Morgunblaðið - 12.07.1998, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1998 13
með.“ Hann segir að vel stæð
bandarísk félög séu ekki mörg, og
þau séu flest lofuð.
Farþegum til hagsbóta?
Karel Van Miert, sem fer með
samkeppnismál í framkvæmda-
stjórn ESB, tilkynnti um skilyrðin
fyrir bandalagsmynduninni á mið-
vikudag. Hann lét í ijósi þær
áhyggjur að stór bandalög kynnu
að sölsa undir sig allan markaðinn
og úthýsa hinum smærri. Þess
vegna væri bandalagamyndun
ekki neytendum tii
hagsbóta, þegai' allt
kæmi til alls.
Eins og vænta mátti
var Henderson þessu
algerlega ósammála.
„Við mótmælum eindregið öllum
htigmyndum um að [bandalögin]
komi illa við neytendur," sagði
hann.
En Richard Branson, eigandi
Virgin, er ekki aldeilis á því. Hann
hefur kallað bandalag BA og AA
„hreint helvíti" og haldið því fram
að afleiðingarnar verði hærri far-
gjöld og verri þjónusta.
Bretar jákvæðir
Forráðamenn BA tóku sem fyrr
segir dræmt í skilyrði ESB. Þeir
kváðust þó geta unað þeim ef þau
mættu verða til þess að bandalagið
við AA gæti orið að veruleika. En
áður en að því kemur þurfa bresk
stjórnvöld að leggja blessun sína
yfir samninginn, og það verður
væntanlega með haustinu.
Á miðvikudag tilkynnti breska
viðskiptaráðuneytið að Bretar
hygðust veita samþykki yjð banda-
laginu, og myndu setja skilyrði
sem yrðu að mestu samhljóma
skilyrðum ESB. En áður en Bret-
ar samþykkja nokkuð þurfa þeir
að ná samkomulagi við bandarísk
stjómvöld um frelsi í flugi.
Þá er bandalagið einnig háð
samþykki bandaríska samgöngu-
ráðuneytisins, sem hefúr sagt að
slíkt samþykki verði ekki veitt íyrr
en nýtt samkomulag við Breta um
aukið frelsi í flugi verði undirritað.
Ferðum fækki
Van Miert sagði að BA yrði ekki
látið komast upp með að sitja á
komuleyfunum. Samkeppnisaðilar
yrðu að geta fengið þau afhent um
leið og þeir færu fram á
það. Talan 267 væri
byggð á tölum frá árinu
1996, en hún yrði end-
urskoðuð þegar tölur
síðasta árs lægju iyrir.
Auk þess að láta komuleyfin af
hendi verðm- BA/AA einnig að
gefa eftir aðstöðu á flugvelli til
þess að leyfin geti nýst.
ESB setur fleiri skilyrði, meðal
annars verði BA/AA að fækka
flugferðum sínum, fari keppinaut-
ar fram á það, á leiðunum
London-Dallas, London-Miami og
London-Chicago, en umferð á
hverri leið nemur 120 þúsund far-
þegum á ári eða fleiri og BA/AA
fljúga yfir 12 ferðir á viku.
Þá segir einnig í niðurstöðu
ESB að ef keppinautur hyggist
veita nýja þjónustu eða bæta þá
sem fyrir er en geti ekki fengið
nauðsynleg komuleyfi verði
BA/AA að láta honum í té leyfi á
flugvelli við London.
Framkvæmdastjórn ESB tók
fram að niðurstöðumar væru ekki
endanlegar, og hægt væri að gera
athugasemdir við þær næsta mán-
uðinn, áður en lokaniðurstaða
fengist.
• Byggt á Reuters, Flight International,
BBC og Associated Press.
„Hreint hel-
víti“ segir
Branson
ÓdaS
20-70% afsláttnr
Ungbarnafatnaður.
Aðeins góð vörumerki.
FI ONi
CLA1R6
SÉRVERSLUN MEÐ BARNAVÖRUR
Síöumúla 22*108 Reykjavík • Sími 581 2244 • Fax 581 2238
Lítil flugfélög talin eiga
auðveldara um vik
FLUGLEIÐIR eru ekki beinn
þátttakandi í bandalögum stóru
félaganna. Einar Sigurðsson,
framkvæmdastjóri stjórnunar-
og stefnumótunarsviðs félagsins,
segir það eiga samstarf við SAS,
sem er aðili að Stjöraubandalag-
inu, fyrst og fremst í Evr-
ópuflugi.
Einar segist telja að áhrif
bandalaganna á Flugleiðir verði
fyrst og fremst almenn. „Verð á
flugmiðum í alþjóðaflugi hefur
verið lækkandi mörg undanfarin
ár, og bandalögin eru viðleitni
flugfélaganna til þess að halda
áfram þeirri þróun. Stækka
reksturinn til að ná niður ein-
ingakostnaði, það er að segja
kostnaðinum við að fljúga hverj-
um farþega einn kílómetra."
Einar kveðst ekki sjá neitt í
þeirri þróun, sem orðið hafi í
flugrekstri undanfarin ár, er
bendi til þess að bandalögin muni
hafa þau áhrif að
fækka þeim sem eru
uin hituna og þannig
leiða til hækkunar á
verði. „Þessi banda-
lagaþróun hefur ver-
ið viðvarandi núna í
nokkur ár. Ef við lít-
um til dæmis á slag-
inn á Norður-Atlants-
hafínu í vetur, þá
hefur hann verið al-
veg óvenju harður.
Bandalögin munu
beijast harkalega sín
í milli og verða
stærri og sterkari til
þess.“
„Við höfum byggt
upp okkar eigin Norður-Atlants-
hafsflug með nýjum hætti, og
flugið yfír hafið er fullnýting á
flugvélum sem við erum með í
flugi til og frá íslandi," segir
Einar. Að jafnaði sé um það bil
helmingur farþeg-
anna, sem Flugleiðir
fljúgi með, á leið yfír
hafíð, hinir á leið til
eða frá íslandi.
Einar segir að
Flugleiðir einbeiti
sér að því að reyna
að lækka einingar-
kostnaðinn vegna
þess að þar á bæ líti
menn svo á að verð
muni enn fara lækk-
andi. „Það sem menn
hafa rætt um er að
sennilega muni flug-
félög af millistærð
erfíðast uppdráttar.
Flugfélög af þeirri
stærð sem Flugleiðir eru, sem er
mjög lítið flugfélag á alþjóðavett-
vangi, muni eiga auðveldara um
vik að fínna sér smugu á mark-
aðnum, þau þurfa tiltölulega litl-
ar smugur.“
Einar
Sigurðsson