Morgunblaðið - 12.07.1998, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 12.07.1998, Qupperneq 28
28 SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ + MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1998 29 JltargmiMjifrUÞ STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDl FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR ISLAND er fallegt land en líka hættulegt. Fegurð þess á það til að blekkja fólk. Þeirri til- finningu að ferðast um óbyggðir landsins í björtu veðri og steikj- andi sól verður ekki lýst með nokkrum orðum. Þetta á jafnvel enn frekar við um jöklaferðir. Mörgum finnst áreiðanlega að ekki verði lengra komizt, þegar farið er um jöklana, himinninn er blár og stórfenglegt útsýni til allra átta. Þessi veröld hefur ekki opnast almenningi og er- lendum ferðamönnum að ráði fyrr en á síðustu tveimur ára- tugum. Fram að þeim tíma var það fámennur hópur Islendinga, sem ferðaðist um miðhálendið og önnur óbyggðasvæði en sennilega fleiri útlendingar. Það er töluvert afrek að hafa opnað þennan hluta landsins fyrir Is- lendingum sem útlendingum bæði vetur og sumar. Þar hafa margir komið við sögu en ekki sízt þeir, sem hafa haft for- göngu um að prófa nýja tækni í ferðum um þessar slóðir og þróa hana. Það eru hins vegar aðrar hliðar á þessum ferðum og þess- ari fegurð eins og hópur Norð- manna og íslendinga kynntist á Vatnajökli fyrir nokkrum dög- um. Landið er hættulegt. Þessi atburður á Vatnajökli er ekki fyrsta dæmið um það. Því miður hafa mörg hörmuleg slys orðið í óbyggðaferðum á Islandi. Mikið hefur verið skrifað um örlög Reynistaðabræðra. Á síðustu öld týndu fjórir menn lífi fyrir norðan Mýrdalsjökul. En jafn- vel þeir, sem ferðast með nú- Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. tímahætti og þeirri tækni, sem fylgir, eru ekki óhultir. Það kom í ljós í hörmulegu slysi fyrir all- mörgum árum, þegar nokkrir japanskir ferðamenn létu lífið, þegar þeir voru að fara yfir á í nágrenni Nýjadals. Enginn sem kemur að þeirri á snemma að morgni mundi láta sér detta í hug, að hún gæti verið hættuleg yfírferðar. Hópurinn, sem lenti í erfið- leikum á Vatnajökli, er annar hópur ferðamanna á örfáum ár- um, sem fyrir slíku verður. Hið fyrra atvik var átakanlegt. I þeim hópi var fólk, sem hefur enn ekki beðið þess bætur. Það er óskapleg ábyrgð á því fólki, sem hefur forystu um slíkar ferðir. Öllum getur skjátlast. En afleiðingarnar geta orðið hörmulegar í tilvikum sem þess- um. Ekki sízt vegna hins fyrri atburðar verður að gera kröfu til ítrustu varkárni. Rök talsmanna Jöklaferða fyrir því að fara af stað eru ekki sannfærandi. I samtali við Morgunblaðið í fyrradag segir framkvæmdastjóri fyrirtækis- ins: „Veðrið var ekkert verra en við bjuggumst við og þegar við lögðum upp var veðrið ekki slæmt. Það var þó nokkuð kald- ara í veðri en við bjuggumst við en við vissum af 5 til 6 stiga strekkingi. Það var ekki veður- hæðin, sem olli óhöppunum. Hún hafði áhrif á hvernig fór en var ekki orsökin. Við höfum margsinnis farið þessa leið yfir jökulinn í svipuðu veðri og ekk- ert hefur komið uppá. Við höf- um langa reynslu af þessum ferðum, höfum verið að síðan 1985 og oftsinnis í veðri sem slíku.“ Hópstjóri Norðmannanna lýsir ferðinni hins vegar á þenn- an veg: „Við stoppuðum ítrekað frá því við fórum úr Kverkfjöll- um til að halda hópinn vegna þess hve skyggnið var hræði- lega slæmt. Eftir um eins og hálfs tíma keyrslu var ákveðið að ekkert vit væri í að halda áfram og við snerum við.“ Er nú ekki ástæða til að menn staldri aðeins við áður en enn alvarlegri atburðir verða? Það er áreiðanlega rétt hjá framkvæmdastjóra Jöklaferða, að nauðsynlegt er að bæta fjar- skiptasamband á þessum slóð- um, en hvorki fjarskiptatæki né annar tæknibúnaður verður til bjargar í vitlausu veðri á Is- lándi. I samtölum Morgunblaðs- ins í gær við nokkra forystu- menn í ferðamálum kemur fram, að þeir eru sammála um nauð- syn þess að setja ákveðnar regl- ur, sem ferðaþjónustuaðilar verða að fara eftir bæði að því er varðar þekkingu og menntun leiðsögumanna og einnig um önnur skilyrði sem þarf að upp- fylla í sambandi við ferðir sem þessar. Það fór betur en á horfðist á Vatnajökli, en það er ástæða til að líta á þann atburð sem ákveðna viðvörun um það að við þurfum að búa betur um hnútana. VERÐBÓLGAN ÓTT verðbólgan á Islandi hafi ekki numið nema 2,1% á tólf mánuðum frá maí á síðasta ári til maí á þessu ári er hún samt hærri en í flestum ná- grannalöndum okkar. Það eru einungis þrjú lönd í Evrópu með meiri verðbólgu en við. Meðaltal verðbólgu á þessu tímabili í ESB-löndum er 1,6% og meðal- tal í EES-löndum það sama. Meðaltal verðbólgu í helztu við- skiptalöndum okkar er 1,5%. Þótt verðbólgan sé svona lítil á okkar mælikvarða sýna þessar tölur að við þurfum að gera enn betur. Nú hafa menn áhyggjur af að verðbólgan muni aukast en ekki minnka. Það verður horft til ríkisstjórnarinn- ar um nauðsynlegar ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir það. ORYGGII FERÐUM UM LANDIÐ ÉG MINNTIST áður á grein Jónasar, Náttúruvísindin, og tel ástæðu til að vitna hér í niðurlag hennar enda er það harla upplýsandi um ást hans á raunvísindum og sýnir í hnotskurn skáldlega afstöðu hans til þeirra. Þau sjónarmið sem hér eru sett fram voru Jónasi Hall- grímssyni inngróin og ofarlega í huga alla tíð eins og augljóst má vera af verkum hans, bréfum og athugasemdum. Þessi afstaða skáldsins varð svo rótlæg næring öðrum skáldum og ólíkum síðar meir eins og við sjáum víða í ljóð- um Steingríms Thorsteinssonar og ekki sízt verkum Einars Bene- diktssonar sem talar um, að must- eri guðs séu hjörtun sem trúa, en Jónas hafði sagt í Kveðju og þökk íslendinga til Alberts Thorvald- sens, II: Ungir og aldnir, andvirki frá gangið að skoða í guðs musteri! Um tengsl þessa erindis við Ein- ar mætti skrifa sérstaka ritgerð, ekki sízt vegna þess að musterin eiga sér forsendur í ólíkum trúar- legum uppsprettum skáldanna þótt lindin sé úr sömu æð. Þótt Einar segi í Hnattasundi að stjömuhröp séu „guðdómlegt flugeldaskraut vorum heimi“ og beri sköpunrverkinu þannig vitni á sinn hátt, afgreiðir hann „marmar- ans höll“ sem „moldarhrúgu". Það hefði verið andstætt hugmyndum Jónasar um handbragð for- sjónarinnar á öllum hlutum, ekki sízt ef listamaður á borð við Thorvaldsen ber henni vitni I marmaraverkum sín- um. Trú Jónasar á alföður, eins og hann kemst að orði, er honum svo í blóð borin að hann gerir engan greinarmun á því sem ber honum vitni, hvort sem það er marmari eða moldarhrúga; eða sandkorn. Guðs musteri Jónasar er vitn- isburður um hugarveröld guðs í list Thorvaldsens en musteri Einars er maðurinn sjálfur eins og hann er af guði gerður, þrá hans og lotning; en umfram allt smæð hans og öfug- sýn. Musteri Jónasar ber forsjón- inni vitni eins og önnur sköpun. Thorvaldsen er þannig tæki eða vitnisburður um andleg tengsl við guðdóminn en hjarta trúaðs manns í kvæði Einars vitnisburður um skammvinna ævi og óviss örlög. Jónas er alla tíð óralangt frá slíkri efahyggju. Og listin er af guðlegum eldi eins og náttúran sjálf. Sá eldur á upptök í hugarver- öld guðs en ekki musteri mannsins, þótt hann beri forsjóninni, eða himnahöfundi, ekki sízt vitni, svo að notað sé orð úr Kveðju. Jónas yrkir Kveðjuna haustið 1838, en kvæðið til Páls Gaimards honum til heiðurs fyrir samsæti uppúr miðj- um janúar 1839. Upphafserindi kvæðisins til Páls Gaimards yrkir skáldið með 7. erindi Kveðjunnar í huga: Þú stóðst á tindi Heklu hám og horfðir yfir landið fríða þar sem um grænar grundir líða skínandi ár að ægi blám... En í Kveðjunni hafði Jónas sagt: 0! að þú mættir augum leiða landið loftháva og ljósbeltaða þar sem um grænar grundir líða eldur ísbláar að ægi fram. Síðan kemur - og engin tilvilj- un: Þar er Heklufjall og Hofsjökull... Kvæðið um Pál Gaimard á Heklutindi er einskonar framhald af íslandi, ef grannt er skoðað. Þar er sælureiturinn á sínum stað, hjarðir á beit, fagur fjalladalur, fiskisæld; en Snorrabúð stekkur. ísland Alþingi svipt með hrellda brá. Silfurþráðurinn þó óslitinn frá íslandi og Gunnarshólma en hið helga fjall vizkunnar stendur enn og ævinlega og vísar veginn; guð- leg sköpun og hlífir hólmanum, þrátt fyrir allt. Loki bundinn eins og í Gunnarshólma. Vísindin glæða vonina og vefja land og lýð far- sældum eins og í Islandi. Þannig fléttast efni allra þess- ara stórkvæða skáldsins saman í syrpuna um guðdómseldinn og ættjörðina; yfirbragðsmikla hugar- veröld úr andlegum gosstöðvum þessa einstæða ættjarðarskálds. M. HELGI spjall REYKJAVÍKU RBRÉF Laugardagur 11. júlí Nokkrar umræð- ur hafa farið fram hér á landi um stækkun Atlants- hafsbandalagsins til austurs. Minna hef- ur farið iyrir um- ræðum um hlutverk Islands í hinu nýja NATO; hvernig Island geti lagt sitt af mörkum til sameiginlegs öryggis Vesturlanda og þar með tryggt eigið öryggi og varnir. NATO hefur gjörbreytzt á þeim tæpa áratug, sem liðinn er frá falli Berlínar- múrsins. Öryggishugtakið hefur tekið miklum breytingum vegna breytinganna í alþjóðamálum. Meginhlutverk NATO er ekki lengur að verjast árás úr austri, held- ur að fást við margvíslegar hættur, sem taka á sig ýmsar myndir. Bandalagið legg- ur nú áherzlu á varðveizlu friðar og stöð- ugleika í Evrópu og á nærsvæðum álfunn- ar á breiðum grundvelli. Þetta felur í sér að bandalagið þarf að vera í stakk búið til að stilla til friðar í staðbundnum deilum, t.d. þjóðernisátökum, gæta friðar eftir gerð friðarsamninga, koma til bjargar ef neyðarástand skapast og veita ríkisstjórn- um, einkum og sér í lagi í fyrrverandi kommúnistaríkjum í Austur-Evrópu, ráð- gjöf og aðstoð við að laga herafla sinn og varnarstefnu að lýðræðislegu stjórnkerfi. Atlantshafsbandalagið er nú þegar byrjað að sinna þessu nýja hlutverki sínu. Það má sjá í Bosníu, þar sem NATO stjórnar fjölþjóðlegu friðargæzluliði. Það má sjá á friðarsamstarfi NATO, þar sem meðal annars eru haldnar sameiginlegar her- og björgunaræfingar. Atlantshafs- bandalagið býr sig nú jafnframt leynt og ljóst undh- þann möguleika að það þurfi að stilla til friðar í Kosovo. Þá stendur NATO íyrir margvíslegum námskeiðum, m.a. á vegum friðarsamstarfsins, fyrir jafnt her- menn sem borgaralega embættismenn frá Austur-Evrópuríkjum og veitir bæði bandalagið og einstök aðildarríki þess þessum nýju bandamönnum margvíslega aðstoð og ráðgjöf. Með þessum breytingum á hinu al- þjóðlega umhverfi og á starfsemi Atlants- hafsbandalagsins hefur dregið úr hernað- arlegu mikilvægi íslands sem útvarðar NATO í Atlantshafi. ísland var, legu sinnar vegna, ómissandi hlekkur í vörnum NATO á meðan bandalagið einbeitti sér að því að verjast hugsanlegri árás frá Sovétríkjun- um. Þetta veitti Islandi sterkari stöðu inn- an bandalagsins en fjölmenni þjóðarinnar pg stærð landsins hefðu ella gefið tilefni til. íslendingar þurftu ekki að sýna mikið firumkvæði til að halda þessari stöðu; land- ið hefur ekki yfir neinum her að ráða og framlag okkar til sameiginlegra varna NATO var einkum að leggja til aðstöðu hér fyrir varaarstöð Bandaríkjanna. Banda- menn okkar í NATO vildu ekki gera neitt, sem yrði tO þess að sú aðstaða væri í hættu. Þess vegna styrkti líka NATO-að- ildin stöðu Islands á öðrum alþjóðlegum vettvangi; íslenzk stjórnvöld gátu oftast átt stuðning annarra NATO-ríkja vísan. Nú er þetta breytt; sjónir NATO beinast í aukn- um mæli austur og suður á bóginn og Norður-Atlantshafið ber æ sjaldnar á góma í höfuðstöðvunum í Brussel. Ef snurða hlypi á þráðinn í lýðræðisþróuninni í Rússlandi kynni þetta að breytast aftur til fyrri vegar, en þess óska auðvitað fæstir. Breytt ör- yg’gishug- tak - ný sóknarfæri ÞÓTTLOKKALDA stríðsins kunni þannig að hafa dreg- ið úr hernaðarlegu mikUvægi Islands og þeim áhrifum innan NATO, sem af því leiddu, fela breytingarnar á starfsemi NATO einnig í sér sóknarfæri fyrir Island innan bandalagsins. Með breyttu öryggis- hugtaki NATO er í mun minna mæli ein- blínt á hemaðarþáttinn en áður var. Borg- aralegar stofnanir gegna nú stærra hlut- verki en áður. Það á við um verkefni á borð við friðargæzlu, leitar-, hjálpai'- og björg- unarstörf, eflingu lýðræðis og vemd mann- réttinda, sem nú eru á dagskrá Atlants- hafsbandalagsins. Styi'kur íslands á öðrum sviðum en því hernaðarlega getur nýtzt í þessum störfum. Island hefur nú þegar tekið þátt í nýj- um verkefnum Atlantshafsbandalagsins með því að senda lögreglumenn og heil- brigðisstarfsfólk tU liðs við friðargæzlu- sveitir NATO í Bosníu. Þá áttu íslenzk stjómvöld frumkvæði að því að hér á landi var fyrir ári haldin sameiginleg almanna- varnaæfing aðildarríkja Friðarsamstarfs NATO, Samvörður ‘97. Þetta var fyrsta al- mannavarnaæfingin á vegum Friðarsam- starfsins og jafnframt fyrsta marghliða friðarsamstai’fsæfingin, sem Rússland tók þátt í. Þessi tvö verkefni kunna að vera vísir að því sem koma skal. Island hefur á að skipa þrautþjálfuðum læknum, hjúkrunar- fólki, björgunarfólki, verkfræðingum og lögi'eglumönnum, sem tekið geta þátt í margvíslegum aðgerðum Atlantshafs- bandalagsins. Á fleiri sviðum getur íslenzk sérþekk- ing nýtzt í þágu nýira verkefna bandalags- ins. I þessari viku var t.d. haldinn í Vín fundur yfirmanna herja Vestur-Evrópu- sambandsins, sem kallað hefur verið Evr- ópustoð NATO, um það hvernig aðildarríki VES geti hrint í framkvæmd banni Sa- meinuðu þjóðanna við notkun jarð- sprengna með hreinsun jarðsprengju- svæða og stuðningi við fórnarlömb þessara drápstækja. Eitt af umfjöllunarefnum hershöfðingjanna var hvernig koma mætti á samstarfi milli heraflans og borgaralegra stofnana í þessum efnum. Það liggur beint við að álykta að hér sé á ferð gott tækifæri fyrir ísland, sem á aukaaðild að Vestur- Evrópusambandinu, að leggja sitt af mörkum. Islendingar búa yfir sérþekkingu á smíði gervilima, sem nýtast meðal ann- ars fórnarlömbum jarðsprengna og hafa gefið góða raun í Bosníu. Þar hefur fyrir- tækið Össur hf., í samvinnu við íslenzk stjórnvöld, „komið fótunum undir“ fjölda ungs fólks, sem misst hafði fætur er það steig á sprengju. Jafnframt hefur verið bent á að vegna langrar lýðræðishefðar hér á landi geti Is- lendingar lagt sitt af mörkum við fræðslu um uppbyggingu lýðræðislegra stofnana í fyrrverandi einræðisríkjum Austur-Evr- ópu. Eitt af vandamálunum, sem lýðræðis- legar ríkissstjórnir í þessum löndum standa frammi fyrir, er að mótun varnar- stefnu hefur verið nánast eingöngu í hönd- um hersins sjálfs. Aðhald lýðræðislegra stofnana og borgaralegra embættismanna að heraflanum hefur víða verið af skornum skammti. Bent hefur verið á að á íslandi sé borgaraleg ábyrgð á mótun varnarstefnu einkar skýr, þar sem landið hefur sjálft engum herafla á að skipa. Reynsla íslend- inga á þessu sviði geti því nýtzt Austur- Evrópuríkjunum. ■■■■■■■■■■ HÉR ERU AÐ- Áhrif fslands T3. neft!d nolf“' , . dæmi um hugsanlegt Styrkt framlag íslands til nýrra verkefna Atl- antshafsbandalagsins; án efa eru fleiri tækifæri fyi'ir Islendinga að láta að sér kveða í hinu nýja NATO. Sum þessi verk- efni gætu orðið á vettvangi Vestur-Evr- ópusambandsins, einkum ef þau era þess eðlis að Bandaríkin sjá sér ekki fært að taka þátt í þeim. Jafnframt eru Norður- löndin nú að efla samvinnu sína í öryggis- málum og stefnt er að því að koma á föst- um norrænum friðargæzlusveitum, sem tekið gætu þátt í verkefnum á vegum NATO. Það gæti orðið íslandi í hag að taka aukinn þátt í þessu norræna öryggis- málasamstaríi. Við höfum langa og góða reynslu af samstarfi við hin norrænu ríkin innan margvíslegra alþjóðastofnana og það hefur ævinlega stuðlað að því að styrkja stöðu og áhrif íslands vegna sam- takamáttar ríkjanna fimm. Með framkvæði og útsjónarsemi í þessum efnum getur Island vegið upp á móti þeim missi áhrifa, sem óhjákvæmi- lega fylgir því að landfræðileg staða lands- ins skiptir minna máli en áður. Þótt fram- lag íslands verði ævinlega smátt í sniðum vegna fámennis þjóðarinnar taka banda- menn okkar viljann fyrir verkið og era lík- legri til að gefa sjónarmiðum íslands gaum en ef ísland skoraðist undan þátttöku í starfsemi Atlantshafsbandalagsins. Hins vegar útheimtir sókn á þessu sviði að öll- um líkindum breytingar á skipulagi ýmissa mála hér innanlands. Sá háttur, sem hing- að til hefur verið hafður á, að auglýsa eftir sjálfboðaliðum til að taka þátt í t.d. friðar- gæzluverkefnum, hefur í för með sér að yiðbragðsflýtirinn er ekki sem skyldi. Eigi ísland að geta tekið þátt í friðargæzlu- sveitum, sem ákveðið væri með skömmum fyrirvara að færa til svæðis á borð við t.d. Kosovo, er nauðsynlegt að einhver stofnun hafi samræmingarhlutverk með höndum, haldi skrá yfir fólk og búnað, sem hægt er að útvega í skyndi, beri ábyrgð gagnvart erlendum samstarfsaðilum og veiti þeim upplýsingar. Að þessu verður að hyggja fyrr en síðar. Varnarsam- starfíð við Bandaríkin MEGINVERKEFN- ið í vamarmálum Is- lands verður eftir sem áður að tryggja varnir landsins í samstarfi við Bandaríkin. Það markmið verður hins veg- ar ekki skilið frá virkri þátttöku í starfi NATO. Af hálfu bandarískra stjórnvalda er litið svo á að framkvæði íslands á þeim vettvangi stuðli að því, ásamt öðra, að tryggja áframhaldandi vera bandarísks varnarliðs hér á landi. Þetta er í samræmi við þá stefnu Bandaríkjamanna, sem lengi hefur verið við lýði, að bandamenn þeirra í Evrópu beri sinn réttláta skerf af ábyrgð- inni á vörnum og öryggi álfunnar. Vegna þeirrar breytingar á stöðu Islands, sem áður er getið, treysta Bandaríkin sér nú fremur en áður til að gera kröfu um slíkt til íslendinga, líkt og annarra þjóða Vest- ur-Evrópu. Bandaríkin hafa þannig tekið eftir þátttöku íslands í friðargæzlustarfinu í Bosníu og hún hefur verið nefnd sérstak- lega í viðræðum bandarískra og íslenzkra stjórnvalda sem dæmi um frábært framlag Islands til verkefna NATO. Sama á við um Samvörð ‘97; í Washington var tekið eftir frumkvæði Islands, einkum og sér í lagi vegna þess að Rússar sýndu æfingunni mikinn áhuga og tóku þátt í henni með fjölmennu liði og miklum tækjabúnaði. Bandaríkjamenn hafa verið þess hvetjandi að ísland haldi áfram á sömu braut og taki þátt í eins mörgum verkefnum NATO og mögulegt er. Fleiri þættir koma auðvitað við sögu í varnarsamstarfi íslands og Bandaríkj- anna. Á sama tíma og ágreiningur hér inn- anlands um veru bandarísks varnarliðs á Keflavíkurflugvelli er nánast úr sögunni hefur Bandaríkjaher viljað draga úr við- búnaði sinum hér, bæði vegna breyttra að- stæðna í alþjóðamálum og vegna síaukins þrýstings frá Bandaríkjaþingi og varnar- málaráðuneytinu um sparnað í rekstri varnarstöðvarinnar, rétt eins og annarra stöðva Bandaríkjahers, innan lands og ut- an. Nú þegar hefur flugherinn dregið mjög saman starfsemi sína hér en íslenzk stjórnvöld hafa lagt áherzlu á að lág- marksloftvarnir verði tryggðar með áframhaldandi vera orrustuflugvéla í varn- arstöðinni. Með samkomulagi Islands og Bandaríkjanna um framkvæmd varnar- samnings ríkjanna, sem gert var 1994, var F-15 orrastuþotum á Keflavíkurflugvelli fækkað niður í fjórar, en þær vora um 18 er flest var. Þotunum fylgja eldsneytisvél- ar og þyrlubjörgunarsveit varnarliðsins, sem bjargað hefur fjölda íslenzkra manns- lífa. I öðru samkomulagi, sem gert var 1996 og gildir til ársins 2001, var ákveðið að viðhalda þessum vamarviðbúnaði en ís- Morgunblaðið/RAX Á SIGLINGU INN REYKJAVÍKURHÖFN lenzk stjómvöld urðu að fallast á að af- nema einkarétt tveggja verktakaíyrir- tækja á öllum framkvæmdum í varnar- stöðinni og jafnframt var ákveðið að leita annarra leiða til að lækka kostnað við rekstur stöðvarinnar. Nokkur árangur hefur náðst varð- andi lækkun kostnaðar, en þó er ljóst að Bandaríkjamenn telja ekki nóg að gert. Þeir telja til dæmis að nú, þegar borgara- legt flug er orðið meirihluti flugumferðar um Keflavíkurflugvöll, eigi Islendingar að taka aukinn þátt í rekstri sjálfs flugvall- arins. Það verður að teljast sjálfsögð og eðlileg krafa. Þeir telja jafnframt óviðun- andi að þurfa að greiða hátt í helmingi hærra verð fyrir vatn til húshitunar en sveitarfélögin í nágrenni varnarstöðvar- innar. I því máli era íslenzk stjórnvöld í erfiðri stöðu, því að Hitaveita Suðurnesja er sjálfstætt fyrirtæki, sem ekki tekur við fyrirmælum frá stjórnvöldum. Hins vegar er ljóst að þessi mál og fleiri sem snúa að rekstrarkostnaði varnarstöðvarinnar verða tekin upp af hálfu Bandaríkjanna í þeim viðræðum um endurnýjun sam- komulagsins frá 1996, sem eiga að hefjast árið 2000. Ekki er ástæða til að búast við að í þeim viðræðum verði sá möguleiki ræddur af hálfu Bandaríkjanna að varnarstöðin verði aflögð. Keflavíkurstöðin gegnir áfram mikilvægu hernaðarlegu hlutverki við að fýlgjast með ferðum rússneskra kaf- báta, sem enn sigla um norðanvert Atl- antshaf þótt þeir séu færri en á meðan Sovétríkin vora og hétu. Bandaríkjafloti vill því áfram hafa hér Orion-kafbátaleitar- flugvélar og það, sem þeim fylgir. Dregið hefur úr mikilvægi Keflavíkurflugvallar sem millilendingarflugvallar vegna loft- flutninga til Evrópu, vegna þess að tækn- inni hefur fleygt fram og flugvélar eru langfleygari en áður. Þó var eftir því tekið í Washington í febrúar síðastliðnum er Halldór Ásgrímsson utanríkisráðhema lýsti því yfir að tekið yrði jákvætt í beiðni um að nota Keflavíkurflugvöll til millilend- inga, kæmi til hernaðaraðgerða gegn írak. Því má ætla að það notagildi Keflavíkur- stöðvaiinnar sé enn nokkurs virði í augum B andaríkj amanna. Hins vegar er sú afstaða flughersins óbreytt, að orrustuþotur hans gegni frem- ur pólitísku en hernaðarlegu hlutverki á íslandi. Flugherinn hefur a.m.k. frá árinu 1993 talið óþarft að hafa hér orrastuflug- vélar og álitið að hættan á loftárás á Island sé svo fjarlæg að komi til þess að hún verði fyrir hendi á ný gefist nægur fyrirvari til að senda hingað orrustuflugvélar í tæka tíð. Áður fyrr var hlutverk flughersins hér einkum í því fólgið að stugga við sovézkum flugvélum, sem komu í íslenzka lofthelgi tugum og jafnvel hundraðum saman á ári hverju. Island var fýrir vikið talið ómetan- legt æfingasvæði fýrir orrustuflugmenn- ina. Nú sjást rússnesku „birnirnir" ekki lengur og flugherinn telur orrustuflug- mennina hafa of lítið að gera á meðan þeii’ era staðsettir á Islandi, jafnvel þótt mögu- leikar þeirra til æfinga yfir hálendinu hafi verið auknir. Flugherinn telur að finna megi mannskap og tækjum verðugri verk- efni annars staðai; til dæmis við eftirlits- störf í Bosníu eða Irak. Búast má við að í þeim viðræðum, sem fara munu fram eftir eitt og hálft til tvö ár um nýtt samkomulag um framkvæmd varnarsamningsins, muni Bandaríkjamenn annars vegar þrýsta á um aukinn sparnað og kostnaðarþátttöku íslendinga í varnar- stöðinni og hins vegar um aðgerðir, sem væra til þess fallnar að sætta flugherinn betur við hlutskipti sitt á íslandi, til dæmis aukna möguleika á æfingum yfir íslenzku land- og hafsvæði. Slíkt getur orðið við- kvæmt mál hér innanlands vegna áhrifa hávaðamengunar á t.d. ferðamennsku og landbúnað. í því endurmati á vamarþörfum og varnar- og öryggismálastefnu Islands, sem nú fer fram í utanríkisráðuneytinu, þarf meðal annars að leggja mat á það hversu mikið íslenzk stjórnvöld vilja leggja á sig til að halda ori'ustuflugvélunum á Kefla- víkui'flugvelli. Sömuleiðis þurfa íslenzk stjómvöld að gera það upp við sig í eitt skipti fyrir öll hvort þau vilja að vera varn- arliðsins hér eigi eingöngu að þjóna örygg- ishagsmunum eða hvort Bandaríkin eigi að halda uppi atvinnu á Suðurnesjum og nið- urgreiða rekstur alþjóðaflugvallar lands- ins. Niðurstaða í því máli ætti að auðvelda samningaviðræður. Virk þátttaka íslands í varnar- og öryggismálasamstarfi vest- rænna þjóða er sömuleiðis til þess fallin, eins og áður hafa verið færð að rök, að þar náist niðurstaða, sem er í þágu öryggis- hagsmuna íslands. „Meginverkefnið í varnarmálum Islands verður eftir sem áður að tryggja varnir landsins í samstarfí við Bandaríkin. Það markmið verður hins vegar ekki skilið frá virkri þátttöku í starfí NATO. Af hálfu bandarískra stjórnvalda er litið svo á að frumkvæði Islands á þeim vett- vangi stuðli að því, ásamt öðru, að tryggja áframhald- andi veru bandarísks varnarliðs hér á landi.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.