Morgunblaðið - 12.07.1998, Side 26

Morgunblaðið - 12.07.1998, Side 26
26 SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ VEGASAL TIÐ VARÐ AÐ BARNA- SMIÐJUNNI VEKKBTLXIVINNULtF Á SUNNUDEGI ► Hjónin Elín Ágústsdóttir og Hrafn Ingimundarson hafa rek- ið Barnasmiðjuna í 12 ár. Elín var áður leikskólakenn- ari, en Hrafn er vélfræðingur og starfaði sem sölumað- ur hjá Héðni. Þau eru bæði 41 árs gömul. Elín og Hrafn eiga tvö börn, Inga Boga sem er fjórtán ára og vinnumaður á Hnjóti í Orlygshöfn í sumar og Jenný Ruth, sem er nítján ára og hefur nám í vélaverkfræði við Háskóla íslands næsta haust. eftir Rognhildi Sverrisdóttur s ARIÐ 1986 starfaði Elín sem leikskólakennari á leikskólanum á Marbakka í Kópavogi. Hún var ósátt við vegasölt á leikskólum og taldi þau hina verstu slysagildru. Það varð því úr að Hrafn smíðaði vega- salt fyrir Marbakkaleikskólann í bílskúmum við blokkaríbúðina þeirra. Þeim fannst tilvalið að reyna að drýgja aðeins tekjumar með leiktækjasmíði, en áður en varði höfðu þau svo mikið að gera við aukavinnuna að þau sögðu bæði upp störfum sínum og hafa unnið við Bamasmiðjuna síðan. Fyrsta vegasaltið reyndist því grunnur að góðu fyrirtæki. „Sumum fannst það sérkennilegt starf að smíða leiktæki," segir Hrafn. „I starfi mínu sem sölumað- ur hjá Héðni þjónustaði ég smiðj- urnar, sem skiptu við fyrirtækið og ég sá að margt af þeirra vinnu gæti nýst vel við aðra smíði, eins og til dæmis leiktækjasmíðina. Ég naut því góðs af þeirri reynslu þegar kom að því að útfæra leiktækin." Elín og Hrafn höfðu upp á er- lendum framleiðendum, til að fá upplýsingar um staðla við gerð leiktækja og fleira í þeim dúr. Fyrst skiptu þau við þýskt fyrir- tæki, en á síðustu árum hafa þau átt í samstarfí við danska fyrirtæk- ið Kompan og flytja einnig inn leik- tæki frá því fyrirtæki. Innflutning- ur á leiktækjum er þó aðeins um 5% á móti því sem Bamasmiðjan framleiðir sjálf. Leiktækin eru framleidd undir heitinu Krumma- gull. Leikföngin vantaði líka Leikskólana skorti ekki aðeins góð leiktæki, að mati Elínar og Hrafns, því leikfongum var ábóta- vant. „Sem leikskólakennari vissi ég að það vantaði tilfinnanlega góð leikfóng í leikskólana. Verslunin Völuskrín hætti um það leyti sem við byrjuðum rekstur Bamasmiðj- unnar, svo það myndaðist pláss fyrir okkur á markaðnum og við ákváðum að hefja innflutning á leikföngum." Þau hittu líka á hárréttan tíma með leiktækjasmíðina, því á afmæl- isári Reykjavíkur, 1986, var ákveð- ið að leggja fé í að bæta verulega leiktæki í borginni og um leið voru gerðar meiri kröfur til tækjanna en áður. „Á þessum tíma var allt í einu farið að horfa meira til notenda tækjanna en kaupenda þeirra. Slys eru dýr og fólk hugsar meira um þroskamöguleika, sem tækin bjóða upp á og leikgildi þeirra.“ Þau segja að breytingin hafí haldist í hendur við utanlandsferðir bamafólks. „Fólk var farið að ferð- ast mildð með bömin, á tjaldstæði um alla Evrópu og á skipulögð sumarhúsasvæði. Þar kynntust krakkamir leiktækjum, sem þeim líkaði vel við og foreldramir fóm að spyrja eftir shkum tækjum hér.“ Bflskúrinn var leiktækjasmiðjan og nú var íbúðin þeirra lögð undir leikfóngin. „Við fengum hópa frá greiningarstöðvum og leikskólum til að skoða og kaupa og þá var hjónaherbergið lagerinn og borð- stofuborðið sýningarpallur. Þetta gekk svona um hríð, en þegar ein- hver ætlaði að kaupa borð sem við höfðum fengið í brúðkaupsgjöf sá- um við að við þurftum að stækka við okkur.“ Nýtt húsnæði fannst við Kárs- nesbraut í Kópavogi, en forsenda kaupanna var að Reykjavíkurborg pantaði 20 vegasölt frá Bama- smiðjunni. „Við höfðum átt í erfið- leikum með að koma vöra okkar á framfæri og það endaði með að við pöntuðum viðtal við Davíð Odds- son, sem þá var borgarstjóri. Hann byrjaði á að benda okkur á bygg- ingarsvæði í Grafarvogi, sem væri kjörið fyrir starfsemi af þessu tagi, en okkur fannst tillagan fáránleg, enda ekkert á þeim buxunum að byggja nýtt yfír okkur. Davíð sendi hins vegar mann til að líta á fram- leiðsluna hjá okkur og niðurstaðan varð sú að panta tuttugu vegasölt." Hrafn hafði smíðað leiktæki á kvöldin og um helgar og Elín, sem var í hálfu starfi sem leikskóla- kennari, sá um aðdrætti til fyrir- tækisins. Vorið 1987 sagði Hrafn upp starfí sínu hjá Héðni og Ehn sagði upp leikskólakennarastöð- unni um haustið. Byggðu á flötinni hans Davíðs Það leið ekki á löngu þar til 400 fermetra húsnæði Bamasmiðjunn- ar í Kópavogi varð of htið. Fjöl- breytnin í framleiðslunni jókst sí- fellt. Aður var Hrafn einn að smíða vegasölt, en nú voru þrír menn í fóstu starfí hjá honum og Ehnu og smíðuðu rennibrautir, rólur, kast- ala, klifurgrindur, sandkassa og ýmis önnur leiktæld. fbúðina höfðu þau selt og lánað fyrirtækinu and- virðið, en sjálf leigðu þau húsnæði. „Svo fóram við að svipast um eftir húsnæði fyrir fjölskylduna, sóttum um lóð fýrir einbýlishús í Grafar- vogi og óskuðum í íeiðinni eftir iðn- aðarlóð hérna á flötinni sem Davíð hafði bent okkur á. Við létum svo til skarar skríða og byggðum héma á Gylfaflöt árið 1993. Einbýhshúsið byrjuðum við hins vegar ekki að byggja fyrr en fyrir tæpum tveim- ur áram.“ Húsnæði Bamasmiðjunnar að Gylfaflöt 7 er um eitt þúsund fer- metrar. Þar er góð aðstaða til leik- tækjasmíðanna, lagerinn hefur fengið gott pláss og nú er rekin verslun í hluta hússins. Eftirspurnin eftir Kramma- gulls-leiktækjunum hefur aukist Morgunblaðið/Jim Smart ELÍN Ágústsdóttir og Hrafn Ingimundarson, eigendur Barnasmiðjunnar. „Við höfum alltaf fylgst vel með tækj- unum, hvernig þau eru nýtt og hvernig þau endast. Leiktæki þurfa að vera nógu sterk til að þola fullorðna, þótt þau séu ætluð börnum. Við hlustum vel á alla gagnrýni og bregðumst fljótt við ef einhver gerir athugasemd við tækin okkar.“ með hverju árinu. „Við höfum alltaf fylgst vel með tækjunum, hvemig þau eru nýtt og hvernig þau endast. Leiktæki þurfa að vera nógu sterk til að þola full- orðna, þótt þau séu ætluð börnum. Við hlustum vel á alla gagnrýni og bregðumst fljótt við ef einhver gerir athugasemd við tækin okk- ar. Á sama hátt spyrjum við kaup- endur til hvers þeir ætli að nota tækin, sem þeir kaupa hér. Ef börn allt niður í eins árs aldur eru á leikskólanum, þá er ekki hægt að selja þangað rennibraut fyrir þriggja ára og eldri, eða jafnvel fimm ára og eldri. Við drögum okkur frekar út úr viðskiptum af þessu tagi en að leggja nafn okkar við eitthvað, sem gæti reynst slysagildra." Ehn og Hrafn segja mikinn mis- skilning ríkjandi hjá fólki um hvaða tæki uppfylli staðla og hvers vegna. „Þetta er ekki bara spum- ing um bil í handriðum, heldur efnainnihald málningarinnar og fúavamarinnar, frágang á öllum samskeytum og svo mætti lengi telja. Sölumenn hika ekki við að segja fólki að hin og þessi tæki uppfylli staðla, en fólk á ekki að þurfa að treysta sölumönnum í bhndni. Við viljum geta bent fólki á að við höfum fengið vottun, svo það geti verið öraggt um að vinnu- brögðin hér séu eins og við segjum þau vera.“ Vilja fá vottun á leiktækin Nú vinna eigendur Barnasmiðj- unnar að því að fyrirtækið verði hæft til vottunar. „Við kaupum allt efni beint frá framleiðendum, enda þurfum við að geta sýnt fram á uppruna þess ef vottun á að fást. Hér á landi eru leikföng vottuð, en enginn sinnir hins veg- ar vottun leiktækja. Finnur Ing- ólfsson iðnaðarráðherra hefur viljað styðja við bakið á okkur í þeirri viðleitni okkar að fá vottun. Núna eigum við samstarf við dönsku tæknistofnunina og stefn- um að því að fá vottun þaðan, sem gerir leiktækin okkar hæf til út- flutnings. Hins vegar hljótum við að miða við íslenskan markað. Ef ekki era í gildi ákveðnir staðlar geta aðrir boðið vöru á lægra verði en við, án þess að það komi skýrt fram að varan er alls ekki sambærileg að gæðum. Reykja- víkurborg hefur að vísu boðið út samkvæmt stöðlum, svo við stönd- um ágætlega að vigi í útboðum á vegum borgarinnar." Ehn og Hrafn era ákveðin í að Bamasmiðjan fái innlenda vottun, eða aðstoð við að fá erlenda vottun.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.