Morgunblaðið - 10.06.1998, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 10.06.1998, Blaðsíða 19
Láttu nú ljósið þitt, lýsa upp rúmið mitt Bœnakver fyrir börn og foreldra þeirra vernig á ég að nesta barnið mitt til lífsgöngunnar? Má ekki lesa þessa spurningu í augum flestra foreldra sem fara höndum um hvítvoðung sinn? Börn og bænir er ómetanleg bók fyrir börn og foreldra þeirra. Að tala um dauðann er að tala um lífið Bók fyrir þá er standa með börnum andspœnis sorg egar sorgin sækir barnið þeirra heim finnst foreldrum þeir oft harla varnarlausir og óviðbúnir til að hjálpa barninu sínu í sorg þess. Bókin Börn og sorg verður öllum þeim er glíma við missi með börnum traust stoð og holl leiðsögn á vegi sorgarinnar, hvort sem það eru foreldrar eða forráðamenn, kennarar eða aðrir fagaðilar. pr| i.lv'l * ■« .• ,.s % fev 1 I ! I I M f/ih- |tj V Skálholtsútgáfan Útgáfufélag þjóðkirkjunnar Laugavegi 31 • 101 Reykjavík • Sími: 552 1090 • Bréfsími: 562 1595 MORGUNB LAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1998 19 VIÐSKIPTI VÍB sýknað af skaðabóta- kröfu vegna víxilkaupa Kunnáttu- leysi frem- ur en galli FRAMKVÆMDASTJÓRI hug- búnaðarfyrirtækisins Strengs hf. telur ekki að orsakanna fyrir villu í bókhaldi Kælismiðjunnar Frosts hf. sé að leita í bókhaldsforriti fyr- irtækisins heldur hljóti mistökin að stafa af kunnáttuleysi í notkun for- ritsins. I niðurstöðum dóms Héraðsdóms Reykjavíkur í deilu Kælismiðjunn- ar Frosts hf. og fyrrverandi fjár- málastjóra félagsins kom fram að mistök í bókhaldi Kælismiðjunnar, sem leiddu til þess að færslur færð- ust á milli ára, stöfuðu af galla í bókhaldsforriti félagsins. Fram kom að villan í bókhaldskerfinu væri frumorsk mistakanna sem síð- an leiddu til þess að ársreikningar félagsins voru rangir. Strengur hf. seldi Kælismiðjunni Frosti hf. umrætt bókhaldskerfi sem er danskt af gerðinni Navision. Haukur Garðarsson, framkvæmda- stjóri Strengs, segir að bókhalds- kerfið sé mjög gott. Það sé notað af 1.300 fyrirtækjum á Islandi og 40 þúsund fyrirtækjum í heiminum. Það hafi lengi verið í notkun og engar slíkar villur komið í ljós. Haukur telur útilokað að rekja megi mistökin til galla í bókhalds- forritinu enda hafi Strengur ekki fengið neinar óskir um lagfæringar. Bendir Haukur á að kerfið geri það sem því er sagt að gera og segir að svo virðist sem um hafi verið að ræða kunnáttuleysi í notkun þess. Þess ber að geta að Kælismiðjan Frost hefur hætt viðskiptum við Streng en þar starfar nú fyrrver- andi fjármálastjóri Kælismiðjunnar. VERÐBRÉFAMARKAÐUR ís- landsbanka hefur verið sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur af kröfum einstaklings um skaðabætur vegna tjóns sem hann varð fyrir vegna kaupa á vixlum útgefnum af Is- lenska sjónvarpinu hf. (Stöð 3). Einstaklingurinn keypti tvo víxla Islenska sjónvarpsins hf. hjá Verð- bréfamarkaði Islandsbanka hf. (VÍB) í apríl 1996, samtals að fjár- hæð 10 milljónir kr. Víxlarnir voru ekki greiddir á gjalddaga en síðar á árinu var greitt inn á þá og loks fékk Stöð 3 samþykkta nauðasamn- inga og greiddi 35% krafna. Fyrir- tækið greiddi alls um 5 milljónir upp í kostnað, vexti og höfuðstól víxlanna. Einstaklingurinn höfðaði mál fyr- ir Héraðsdómi Reykjavíkur til greiðslu skaðabóta úr hendi VIB vegna tjóns sem hann varð fyrir vegna kaupa á nefndum víxlum. Byggði hann málsókn sína á því að hann hafi fengið ófullnægjandi ráð- gjöf við kaup á víxlunum og hélt því fram í því sambandi að ráðgjafi stefnda hefði sagt að fjárfesting- unni ætti ekki að fylgJa áhætta þar sem traustir aðilar stæðu að fyrir- tækinu sem væri greiðandi víxlanna og að víxlarnir væru til skamms tíma og ekki hætta á gjaldþroti á svo skömmum tíma. Þessum um- mælum var mótmælt af hálfu VIB. Dómurinn taldi ósannað gegn and- mælum VÍB að starfsmaður þess hefði viðhaft framangreind ummæli við sölu víxlanna og væri rétt að stefnandi bæri hallann af þeim sönnunarskorti. Einnig var á því byggt af hálfu stefnanda að starfsmaður VIB hefði ekki gert honum gi'ein fyrir því að kaup á víxlum Stöðvar 3 hefðu verið sérstaklega áhættusöm verðbréfa- kaup. Víxlar þessir báni 13% ávöxt- um sem var tvöfalt hærra en á banka- og ríkisvíxlum og mun hærra en almennt var á fyrirtækja- víxlum. í niðurstöðum dómsins er á það bent að almennt sé viðurkennt og þekkt í verðbréfaviðskiptum að því hærri sem ávöxtunin er þeim mun meiri sé áhættan af viðskiptun- um. Jafnframt kemur fram það álit að ekki hafi verið sýnt fram á að VIB hafi á einhvem annan hátt haft aðstöðu' til að meta fjárhagslega stöðu íslenska sjónvarpsins hf. Er því ekki talið að VÍB hafi mátt vera það ljóst að kaupandi víxlanna yrði óhjákvæmilega fyrir tjóni með kaupunum. Fékk allar upplýsingar Akvæði í logum um verðbréfavið- skipti skylda starfsmenn verðbréfa- fyrirtækja til að veita viðskiptavin- inum, að teknu tilliti til þekkingar hans, greinargóðar upplýsingar um þá kosti sem honum standa til boða. I 1‘ökstuðningi skaðabótakröfunnar var því haldið fram að umræddur maður hefði litla sem enga reynslu haft af fjármálaumsýslu og hefði treyst á ráðgjöf starfsmanns verð- bréfafyrirtækisins þegar hann festi allt sitt sparifé í umræddum víxlum. Þessu mótmælti VÍB, benti meðal annars á að maðurinn væri lang- skólagenginn, gegndi stjórnunar- stöðu í stóru fyrirtæki, hefði keypt töluvert af hlutabréfum á undan- förnum árum og víxlarnir væru alls ekki allt hans sparifé. I dómi Héraðsdóms kemur fram það álit að þegar stefnandi leitaði upplýsinga hjá VÍB vegna víxil- kaupanna hafi hann sjálfur haft ákveðnar skoðanir á því hvaða kost- ir hentuðu og þar virðist stuttur binditími og há ávöxtun hafa skipt mestu máli. Ekki hafi komið fram í málinu að stefnandi hafi gefið starfsmanni VÍB tilefni til að ætla að hann væri óvanur verðbréfavið- skiptum eða að hann hefði ekki haft neina þekkingu á þeim eins og hann héldi fram í málatilbúnaði sínum. „Ekkert annað hvað varðaði stefn- anda virðist hafa gefið starfsmanni stefnda tilefni til að ætla að haga þyrfti ráðgjöf við hann með öðrum hætti en gert var og ætla verður að almennt hafi tíðkast við svipaðar að- stæður, bæði hjá stefnda og öðrum sambærilegum verðbréfafyrirtækj- um... Verður hér að líta svo á að stefnandi hafi fengið allar þær upp- lýsingar sem stefnda bar að veita honum, annað hvort samkvæmt lög- um eða að beiðni stefnda sjálfs. Einnig verður að leggja til grund- vallar við úrlausn málsins að stefn- andi hafi sjálfur tekið ákvörðun um að kaupa umrædda víxla eftir að hann hafði fengið upplýsingar um þá kosti sem í boði voru og metið þá,“ segir m.a. í niðurstöðum dóms- ins. Þá fellst dómurinn heldur ekki á þá kröfu mannsins að VÍB hafi vald- ið honum tjóni með röngum og ófullnægjandi vinnubrögðum við innheimtu víxlanna. Var VÍB því sýknað af skaðabóta- kröfum eiganda vLxlanna. Hins veg- ar var málskostnaður felldur niður. Dóminn kvað upp Sigríður Ingv- arsdóttir héraðsdómari ásamt með- dómsmönnunum Emil Theodóri Guðjónssyni löggiltum endurskoð- anda og Kristjáni Jóhannssyni lekt- or. tyá. Opið virka daga frá kl. 10.00—18.30, Engjateigi 5, sími 581 2141. laugardaga frá kl. 10.00—15.00. www.mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.