Morgunblaðið - 12.07.1998, Side 24

Morgunblaðið - 12.07.1998, Side 24
24 SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ _______H0gni Hoydal er 32 ára ráðherra í nýrri landstjórn Færeyja og hefur sjálfstjórnarmál og________ undirbúning færeysks fullveldis á sinni könnu. Hann var áður fréttamaður við færeyska sjónvarpið og vakti athygli fyrir vaska framgöngu í fréttum af bankamálinu svokallaða. Hanna Katrín Friðriksen og Ragnhildur Sverrisdóttir hittu H0gna að máli í Þórshöfn og ræddu við hann um framtíðarsýn Færeyinga, sem líta til íslands sem fyrirmyndar í fullveldismálum. Morgunblaðið/Bára „FYRST þurfa Færeyingar að ná stjórnmálalegu sjálfstæði og þá fylgir efnahagslegt sjálfstæði í kjölfarið," segir Hflgni Hoydal, ráðherra sjálfsljórnarmála í Færeyjum. RÁÐHERRANN er, eins og nafnið gefur til kynna, frá Hoydal, litlum dal inn af bænum Hoyvík, örstutt frá Þórshöfn. Hann er í sambúð og á þrjú börn. Um tíma var hann kennaralærlingur í Færeyjum, vann við fiskvinnslu og stundaði sjóinn eins og svo margir landar hans, en hélt síðan til Danmerkur og nam sögu og almannatengsl. Þegar hann sneri heim varð hann fréttamaður við færeyska sjón- varpið. Svo vinsæll varð Hflgni af störfum sínum að í kosningunum 30. apríl sl. fékk hann meira fylgi en nokkur einstaklingur getur stát- að af hingað til. Þegar ný land- stjórn var sett á laggimar urðu ráðherraembættin átta talsins. Fólkaflokkurinn fékk embætti lög- manns í sinn hlut, auk sjávarút- vegsmála og samgöngumála og Sjálfstýriflokkurinn fékk félags- og heilbrigðismál, auk olíumála. Flokkur Hpgna Hoydal, Þjóðveld- isflokkurinn, fékk fjármál og menntamál í sinn hlut, auk emb- ættis ráðherra sjálfstjórnar- og fullveldismála, en Hpgni gegnir einnig embætti samstarfsráðherra Norðurlandanna og fer með dóms- málin. Síðar, að fengnu fullveldi, mun þetta ráðherraembætti að lík- indum verða embætti utanríkisráð- herra. Meirihluti vill sjálfstæði Dönsku heimastjómarlögin vora sett fyrir hálfri öld, árið 1948. Úr- slit kosninganna í Færeyjum í vor mörkuðu tímamót, því þá náðu þeir flokkar sem vilja sjálfstæði eyjanna meirihluta á Lögþinginu, 18 af 32 þingmönnum. Flokkarnir sátu að vísu einnig að völdum 1962-1966, en þá var ekki, eins og nú, kveðið á um það í stjórnarsáttmála þeirra að unnið skyldi að fullveldi. Hpgni Hoydal hefur fengið það hlutverk að móta hvernig Færeyingar muni öðlast aukið sjálfstæði. „Við lítum fyrst og fremst til ís- lands og sambandslaganna sem gerð vora fyrir 80 árum, árið 1918,“ segir hann. „Við viljum gjarnan gera slíkan sáttmála við Danmörku um sjálfstæði Færeyja og semja um leið um samvinnu á sviði heilbrigðismála og utanríkis- mála, þar til við erum í stakk búnir til að sinna þessum verkefnum sjálfir. Fyrsta skrefið var hins veg- ar að semja um niðurstöðu í banka- málinu og það tókst okkur um miðjan júnímánuð. Um leið og sú niðurstaða fékkst lýstu Danir því yfir að þeir væra reiðubúnir til við- ræðna við Færeyinga um sjálf- stæði, þegar færeyska landstjórnin færi fram á slíkt. Við viljum undir- búa okkur vel og ég mun samræma þá vinnu sem við þurfum að inna af hendi til að sjá hverju þarf að breyta, hvað það kostar, hvernig við getum dregið úr fjárframlögum Dana til Færeyja og hvernig við ætlum að byggja upp atvinnuveg- ina svo þeir standi undir sér. Við ætlum að skipa stjórnarskrárnefnd og önnur nefnd þarf að semja drög að sáttmálanum við Dani.“ Þegar Lögþing Færeyja kemur saman að lokinni Olafsvöku, í lok júlí, verður fyrsta verkefni þess að ræða sjálfstæðismálin. „Núna eru þrír flokkar við völd, sem vilja fullt sjálfstæði Færeyja, en Sambands- flokkurinn og Jafnaðarflokkurinn hafa hingað til ekki léð máls á því. Jafnaðarflokkurinn hefur hins veg- ar breytt verulega um stefnu á síð- ustu tíu árum og við höfum trú á að við getum náð góðri samstöðu á þingi um sjálfstæðisviðræður við Dani. Það tel ég afar mikilvægt, því við viljum efna til þjóðarat- kvæðagreiðslu um væntanlegan sambandssamning, líkt og gert var á íslandi. Við ætlum einnig að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um nýja stjórnarskrá Færeyja og miðum við að það verði í síðasta lagi árið 2000 og þá verður sambandssamn- ingurinn þegar að liggja fyrir. Þetta er vissulega stuttur tími, en við höfum fyrirmyndina, sem er Is- land. Og fyrst Danir hafa lýst því yfir að þeir séu reiðubúnir til við- ræðna er ekki eftir neinu að bíða.“ Hflgni segir að sú yfirlýsing Dana, að þeir séu reiðubúnir til viðræðna við Færeyinga þegar óskað verður eftir, sé forsenda sjálfstæðis. „Ég held að Færeying- ar myndu aldrei slíta tengslin við Dani í óþökk þeirra,“ segir hann. „Við erum ekki í stakk búnir til að standa á eigin fótum án undirbún- ings. Ef aðeins er litið til þjóðern- iskenndar Færeyinga, þá leikur enginn vafi á að allir, jafnt sam- bandssinnar sem aðrir, vilja varð- veita færeyska menningu og standa á eigin fótum að því leyti. Sambandsmenn hafa þó haldið því fram, að tengslin við Dani séu eina tryggingin fyrir því, að hér sé vel- ferðarþjóðfélag. Astæðan fyrir því að sjálfstæðissinnar náðu meiri- hluta í síðustu kosningum er hins vegar áreiðanlega sú að efnahag- skreppan hér upp úr 1990 var skólabókardæmi um að sambandið við Dani var engin trygging fyrir efnahagslegum stöðugleika og ör-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.