Morgunblaðið - 29.05.1998, Side 68
JieMiáí
-setur brag á sérhvern dag!
Sparaðu
tíma,
sparaðu
peninga
fcff fö)%ÚNAÐARBANKlNN
traustur banki
MORGUNBLAÐffl, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Bankaráð LI óskar opinberrar rannsóknar á störfum stjórnenda Lindar
Kannað hvort refsiverð
háttsemi hafí átt sér stað
BANKARÁÐ Landsbanka íslands hf. samþykkti
samhijóða í gær að óska eftir þvi við ríkissaksókn-
ara að fram fari opinber rannsókn á því hvort
stjómendur fjármögnunarleigufyrirtækisins Lind-
ar hf. hafi, eftir að Landsbanki Islands eignaðist
meirihluta í fyrirtækinu í lok árs 1991, með athöfn-
um sínum eða athafnaleysi við stjóm þess framið
eða tekið þátt í refsiverðri háttsemi.
Helgi S. Guðmundsson, formaður bankaráðs
Landsbankans, og Kjartan Gunnarsson, varafor-
maður þess, kynntu þessa ákvörðun bankaráðsins á
blaðamannafundi í gær og greindi Kjartan frá
helstu rökum ráðsins fyrir henni. Var jafnfi-amt af-
hent bréf bankaráðs til Ríkisendurskoðunar frá 26.
september 1996 þar sem farið er yfir atriði skýrslu
Ríkisendurskoðunar frá 29. mars 1996 um málefni
Lindar hf.
Kjartan Gunnarsson, sem var formaður banka-
ráðsins á þeim tíma, sagði að í skýrslu ríkisendur-
skoðanda væri hvergi fullyrt að um lögbrot væri að
ræða en að tilefni kunni að sýnast til að kanna ýmsa
þætti og hvort rétt væri að draga einhverja til
ábyrgðar. Kjartan sagði að eftir umræður á Alþingi
og í þjóðfélaginu hefðu mál skipast þannig að
bankaráðið teldi skynsamlegast að fá opinbera
rannsókn ríkissaksóknara. Hann sagði bankaráðið
með því hafa stigið alvarlegt skref, þarna ættu
margir menn ef til vill í hlut. Hann minnti á að á sín-
um tíma hefði enginn þeirra aðila, sem málið varð-
aði, talið ástæðu til að krefjast opinberrar rann-
sóknar á málefnum Lindar hf., hvorki viðskiptaráð-
herra, Ríkisendurskoðun, bankaeftirlit Seðlabanka
Islands, bankastjórn og bankaráð Landsbanka Is-
Iands né stjóm Lindar hf. Sagði hann að allir þessir
aðilar hefðu getað átt írumkvæði að rannsókn.
Kjartan sagði bankaráðið ekki vilja koma í veg fyrir
réttar lögfylgjur af þeim mistökum sem orðið hefðu
við stjóm Lindar hf. en hefði talið að ekki hefðu
verið tilefni til að óska opinberrar rannsóknar.
Óhugsandi annað en að standa við skuld-
bindingar Lindar hf.
Kjartan Gunnarsson fór yfir nokkur atriði í
bréfí bankaráðsins til Ríkisendurskoðunar og
sagði það alltaf hafa verið ætlan Landsbankans að
standa við allar skuldbindingar Lindar gagnvart
lánardrottnum og öðrum viðskiptamönnum. Sagði
hann að óhugsandi hefði verið að láta Lind hf. fara
í gjaldþrot, það hefði m.a. lent á erlendum lánar-
drottnum. Upplýst er í bréfmu að stjóm Lindar hf.
hafi, eftir áð Landsbankinn tók að fullu við stjórn
félagsins, sett margvíslegar nýjar og strangari
reglur um útlánaákvarðanir, skert heimild fram-
kvæmdastjóra til sjálfstæðra ákvarðana og gert þá
mikilvægu ráðstöfun að skipta um endurskoðanda
og fá til verksins Arna Tómasson, löggiltan endur-
skoðanda og endurskoðanda Landsbankans.
I bréfi bankaráðs Landsbankans segir m.a. svo
um frammistöðu fyrrum framkvæmdastjóra Lindar
hf.: „Pað velkist enginn í vafa um það, sem kynnt
hefur sér þau gögn sem liggja fyrir um rekstur
Lindar hf., að frá upphafi hefur mátt efast um getu
framkvæmdastjóra fyrirtækisins til þess að gegna
starfi sínu. Slíkar staðhæfingar er hins vegar ávallt
ákaflega erfitt að færa fullnaðarsönnur á. Besta
leiðbeiningin í því efni er þó að öllum líkindum end-
anleg niðurstaða á rekstri fyrirtækisins."
Kjartan Gunnarsson sagði að tvennt hefði eink-
um farið úrskeiðis hjá Lind hf., annars vegar rang-
ar ákvarðanir um útlán og hins vegar að upplýs-
ingamiðlun hefði verið ófullnægjandi. Höfuðatriðið
væri að draga lærdóm af því en ekki elta uppi ein-
staklinga.
■ Málefni Lindar/10-16
Hiti komst
í 19 stig
HITINN komst hæst í 19 stig á
Hjarðarlandi í Biskupstungum í
, _^ær og var víða heitt í uppsveit-
um Árnessýslu og á Suðurlandi.
Leikskólakrakkar á Selfossi mál-
uðu sig í framan og brugðu á leik
í árlegri grill- og Ijölskylduveislu,
sem haldin var í blíðunni í gær, en
samkvæmt spá Veðurstofunnar er
gert ráð fyrir hægri breytilegri
átt á morgun. Víða verður bjart
veður og hiti á bilinu 8-18 stig,
hlýjast á Suðurlandi.
Flýtimeðferð samþykkt
á máli samkeppnisráðs
SAMKEPPNISRAÐ krefst ógild-
ingar úrskurðar áfrýjunarnefndar
samkeppnismála vegna samruna-
máls Myllunnar-Brauðs hf. og Sam-
sölubakarís hf. og að málið verði af-
greitt á ný á grundvelli annan-a
málsástæðna en þeirrar að frestur
samkeppnisráðs til að ógilda sam-
runa félaganna hafi verið liðinn.
Stefna samkeppnisráðs var þing-
fest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær
og hefur dómurinn fallist á að málið
sæti flýtimeðferð.
Málið er höfðað annars vegar
gegn Myllunni-Brauði hf. og Mjólk-
ursamsölunni í Reykjavík, sem átti
Samsölubakarí, til ógildingar úr-
skurðar áíiýj unarnefndai' sam-
keppnismála. Áfrýjunamefndin
felldi sem kunnugt er úr gildi bann
samkeppnisráðs við samruna félag-
anna á þeim grundvelli að frestur
ráðsins til afskipta hafi verið liðinn. I
stefnunni færir lögmaður samkeppn-
isráðs fram rök fyrir þeirri skoðun
að frestur hafi ekki verið liðinn. Á
hendur áfrýjunamefnd samkeppnis-
mála eru gerðar þær kröfur að mál-
ið verði tekið fyrir að nýju á gi'und-
velli annarra málsástæðna fyrir-
tækjanna.
■ Krafist ógildingar/19
Morgunblaðið/RAX
Sólgnir í
ástarsög-
ur með
spennuívafí
ÁSTARSÖGUR eiga dyggan
lesendahóp samkvæmt upp-
lagstölum Ásútgáfunnar á
Akureyri, sem um árabil hefur
gefið út 20 þúsund eintök af
slíkum sögum á mánuði, eða
samtals 240 þúsund eintök á
ári. Upplagið skiptist jafnt
milli útgáfu tímaritsins Sögu
mánaðarins og fjögurra bóka-
flokka; Ást og afbrot, Örlaga-
sögur, Ástarsögur og Sjúkra-
hússögur.
Að sögn Rósu Guðmunds-
dóttur framkvæmdastjóra er
Ásútgáfan með samning við al-
heimsútgáfuna Harlequin
Enterprises, sem sendir Ásút-
gáfunni sextíu titla á mánuði til
yfirlestrar. „Við veljum síðan
fysilegustu sögumar, flokkum
þær og þýðum. Val okkar hef-
ur komið starfsmönnum Har-
lequin Enterprises á óvart, en
þeir segja íslendinga lesa
fremur ástarsögur með
spennuívafi og heilsteyptari
söguþræði en aðrar þjóðir.“
Flestir kaupa allan pakkann
Áskiifendur ástarsagna Ás-
útgáfunnar eru tæplega átta
hundruð og segir Rósa flesta
kaupa „allan pakkann", þ.e.
fjórar bækur og tímaritið. Les-
endur séu jafnt unglingar sem
aldraðir, konur sem karlar.
„Karlai- lesa fremur bækur í
flokknum Ástir og afbrot, þar
sem morð kemur alltaf við
sögu, eða Örlagasögur, sem
eru spennusögur. Sameiginlegt
einkenni ástarsagnanna er
góður endir, enda les fólk þær
sér til ánægju og yndis,“ segir
Rósa.
■ Konur/B2
Skýrsla lögmanns
um réttarstöðu fyrr-
verandi bankastjóra
Innihaldið
ekki upp-
lýst í bili
BANKARÁÐ Landsbanka ís-
lands hf. fékk í gær skýrslu Jóns
Steinars Gunnlaugssonar hæsta-
réttarlögmanns um réttarstöðu
þriggja bankastjóra bankans
sem sögðu af sér um miðjan apr-
fl. Mun bankaráðið taka hana til
umfjöllunar á næsta fundi.
Helgi S. Guðmundsson, for-
maður bankaráðs Landsbank-
ans, upplýsti að skýrslan væri
mikil að vöxtum og að lögmaður-
inn hefði farið yfir hana með
bankaráðsfulltrúum í gær. Vildi
hann ekki upplýsa neitt um inni-
hald skýrslunnar.
í kjölfar uppsagna banka-
stjóranna Björgvins Vilmundar-
sonar, Halldórs Guðbjarnasonar
og Sverris Hermannssonar
óskaði bankaráð eftir greinar-
gerð frá lögmanninum um rétt-
arstöðu þeirra. Bankaráðið mun
kynna sér hana á næstu vikum
og verður væntanlega tekin
ákvörðun um frekara framhald
málsins eftir um það bil hálfan
mánuð.