Morgunblaðið - 12.07.1998, Page 14

Morgunblaðið - 12.07.1998, Page 14
14 SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ HM l' KNATTSPYRNU Urslitaleikur heimsmeistarakeppninnar í kvöld Orrustan um París Um allan heim er beðið með eftirvæntingu eftir sjálfum úrslitaleiknum á HM í knattspyrnu, sem fram fer í kvöld. Frakkar, gestgjafarnir, taka þá á móti heimsmeisturum Brasilíu í leik, sem snýst ekki síst um hvort hafi betur, sambasóknir Bras- ilíu eða öguð varnarlína Frakka. Björn Ingi Hrafnsson kynnti sér líklega uppstillingu liðanna. Reuters DUNGA, fyrirliði Brasilíumanna, stjórnar leik liðsins á miðjunni, hraða og hvenær á að blása til sóknar. Urslitaleiksins í kvöld er beðið með mikilli eftirvæntingu. Aldrei áður hafa gestgjafamir á HM og ríkjandi meistarar ást við um heimsmeistara- titilinn og sparkfræðinga greinir á um hvort þjálfarar liðanna bjóði upp á sóknar- eða vamarleik í kvöld. Forvitnilegt er að velta fyiir sér uppstillingu liðanna. Leikbönn, meiðsli og annað hefur sett strik í reikninginn og því er ekki úr vegi að bera liðin saman út frá vöm, miðju og sókn. Varnir liðanna: Frakkar með vinninginn ■ Frakkland: Þjálfarinn Aime Jacquet mun líklega halda sig við vamarleikinn, sem liðið hefur byggt á hingað til í keppninni. Fjórir vam- armenn - tveir bakverðir og tveir miðverðir - hafa reynst Frökkum af- ar vel til þessa og liðið hefur fengið fá mörk á sig. Engu breytir þótt Laurent Blanc sé í leikbanni, Franck Leboeuf, leikmaður Chelsea, mun taka sæti hans. Eflaust mun fjarvera Blancs veikja liðið eitthvað, enda hafa hann og Marcel Desaiily leikið stórkost- lega í miðvarðarstöðunum tveimur. Innkoma Leboeufs er þó athyglis- verð í ljósi þess, að hann mun leika ásamt Desailly í vöm Chelsea á næstu leiktíð. Þótt Leboeuf sé ekki jafn skapandi og Blanc er hann þó marksældnn og afar skotfastur. Jafnvel má búast við, að þeir Desa- illy muni skiptast á að sækja upp völlinn. Það er grátlegt fyrir Blance að eina rauða spjaldið sem hann hef- ur fengið á glæsilegum keppnisferli, hafi kostað hann úrslitaleik í HM. I stöðu vinstri bakvarðar leikur Bixente Lizarazu, afar sókndjarfur leikmaður. og geysilega fljótur. Fé- laga hans í hægri bakverðinum, Lili- an Thuram, þarf vart að kynna eftir stórkostlega frammistöðu í undanúr- slitunum gegn Króatíu, þar sem hann gerði m.a. tvö glæsimörk. Báðir þess- ir leikmenn em nánast þindarlausir og alltaf á ferðinni. Sú staðreynd, að þeir hafa báðir skorað mörk í keppn- inni, spillir heldur ekki fyrir. Markvörðurinn Fabien Barthez hefur átt mjög góða leiki í keppninni og staða hans er traust, þrátt fyrir harða gagnrýni franskra fjölmiðla fyrir HM. ■ Brasilía: Ef hægt er að tala um veikleika í liðinu, má kannski benda á miðvarðaparið. Junior Baiano og Aldair hafa ekki sama sjálfstraust og hreyfanleika og hinir frönsku starfsbræður þeirra. Hin hefðbundna liðsuppstilling Mario Zagallos þjálfara, 4-4-2, treyst- ir mjög á frammistöðu bakvarðanna. Þar era nú heldur engir aukvisar á ferð; Roberto Carlos og Cafu era báðir geysilega fljótir og sókndjarfir og jafngilda eiginlega útherjum ofan á bakvarðastöður sínar. Sókndirfska þeirra er augljós kostur, en hún er einnig stærsti ókostur þeirra og get> ur skilið eftir stór göt í vöminni, eins og sást bæði gegn Norðmönnum og Hollendingum. Um markvörðinn Claudio Taffarel er ekki margt að segja. Hann hefur stundum verið talinn veikasti hlekkur liðsins, en á HM að þessu sinni hefur hann leikið óaðfínnanlega. Miðlínan: Snillingar í öllum stöðum ■ Frakkland: Hér snýst nálega allt um snillinginn Zinediue Zidane. Hann lék geysilega vel gegn Króöt- um og fjarvera hans í tveimur leikj- um vegna leikbanns sýndi vel, að franska liðið getur vart án hans ver- ið. Samvinna hans og Emmanuels Petits hefur verið aðdáunarverð og raunar er talað um Petit sem eina stærstu uppgötvun keppninnar. Fyrirliðinn Didier Deschamps er ómissandi hlekkur í miðvallarskipu- lagi Frakka og stutt spil þeirra Zida- nes er mikið augnakonfekt. Þá bind- ur hann vörn og sókn vel saman og gefur aldrei tommu eftir í návígjum. Miklu máli mun skipta hvor nær undirtökunum á miðjunni, Deschamps eða Dunga í liði Brasilíu- manna. ■ Brasilía: Fyrirliðinn Dunga ræður hreinlega hraðanum í liðinu og undir honum er komið úr hvaða átt er sótt hverju sinni. Næstum öllu í leik heimsmeistaranna er stjórnað af þessum snjalla leikstjómanda og þótt hraði hans sé ekki jafn mikill og áður, vegur hann það upp með hár- nákvæmum sendingum og mikilli út- sjónarsemi. Með Dunga á miðjunni leika nokkrir afskaplega frambærilegir knattspyrnumenn. Nýstirnið Cesar Sampaio hefur leikið eins og engill hingað til í keppninni og gert þrjú glæsimörk. Ekki má heldur gleyma Rivaldo og Leonardo auk þess sem Roberto Carlos er ávallt viðbúinn á vinstri vængnum. Brasilíumenn geta haft mikla yfir- burði í leikjum sínum, nái þeir al- mennilegum tökum á miðjunni. Þó hættir liðinu nokkuð til að bakka óþarflega mikið, hafí það náð forystu og hleypa þannig andstæðingnum aftur inn í leikinn. Þetta henti t.d. í fyrsta leik liðsins gegn Skotlandi. Leonardo hefur leikið vel í keppn- inni og hraður leikstíll hans vegur ágætlega upp á móti þeim hæga sem Dunga beitir. Sóknarlínan: Allir dansa samba ■Frakkland: Af þeim tólf mörkum, sem Frakkar hafa gert í keppninni til þessa, hafa aðeins fimm komið frá sóknarmönnum liðsins. Uppstilling Aime Jaquets - venjulega 4-3-3 eða 4-4-2 - gæfi tilefni til að halda annað, en sannleikurinn er sá, að framheij- ar liðsins „týnast" oft löngum stund- um og ógna ekki sem skyldi. Miðvallarleikmaðurinn Youri Djorkaeff hefur verið framliggjandi í flestum leikjunum, án þess þó að skora mörk. Hið sama gildir um þann mikla markaskorara Stephane Guivarch, sem oft virðist einangrað- ur og jafnvel einmana í framlínunni. Þjálfarinn Jacquet hefur reynt alla þá sóknarmenn, sem hann hefur í liði sínu. Bernard Diomede, Christophe Dugan-y, Thierry Henry, Robert Pires, David Trezeguet og Guivarch hafa allir fengið tækifæri, en af ýmsum ástæð- um hefur dæmið ekki gengið upp. Dugarry meiddist eftir að hafa loks slegið í gegn með tveimur góðum mörkum, en Henry hefur náð sér einna best á strik - hefur gert þrjú mörk í keppninni og ávallt tekið ein- hvem þátt í leik liðsins. ■ Brasilía: Þótt framlínan hafi eitt- hvað verið að plaga Frakkana, gildir ekki hið sama um sambakóngana frá Brasilíu. Þar vaxa framherjar nánast á trjánum og fjölmargir orðlagðir markahrókar komust ekki einu sinni með liðinu á HM, t.d. Giovanni Elber hjá Bayern Múnehen. Engum dylst þó, að galdramaður- inn Ronaldo ber af í sókn Brassanna sem gull af eiri. Sóknarleikur liðsins nýtur hraða hans og leikni og býður síðan upp á fleiri valmöguleika en flest önnur lið gæti dreymt um. Þannig gerist oft að Ronaldo leikur á einn eða tvo vamarmenn og gefur síðan á nærstadda félaga, sem sök- um mai-kagræðgi eru oft fleiri en einn og fleiri en tveir. Bebeto á auð- vitað að vera í framlínunni, rétt eins og Ronaldo, en oftsinnis gerist það, að Rivaldo, Leonardo og jafnvel Car- los séu einnig staddir í framlínunni. Ahersla varnarmanna á að stöðva Ronaldo í aðgerðum sínum skapar síðan aukið pláss fyrir félaga hans og sé Brasilía í sóknarhug er ekki von á góðu. Ekki er þó laust við að það hvarfli að manni, að Romario myndi hafa skerpt sóknarlínuna enn frekar. I kvöld má búast við enn skarpari sóknarleik en venjulega, ef marka má spár sérfræðinga. Fjarvera Blancs gerir það að verkum, að búist er við stöðugri pressu brasilísku framherj- anna og þeir ættu svo sem að geta staðið undir því. Ronaldo (4 mörk), Bebeto (3) og Rivaldo (3) eru allir reiðbúnir til oirustu og á bak við þá leynist Sampaio, sem einnig hefur gert þijú mörk. Aukinheldur á Za- galli einn ás til uppi í erminni. Ungur drengur að nafni Denilson hefur stundum verið að koma inn á hjá Brössunum, en þess má geta að hann er einmitt dýrasti leikmaður í heimi! Sannkölluð veisla Fleiri horfa á úrslitaleikinn á HM en nokkurn annan íþróttaviðburð í sjónvai-pi. Raunar era vandfundnir þeir viðburðir sem fanga athygli fleiri áhorfenda um heim allan, og gildir þá einu hvaða tungu menn tala og hverja trú menn iðka. Úrslitin á HM era einfaldlega toppurinn á til- verunni fyrir gríðarstóran hluta mannkyns og óteljandi era þau augu, sem fylgjast munu með viðureign snillinganna í kvöld. I leikslok er viðbúið að við taki til- heyrandi tilfinningaleg viðbrögð, allt eftir því sem við á og hvaða liði við- komandi hefur heillast af. Auðvitað mun sitt sýnast hverjum í uppgjör- inu eftir stóra leikinn og viðbúið er að frammistaða dómarans, sem er fjögurra barna faðir frá Marokkó, verði tekin til nákvæmrar rannsókn- ar. Svo ekki sé minnst á frammi- stöðu einstakra leikmanna og aðferð- ir þjálfaranna. Svo mikið er í húfi, að öll venjuleg lögmál um knattspyrnu- leiki þurfa að víkja þegar leikur kvöldsins er til umræðu. Eða eins og einhver sagði; „Knattspyrna er bara leikur.“ - Betra ef satt væri. r r Utsalan hefst á morgun • Utsalan hefst á morgun

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.