Morgunblaðið - 12.07.1998, Síða 5

Morgunblaðið - 12.07.1998, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1998 5 FRÉTTIR Gömul hús fá ný hlutverk á Djúpavogi Menningarmið- stöð í Löngubúð Eftir endurbætur er Langabúð, elsta húsið á Djúpavogi, komin í hlutverk menningarmið- stöðvar. Hildur Gróa Gunnarsdóttir skoðaði húsið og fræddist um frekari áform um endurbyggingu gamalla húsa á Djúpavogi. FÁNINN dreginn að húni við Löngnbúð sem sómir sér vel í nýju hlutverki sem menningarmiðstöð. LANGABÚÐ er elsta hús á Djúpavogi og jafnframt eitt elsta verslunarhús landsins og hefur m.a. gegnt hlutverki vörugeymslu og sláturhúss. Hún var opnuð í fyrrasumar eftir miklar endurbætur sem menningarmiðstöð Djúpavogshrepps. Langabúð var byggð í nú- verandi mynd um 1850 og var þá reist á grunni eldra húss, en elstu bitamir í húsinu eru taldir vera frá 1742. Tekið var til við endurbygginguna 1985. Verkið var kostnaðarsamt og segir Olafur Ragnarsson sveitarstjóri kostnaðinn við end- urbygginguna um 60 milljónir, sveitarfélagið hafi greitt 31 milljón og styrkir hafí fengist frá ýmsum aðilum t.d. menntamálaráðuneyti, Húsfriðunarsjóði, Þjóðhátíðarsjóði og Alþingi. Starfsmenn Minjaverndar og Húsfriðunar- nefndar ríkisins hafi svo haldið utan um end- urbæturnar. Hótel verður Ráðhús Að sögn Ólafs er markvisst stefnt að því að halda gömlum húsum á Djúpavogi við og gefa þeim nýtt hlutverk. Þegar hafí verið hafist handa við endurreisn Geysis, sem er hús frá því um aldamót. „Það var byggt sem hótel og þar var verslun um tíma en húsið hefur verið í niðurníðslu undanfarið. Ég tel þessi gömlu hús tilheyra sögu staðarins og nú er stefnt að því að Geysir verði ráðhús hreppsins strax á næsta ári,“ segir Ólafur og bætir við að fleira sé í deiglunni. „I gamla verslunarstjórahúsinu er t.d. verið að koma upp safnaðstöðu fyrir skólann, bóka-, dýra- og steinasafni.“ Safn Ríkarðs Jónssonar í Löngubúð er nú safn Ríkarðs Jónssonar myndhöggvara og myndskera, en hann er af þessum slóðum. Erfingjar Ríkarðs ánöfnuðu Djúpavogshreppi öll listaverk hans og áhöld sem voru á vinnustofu hans á Grundarstíg 15 í Reykjavík. í safninu eru m.a. brjóstmyndir og lágmyndir af samtíðarmönnum Ríkarðs og ýmsir útskurðarmunir, þeirra þekktastur er líklega sveinsstykki Ríkarðs, sem er út- skorin spegilumgjörð úr mahóní. Um út- skurðinn verður fátt annað sagt en sjón er sögu ríkari. Veggir safnsins í Löngubúð eru blámálaðir í sama lit og vinnustofa Ríkarðs var og í einu horninu hefur verið komið upp vinnuborði hans og verkfærum svo helst lítur út fyrir að listamaðurinn hafi rétt brugðið sér frá. Morgunblaðið/RAX VINNUSTOFA listamannsins Rfkarðs Jónssonar. Veggjakrot frá 19. öld A lofti Löngubúðar er haldið til haga ýms- um forvitnilegum munum. Þar má m.a. sjá gömul útvarpstæki, gamlar myndavélar, gamla búðarkassa, allskyns áhöld og gamla kvikmyndasýningavél. Ólafur segir sýninga- vélina hafa gengið fram undir 1970 uppi í Neista, samkomuhúsi Ungmennafélagsins og ýmislegt af gamla dótinu sé í lagi. Því til sönn- unar kveikir hann á einu útvarpstækinu, en á því næst færeysk útvarpsstöð við rétt skilyrði. A timbrinu uppi á lofti má sjá nöfn og ártöl verslunarmanna og fleiri Djúpavogsbúa í ár- anna rás, allt frá 19. öld. Á loftinu er líka göm- ul kista sem geymdi sykur, kaffi, rúsínur og fleira í langri verslunarsögu Djúpavogs. Ólaf- ur segir ætlunina að skrá munina á loftinu og koma þar upp skipulagðri sýningu. Minjar og handverk I Löngubúð er einnig minningarstofa Ey- steins Jónssonar sem var þingmaður austur- landskjördæmis og ráðherra um árabil. Af- komendur Eysteins gáfu Djúpavogshreppi muni sem tilheyrðu skrifstofu Eysteins sem hann hafði á heimili sínu allan sinn starfsferil. Skrifstofa Eysteins er endursköpuð með mununum í Ráðherrastofu Löngubúðar. I húsinu er líka handverkssala og kaffihús. Kvennasmiðjan, hópur kvenna á Djúpavogi, sér um daglegan rekstur Löngubúðar. Frá þeim kemur einnig mikið af handverkinu sem til sölu er, lopapeysur og minjagripir úr ull og gæru. TOFRAR THAILANDS á besta árstíma, 1-4 vikur á verði lægra en Kanaríeyjar, byggt á lægstu fargjöldum bestu flugfélaga og hótelsamningum Heimsklúbbsins, 4-5 stjörnu. Forkynning og sala vetrarferða Ársal Hótel Sögu fimmtud. 16. júlí kl. 20.30 Kvikmynd frá heillandi stöðum, undraverðu Thailandi: Bangkok, mesta gleðiborg Austurlanda og ódýrasta verslunarborg heimsins, t.d. fatnaður, listmunir, gjafir Pattaya, gestrisni og golfparadís Chiang Mai, draumfögur, dulúðug og full af list Phuket, perlan í Andaman-hafi, fegurð, strandlíf, skemmtun. Hittið Miss NUI, fulltrúa og fararstjóra Heimsklúbbsins í Thailandi, íslandsvininn, sérstakan gest kvöldsins, kominn beint frá Thailandi að hitta vini og kunningja og kynna hið fagra „Brosandi land“ sitt. Ókeypis aðgangur, ferðaupplýsingar, bæklingar og happdrættismiði fylgir. FERÐASKRIFSTOFAN PRÍMA” HEIMSKLÚBBUR INGÓLFS Austurstræti 17,4. hæð 101 Reykjavík, sími 56 20 400, fax 562 6564 Netfang: prima@heimsklubbur.is Heimasíða: http//www.heimsklubbur.is EINSTAKT TÆKIFÆRI AÐ KYNNAST ÞVI BESTA ATH. TAKMARKAÐ SÆTARÝMI í ÁRSAL IAILANDI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.