Morgunblaðið - 12.07.1998, Side 12
12 SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Umd
band
loftl
E!
| FTIR að hafa tekið sér
tvö ár til þess að grann-
skoða væntanlegt banda-
llag British Airways (BA)
og American Airways (AA) gaf
Evrópusambandið loks út tilkynn-
ingu um niðurstöðu síðastliðinn
miðvikudag. Flugfélögunum er
heimilt að tvímenna á Atlantshafs-
markaðnum en með skilyrðum.
Fyrst og fremst verða þau að lýsa
sig reiðubúin til þess að láta keppi-
nautum sínum í té allt að 267
komuleyfi vikulega á tveim flug-
völlum við London, Heathrow og
Gatwick.
„Framkvæmdastjóminni þykir
sýnt að samkomulag BA og AA
geti hindrað samkeppni, en slíkt
brýtur í bága við 85. grein sátt-
mála Evrópusambandsins," sagði í
yfirlýsingu frá framkvæmda-
stjóminni.
Þetta þótti framámönnum flug-
félaganna harkalegur kostur. Ro-
bert Ayling, framkvæmdastjóri
BA, sagði að „sum þeirra skilyrða
sem Evrópusambandið (ESB) set-
ur eru of ströng og bitna á flugfé-
laginu og Bretlandi". Hann sagði
að ef félögin yrðu að láta af hendi
þessi leyfi myndi slíkt þýða að
störf glötuðust og BA gæti ekki
skapað önnur í staðinn.
Engar bætur
Skilyrði ESB hljóða upp á að
BA/AA láti keppinautum sínum
eftir komuleyfi ef og um leið og
farið verður fram á það. Samband-
ið segir að félögunum verði ekki
greiddar neinar bætur fyrir leyfi
sem þau verði af með þéssum
hætti, og tók fram að BA mætti
ekki selja bandarískum flugfélög-
um komuleyfin.
Ekki er þó víst að félögin beri
með öllu skarðan hlut frá borði,
því samkvæmt samningi sem hol-
lenska ríkisflugfélagið KLM gerði
nýlega við British Airways er
hvert komuleyfi á flugvelli við
London metið á þrjár milljónir
Bandaríkjadollara, eða sem svarar
216 miiljónum íslenskra króna.
Stjömubandalagið
En bandalag BA og AA er ekki
eina flugfélagabandalagið sem
ESB setti skilyrði á miðvikudag.
Svokaliað Stjörnubandalag, sam-
starf SAS, Lufthansa, bandaríska
flugfélagsins United Airlines, Air
Canada, tælenska félagsins Thai
og hins brasilíska Varig, verður
einnig leyft einungis að uppfylltum
skiiyrðum.
Meðal annars skal bandalagið
afsala sér ríflega 100 komuleyfum í
Frankfurt og Kaupmannahöfn, og
fækka ferðum á leiðunum .Frank-
furt-Washington og Frank-
furt-Chicago.
Ástæða þess að Evrópusam-
bandið setur þessi skilyrði er ótt-
inn við að bandalög flugfélaga
skipti öllum markaðnum með sér
og geri smærri félögum þar með
ókleift að taka þátt í sanngjamri
samkeppni. Smáfuglarnir hafa
enda látið í sér heyra um þessi
bandalög, og hefur Virgin Atlantic,
sem er í eigu Richards Bransons,
haldið uppi skipulegri gagnrýni á
bandalag BA og AA.
Virgin heldur því fram að skil-
.
na
BRrnSH AIRWAVS
»i*»**i i *****•»*<
Versta samkrull sem hugsast gat og skapar
einokun á flugi yfír Atlantshafið - eða
bandalag sem bætir samkeppnisaðstöðu og
kemur á endanum neytendum til góða með
því að leiða til verðlækkana? Það eru deild-
ar meiningar um væntanlegt bandalag Brit-
ish Airways og American Airlines, og segja
fréttaskýrendur að fátt annað í flugbrans-
anum hafí orðið að öðru eins þrætuepli.
BANDALOG FLUGFÉLAGANNA
901
flugvél
■ ■■■ 112,5
> IT I milljónir
1.161.000
tonn
American British
Airlines Airways
Skýringar
561
flugvél
• • ■ •
■ ■■■ 65,6
* ■ * 1 milljónir
1.271.000
tonn
KLM Northwest
FLUGFLOTI
ftÍÍ
FARÞEGAR
(milljónir)
FRAKT
(f tonnum)
560
flugvélar
• • • •
ffff 113,9
' * 1 1 milljónir
830.000
tonn
Austrian
Delta Sabena Swissair
ffff
1.355
flugvélar
172,9
milljónir
2.641.000
tonn
Farþegafjöldi og
fraktflutningar 1996,
innanlandsflug meðtalið
AirCanada Lufthansa
SAS
Varig
Heimild: IATA og The Aerospace Intemational Directory ol Wortd Airlines
yrðin séu ekki nægilega ströng.
„Þetta einokunarbandalag kemur
viðskiptavinum á engan hátt til
góða, og veitir flugfélögunum
tveim, sem eru að líkinum þau öfl-
ugustu í heimi, yfirráð yfir 60%
markaðarins fyrir flug yfir Atl-
antshafið," sagði í yfirlýsingu frá
Virgin á miðvikudaginn.
Seott Yohe, yfiraðstoðarforstjóri
hjá Delta Air Lines í Bandaríkjun-
um, sagði að afstaða ESB, eins og
hún liti út nú, myndi gera BA/AA
kleift að „drekkja keppinautum
sínum á Heathrow".
Meðal þeirra stærstu
BA og AA eru á meðal stærstu
flugfélaga í heimi, og í nýlegri út-
tekt Flight International kemur
meðal annars fram að á síðasta ári
var AA það flugfélag i heiminum
sem skilaði mestum hagnaði, og
BA var í fjórða sæti á þeim lista.
Af öðrum bandalagsfélögum á list-
anum má nefna United og Luft-
hansa, sem eru númer tvö og átta;
og Delta og Northwest eru númer
þrjú og sex.
Samkvæmt lista Flight var AA í
þriðja sæti er varðar farþegafjölda
á síðasta ári, flutti alls 81,083 millj-
ónir farþega, og BA var í tíunda
sæti með 34,184 milljónir. Banda-
ríska félagið Delta var í fyrsta
sæti, flutti alls rúmlega 103,2 millj-
ónir farþega.
David Barrett, flugmálasér-
fræðingur við Gemini-ráðgjafar-
fyrirtækið, tjáði Reuters-sjónvarp-
inu að ákvörðun ESB væri „næsta
stóra skrefið í átt til þess að rekst-
ur flugfélaga verði að öllu leyti á
hnattrænum grundvelli“. Barrett
segir að með þessu móti
verði settar reglur „til
þess að viðhalda sam-
keppni í heimi sem hef-
ur hingað til ekki lotið
reglum og smærri flug-
félög vemduð gegn því að verða
ofurliði borin af þessum bandalög-
um“.
Sífellt færri um hituna
Þrátt fyrir að stjómarstofnanir
hafi áhyggjur af þeim áhrifum sem
bandalög flugfélaga geti haft á
samkeppnisaðstæður virðist fátt
ætla að halda aftur af bandalags-
myndunum. Flugfélög gera hvað
þau geta til að draga úr kostnaði
og stækka markaðssvið sín, því sí-
fellt færri reglur virðast gilda á
þessum markaði.
„Það verða sífellt fæm og færri
um hituna,“ sagði Alistair Gunn,
samgöngumálasérfræðingur hjá
franska bankanum Credit Lyonna-
is, við Reuters í síðustu viku. „Mér
þykir líklegt að í heiminum öllum
verði á endanum þrjú eða fjögur
Komuleyfið á
þrjár milljónir
dollara
risaveldi." Gunn kveðst halda að
markaðurinn muni skiptast í tvö
svið, annars vegar verði stóm risa-
flugfélögin og hins vegar smærri
félög sem hreiðri um sig á þrengri
vettvangi.
Stærsta bandalagið er nú
Stjömubandalagið, sem nefnt er
hér að framan. Bandaríska flugfé-
lagið Northwest og hollenska
KLM urðu fyrst til að slá saman í
Atlantshafsflugi; Delta er í sam-
starfi við belgíska félagið Sabena,
Swissair og Austrian Airlines.
Of mörg félög?
Samtök evrópskra flugfélaga,
sem ríkisflugfélögin eiga aðild að,
hafa bent á að í flugrekstri sé enn
mun meiri skipting en í öðrum
hnattrænum viðskiptageirum.
„Það eru einfaldlega of mörg flug-
félög hvert í sínu lagi að fást við
sitt, hvert í sínum heimshluta,"
sagði David Henderson, upplýs-
ingafulltrúi samtakanna, við
Reuters.
Takmarkanir á eignarhlutum og
aðrir pólitískir þættir torvelda
beina sameiningu félaga og þess
vegna hafa bandalagsmyndanir
orðið vinsæl leið til að stækka
markaði og njóta hagkvæmni
stærðarinnar. Sérfræðingar telja
líklegt að tengsl félaga vestan hafs
og austan muni halda áfram að
þróast. „Ég held að það
hljóti að verða,“ sagði
Henderson, „en ég veit
ekki nákvæmlega
hvemig það verður.“
Fulltrúi samtakanna
sagði að stjómendur þeirra teldu
nauðsynlegt að ýta undir endur-
skipulagningu flugrekstrarins til
þess að tryggja að að minnsta
kosti sum evrópsku félaganna
stækki og færi út kvíarnar í álf-
unni. Hann nefndi að nokkur flug-
félög, svo sem TAP í Portúgal og
Olympic í Grikklandi, væm enn án
sterkra tengsla við stór bandalög.
Þau félög sem enn væm utan
bandalaga þyrftu þó að tengjast
bandalögum sem þegar væm til,
en ekki stofna ný. „Það em núna
fjögur eða fimm bandalög, og þau
verða líklega ekki fleiri," sagði
fulltrúinn.
Henderson benti á, að fá banda-
rísk félög væm á lausu. „Ég held
að almennt sé litið svo á, að til að
stofna heimsbandalag þurfi maður
að hafa sterkt bandarískt félag