Morgunblaðið - 10.06.1998, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1998 17
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
VÍGSLUATHÖFN við völvuleiðið.
VERKLOK, Þórhallur og Friðrik Þorvaldssynir ásamt
nemendum í 9. bekk.
Völvuleiði endur-
bætt á Eskifírði
ESKFIRÐINGAR fjölmenntu
hinn 29. maí að fornu Völvuleiði til
að fagna endurbótum sem nemend-
ur grunnskólans höfðu unnið að í
kringum leiðið ásamt kennurum
sínum.
Völvuleiði sem þetta munu vera
til víða um land og ýmsar sagnir til
um þau. Þama eiga að vera grafnar
seiðkonur og sú sem hvílir hjá Esk-
firðingum mun, samkvæmt þjóð-
sögu, hafa sagt að á meðan eitt-
hvert bein væri óbrotið í sér myndi
hún halda vemdarhendi yfir byggð-
inni. Þórhallur Þorvaldsson, kenn-
ari á Eskifirði, segir Eskfirðinga
líta á völvuna sem vemdara sinn og
þeir hafi viljað gera vel við hana.
Við vígsluathöfnina klæddust
nemendur í fornlega búninga og
þökkuðu völvunni verndina í ald-
anna rás. Þórhallur segir allt
benda til þess að Völvan hafi verið
hin ánægðasta með endurbætum-
ar. Til marks um það þá hafi verið
kalsaveður og þokumugga þegar
byrjað var að hlaða en eftir því sem
verkinu miðaði áfram birti til og
endaði með sól í heiði við verklok.
Vegvísar voru settir að völvu-
leiðinu og gönguleiðir að því lag-
færðar, einnig var varða, sem
þarna er, hlaðin upp. „Eskfirðingar
voru ánægðir með endurbæturnar
og þóttu þær til sóma,“ segir Þór-
hallur. Síðar kom í ljós að sam-
kvæmt reglugerð frá 1989 þarf sér-
stakt leyfi til að hreyfa við fom-
minjum eldri en 100 ára, þær eru
friðlýstar og mun þetta svæði falla
undir þá reglu.
Þórhallur segir það ekki hafa
verið ætlunina að brjóta reglur,
kappið hafi ef til vill verið fullmikið
og þeir ekki hugað að þessu í tíma.
Þeir hafi svo rætt við Þór Magnús-
son þjóðminjavörð og hann hafi lát-
ið athuga hleðsluna og aðrar fram-
kvæmdir. Sem betur fer hafi þetta
allt saman þótt vel gert og ekki
talið að nein spjöll hafi verið unnin
heldur þvert á móti og fram-
kvæmdimar allar þótt til bóta eins
og til stóð. Hins vegar sé rétt að
benda fólki á að hafa samband við
þjóðminjavörð hafi það hug á að
gera einhverjar lagfæringar á eða í
kringum fomminjar.
Æðarvarp fyrr á ferð-
inni við Breiðafjörð
Miðhúsum-Þar sem æðarvarp
hófst um hálfum mánuði fyrr en
venjulega mun varptíminn vara
lengur. Sumar kollumar era
komnar með unga en aðrar að
hefja varp.
Meira ber á vargi en oft áður,
svo sem minki og tófu, en reynt
er að halda þeim í skefjum.
Fuglar sem stela eggjum og
drepa æðarfuglinn bera sam-
heitið „vargfuglar“. Hettumáv-
urinn er tiltölulega nýr eggja-
þjófur.
Reynt er að fara yfir varp-
löndin áður en eggtíð byrjar með
minkahunda og hefur slíkt gefið
góða raun. Taldar era miklar lík-
ur á að tófur og minkar komi frá
íriðlandinu á Vestfjörðum. Eyði-
býlum fjölgar hér á Vestfjörðum
og það gerir alla búsetu erfiðari.
Hátíðarhöld í tilefni 90 ára afmælis í Garðinum um helgina
Forsætisráðherra
sækir bæinn heim
Garði - Davíð Oddsson forsætisráð-
herra verður heiðursgestur á fjöl-
skylduhátíð, sem haldin verður nk.
laugardag í íþróttamiðstöðinni en í
ár fagnar Gerðahreppur 90 ára af-
mæli sínu og verða aðalhátíðarhöldin
af því tilefni um helgina.
Föstudaginn 12. júní og laugar-
daginn 13. júní verður fjölbreytt
dagskrá, þar sem ungir sem eldri
ættu að geta fundið eitthvað við sitt
hæfi.
Á fóstudeginum verður komið fyr-
ir fjölbreyttum leiktækjum fyrir
yngstu kynslóðina á túninu við skrif-
stofu Gerðahrepps. Kl. 16 mætir á
svæðið Trúðurinn Tumi og heldur
uppi góða skapinu í öllum. Leiktækin
verða svo einnig opin laugardaginn
13. júní.
Ej ölsky lduskemmtun
og dansleikir
Á fóstudagskvöldinu 12. júní verð-
ur svo unglingadansleikur í Sam-
komuhúsinu frá kl. 21 til 1, þar sem
hljómsveitin „Á móti sól heldur"
heldur uppi fjörinu.
Laugardaginn 13. júní verður efnt
til fjölskylduskemmtunar í Iþrótta-
miðstöðinni kl. 15. Þar verður fjöl-
breytt dagskrá, tónlistaratriði, söng-
ur, flutt söguágrip o.fl. Heiðursgest-
ur verður Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra og mun hann flytja ávarp á
samkomunni. í íþróttamiðstöðinni
mun risastór afmælisterta verða í
boði fyrir gestina.
Laugardagskvöldið kl. 23 hefst
stórdansleikur í Iþróttamiðstöðinni
þar sem hljómsveit Geirmundar Val-
týssonar leikur fyrir dansi.
Sýningar
í Gerðaskóla verður opnuð sýning
föstudaginn 12. júní kl. 17. Opið til
SPEEDO'
Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson
GARÐURINN skartar sínu fegursta í kvöldsólinni enda einmuna
blíða dag eftir dag.
Glæsibæ - Álfheimum 74
Sími 581 2922
kl. 22. Á sýningunni verður sýnd
vinna nemenda um ýmsa þætti úr
sögu Gerðahrepps. Einnig er í skól-
anum sýning bama úr Leikskólanum
Gefnarborg. Þá sýna safnarar í
Garði hin ótrúlegustu söfn sín.
Myndasýning, skyggnur, verður í
skólanum, þar sem fjallað er um
samfélagið í Garðinum og sagt frá í
máli og myndum. Sýningin í skólan-
um verður svo opin á laugardag frá
kl. 12-15 og á sunnudaginn frá kl.
12-17.
Athygli er einnig vakin á því að
Byggðasafnið verður opið á sama
tíma og sýningarnar í skólanum.
Einnig er minnt á nýopnað Sögu- og
minjasafn Slysavarnafélagsins.
Listamaðurinn Gunnar Örn sýnir
verk sín í Sæborgu. Nokkrir heima-
menn sýna verk sín í íþróttamiðstöð-
inni.
I tilefni 90 ára afinælisins var
ákveðið að gefa út Sögu Gerða-
hrepps. Doktor Jón Þ. Þór hefúr rit-
stýrt verkinu og kemur bókin út nú
um afmælishelgina.
UV
Til sölu BMW 850ÍA árgerö 1991, ekinn 55 þús. km. 12 cyl.,
sjálfsk., ABS, leðurinnrétting, sóllúga, 16" álfelgur, þjófavörn, raf-
stýrð spólvörn, hiti í sætum, skriðstillir, rafmagn í rúðum og sæt-
um, air condition, aksturstölva og margt fleira.
Upplýsingar gefur Karl Óskarsson s. 575 1211
GÓÐU MÁLEFNI LIÐ
1998
m INK.
1 Suzukí Grand Vitara
5 dyra, 4x4, árgerð 1999
Verðmæti 2.300.000 kr.
Bifreið eða greiðsla
uppffbúð
Verðmæti 1.000.000 kr.
uttektir hjá ferðaskrifstofu
eða vcrslun
Hver að verðmæti
100.000 kr.
A v/v/VA.Vnibb.íi
miiljónir króna I
skattírjálsir
Fjöfsfc ISt-OGÖ-
^DregBiy.júnfTSSB
~JzjO áf*.