Morgunblaðið - 12.07.1998, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1998 27
„Við höfum aldrei fengið styrki frá
hinu opinbera og kærum okkur
hvort sem er ekki um þá. Hins veg-
ar þurfum við stuðning í þessu
máli.“
Krummagulls-leiktækin eru
fyrst og fremst seld til sveitarfé-
laga og húsfélaga. „Við seldum
ekki mikið til heimila, annað en
sandkassa og rólur, en það breytt-
ist eftir að við hófum innflutning á
Little Tikes plastleiktækjum og
dúkkuhúsum. Fólk kýs oft að
kaupa hræódýrt leiktækjasett fyr-
ir heimilið, sem er svo ónýtt eftir
1-2 ár. Tækin frá okkur eru dýr
miðað við mörg önnur, enda gerð
til að endast. Við notum til dæmis
aðeins ryðfrítt stál í rennibrautir
og auðvitað líka í festingarnar
undir rennibrautunum, en það er
algengt að framleiðendur hafí þær
úr járni, svo þær ryðga í sundur.
Svo eru menn að hreykja sér af
því að bjóða nokkurra ára ábyrgð.
Það á ekki að þurfa að taka slíkt
fram, leiktæki eiga að endast í 15
ár.“
Fagfólk til hjálpar
Elín og Hrafn segja að fagfólk sé
ávallt reiðubúið að benda þeim á
hvað mætti betur fara í leiktækja-
gerðinni. „Við getum nefnt Herdísi
Storgaard, slysavarnarfulltrúa
barna, sem dæmi. Hún hafði sam-
band við okkur árið 1989 og benti
okkur á galla í hönnun kastalans.
Við breyttum hönnuninni og jafn-
framt þeim köstulum, sem búið var
að setja upp. Við þurfum auðvitað
að huga að mörgu; ef einu er breytt
getur skapast önnur slysagildra.
En Herdís hefur lyft grettistaki í
slysavömum bama. Hún hefur tek-
ið í hnakkadrambið á mörgum, sem
er nú ekki auðvelt og íslensk börn
eiga henni stóra skuld að gjalda."
Fyrstu leiktækin hannaði Elín,
en Hrafn hefur tekið við því hlut-
verki. Eh'n veltir eftir sem áður
fyrir sér leikgildi tækjanna og ræð-
ir við kaupendur um tilgang þeirra.
„Við framleiðum núna 60 gerðir af
leiktækjum og að vetrarlagi smíð-
um við barnahúsgögn. Þar höfum
við fengið Sigríði Heimisdóttur
iðnhönnuð til liðs við okkur. Hún
lærði á Italíu og kemur með ferska
strauma inn í fyrirtækið.“
Gögn til eðlisfræði-
kennslu
Velta Bamasmiðjunnar er nú um
80 milljónir króna á ári, heilsárs-
störf við fyrirtækið eru 8-10, en á
sumrin stárfa þar 13-16 manns.
Leiktækjasala er um 65% af velt-
unni, en sala húsgagna og leik-
fanga er sífellt að aukast. Og hjálp-
argögn við skólanámið hafa þæst
við.
„Fyrir þremur ámm hafði
Reykjalundur, umboðsaðili Lego,
samband við okkur og bauð okkur
að taka við Lego Dacta, sem er
skólalínan frá Lego. í þessari
skólalínu em alls konar kennslu-
gögn.“
Jónína Agústsdóttir, stærð-
fræðikennari og systir Elínar, tók
að sér að þýða kennsluleiðbeining-
ar með Lego Dacta. Þegar era
komnir út bæklingarnir „Hjól og
öxlar“, „Tannhjól", „Talíur og
skomhjól" og „Vogarstangir" og
skólarnir geta fengið pakka með
kubbum til að vinna úr í samræmi
við bæklingana. „Reykjavíkurborg
og menntamálaráðuneytið styrktu
þýðingarstarfið og við höfum selt
kubbasett fyrir 8-10 ára börn í um
20 skóla um allt land. Nú em líka
tilbúin kennslugögn fyrir 12 ára og
eldri og í haust verða þau tilbúin
fyrir 10-12 ára. Þá má ekki gleyma
kennsluefninu frá Lego, sem kenn-
ir bömum að forrita tölvu og vinna
á hana. Það hentar stelpum ekkert
síður en strákum. Við endum lík-
lega með því að fylla verkfræði-
deild Háskólans af stelpum!"
Elín og Hrafn segjast hafa mjög
gaman af starfi sínu. „Við ætluðum
í fyrstu að drýgja heimilistekjurn-
ar og svo sáum við að við gátum lif-
að á þessu. Við höfum hins vegar
gleymt öllum gróðasjónarmiðum,
því góð leiktæki, leikföng og
kennslugögn em orðin hugsjón hjá
okkur.“
KIRKJUSTARF
Safnaðarstarf
Lofgjörðar-
tónleikar í Fíla-
delfíukirkjunni
MÁNUDAGSKVÖLDIÐ 13. júli
verður lofgjörðarhópur Fíladelfíu,
undir stjóm Óskars Einarssonar,
með lofgjörðartónleika í Fíladelfíu-
kirkju, Hátúni 2. Með hópnum er
hljómsveit og einnig munu koma
fram einsöngvaramir Hrönn
Svavarsdóttir og Jóhannes Ingi-
marsson. Yfirskrift tónleikanna er
Gleðjumst í Drottni. Lofgjörðar-
hópurinn mun taka bæði hress og
Hvítasunnukirkjan Ffladelfía.
róleg lög og inn á milli gefa með-
limir hópsins vitnisburð.
A þessum tónleikum ætlar hóp-
urinn ekki eingöngu að syngja fyr-
ir fólkið í salnum heldur einnig og
ekki síst með tónleikagestum. í lok
tónleikanna verður síðan stutt hug-
vekja. Tónleikarnir hefjast kl. 20.
Aðgangur er ókeypis.
Friðrikskapella. Kyrrðarstund í
hádegi á morgun, mánudag. Léttur
málsverður í gamla félagsheimilinu
að stundinni lokinni.
Grensáskirkja. Mæðramorgunn
mánudag kl. 10-12.
Árbæjarkirkja. Félagsstarf aldr-
aðra á mánudögum kl. 13-15.30.
Fótsnyrting á mánudögum. Pant-
anir í síma 557 4521.
Fella- og Hólakirkja. Bænastund
og fyrirbænir mánudaga kl. 18.
Tekið á móti bænarefnum í kirkj-
unni.
mraarion
lVERÐHRUN
Blússur frá kr. 1.800.
Buxur frá kr. 2.800.
Bolir frá kr. 900.
Kjólar frá kr. 2.800.
Pils frá kr. 2.800.
Opið á laugardögum frá kl. 10-14.
Grafarvogskirkja. Bænahópur kl.
20. Tekið er við bænarefnum í
kirkjunni alla daga frá kl. 9-17.
Hjálpræðisherinn. Samkoma kl. 20
í umsjá Miriam Óskarsdóttur.
Hjallakirkja. Prédikunarklúbbur
presta er á þriðjudögum kl.
9.15-10.30. Umsjón dr. Sigurjón
Árni Eyjólfsson héraðsprestur.
Seljakirkja. Mömmumorgnar á
þriðjudögum kl. 10.
Hvítasunnukirkjan Ffladelfía. Al-
menn samkoma kl. 20, ræðumaður
Dögg Harðardóttir.
Vespurnar
emkomnar!
Sýnum nýjustu útgáfurnar
af vespum kl. 14-16 í dag
sunnudag og næstu daga.
Fyrstu tíu hjólin
eru á kynningarverði
Takmarkað magn
tryggið ykkur hjól ítíma.
Dælu ehf
Dælur og hjól
Ármúla 34,108 Reykjavík
Sími: 533 4747 Fax: 533 4740
Það kemst allt inn um
afturendann á þessum
1840 mm
8.1 lítrar á 100 km
4230 mm
2720 lítrar
Eða allavega allt sem kemst á evróbretti. Það er enginn bíll á markaðnum jafn lítill en samt jafn stór og Opel Combo.
Verð aðeins kr. 1.075.000,- án vsk. Einnig einn nettari, Opel Corsa, frá aðeins kr. 827.000,- án vsk.
Bflheimar ehf.
Sœvarhöfða 2a
S: 525 9000
-Þýskt eöalmerki