Morgunblaðið - 12.07.1998, Síða 37

Morgunblaðið - 12.07.1998, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ ‘J 1 í 1 : 1 I i i « i I J i « d I i : I MINNINGAR + Hörður Sigurðs- son fæddist á Vöglum í Fnjóskadal 2. mars 1912. Hann lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 29. júní síðastliðinn. Foreldrar hans voru Sigurður Pét- ursson og Margrét Magnúsddttir. Hörð- ur á einn bróður, Kristján Sigurðsson. Hörður var tví- kvæntur. Fyrri kona hans var Sofft'a Jóns- dóttir frá Ásum í Húnavatns- Gartiall maður er farinn héðan. Mig langar til að minnast hans þótt kynni mín við hann næðu ekki yfir mörg ár, eða frá því að sonur hans Sigurður kynnti mig fyrir honum. Minningarnar streyma fram og ótal spumingar koma upp í hugann, svo gaman var að spjalla við hann. Hann sagði vel frá gömlum tíma og hlustaði líka vel á viðmælendur sína ef hann gæti bætt við sig einhverjum fróðleik eða reynslu. Hörður var fastur fyrir og skipu- lagður. Hann sá um sig sjálfur og bjó í eigin húsnæði þar til að hann fór á sjúkrahús um miðjan júní og átti ekki afturkvæmt. I huganum var hann á leið heim, fannst sjálfsagt að hann næði sér á stuttum tíma eins og áður. Hann hafði fengið væg hjartaköst þrisvar sinnum síðastliðið hálft ár. Ég sá Hörð fyrst í brúðkaupi Mar- grétar sonardóttur hans og fór strax vel á með okkur. Margrét var með þvílíkt fallegt hálsmen og þegar ég sýslu. Þau eignuðust einn son, Sigurð raf- eindavirkja, f. 20.6. 1944. Soffía og Hörður skildu 1957. Soffi'a lést 22.11. 1991. Seinni kona Harðar var Guðrún Hinriksdóttir frá Norðurbrún í Mýr- dal. Guðrún lést 27.12.1987. Útför Harðar fer fram frá Bústaða- kirkju á morgun, mánudag, og hefst athöfnin klukkan 13.30. spurði hvar hún hefði fengið þennan dýrgrip þá var það afi sem keypti það handa henni á ferðum sínum erlend- is. Síðar kom í Ijós að hann var búinn að hugsa fyrir ýmsu, brúðargjafir til barnabama sinna var hann búinn að kaupa fyrir mörgum árum á ferðum sínum um fjarlæg lönd. Um páskana fórum við ég og sonur hans Sigurður með gjöf frá honum, sem hann átti í fónim sínum í brúðkaup sonarsonar hans Gunnars og Hönnu Mörtu. Það var aðdáunarvert hvað hann gat haft ofanaf fyrir sér við lestur, las sér til um flóknustu hluti. Tækniá- hugi hans varð til þess að hann var að fást við flókna hluti eins og að læra á digital upptökuvél sem hann keypti sér nýlega. Hörðui- var mjög sjálfstæður og vildi ekki snúa öðrum í kringum sig og fannst það mikið ómak ef létt var undir með honum en einmit þess vegna var svo erfitt að festa í huga sér hvað árin töldu. Þar sem ég hef unnið töluvert með fullorðnu fólki dáðist ég að dugnaði hans. Eitt sinn spurði ég þennan tein- rétta háa mann um aldur, varð að heyra það af hans vörum hvað hann væri gamall og ekki síst hvemig hann hefði það. Jú, hann var 86 ára og hress, ekki undan neinu að kvarta, hafði allt til alls. Nema kannski mjöðmin sem hann hafði hug á að láta athuga með vorinu, vonaði þá samt að hægt væri að gera við hana eins og hina mjöðmina, en það var ekki að sjá á honum að hann hefði farið í slíka að- gerð en kannski þess vegna var hann með staf. Hugurinn var ungur og heill og hann hafði ferðast mikið um há- lendið, komið á flesta staði og því vís- ast að endumýja ökuskírteinið núna í maí síðastliðnum. Gamla Dodge fjallabflinn sinn sem hann var búinn að eiga í 40 ár var hann að vísu nýlega búinn að gefa Herði nafna sínum og sonarsyni. Hann sagði mér líka að hann hefði ferðast mikið erlendis til fjarlægra landa en hefði nú síðast far- ið í stutta ferð á eigin vegum þegar hann varð áttræðui-. Svo var hann að hugsa um að end- urnýja vegabréfið sitt ef hann gæti nú farið til Kanarí sér til heilsubótar. En kveðjustundin rann upp áður. Barnabörnin hans hugsuðu um hann síðustu dagana og sonardóttir hans, Margrét, sat hjá honum síðustu stundirnar. Ég undiirituð og Sigurð- ur sonur hans kvöddum hann með blendinni von um endurfundi núna í júní áður en við fómm í ferðalag. Hann tók því vel og vildi endilega lána okkur véhna sína til að taka upp eitthvað af ferðinni. Það ferðalag verður ekki skoðað með honum. Með þakklæti og söknuði kveð ég þannan mæta mann. Síðast þegar við höfðum samband við hann í síma var honum ljóst að hverju stefndi. Hann er lagð- ur upp í aðra ferð, blessuð sé minn- ing hans. Harpa Ágústsdóttir. HORÐUR SIGURÐSSON SIGRÚN BJARNADÓTTIR + Sigrún Bjarna- dóttir fæddist á Syðri-Steinsmýri í Meðallandi 13. des- ember 1921. Hún andaðist að heimili sínu Skúlagötu 40 í Reykjavík 27. júní síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Kátrín Davíðsdóttir, f. 14. febrúar 1896, og Bjarni Ásgrímur Eyjólfsson f. 25. júní 1892. Sigrún var sjötta í röð átta systkina og eru tvö eftirlifandi. Sigrún bjó lengst af í Reykjavík og starfaði hún lengst við bókband auk húsmóðurstarfa. Eignaðist hún tvo syni, þeir eru Þór Jóhannsson, vél- stjóri, f. 20.8.1950, og Úlfar Árnason, rafvélavirki, f. 4.5.1960. Barnabarn hennar er Rögn- valdur Kristinn Úlfarsson. Sigrún var jörðuð í kyrrþey frá Fossvogskapellu 3. júlí síðastliðinn. Sjá! Sem í hyllingu gengur hún fram Ijómandi af flekkleysi æskunn- ar, saklaus í hjarta og ásýnd hennar skínandi af hógværð. Mig langar til að kveðja hana Sig- rúnu Bjamadóttur. Ég hafði ekki þekkt hana lengi, sá hana fyrst eftir að ég kynntist syni hennar Úlfari fyr- ir fáum árum. Strax við fyrstu kynni fann ég góðsemina og hógværðina sem hún bjó yfir og hlýjuna sem staf- aði frá henni. Og æðrulausari og lítil- látari manneskju hef ég ekki kynnst. Þær bjuggu saman systumar Sig- rún og Margrét á Skúlagötunni í Reykjavík en þær ólust upp í Meðal- landinu hjá foreldmm sínum og systkinum við kröpp kjör. Sigrún fluttist með fjölskyldu sinni til borg- arinnar um 1950, þar sem hún kynnt- ist síðar Áma Kristmundssjmi eigin- manni sínum og vom þau gift í um 30 ár. Og hvað augasteinninn hennar hann Rögnvaldur, eina barnabarnið, var henni mikils virði, hún naut þess að fá að stjana við hann og fylgjast með honum vaxa og dafna. Hann naut þess líka að vera í návist við ömmu sína og fá alla þá ástúð og blíðu sem hún sýndi honum, hann kom til ömmu sinnar oft í viku og missir hans er því mikill. Við Sigrún áttum margar góðar stundir saman yfir kaffibolla, í bfltúr- um um borgina og í stuttum ferðum um nærsveitir. Fyrir þessa samfylgd vil ég þakka. Það var gaman að spjalla við Sigrúnu um gamla tíma því hún og ekki síður Margrét systir hennai- höfðu svo gott minni. Það eru ófáar myndimar og allur útsaumur- inn sem eftir hana liggur og ekki voru tfl þær stundir sem hún sat aðgerðar- laus. Það óx allt og dafnaði sem hún kom nálægt sem best má sjá á blómunum sem fylltu stofuna hennar. Það var svo gott að koma á Skúla- götunna í spjall og kaffisopa og nóg var af kökunum sem bomar vora á borð. Það var hreint eins og alltaf væra jólin. Sigrún hafði svo skemmti- lega kímmgáfu og sá spaugilegu hlið- amar á hlutunum oftast á undan öðr- um. Ekki var ellikerling neitt farin að láta á sér bera hjá Sigrúnu, hún var hress og fylgdist með öllum fréttum og heimsviðburðum sem öðra fram á síðustu stundu lífs síns. Ég vil þakka fyrir að hafa fengið að kynnast þessari æðralausu góðu konu sem allt greri í höndunum á. Far þú í friði elsku Sigrún og ástar þakkir fyrir þær stundir sem við átt> um saman. Elsku Úlfar, Rögnvaldur og Magga. Þið hafið misst mikið. Ég votta öllum hennai- ástvinum mínar dýpstu samúð. Guð blessi ykkur og veiti ykkur styrk. Ágústa Rut Sigurgeirsdóttir. Flatey — Breiðafirði Til sölu íbúðarhúsið Sjávarslóð sem er nýlegt 55 fm timburhús ásamt svefnlofti. 1100 fm lóð. Verð- hugmynd 9 millj. Fasteignasalan Kjörbýli, Nýbýlavegi 14, sími 564 1400, fax 554 3307. SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1998 + Ástkær systir okkar, mágkona og föðursystir, ERNA JÓHANNA HELGADÓTTIR frá Hörgsdal í Mývatnssveit, er lést 1. júlí, var jarðsett í Gufuneskirkjugarði þann 9. júlí sl. Guðrún H. Helgadóttir, Jósteinn D. Helgason, Jóhanna Tryggvadóttir, Árni Jósteinsson, Helgi Jósteinsson, Arnar Jósteinsson og fjölskyldur. + Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýnt hafa okkur samúð og hlýhug við andlát og útför Krissu okkar, KRISTBJARGAR SIGURÐARDÓTTUR, Grenigrund 28, Akranesi. Vinátta vermir. Guð blessi ykkur öll. Sigurður Villi Guðmundsson, Dagbjört Friðriksdóttir, Guðmundur Þórir Sigurðsson, Jóhanna S. Sæmundsdóttir, Pálína Sigurðardóttir, Sigurður Páll og Vilhjálmur Sveinn. + Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, TRYGGVA ÓLAFSSONAR fyrrverandi skrifstofustjóra, Gullsmára 7, Kópavogi. Aðalheiður Svavarsdóttir, Ólafur Tryggvason, Halla Stefánsdóttir, Svavar Tryggvason, Aðalbjörg J. Jóhannesdóttir, Sigrún Tryggvadóttir og barnabörn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samú hlýhug við andlát RÓSU INGÓLFSDÓTTUR, Miðleiti 7, Reykjavík. Guðmundur I. Guðmundsson, Grétar Guðmundsson, Örn Guðmundsson, Ævar Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Við biðjum Guð að launa öllum þeim sem sýndu okkur vinarhug og samúð við andlát og útför EINARS J. GÍSLASONAR fyrrverandi forstöðumanns Fíladelfíusafnaðarins, Snorrabraut 56, Reykjavík. Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki Droplaugarstaða, öllum sem þjónuðu við útför og erfisdrykkju, og þeim sem styrktu starf Samhjálpar í minningu Einars. Fyrir hönd aðstandenda, Sigurlína Jóhannsdóttir. + öllum þeim fjölmörgu er vottuðu okkar ástkæra ÓLAFI ARNARS virðingu sína og veittu okkur hlýhug og stuðning við fráfall hans sendum við innilegar þakkir og kveðjur. Guð blessi ykkur öll. Elín Stella Gunnarsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.