Morgunblaðið - 29.05.1998, Síða 62
62 FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
KVIKMYNDIR/Sambíóin hafa tekið til sýninga myndina ‘Til There Was You með Jeanne
Tripplehorn, Dylan McDermott, Sarah Jessica Parker og Jennifer Aniston í aðalhlutverkum. Meðal
framleiðenda myndarinnar er Sigurjón Sighvatsson.
‘TIL There Was You
fjallar um Gwen Moss
(Jeanne Tripplehorn)
og Nick Dawkan (Dyl-
an McDermott) sem
rekast hvort á annað
sem börn en halda síð-
an hvort í sína gjöró-
líku áttina. Árin líða án
þess að þau viti hvort
af öðru þótt vinir
þeirra hittist og þau
eigi sameiginlega
kunningja og fari á
sömu staði án þess að
vita af hinu. En þrátt fyrir að þau
séu alls ekki rétta fólkdð hvort fyr-
ir annað langt fram eftir ævinni
halda þau samt áfram að hafa áhrif
hvort á líf annars án þess að vita af
því eða vita hvort af öðru. Spum-
ingin er hvort þau verði tilbúin
hvort fyrir annað þegar þau loks-
ins hittast.
Fallegu sumarlitirnir
frá CLARINS eru
loksins komnir
Kynning
verður í Gullbrá, Nóatúni,
föstudaginn 29. maí
frá kl. 13-18.
Spennandi tilboð
í tilefni dagsins.
Sjón er sögu ríkari.
Verið velkomin .
Gullbrá
Nóatúni
s. 562 4217
DYLAN
McDermott leikur Nick
CLARINS
Nick er trúlofaður Fran-
cescu Lansfield (Sarah
Jessica Parker) sem er ást-
fangin af honum en gengur
illa til þess að fá hann til að
sýna tilfinningar sínar.
Þess vegna verður hún dá-
lítið afbrýðisöm þegar Nick
sýnir sterk viðbrögð við
lesendabréfum í dagblaði
sem Gwen skrifar undir
dulnefni til þess að mót-
mæla áformum um að rífa
sögufrægt fjölbýlishús sem
hún býr í. Svo vill til að
Francesca á húsið og Niek
er arkitektinn sem er að
hanna það sem á að koma í
staðinn. Með viðbrögðum
sínum við greininni er Nick
lagður af stað í ferli sem er
óvíst að hann getið snúið
við úr.
Dylan McDermott, sem
leikur Nick, segir um hlut-
verk sitt í myndinni: „Ég
held að minn karakter
breytist meira en nokkur
annar maður í myndinni.
Hann er nánast sjúklegur
lygari þegar myndin byrjar
og ekki beint fyrirmyndarmaður
en eftir því sem sögunni vindur
fram þarf hann að fullorðnast og
taka ábyrgð á þeim aðstæðum sem
hann hefur skapað sér.“
Jeanne Tripplehorn segir um
Gwen: „Þetta er hennar heimur og
allir aðrir leika bara hlutverk í
rómantískri útgáfu hennar af
NICK (Dylan McDermott) er í sambandi með Francescu
(Sarah Jessica Parker).
þess að kynni geti tekist
með þeim,“ segir
Jeanne.
Jeanne Trippiehorn
vakti fyrst athygli þegar
hún fór með smáhlut-
verk á móti Michael
Douglas og Sharon Sto-
ne í Basic Instinct. Síðan
hefur hún m.a. leikið í
The Firm og Wa-
terworld. Dylan
McDennott lék m.a. í In
The Line of Fire og
Miracle on 34th Street.
Meðal aukaleikenda
eru Sarah Jessica Par-
ker, sem er þekkt úr
L.A. Story, Honeymoon
in Vegas og Miami
Rapsody og fleirum og
Jennifer Aniston, sem er
þekktust fyrir leik í sjón-
varpsþáttunum Friends
en hefur undanfarið leik-
ið í myndum á borð við
She’s The One og Pict-
ure Perfect.
‘Til There Was You er
fyrsta kvikmyndin í fullri
lengd sem leikstjórinn
Seott Winant gerir en
hann hefur unnið mikið
fyrir sjónvarp, m.a. sem
leikstjóri sjónvarpsþáttanna „thir-
tysomething".
Myndin er framleidd af Lakes-
hore Entertainment Corp, iyrir-
tækinu þar sem Sigurjón Sighvats-
son er stjórnarformaður og yfir-
maður kvikmyndamála. Sigurjón
er einn framleiðenda myndarinn-
JEANNE Tripplehorn leikur Gwen
í ‘Til There Was You.
veruleikanum. Smám saman fer
að brotna upp úr fantasíunum sem
hún hefur spunnið upp um líf sitt
en hún vill ekki horfast í augu við
veruleikann. Staðreyndinn er sú
að Gwen og Nick hafa framan af
ekki tíma til þess að tengjast af
því að þau eru ekki orðin að því
fólki sem þau þurfa að vera til
Ást við
fyrstu sýn?
Þú færð ekki betra
98%
ALOE VERA
GEL
^ÁÍoeVfefa
“SSSfe SUPER
^JASON
Útsölustaðir: Blómaval Reykjavík og Akureyri,
Hagkaup, apóiekin, verslanir K.Á. o.fl.
Dreifing: NIKO ehf • sími 568 0945
DiCaprio ekki búinn
að gera upp hug sinn
► LEONARDO DiCaprio hefur
dregið til baka fregnir um að
hann hafi gert samning
upp á um 1,5 millj-
arða króna um að
leika í kvikmynd
eftir hinni um-
deildu skáld-
sögu Bret Ea-
ston Ellis
„American
Psycho“.
Umboðs-
menn hans
leiðréttu
fréttatilkynn-
ingu þess efnis
sem dreift var á
Kvikmyndahátíðinni
í Cannes. Sögðu þeir að
DiCaprio hefði vissulega sýnt
áhuga á handritinu, en það væri
aðeins eitt af mörgum sem
hann væri með í athugun. Leik-
sljórinn Mary Harron hafði
unnið að handritinu og vildi fá
Christian Bale í aðal-
hlutverkið. Kostnað-
ur við myndina
átti að vera 420
milljónir króna.
En þegar
Leonardo Di
Caprio var
fenginn í
myndina í
stað Bales
virðist Har-
ron hafa dott-
ið tít tír mynd-
inni. Enginn
leikstjóri hefur
verið fenginn í stað-
inn, en Lions Gate, sem
framleiðir myndina, er sagð-
ur vera að íhuga annaðhvort
Gus Van Sant eða Curtis Han-
son.