Morgunblaðið - 12.07.1998, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 12.07.1998, Qupperneq 40
40 SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1998 9----------------------- MORGUNBLAÐIÐ Ljóska l Ferdinand Segðu hundinum þínum að ég hafi fundið nýja spýtu ...segðu honum að ég ætli að kasta henni og að hann geti sótt hana... Ertu að segja honum þetta? BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Hrollvekjandi forsætisráðherra Frá Indriða Aðalsteinssyni: UNDANFARNAR vikur hefur þjóðin ekki haft við að skammast sín fyrir forsætisráðherra sinn. Mér hefur fundist ég vera staddur í einhverju bananalanda Mið-Am- eríku eða í svörtustu Afríku þar sem forhertir einræðisseggir, ásamt nánustu gæðingum, án sam- visku eða siðgæðis ráða ríkjum. Þetta er vond tilfínning, því sting ég niður penna. Bölvað málfrelsið Forsætisráðherra finnst lýðræðið of tímafrekt samanber gagna- grunns-, hálendis- og Landsbanka- mál. Alþingi skal, að hans mati, vera afgreiðslustofnun, málfrelsi þarf að takmarka. Hann þarf að vernda vin sinn Kjartan Gunnarsson. En hvar í siðmenntuðu landi myndi fram- kvæmdastjóri og gullkistuvörður stærsta og valdamesta stjómmála- flokksins vera gerður að bankaráðs- formanni þjóðbankans - og að vera sætt þar áfram, eftir 7 ára rænu- leysi? Svo er valinn lögmaður úr einkavinahópi forsætisráðherra til að hvítþvo þverslaufuna. Skelfilegt bréf Forsætisráðherra hefur gert bréf sitt til Sverris Hermannsson- ar opinbert - tilneyddur auðvitað. Það er þess eðlis að ískaldur hroll- ur fer um venjulegt fólk, sem hélt að þjóðarbankastjórar hefðu sjálf- stæðan vilja, en heyrðu ekki undir Flokkinn. Svona bréf skrifa for- sætisráðherrar ekki í krafti stöðu sinnar, nema eitthvað mikið sé að þeirra innra manni. En bréfið hreif og það segir sitt um hús- bónda og hjú. Lausum úr „Svarta- skóla“ Davíðs tekst Sverri vonandi á komandi vori, líkt og Sæmundi forðum, að nota kvótakerfið til að keyra í kaf „selshaus“ forsætis- ráðherra. Siðleysingjar Forsætisráðherra hefur tekið fulla ábyrgð á bankamálaráðherra og hlýtur því að teljast haldinn sömu ólæknandi siðblindunni og þessi ömurlegasti ungi stjómmála- maður sem mínum fýrrverandi flokki hefur tekist að unga út. Lygin Finni lætur best. Löngum brást sá vonum. Því er, sem á þingi sést, þjóðarskömm að honum. Þarna var auðvitað stóllinn í veði hjá forsætisráðherra, sem hann á undir velvild sægreifans frá Homafirði. Aðförin að RÚV Þegar D-listinn hafði ekki byr í seglin fyrir borgarstjórnarkosn- ingarnar sendi forsætisráðherra og þrítugasti maður listans náinn vin sinn út af örkinni til að skipu- leggja rógsherferð gegn tveimur frambjóðendum R-listans, vegna þess eins að hafa lent í því sama og íhaldið hefur, fram til þessa, talið sjálfsagðan þátt í þroskaferli ungra athafnamanna. Þegar það dugði ekki, ruddist forsætisráð- herra fram eftir kosningar, þrút- inn af heift og með óbragðið í munninum, til að úthúða RÚV fyr- ir hlutdrægni. Og allir litlu flokksrindlamir sem Davíð og Bjöm hafa verið að troða inn á rík- isfjölmiðlana undanfarið, þeir tóku undir í einum kór. Rannsókn, rannsókn!! Þetta var sömu dagana og Davíð og Björn og Framsókn- arsvínastían höfnuðu því að kjósa þingnefnd í Landsbankamálinu til að draga þar til ábyrgðar rétta að- ila. Fól Fyrir fáum ámm greindi prest- ur einn og þáverandi útvarpsstjóri frá því á prenti, að í sér byggi fól. Hann fór þó spart með þessa eðl- iseigind og notaði hana aðeins í glímu sinni við einhvern ó- skemmtilegasta tvífætling sam- tímans sem merkilegt nokk er ná- inn vinur og sálufélagi forsætis- ráðherra. Þrátt fyrir áralanga þrotlausa vinnu ímyndunarfyrir- tækja og auglýsingastofa við að dulbúa eðli forsætisráðherra, blandast nú fáum hugur um það og óþarfi að rifja upp hin fleygu ummæli núverandi ábúanda á Bessastöðum, þar að lútandi. Hroki, vanstilling, siðblinda og einræðishneigð em stóralvarlegur ljóður á ráði sérhvers einstak- lings, en er hrikalegt þjóðfélags- vandamál þegar langvaldamesti maður heillar þjóðar á í hlut og ill- gresið ljósfælna vex og dafnar í skjóli hans. Allir eitt Ég hef verið tvístígandi í stuðn- ingi við sameiginlegt framboð fé- lagshyggjuaflanna að vori. En ekki lengur, þökk sé forsætisráð- herra. Hann er sú vá sem allir heiðarlegir og þjóðhollir lands- menn verða að sameinast gegn. Líka Hjörleifur og Ögmundur. Að deila um áttir, dreifa sér og týn- ast, er ekki inni í myndinni nú. Það má bíða uns búið er að reka Davíð á stjórnarráðsdyr. Því þó sagt sé að hverri þjóð hlotnist sá foringi sem hún verðskuldar, neita ég - þrátt fyrir allt - að trúa því að íslensk þjóð sé svo ómerki- leg, að hún eigi það skilið mikið lengur að sitja uppi með Davíð Oddsson. INDRIÐIAÐALSTEINSSON, Skjaldfónn, Hólmavík. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.