Morgunblaðið - 10.06.1998, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 10.06.1998, Blaðsíða 51
T i : i Í i i i i i i : i i i i l i i i i i I 1 í i í \ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1998 51 □□ DIQITAL Thx DÍGITAL Laiiguvcgl 94 MAGNAÐ BÍÓ /DD/ adam sandler drew barrymore Vinsælasta gamanmyndin í Bandaríkjunum á þessu ári. Adam Sandler fer á kostum. Tvímælalaust besta skemmtun ársins Sýnd kl 5, 7, 9 og 11. mm Sýnd kl. 6.35, 8.50 og 11. Stranglega bönnuð INNAN 16 ÁRA BUDDY Sýnd kl. 4.50. vortex.is/stjornubio/ ★ ★ ★ ★ ll MíiJiSÁIfu^ S z_553_L075 ALVQRU BIO! mpolby STAFRÆNT HLJÓÐKERFI í ÖLLUM SÖLUM! STÆB8TA TJALBIÐ MEB I HX atíam san Vinsælasta gamanmyndin í Bandaríkjunum á þessu ári. Adam Sandler fer á kostum. Tvímælalaust besta skemmtun ársins Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Sýnd kl. 5 og 9. ÁS Dagsijós ★ ★★ 1/2 www.weddingsinger.com Kostulegur fáránleiki Perlur og svín______________ (■ainaiiinynd ★★★ Framleiðsla: Friðrik Þór Friðriksson og Óskar Jónasson. Leikstjórn: Óskar Jónasson. Handrit: Óskar Jónasson. Kvikmyndataka: Sigurður Sverrir Pálsson. Tónlist: Ólafur Gaukur. Að- alhlutverk: Jóhann Sigurðsson, Ólaf- ía Hrönn Jónsdóttir og Ólafur Darri Ólafsson. Sam-myndir, maí 1998. Leyfð til sýninga fyrir alla aldurs- hópa. „PERLUR og svín“ er önnur kvikmynd Óskars Jónassonar. Hún fjallar um dæmigerðan ís- lenskan fram- kvæmdamann sem veður út í þá vitleysu að kaupa gamalt og afdankað bakarí til að græða pen- inga. Eiginkona hans, sem Lísu- bakarí er nefnt eftir, tekur þátt í ævintýrinu, meira af vilja en viti, líkt og karlinn hennar. Það verður hjónakornunum til happs að móðir framkvæmdastjóra stærsta keppi- nautar þeirra strunsar í fússi úr vinnu hjá dóttur sinni og ræður sig til þeirra í staðinn. Sú gamla er mikill kökumeistari og fyrr en var- ir fara hjólin að snúast. En óvinur- inn hyggur á hefndir. Saman við þetta fléttast ýmis hliðarævintýri, s.s. bílaviðskipti sonarins við rúss- neska togarasjómenn og dæma- laus útþrá frú Lísu, sem dreymir hlýjar sólarstrendur langra myrkra á milli. Þetta er að flestu leyti mjög vel heppnuð gamanmynd. Hún ber þess greinileg merki að íslensk kvikmyndagerð er í þann veginn að slíta barnsskónum og að full- skipað lið atvinnumanna er að skjóta hér rótum. Leikur er með allra besta móti, sem að miklu leyti skrifast á reikning leikstjórans. Oskari tekst greinilega vel að halda utanum leikarahópinn og fastmótaða sýn á söguna sem hann flytur. Handritið er, samkvæmt gamalli íslenskri hefð, veikasti punkturinn, en þó vantar aðeins herslumun. Persónur Óskars eru kostulega fáránlegar en um leið ótrúlega kunnuglegar, sem skapar sérstaka stemmningu sem helst út í gegn. Snurður hlaupa á alla þræði fléttunnar og allt stefnir í óefni í lok myndarinnar, en Óskar leysir vandann með bílaeltingaleik, líkt og í „Sódómu Reykjavík“. Þetta Hollywood-minni gæti því orðið höfundarmark hans ef svo heldur sem horfir. Helsti galli frá- sagnarinnar er að hún er helst til laus í reipunum. Óskar Jónasson er óðum að sanna sig sem einn okkar fremstu kvikmyndaleikstjóra. Með þessari mynd sýnir hann greinilegar fram- farir sem vekja bjartar vonir um hvað komi frá honum næst. „Perl- ur og svín“ er bráðskemmtileg kvikmynd sem óhætt er að mæla með við flesta. Hingað til hefur lítil rækt verið lögð við gerð gaman- mynda hér á landi og því stendur Óskar aleinn í stóru skarði. Með þessu áframhaldi er þó ekkert lík- legra en að hann nái að fylla það fyrr en varir. Guðmundur Ásgeirsson Fylgstu með nýjustu fréttum á fréttavef Morgunblaðsins www.mbl.is DekaTopp F.POXY MÁLNING Hágæðamálning ______ fyrir gólf og veggi HMj Gólflagnir IÐN AÐARGÓLF Smiðjuvegt Smiðjuvegur 72,200 Kópavogur Sími: 564 1740, Fax: 554 1769 • KVIKMYNDAHÁTÍÐ | lO.júní - 17.júní REGNBOGINN Frekari ábending - A Further Gesture - eftir Robert Dorhelm Þessi kvikmynd er hugarfóstur írska leikarans Stephen Rea sem er þekktur fyrir að leika í myndum leikstjórans Neil Jordans eins og „Viðtali við vampýru“ og „Ljótum leik“. Hann leikur hér írskan strokufanga, Dowd, sem flýr fóstur- land sitt og heldur til Bandaríkj- anna. Þar reynir hann að hefja nýtt líf og fær starf við að þvo upp á lé- legu veitingahúsi í New York. Brátt kynnist hann pari frá Guatemala, sem er leikið af Alfred Molina og Rosana Pastor, en þau eru stödd í borginni til að myrða föðurlands- svikai-a nokkurn. Dowd, sem tengist að einhverju leyti IRA, sér að þau eru algjörir viðvaningar á sviði hermdarverka og ákveður að hjálpa þeim. JOHN Malkovich fer með hlutverk franska einfeldningsins í þýsku kvikmyndiuni „Vomurinn". HÁSKÓLABÍÓ Vomurinn - The Ogre - eftir Volker Schlöndorff Þetta er nýjasta kvikmynd þessa vh'ta þýska leikstjóra sem m.a. leik- stýrði „Tintrommunni" og „Homo Faber“. Umfjöllunarefni hans er nasistaflokkurinn og er myndin nýtt og óþægilegt sjónai'horn á starfsemi hans; heilaþvott og hernaðarupp- byggingu sem stunduð var á Hitler- sæskunni í Prússlandi á tímum seinni heimsstyi'jaldar. John Malkovich leikur franskan treggáfaðan mann sem hefur mikið gaman af börnum. Það kemur hon- um því í opna skjöldu þegar stúlka ein kærir hann fyrir kynferðislega áreitni. Honum tekst að flýja til Þýskalands í leit að nýju lífi, og æxlast málin þannig að hann fer að vinna með æðstu valdhöfum Þriðja ríkisins, og gerist útsendari þess í leit að ungum drengjum til að ganga í flokkinn. Handrit myndarinnai' er skrifað upp úr „Álfakonungnum", um- deildri bók franska rithöfundarins Michel Tournier, en hann og Jean- Claude Carriere unnu mjög náið með leikstjóranum við handrits- skrifin. STEPHEN Rea og Rosanna Pastor í ástríðufullu faðmlagi í myndinni Frekari ábending. Belgísk borðstofuhúsgögn fráTCarel Mintjens úr gegnheilli eik Fáanleg í Ijósum og dökkum litum. mgrdösiur OECD húsgögn Ármúla 44 sími 553 2035
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.