Morgunblaðið - 12.07.1998, Page 35

Morgunblaðið - 12.07.1998, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1998 35 allt er þetta ágætis fólk. Fyrstu kynni mín af þeim hjónum, Gunnari og Gígí, voru þegar þau höfðu sett á stofn fyrirtæki um framleiðslu matvara. Þau voru full bjartsýni, glaðlynd og iðin, ekki vantaði fyrir- hyggjuna og metnaðinn í að standa sig við framleiðslu vandaðrar vöru, enda þróaðist fjTÍrtækið vel og fékk það orð að framleiðsla þess væri það besta sem gerðist á mark- aðinum. Þrátt fyrir annir sínar við fyrir- tækið gáfii þau hjónin sér tíma til að ferðast og hvílast, og eftir að ég eignaðist fjölskyldu fórum við oft saman í ferðalög til ýmissa lands- hluta. Þetta voru ávallt skemmti- legar ferðir og var fjölskylda mín ávallt þakklát fyrir þær skemmti- legu stundir, er við áttum saman. En, „Vantar nú í vinahóp, völt er lífsins glíma, þann er yndi og unað skóp oss fyrir skemmstum tima“ (M. Joc). Ég minnist Gunnars, sem heilsteypts, myndarlegs manns, sem var bráðgreindur, fróðleiksfús, reglusamur og fullur af fyrir- hyggju. Hann hafði yndi af að miðla af þekkingu sinni og reyna að hafa jákvæð áhrif á umhverfi sitt, án þess að vera ýtinn eða vilja þvinga eitthvað fram. Hann var sannur vinur, ekki aðeins vina sinna, held- ur einnig starfólks síns og annarra, sem voru móttækilegir miðlun hans á þekkingu og ráðleggingum. Vin- ur! „Elja þín og vilji vakti undrun, allra vildir þú óskir fylla“ (M. Joc). Gunnar aflaði sér góðrar mennt- unar, sótti bændaskóla og síðar Landbúnaðarháskóla í Bandaríkj- unum og notaði svo þekkingu sína í að framleiða vörur úr efnum land- búnaðarins og auk þess var hann jarðeigandi. Því má segja, að „Fækkun er einn úr flokki bænda, góður, gætinn og göfuglyndur. Þótt skyggi sorg á sætið auða, ljós er þar yfir, sem látinn hvílir" (M. Joc). „Mitt höfuð ég beygi og hljóður styn, því hlaustu að deyja minn besti vin?“ „Ég þekki gildi vinátt- unnar. Hver Hver vildi lifa án hennar? Hún er ágæt í meðbyr, ómetanleg í mótbyr.“ (Jos.von Görres). Allra jarðlíf varir skammt, okkur bíður allra að hverfa, en áfram lífið heldur samt, eða eins og spámaður- inn kemst að orði „því að hvað er það að deyja annað en standa nak- inn í blænum og hverfa inn í sól- skinið?" (K.G.). Að lokum færi ég eiginkonu hans o‘g dætrum, mínar innilegustu samúðarkveðjur, þakka þeim um leið hinar ánægjulegu stundir er við áttum sameiginlegar með Gunnari. Blessuð sé minning hans. Magnús Sigurðsson. Það er stutt á milli gleði og sorg- ar. Fyrir tveimur vikum hittumst við fjölskyldan og vinir á Heiðarbæ í tilefni af afmælinu hennar ömmu. Á Heiðarbæ höfðu þau hjónin Gunnar og Gígí komið sér notalega fyrir í sveitasælunni og tóku þar á móti gestum af sinni alkunnu hlýju og gestrisni. Aðeins tveimur vikum seinna berast þau sorglegu tíðindi að Gunnar sé látinn. Upp í hugann koma minningar frá æskuárunum þegar við bjugg- um á Háaleitisbrautinni í sömu blokk og Gunnar og Gígí. Þangað var alltaf gott að koma og ósjaldan lá leiðin til þeirra upp á fjórðu hæð- ina. Má með sanni segja að hjá þeim hafi verið mitt annað heimili. Ogleymanleg er ferðin sem ég fór með þeim hjónum vestur á Snæfjallaströnd þegar ég var barn. Að sigla yfir Djúpið frá Isaftrði og dvelja þar í nokkra daga fjarri mannabyggðum var mikið ævintýri fyrir mig, borgarbamið. Mörgum árum seinna fórum við aftur saman vestur og nú að Tindum á Skarðs- strönd. Það var alltaf gaman að koma á þennan fallega stað, veiða í ánni og njóta einstakrar gestrisni þeirra hjóna. Gunnar undi sér sér- lega vel í sveitinni og var greinilegt að sveitalífið átti vel við hann. Gunnar var mjög víðlesinn og fróður maður. Hann átti mjög auð- velt með að miðla þekkingu sinni og til hans var alltaf gott að leita enda var hann einstaklega hjálpsamur og alltaf tilbúinn að aðstoða aðra. Elsku Gígí, Helen, Nancy og fjöl- skyldur, guð blessi ykkur og styrki á þessum erfiðu tímum. Matthías Waage. Elsku pabbi, sárt finnst okkur að kveðja þig. Þú sem reyndist okkur systmm svo vel og kenndir okkur svo margt. Leiddir okkur út í lífið með jákvætt viðhorf til annarra. Að líta jafnt á alla menn og bera virð- ingu fyrir öðram. Minnisstæð er þessi setning sem þú sagðir svo oft: „Aðgát skal höfð í nærvera sálar." Til að undirstrika tillitssemi við aðra menn og konur. Elsku allrabesti pabbi, hér er lít- ið ljóð til þín frá okkur. Og tíminn hvarf Eins og tár, sem fellur A hvíta hönd. Með sorg og söknuð í hjarta kveðjum við þig, en þar sem ferð þinni er heitið á annað svið lifir kærleikurinn til þín og minningin um þig að eilífu, amen. Nancy og Helen Gunnarsdætur. Þegar ég minnist Gunnars Jóns- sonar koma margar myndir upp í hugann. í gamla daga var ég oft gestkomandi hjá vinafólki foreldra minna í gamla Sanítashúsinu við Lindargötu. Fyrir 10 ára dreng var það hús heill ævintýraheimur. Ekki bara vegna þess að gosdrykkja- verksmiðja var starfrækt þar og að undantekningarlaust fengi maður alla vega eina Pepsí þegar maður kom í heimsókn, heldur var húsið líkara völundarhúsi. Stórar lyftur og alls konar ranghalar þar sem eitthvað merkilegt var að gerast. Það var í þessu húsi sem ég man fyrst eftir Gunnari en hann var maðurinn hennar Gígíar. I mínum augum var hann alveg ofboðslega merkilegur maður. Alltaf að hræra í pottum og svo sat han stundum við stóra trekt og lét sósu leka í glerflöskur sem hann kom með frá Ameríku en þaðan var hann líka nýkominn. Já, hann var meira að segja búinn að vera svo lengi í Am- eríku að hann keyrði upp Banka- strætið á bíl eins og mátti víst áður en hann fór þangað. Hann var sko algjör prófessor þessi en hann var líka svolítið skemmtilegur og alltaf til í að spjalla við lítinn mann og spyrja og hlusta og líka að svala forvitni ungs manns á sinn vin- gjarnlega hátt. Þama var Gunnar að leggja grann að fyrirtæki sínu og næsta mynd er líka tengd því en 3-4 árum yngri í tíma. Þá hafði framleiðslan aukist nokkuð og 13 ára fékk ég mína fyrstu sumarvinnu hjá Gunn- ars majónes sf. Starfið fólst í að út- vega pappakassa fyrir framleiðslu- vörana, líma miða á dósir og vera aðstoðarmaður við útkeyrslu. Út- keyrslan var mikið tilhlökkunarefni. Gunnar hafði þann háttinn á að leigja sendiferðábíl tvisvar í viku og aka vöranni út eftir ákveðinni rútu. í þessum ferðum var mikið spjallað um alla heima og geima. í mínum verkahring var að sjá um að skipta um gír þegar það átti við. Þama lærði ég að keyra bíl allavega erfði ég aksturslag Gunnars. Það upp- götvaði ég löngu seinna þegar ég ók á eftir einhverjum bíl og mér til mikillar furðu var aksturslagið al- veg eins og hjá mér. Þegar ég gáði betur þá var bílstjórinn enginn ann- ar en Gunnar Jónsson. Samskipti Gunnars við kaup- menn í þessum söluferðum vora at- hyglisverð. Ef kaupmaðurinn vildi kaupa 12 dósir seldi Gunnar honum 8. Fyrir mér ungum og áköfum sölumanni var þetta alveg óskiljan- leg sölumennska. En Gunnar lagði áherslu á að allir kaupmennirnir í hverfinu fengju sinn skammt. Það brást sjaldnast að næst þegar við komum var kaupmaðurinn rétt ný- búinn að selja síðustu dósina. Þannig stjórnaði Gunnar ferskleika vörunnar. Neytendurnir vora ánægðir með gæðin og með hægum og öraggum skrefum stækkaði Gunnars majónes sf. og úr varð öfl- ugt og vinsælt matvælafyrirtæki sem neytendur kunna að meta að verðleikum. I hugskoti mínu era myndirnar sem tengjast Gunnari svo ótal margar sem verðugt og gaman væri að segja frá enda var maður- inn ekki bara vinnuveitandi minn, heldur líka velgjörðarmaður og vin- ur. Af hans fundi fór maður alltaf bjartsýnni og fróðari en áður. Hvort sem talað var um sögu og gengna kappa Islandssögunnar, hlutabréfaviðskipti á Wall Street eða stjómmál dagsins í dag miðlaði hann þekkingu sinni þannig að áreynslulaust var að skilja og nema. Gunnar notaði sókratíska aðferð í rökræðum. Hann byrjaði alltaf á að spyrja og síðan að benda á önn- ur rök og leiðir til að komast að ár- angursríkari niðurstöðu. Hann var laus við predikunarstílinn og aldrei lét hann eins og hann einn vissi. Stórbrotinn, traustur og afkasta- mikill maður er kvaddur. Hann grundvallaði ævistarf sitt á hóg- værð og heiðarleika og uppskar ríkulega virðingu og ást vina og fjölskyldu. Guð blessi minningu Gunnars Jónssonar. Sigurður Haraldsson. Genginn er glæsilegur maður, Gunnar Jónsson móðurbróðir minn. Móðir mín Guðrún Finnborg, var elst fjögurra systkina og var Gunnar næstelstur, en aðeins var rúmt á á milli þeirra. Gunnar erfði virðuleikann, hátíðlega framkomu og hið beina bak frá föður sínum, en gamansemina, kankvísina og ekki síst brúnu augun og dökku húðina frá móður sinni. Bæði móðir mín og Gunnar sýndu snemma að þau höfðu mik- inn metnað og stolt til að bera og stefndu ung til náms erlendis. Móð- ir mín fór til Svíþjóðar í framhalds- nám sem hjúkranarfræðingur til að nema geðhjúkrun og svæfingar- hjúkran og starfaði þar í nokkur ár. Gunnar fór vestur um haf til að nema búfræði og hagfræði því hug- ur hans stefndi til matvælafram- leiðslu. Hans fyrirmyndir í lífinu vora frændur hans, Hans Krist- jánsson, einn af stofnendum Sjó- klæðagerðarinnar og Jón í sælgæt- isgerðinni Víkingi. Það era mínar sælustu bemskuminningar þegar ég dvaldi hjá afa og ömmu á Túngötu 3 á Isa- firði, eða á eyðibýli þeirra Sandeyri á Snæfjallaströnd, en þar var Gunnar ætíð ekki langt undan. Hann þreyttist aldrei á að fræða okkur frændsystkini sín og upplýsa um hin ýmsu mál og mótaði okkur því meir en margan granar í upp- vextinum. Stríðni hans og hæðni í okkar garð þjónaði fyrst og fremst þeim tilgangi að herða okkur fyrir lífið. Þegar ég hugsa um Gunnar sé ég hann fyrir mér, standandi tein- réttan baðandi út handleggjunum til að leggja áherslu á orð sín. Móðir mín og Gunnar voru ákaf- lega ólík systkini bæði í útliti og skoðunum. Þau þreyttust aldrei á að rökræða barnauppeldi, stjórn- mál, trúmál og ýmis önnur hugðar- efni. Þótt oft skildi himinn og haf sjónarmið þeirra að, bára þau ótak- markaða virðingu fyrir skoðunum hvort annars eins og upplýstu og skynsömu fólki sæmir. Stóra hamingjan í lífi Gunnars var yndisleg eiginkona hans, Sig- ríður Waage, sem hann kynntist vestanhafs og stóð alltaf eins og klettur við hlið hans í lífi og starfi. Ég þakka allar þær ánægjulegu stundir sem ég átti með Gunnari og þann áhuga og virðingu sem hann sýndi manni mínum og börnum, menntun minni og störfum. Guð veri með ykkur Gígí, Helen, Nancy, Valdimar og barnabörn. Guðrún Jónsdóttir enskukennari. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og bróðir, KARL HALLDÓR ÁGÚSTSSON fv. framkvæmdastjóri Baader, Hrísmóa 10, Garðabæ, áður Miðvangi 63, Hafnarfirði, sem lést aðfaranótt 4. júlí, verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði, þriðjudaginn 14. júlí kl. 13.30. Guðrún M. Guðmundsdóttir, Nína S. Karlsdóttir, Gylfi Ingvarsson, Jóhanna M. Karlsdóttir, Pálmi Ólafsson, Guðmundur Á. Karlsson, Arnar Karlsson, Anna S. Arnardóttir, barnabörn og systkini. t Faðir minn og afi okkar, HÖRÐUR SIGURÐSSON, fyrrverandi starfsmaður hjá Vita og hafnamálastofnun, Háaleitisbraut 101, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju mánudaginn 13. júlí kl. 13.30. Blóm og kransar eru afþakkaðir, en þeir sem vildu minnast hans eru beðnir að láta Flug- björgunarsveitina í Reykjavík njóta þess. Sigurður Harðarson, Hörður Markús Sigurðsson, Gunnar Ingi Sigurðsson, Margrét Jóna Sigurðardóttir, Kristín Sunna Sigurðardóttir. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengda- faðir, afi og langafi, BERNÓDUS Ö.G. FINNBOGASON, Laugarnestanga 60, síðast til heimilis á Hrafnistu Reykjavík, verður jarðsunginn frá Laugarneskirkju mánu- daginn 13. júlí kl. 13.30. Kristín Helgadóttir, Grétar Bernódusson, Guðrún Eyjólfsdóttir, Kristín Benný Grétarsdóttir, Davfð Héðinsson, Óskar Eyjólfur Grétarsson, Grétar Atli Davíðsson, Gunnar Atli Davíðsson. t Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GUÐMUNDAR HANSSONAR fyrrverandi vörubifreiðastjóra, Skúlagötu 40. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 7-b Sjúkrahúsi Reykjavíkur, Fossvogi, og Heima- hlynningar Krabbameinsfélagsins, fyrir einstaklega góða umönnun. Einnig sendum við Vörubílstjórafélaginu Þrótti, okkar bestu þakkir. Elsa D. Helgadóttir, Halla Guðmundsdóttir, Gunnlaugur H. Gíslason, Hans B. Guðmundsson, Steinunn Njálsdóttir, Friðjón Guðmundsson, Karen Emilsdóttir, Snorri Guðmundsson, Lilja Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Við þökkum innilega fyrir hlýhug og samúð sem okkur hefur verið sýnd vegna fráfalls SIGURBJÖRNS ÞORBJÖRNSSONAR fyrrverandi ríkisskattstjóra, Skúlagötu 40A, Reykjavfk. Betty H. Þorbjörnsson, Björn Þór Sigurbjörnsson, Kolbrún Anna Björnsdóttir, Kári Freyr Björnsson, Kolbeinn Ingi Björnsson, Markús Sigurbjörnsson, Steinunn Guðrún Markúsdóttir, Ingunn Elísabet Markúsdóttir, Þorsteinn Markússon, Ragnheiður Gestsdóttir, Viðar Bragi Þorsteinsson, Kjartan Yngvi Björnsson, Þórdis Ylfa Viðarsdóttir, Björg Thorarensen, Elías Elíasson, Sigurbjörn Markússon, Bergljót Sunna Elíasdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.