Morgunblaðið - 12.07.1998, Side 30

Morgunblaðið - 12.07.1998, Side 30
30 SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ Á vaxtarskeiði 6. og 7. áratugarins virtist svo sem hagvöxtur væri náttúrulögmál, en nú gera menn sér grein fyrir að hægt er að örva hann eða hindra eins og annan vöxt, segir Sigrun Davíðsdóttir, er hlustaði á umræður hagfræðinga, stjórnmálamanna og fésýslumanna á ráðstefnu SNS í Stokkhólmi. Kemur hag- vöxtur af sjálfu sér? AÐ er nauðsynlegt að hafa áhuga á hagvexti, því öðru vísi verður munur ríkra og fátækra landa ekki jafnað- ur,“ segir Jeffrey Sachs, prófessor í hagfræði við Harvard, í umræð- um á afmælisráðstefnu Studieför- bundet Naringsliv og Samhálle, SNS, þar sem umræðuefnið var skilyrði hagvaxtar. „Það var ekki erfitt að fínna efnið,“ sagði Hans Tson Söderström framkvæmda- stjóri SNS við setningu ráðstefn- unnar. „Á sjötta og sjöunda ára- tugnum óx þjóðarframleiðsla að - jafnaði um fjögur prósent á ári, en á áttunda áratugnum dróst hún allt í einu saman um tvö prósent á ári. Ástæðan var ekki bara olíukreppan og hrun Bretton Woods kerfisins. Smám saman hefur okkur skilist að vaxtarárin voru undantekning en ekki regla og að vöxtur kemur ekki af sjálfu sér.“ Þorvaldur Gylfason prófessor við Háskóla Islands var einn af skipuleggjendum og þátt- takendum í ráðstefnunni. Hann hikar ekki við að segja að það sé að miklu leyti val einstakra landa að * vaxa eða vaxa ekki. Hvað vitum við um hagvöxt? „Þegar Sachs talar hlustar heim- urinn,“ sagði Þorvaldur Gylfason prófessor í hagfræði við Háskóla Islands er hann kynnti Sachs, en Þorvaldur stjómaði umræðum á ráðstefnunni. Hér vísaði Þorvaldur til þess að Sachs er ekki aðeins prófessor í hagfræði, heldur einnig efnahagsráðgjafi ríkisstjórna um allan heim. Það kom í hlut Sachs að leggja linurnar fyrir umræður ráð- stefnunnar og hnýta þær saman í lokin. Sachs varpaði í byrjun fram þeim spurningum hvaðan vöxtur- inn kæmi og af hverju einstök lönd yxu mismunandi hratt. Að hans mati stendur heimurinn frammi fyrir þremur viðfangsefnum. Það fyrsta snýst um vöxt, því svo mörg lönd eru enn sárafátæk. Þjóðar- framleiðsla á íbúa í iðnríkjum heims er tuttuguföld framleiðslan á hvern íbúa í fátæku löndunum. Því væri nauðsynlegt að leggja áherslu á vöxt. Ríku löndin standa frammi fyrir því viðfangsefni að viðhalda ríkidæmi sínu og gæta að félags- legu jafnræði. Þriðja viðfangsefnið er um sjálfbæran vöxt. Heimurinn er á þröskuldi mestu notkunar líf- ríkisins fram að þessu. Veðurfars- breytingar eru nýr en jafnframt vaxandi vandi, eins og eldar og flóð af völdum E1 Ni~no eru dæmi um. Hagvöxtur: Nútíma fyrirbæri með ójafna dreifingu Með þetta í huga er ekki úr vegi að spyrja hvað vitað sé um hag- vöxt. I fyrsta lagi er áhugavert að hafa í huga að í sögulegu samhengi er hagvöxtur okkar tíma nýtt fyr- irbæri, sem aðeins verður rakið um 200 ár aftur í tímann. Hag- sögufræðingar giska á að hagvöxt- ur á árunum 1500-1800 hafi verið um 0,1 prósent á ári og því vart mælanlegur. Breytingar í átt til nútíma vaxtar hófust hægt og síg- andi með iðnbyltingunni í lok 18. aldar. En hagvöxtur iðnríkjanna einkennist einnig af mjög ójafnri dreifingu. Annað atriðið varðandi hagvöxt er að ferli hans er flókið. Áður fyrr var aðaláherslan lögð á auðsöfnun, en með tímanum hefur skilningur vaxið á að auðsöfnun kemur fyrir lítið ef auðnum er ekki dreift um samfélagið. I takt við fyrri skilning var hagvöxtur lengi vel reiknaður út án tillits til dreifingar, sem reyndist vera grundvallar mis- skilningur. í Sovétríkjunum var vaxtarhugtakið skilgreint sem auð- söfnun og enginn skilningur á dreifíngu auðsins. Þriðja atriðið varðandi hagvöxt er að verkaskipting eins og Adam Smith (1723-1790), faðir nútíma hagfræði, talaði um og sú sérhæf- ing sem henni fylgir er mikilvæg til skilnings á hagvexti, því þetta ferli eykur afköst. Ávöxtur þessa ferlis eru nýjungar, sem um leið er fjórða lykilatriðið varðandi hag- vöxt. Að mati Sachs átti skortur á nýjungum og nýtingu þeirra stóran þátt í hruni Sovétríkjanna. Og í þróunarlöndum, sem vaxa hratt vegna auðsöfnunar en fóstra ekki nýjungar er hætta á að vöxturinn sé óstöðugur. Fimmta atriðið til skilnings á hagvexti er hlutverk og skilvirkni fjármálakerfis og dómskerfis, sem til dæmis vaxtarlönd Asíu hafa átt erfitt með að ná tökum á. Sachs undirstrikar þó að það sé ekki einkavandi þessara landa, því löndin hafi flutt inn kerfi iðnríkj- anna. Hlutverk háskóla og vísinda skiptir miklu máli og þar hafa Bandaríkin að mati Sachs mikinn styrk í harðri samkeppni ríkis- og einkaháskóla, auk þess sem ríkið V elfer ðarríkið: A vegamótum eða villig'ötum? Upprunalegar forsendur velferðarkerfísins mótuðust á tímum stöðugs hagvaxtar, en kerfíð hefur nú mótað væntingarnar og breytt gildum og hegðan. Spurningin er hvernig eigi að bregðast við því. „RAUNVERULEGIR óvinir vel- ferðarkerfisins eru þeir, sem segja að því þurfi ekki að breyta," segir hinn virti sænski hagfræðingur Assar Lindbeck. „Forsenda bresku stjórnarinnar í endurskipulagi breska velferðarkerfisins eru eig- inhagsmunir einstaklinga í stað samkenndar," segir Frank Field félagsmálaráðherra Breta. En eru þetta ekki bara frasar? var spurt. „Við þurfúm líka frasana," stundi Bertrand Collomb franskur fram- kvæmdastjóri og áhrifamaður í frönsku viðskiptalífi. „I mínu heimalandi má ekki einu sinni tala um að fólk kunni á kerfið og með- an ekki er hægt að tala um vand- ann er heldur ekki hægt að leysa hann.“ Þetta eru nokkur þeirra sjónar- miða um velferðarríkið, sem komu fram á afmælisráðstefnu Studi- J eförbundet Naringsliv och Sam- halle, SNS í Stokkhólmi nýlega. Velferðarríkið spratt upp úr aUt öðrum aðstæðum en rílqa núorðið. Við tilkomu þess var hagvöxtur stöðugur við 3-4 prósent, atvinnu- leysi lítið, fjölskyldumynstrið byggðist á einni fyrirvinnu og vinnumynstrið var að fólk fór að vinna á unga aldri og vann ævina út. Nú er hagvöxtur sveiflukennd- ur, atvinnuleysi vandamál, fjöl- skyldumynstrið einkennist af tveimur fyrirvinnum eða einstæðu ' foreldri og fólk vinnur hlutastörf, tekur sér orlof eða er lausráðið. Eins má merkja að tilvist vel- ferðarríkisins með tilheyrandi bót- um og þjónustu hafi breytt hegðun fólks. Því má álykta sem svo að nauðsynlegt sé að aðlaga velferð- arríkið ríkjandi aðstæðum og eins - að koma því svo fyrir að velferðar- ríkið hvefji en ekki lefji til afkasta. En margvíslegir hagsmunir stang- ast á og víst má telja að baráttan um velferðina verði helsta póli- tíska baráttumál næstu ára í gam- algrónu velferðarríkjunum. Skattahækkun um 50-150 prósent til að viðhalda núverandi eftir- launaskuldbindingum Assar Lindbeck bendir á að tvö grundvallaratriði hafí breyst frá því velferðarríkið var í deigl- unni fyrir um hálfri öld. I fyrsta lagi hefur aldursdreifing þjóðfé- lagsins breyst og nú blasa við stór- ir árgangar gamalmenna og litlir árgangar ungmenna og vinnu- færra. I öðru lagi eru miklu fleiri atvinnulausir nú en áður. Það má nefna til dæmis að hver vinnandi Svíi hefur á sínu framfæri 1,1 sem ekki vinnur. Aldursdreifing og eftirlaun krefjast ekki aðeins lausnar, held- ur þarf að fá stjómmálamenn til að hugsa lengra en fram yfir næstu kosningar bendir Gerhard Rupprecht framkvæmdastjóri þýska tryggingafélagsins Allianz á. Hér þarf að hugsa hálfa öld fram í túnann eða svo, sem er miklu lengra tímabil en stjóm- málamenn sýsla venjulega með, svo mikilvægt er að ná víðtækri samstöðu um aðgerðir. Einmitt Þjóðveijar hafa orðið illa fyrir barðinu á ójafnri aldursdreifmgu. „I Þýskalandi snýst allt um að vera undir Maastricht-viðmiðuninni um 3 prósenta halla á fjárlögum mið- að við þjóðarframleiðslu, en með fyrirsjáanlegri aldursdreifingu og eftirlaunaskuldbindingum stefna Þjóðveijar í 50-150 prósenta halla," spáir Rupprecht. Kynslóðavandinn er ekki sér- þýskur vandi. Rupprecht bendir á að skattar þyrftu að hækka um 50 prósent í Bandarílgunum til að komandi kynslóðir geti haldið nú- verandi eftirlaunastigi, um 100 prósent í Þýskalandi og 150 pró- sent í Japan. Aldursdreifing og eftirlaun er vandi, sem alls staðar er verið að vinna í en fátt er um snjallar lausnir. Núverandi kerfi byggist í grófum dráttum á að þeir sem vinna greiði um leið eftirlaun fyrir þá, sem náð hafa eftirlaunaaldri. Hið æskilega þykir hins vegar að vinnandi fólk spari sjálft upp fyrir elliárin, en umskiptin frá einu kerfi í annað og eins hvaða form eigi að finna spamaðnum er um- deilt. Velferðarkerfið grafið undan gömlu gildunum Áhrif velferðarríkisins hafa ver- ið margslungin. Fylgifiskur þess er stór opinber geiri, sem að mati Lindbecks hefúr hindrað þróun einkageirans á sviði heilbrigðis- og menntamála. En velferðarkerfið hefúr einnig leitt tíl félagslegs stöðugleika, sem hefúr átt sinn þátt f hagvexti iðnríkjanna. „Velferðarkerfið var ekki hugs- að sem efnahagslegt fyrirbæri, heldur til að jafna aðstöðu fólks. Því meira sem það hefur þróast því meira hefur það breytt þjóðfé- laginu og meðal annars ýtt undir ábyrgðarleysi," segir Yves Cannac framkvæmdastjóri fransks stjóm- unarfyrirtækis. Velferðarkerfið hefur með áranum breytt hegðun- armynstri fólks og um Ieið félags- legum gildum. „Aðlögun hegðunar að kerfinu hefur gengið hægt, því gömlu gild- in voi-u seiglíf og áhrifin hafa því komið seint í ljós,“ segir Lindbeck. Þegar það þótti ekki lengur smán að vinna ekki tóku þeir framtaks- sömu til við að gera út á kerfið og sleppa við að vinna. „Hinn félags- legi skaði, sem velferðarkerfið hefur orsakað líkist ferli umhverf- isskaða sökum mengunar. Það gengur svo hægt í byijun að breyt- ingamar em ósýnilegar framan af, en þegar áhrifanna tekur að gæta svo við blasir þá er ekki hægt að snúa ferlinu við.“ Við þessari uppflosnun gömlu gildanna vill Field bregðast með því að útbreiða ný gildi í stað þeirra gömlu. „Við lifum á túnum eftir kristnina og það þarf ný gildi í stað hennar. Ný gildi, sem við þurfúm að koma okkur saman um og útbreiða í gegnum skólakerf- ið.“ Breska stjómin leitar nú þess- ara nýju gilda og sama gerir norska stjómin. Þáttur í eftirlaunavandanum á rætur að rekja til viðhorfsbreyt- inga er velferðarkerfið hefur or- sakað. Frank Field bendir á þá gmndvallaimótsögn að um leið og langlífi hafi aukist hafi eftirlauna- aldur lækkað. Þetta sé greinilega ein af hliðarverkunum velferðar- kerfisins, sem hafi haft hvetjandi áhrif á fólk að láta snemma af störfum og þessari þróun verði að snúa við. A Italíu er meðaleftir- launaaldur 51,2 ár og í Svíþjóð 58,9 ár. Stefnan á lágan eftirlaunaaldur hefur reyndar einnig verið styrkt í

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.