Morgunblaðið - 10.06.1998, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 10.06.1998, Blaðsíða 1
104 SÍÐUR B/C/D/E STOFNAU 1913 128. TBL. 86. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR10. JÚNÍ 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Hart barist við landamæri Eþíópíu og Erítreu Eþíópíustjórn hafnar tilboði um viðræður Adigrat, Asmara. Reuters. HARÐIR bardagar geisuðu í gær við landamæri Eþíópíu og Erítreu og Isayas Afewerki, forseti Erítreu, spáði því að átökin myndu magnast á næstu dögum. Hann kvaðst þó vilja ræða við Meles Zenawi, for- sætisráðherra Eþíópíu, en Eþíópíu- menn sögðu að viðræður kæmu ekki til greina fyrr en her Erítreu færi af eþíópískum landsvæðum. Fréttaritarar Reuters urðu vitni að hörðum bardögum nálægt eþíópíska landamærabænum Zal- ambessa, 550 km norðan við Addis Ababa og 100 km sunnan við As- mara, höfuðborg Erítreu. Helsti þjóðvegurinn milli borganna liggur um bæinn. Eþíópíumenn sökuðu Erítreuher um að hafa hafið mikla sókn í gærmorgun, en Erítreumenn sögðust ekki hafa átt upptökin. Erítreuher fari frá Eþíópíu Forseti Erítx-eu kvaðst vilja ræða við forsætisráðherra Eþíópíu en spáði því að bardagamir myndu færast í aukana áður en viðræður gætu hafist. Eþíópíumenn sögðu að ekki kæmi til greina að efna til frið- arviðræðna meðan Erítreumenn „legðu eþíópísk landsvæði undir sig með hervaldi". Talsmaður eþíópísku stjórnarinn- ar sagði að til að viðræðurnar gætu hafist þyrftu Erítreumenn að sam- þykkja tillögur stjómvalda í Banda- ríkjunum og Rúanda, sem hafa lagt til að Erítreuher fari af svæðum sem hann hefur lagt undir sig frá 6. mai, að 400 ferkm svæði sem ríkin deila um verði herlaust og að hafin verði rannsókn á undirrót átakanna. Reuters Albanar á flótta SERBNESKAR hersveitir gerðu í gær sprengjuárásir á þorp í vesturhluta Kosovo og óttast er að hernaðaraðgerðirn- ar valdi mikium fólksflótta úr héraðinu. Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna sagði að 65.000 Albanar hefðu fliiið heimkynni sín síðustu tíu daga, þar af um 18.000 til nágranna- ríkjanna. Þá skýrði Mary Robinson, mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, frá því í gær að a.m.k. 130 manns hefðu beðið bana í árásum Serba á tvo bæi í liðnum mánuði. Flóttafólk gengur hér yfir landamærin til Albaníu. ■ Jeltsín lofar/22 Þjóðarat- kvæði um Vestur- bakkann? BENJAMIN Netanyahu, forsætis- ráðherra Israels, hefur gefið til kynna að hann sé tilbúinn að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Israelar eigi að flytja hersveitir sínar frá 13% Vesturbakkans. Netanyahu sagði í viðtali við ísraelska ríkisút- varpið að álit al- mennings skipti miklu máli í svo mikilvægri deilu. Netanyahu „Það er fyrst og fremst skylda okkar að ná víðtækri sátt þannig að endi verði bundinn á klofninginn meðal þjóðarinnar og friður ríki heima fyrir, ekki aðeins milli Isra- ela og araba.“ Gæti styrkt stöðu Netanyahus Forsætisráðherrann bætti þó við að hann hefði ekki enn ákveðið að bera deiluna undir þjóðaratkvæði. Verði brottflutningurinn samþykkt- ur í þjóðaratkvæðagreiðslu gæti það auðveldað Netanyahu að standa af sér þá pólitísku storma sem slík tiislökun myndi óhjákvæmilega valda. Hægrisinnaðir stjórnarþing- menn haí'a hótað að fella stjórnina samþykki hún að láta landsvæðin af hendi. Knatt- spyrnuhátíð í París HUNDRUÐ þúsunda manna voru í miðborg Parísar í gær- kvöldi til að fylgjast með skrúðgöngu í tilefni þess að heimsmeistaramótið í knatt- spyrnu hefst í Frakklandi í dag. Fjögur 20 metra há teiknimyndavélmenni, sem áttu að tákna kynþætti heimsins, gengu um göturnar í fylgd þúsunda sjálfboðaliða, klæddra sem skordýr, tré, rækjur og geimskip. ■ 37 núltjarðar manna/28 ■ Heimsmeistaramótið/Bl-B4 Reuters Nígeríuher lofar valda- afsali Abiy'a. Reuters. TALSMAÐUR herforingjastjórnar- innar í Nigeríu sagði í gær að staðið yrði við loforð Sanis Abacha einræð- isherra, sem lést á mánudag, um að borgaraleg stjórn tæki við völdunum 1. október. Talsmaðurinn sagði að þetta hefði verið ákveðið á fundi ráðherra her- foringjastjórnarinnar og Abdu- salams Abubakars, nýs forseta henn- ar. Hann bætti þó við að ekki væri öruggt að forsetakosningar yrðu 1. ágúst eins og ákveðið hafði verið. „Það hefur þó ekki áhrif á valdaaf- salið 1. október." ■ Abubakar sver eið/21 84 stiga hiti í Kúveit Kúveit. Reuters. MIKILL hiti hefur verið í Kú- veit síðustu daga og orðið 51 stig í forsælu og 84 stig í sól- skini. Kúveiska dagblaðið Al-Qab- as sagði að embættismenn hefðu ráðlagt landsmönnum að halda sig í skugga í mestu hitamollunni til að fá ekki sól- sting. Hléi á flugmanna- verkfalli hafnað París. Reuters. STÉTTARFÉLAG flugmanna franska ríkisflugfélagsins Air France ákvað í gær að verða ekki við áskor- un annars stéttarfélags franski’a flugmanna um að gera hlé á verkfalli sínu til að raska ekki skipulagi heimsmeistaramótsins í knattspyrnu. „Ekki kemur til greina að binda enda á verkfallið, þannig að tillagan um verkfallshlé er tilgangslaus," sagði talsmaður stéttarfélags verk- fallsmannanna. Félagið kvaðst þó tilbúið að hefja viðræður við flugfé- Iagið að nýju, en þeim var slitið á laugardag. Verkfallið hefur staðið í níu daga og flugmennirnir krefjast þess að flugféiagið hætti við áform um nýtt launakerfi sem sparar því 500 millj- ónir franka, andvirði 6 milljarða króna, á þrem árum. Franska stjórnin segist styðja stjórnendur flugfélagsins og ekki ætla að hafa af- skipti af deilunni. Ottast er að skipulag heimsmeist- aramótsins fari úr skorðum þar sem Air France hafði tekið að sér að flytja öll Iandsliðin 32 og áhorfendur milli borga. Glundroði var á Charles de Gaulle-flugvellinum í París í gær og reiðir ferðamenn og knattspyrnu- áhugamenn kvörtuðu yfir týndum farangri, aflýstum flugferðum og töfum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.