Morgunblaðið - 12.07.1998, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1998 21
því þar með vaeri þeim unnt að
rækta menningararf sinn þótt þeir
væru ekki lengur læsir á íslensku.
Enska heildarútgáfan væri geysi-
mikilvægt metnaðarmál Vestur-ís-
lendingum því þeim hefði oft
reynst erfitt að hreykja sér af upp-
rana sínum, eins og títt er um
þjóðarbrot þar vestra, því sögurn-
ar hefðu ekki fyi-r verið aðgengi-
legar í vönduðum þýðingum.
Lögðu þeir mikla áherslu á að
stuðlað væri að því að bækurnar
kæmust sem víðast í bókasöfn og
skóla.
Jóhann segir að við þennan
mikla áhuga hafi hann farið að
velta fyrir sér með -------
hvaða hætti væri Sögulegt tækifæri til
best að koma sög- að koma sögunum á
unum á framfæri framfæri.
þar vestra. Við þær ________________
vangaveltur hafi
kviknað sú hugmynd hvort ekki
væri ráð fyrir Island í tilefni þús-
und ára afmælis landafundanna í
Vesturheimi að gefa Vestur-ís-
lendingum þúsund sett af íslend-
ingasögunum sem síðan yrði dreift
í bókasöfn, skóla, elliheimili og til
félagasamtaka og stofnana þar
sem Vestur-íslendingar væra bú-
settir. Ekki síst hafi það verið
hugsunin að sýna Vestur-íslend-
ingum þakklætisvott íyrir þá
miklu vinsemd sem þeir hefðu
jafnan sýnt gamla ættlandinu, svo
sem á fyrri hluta aldarinnar þegar
arfundur og þar komu fram fulltrú-
ar átta stofnfélaga sem hver um sig
lagði fram ígildi þrjátíu eintaka til
átaksins, en það era Akm’eyrar-
bær, Búnaðarbanki íslands, Flug-
leiðir, Húsavíkurbær, Islenskir að-
alverktakar, Kaupfélag Þingey-
inga, Landsvirkjun og Seðlabanki
íslands.
Fulltrúi íslensku þjóðarinnar
mun afhenda þjóðargjöfina síðar á
þessu ári. Vestur-íslendingar hafa
skipað tvær nefndir, aðra sem
annast móttöku á gjöfinni og sér
um að dreifa bókunum, hina sem á
að sjá til þess að gjöfin fái verðuga
umfjöllun í fjölmiðlum á hverjum
------------ stað. Vestur-íslend-
ingum er umhugað
um að gert verði
sem mest úr Igjöf-
___ inni og tækifærið
notað til að kynna
þjóðarbrotið í Vestur-
íslenska
heimi. Hverju eintaki þjóðargjaf-
arinnar fylgir skrautritað slcjal
með nöfnum allra gefenda og
fjölda eintaka og verður gjafabréf-
ið hengt upp í þeim stofnunum
sem fá bækur að gjöf. Gjafaein-
tökin verða ennfremur merkt
þjóðargjöfinni sérstaklega. Það er
áreiðanlegt að Leifur heppni mun
vekja geysimikla forvitni í Banda-
ríkjunum í sambandi við árþús-
undaskiptin. Það býður uppá ein-
stakt tækifæri til að koma Islend-
ingasögunum á framfæri og það
VÍKINGAR á skipi sínu. Mun vera sömu gerðar og það skip sem Bjarna
Herjólfsson hrakti á til Ameríku. Málverk úr kirkjuþaki. (tír bókinni
Handan við sjóndeildarhring, útg. Örn & Örlygur, 1974.)
Vestur-íslendingar styrktu mynd-
arlega ýmis framfaramál í atvinnu-
lífi og menningarmálum til að
skjóta stoðum undir sjálfstæði Is-
lands. Hugmyndin var sem sagt
annars vegar að endurgjalda Vest-
ur-íslendingum foma og nýja vin-
semd og hins vegar að tryggja að
sögurnar væra sýnilegar í helstu
mennta- og lærdómsstofnunum
vestra þegar árþúsundaskiptin
verða og kastljósið beinist óhjá-
kvæmilega að Leifi Eiríkssyni og
þeim skráðu heimildum sem
geyma frásagnirnar um Vínland
hið góða.
Eftir að hugmyndin kviknaði var
leitað til Landafundanefndar, Þjóð-
ræknisfélags íslendinga og emb-
ættis forseta íslands um að veita
þessu framtaki liðsinni. Jóhann
kannaði síðan landið meðal fyrir-
tækja og sveitarfélaga og reyndist
víða mikill áhugi fyrir að leggja fé
til slíkrar þjóðargjafar til Vestur-
íslendinga. Var ákveðið að forseti
íslands skyldi vera verndari verk-
efnisins og söfnunin skyldi fara
fram með þeim hætti að leita til
sveitarfélaga, fyrirtækja, félaga-
samtaka og einstaklinga og bjóða
þeim þátttöku í þjóðargjöfinni með
því að leggja fram ígildi eins eða
fleiri eintaka af safninu The Comp-
lete Sagas of Icelanders. Bækur til
þjóðargjafarinnar eru undanþegn-
ar virðisaukaskatti, en verð hvers
eintaks er 35.000 krónur. Fyrir fá-
um vikum var svo haldinn kynning-
tækifæri megum við ekki láta
renna okkur úr greipum. Hér er
ekki um háar fjárhæðir að tefla.
Sjálf þjóðargjöfin nemur aðeins
um 35 milljónum króna. Er full
ástæða fyrir stjórnvöld að gaum-
gæfa hvort e.t.v. væri ráð að jafna
þjóðargjöfina með framlagi úr rík-
issjóði og þjóðargjöfin næmi þá
tvö þúsund eintökum - og í kjöl-
farið fylgdi síðan vel skipulögð
herferð til kynningar á menning-
ararfi okkar í skólum og bókasöfn-
um vestanhafs.
Nú þegar hafa safnast ígildi 460
eintaka af þeim 1.000 sem er tak-
markið. Mikið ríður á að fyrirtæki
og sveitarfélög bregðist vel við
söfnuninni í sumar. Vissulega er
mikil ásókn í styrktarfé frá stór-
um fyrirtækjum og ekki nema
eðlilegt að þar sé stundum komið
að luktum dyrum; fyrirtækin eru
einfaldlega ekki alltaf aflögufær.
En hér er um svo einstakt tilefni
og tækifæri að ræða að stjórnend-
ur fyrirtækja hljóta að hugsa sig
tvisvar um áður en þeir gefa af-
svar. Þegar þeir fá næði til að
kynna sér málavexti munu þeir
áreiðanlega hiklaust leggja sitt af
mörkum í þessu þjóðarátaki til að
sýna Vestur-íslendingum verðug-
an og tímabæran sóma um leið og
reynt er í fyrsta sinn með raun-
hæfum hætti að skapa menning-
ararfi Islendinga langþráða fót-
festu í hinum enskumælandi
heimi.
Sumarbrids 1998
BRIDS
IJiiisjón Arnór G.
Ragnarsson
ÞRIÐJUDAGINN 7. júlí var spilaður
12 para Howell-tvímenningur. Efstir
urðu þessir spilarar (meðalskor var
165):
Eðvaró Hallgrímsson - Þórður Sigfússon 196
Dúa Ólafsdóttir - Kristinn Þórisson 181
Jón Viðar Jónmundsson - Baldur Bjartmarss.175
Erla Sigurjónsdóttir - Guðni Ingvarsson 174
Miðvikudaginn 8. júlí var einnig
Howell og urðu þessi pör efst (meðal-
skor var 84):
Guðmundur Baldursson - Steinberg Ríkarðss.101
Esther Jakobsdóttir - Gylfi Baldursson 99
Erla Sigurjónsdóttir - Guðni Ingvarsson 96
Dúa Ólafsdóttir - Friðrik Jónsson 85
Fimmtudagskvöldið 9. júlí mættu
34 pör til leiks, spilaðar voru 14 um-
ferðir í Mitchell með 2 spilum í um-
ferð. Efstu pör:
NS
Gylfi Baldursson - Sigurður B. Þorsteinsson 466
Eðvarð Hallgtímsson - Valdimar Sveinsson 399
Geirlaug Magnúsdóttir - Torfi Axelsson 395
Aðalbjöm Benediktss. - Jóhannes Guðmannss. 389
Sigfús Þórðarson - Gunnar Þórðars. 385
AV
Guðjón Bragason - Ólafur Steinason 509
Hjálmar S. Pálsson - Friðjón Þórhallsson 429
Garðar Jónsson - Þorleifur Þórarinsson 415
Guðmundur Baldursson - Sævin Bjamason 397
Amór Ragnarsson - Karl Hermannsson 389
Spilað er öll kvöld nema laugardags-
kvöld og hefst spilamennskan kl. 19.00.
Spilastaður er að venju Þönglabakki 1 í
Mjódd, húsnæði Bridgesambands ís-
lands. Útsláttarsveitakeppni er spiluð
að loknum tvímenningi á föstudags-
kvöldum og hefst hún um kl. 23.00.
Hægt er að mæta í hana eingöngu, en
þá er betra að vera búinn að skrá sig
símleiðis (S. 5879360). Allir eru hvattir
til að mæta, hjálpað er til við að mynda
pör og sveitir úr stökum spilurum.
GSP