aprfl.
hæfði Sigurjón um leið og hann ætl-
aði að forða sér undan hinum vængj-
aða óvini og varð lífi hans ekki bjarg-
að. Þau Ninna höfðu ráðgert hjóna-
band sitt að lokinni þessari sjóferð
og er erfitt að gera sér í hugarlund
þau áhrif sem slík lífsreynsla hefur
haft á unga, ástfangna og trygglynda
snót. Þeim sem þetta ritar var gefið
nafn hins látna unnusta og er mér
því ekki óskylt að minnast þessarar
frænku minnar, þó ekki sé nema fá-
um og fátæklegum orðum.
Eftir lát Sigurjóns dvaldi Ninna
áfram í nokkur ár hjá foreldrum sín-
um í Hænuvík, en þegar unglinga-
heimili var stofnað í Breiðuvík í
sömu sveit réðst hún þangað til al-
mennra þjónustustai-fa innanhúss.
Úr sveitinni sinni flutti hún alfarin
árið 1959. Réðst hún fyrst til starfa
sem ráðskona í sveit á Suðurlandi
stuttan tíma, síðar vann hún um
skeið á Bessastaðabúinu á Álftanesi
og nokkur ár á Vistheimilinu í Skála-
túni í Mosfellssveit. Á þessum árum
festi hún kaup á lítilli íbúð í Ljós-
heimum 20 í Reykjavík og flutti í
hana og starfaði eftir það í Þvotta-
húsinu Fönn.
Um það leyti sem hún flutti úr
heimasveit skaust lítill sólargeisli inn
í líf Ninnu. Hún eignaðist þá dóttur,
Ólafíu Sigrúnu Helgadóttur. Við
þetta fékk hún þá hæpnu stöðu í
þjóðfélaginu að verða einstæð móðir,
en Ninna átti næga ást og umhyggju
til að ala dótturina úr grasi, og er
Ólafía Sigrún nú gift margra barna
móðir í Reykjavík.
Vinnudagurinn var oft langur hjá
Ninnu, enda var henni ekki gefið um
að sitja auðum höndum. Útsaumur
og hekl var hennar íþrótt og voru
hannyrðir hennar ekkert til að
skammast sín fyrir. Vonandi verður
að minnsta kosti sýnishorn af handa-
vinnu hennar varðveitt handa kom-
andi kynslóðum og gjarna mætti þá
merkja það höfundinum með
nokkrum sannleikskornum um upp-
runa hans og æviferil.
Af framansögðu mætti sjálfsagt
álykta að þessi frænka mín hafi ver-
ið dagfarslega heldur döpur í
bragði, fámál og ómannblendin. Því
var þó hreint ekki þannig varið.
Þrátt fyrir að hamingja hennar hafi
stundum verið hverful, heilsan ekki
alltaf upp á það besta og vinnuálag-
ið mikið, var viðmótið glaðlegt, sam-
bandið við ættingjana var vel rækt-
að og alltaf naut hún sín vel í vina-
hóp. Að taka lagið við hátíðleg tæki-
færi var henni mikil ánægja. Það
eru því bjartar minningar sem lifa
um þessa ágætu frænku mína, leið-
indin þrifust ekki á návist hennar.
Á síðasta vetrardag var hún svo
kvödd hinstu kveðju eftir erfið veik-
indi síðustu árin. Að deyja inn í vorið
vai-ð hennar hlutskipti og á meðan
við efth'lifandi jarðarbúar hlökkum
til sumarsins flýj- Ninna á vit hinna
hlýju geima handan þessarar tilveru.
Megi um síðir sannast á henni orð
frelsarans: „Sælir eru hógværir því
að þeir munu landið erfa.“
Fyrh' hönd frændfólksins færi ég
henni mínar bestu þakkir fyrir alla
hennar trúmennsku og vingjarnleik í
okkar gai'ð og annarra þeiiTa sem
hún átti að vinum í lífinu.
Ólafíu Sigrúnu og hennar fjöl-
skyldu votta ég mína dýpstu samúð.
Megi minningin um ljúfa móður og
ömmu lýsa þeim langt fram á ófarinn
veg.
+ Einar Oddur
Kristjánsson
fæddist á Þingeyri x
Dýrafirði 20. des-
ember 1941. Hann
lést á Landspítalan-
um 21. maf síðast-
liðinn. Foreldrar
hans voru Kristján
Egilsson, f. 18. júní
1897, d. 1970, og
Jóhanna Jakobs-
dóttir, f. 31. ágúst
1898, d. 1980.
Systkini hans eru:
Haraldur Alfi'eð
Kristánsson, f.
1917, samfeðra, látinu, Sigurð-
ur Kristjánsson, f. 1919, látinn,
Þórey Kristjánsdóttir, f. 1921,
Dýrleif Kristjánsdóttir, f. 1930,
Vigdís Krisjánsdóttir, f. 1924,
látin, Haraldur Alfreð Krist-
jánsson, f. 1934, Jóhann Krist-
jánsson, f. 1925, Egill Jón Krist-
jánsson, f. 1927, látinn, Jó-
hanna Kristín Kristjánsdóttir,
f. 1942, ættleidd dóttir Vigdís-
ar.
Hinn 26. desember 1969
kvæntist Einar Oddur Öldu
Kveðja frá skips-
félögum
í dag kveðjum við skipsfélaga
okkar Einar Odd Kristjánsson. Það
kom okkur öllum á óvart hvað kallið
kom snögglega, því Einar var
hi'austmenni og hafði aldrei kennt
sér meins svo við vissum. Einar var
búinn að vera skipsmaður um borð í
ms. Stapafelli síðan skipið kom nýtt
til landsins haustið 1979 og höfðum
við nokkrir siglt með honum í lang-
an tíma. Honum þótti vænt um sitt
skip, þekkti það út og inn, jafnvel
betur en flestir aðrir. Einar var há-
vaðalaus maður en afskaplega góð-
ur félagi sem við bárum allir mikið
ti'aust til. Það sem hann sagði stóðst
og allt sem hann tók sér fyrir hend-
Björnsdóttur, f.
30.8. 1942, d. 7.7.
1991. Foreldrar
hennar eru Björn
Hjörtur Guðmunds-
son, f. 14.1. 1911, og
Inga Ágústa Þor-
kelsdóttir, f. 25.8.
1917, d. 26.2. 1993.
Börn Einars Odds _
ojg Öldu eru: 1)
Agústa, f. 24.12.
1966, gift Rikharði
Mýrdal Harðarsyni.
Börn þeirra eru
Alexander Jarl, og
Gabríela Sól. 2)
Kristján, f. 23.4. 1969. Sonur
hans er Kolbeinn Tumi, f. 27.12.
1993. 3) Hafdís, f. 3.7. 1973 í
sambúð með Albert Stein Þórs-
syni. Dóttir þeirra er Una. 4)
Jóhanna Birna, gift Leifi Guð-
mundssyni. Dóttir þeirra er
Aníta Brá. 5) Björn Hjörtur, f.
17.10.1980.
títför Einars fer frain frá
Fossvogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30. Jarð-
sett verður í Borgarneskirkju-
garði.
ur var vel gert, skipið var hans stolt
og lagði hann metnað sinn í að það
liti sem best út. Einar var dælumað-
ur um borð, sem er vandasamt starf
og erilsamt við þær aðstæður þegar
farið er á margar hafnir hér innan-
lands á skömmum tíma. Hann var
samt alltaf yfu'vegaður og traustur,
fátt kom honum úr jafnvægi, hann
hafði sem sagt jafnaðargeð, sem er
mikill mannkostui'.
Einar lést langt um aldur fram,
aðeins tæplega fimmtíu og sjö ára.
Hans verður því sárt saknað hér um
borð, en minningarnar sem við eig-
um um góðan dreng lifa áfram með-
al okkar skipsfélaga hans.
Við sendum börnum Einai-s og
fjölskyldum innilegustu samúðar^ ,
kveðjur okkar.
SIGURBJÖRG
SIGURBJÖRNSDÓTTIR
EINAR ODDUR
KRISTJÁNSSON
Sigurjón Bjarnason.