Morgunblaðið - 12.07.1998, Side 56

Morgunblaðið - 12.07.1998, Side 56
T|N|T| Express Worldwide 580 1010 fslandspóstur hf Hraðflutningar S3.Lausnir Nýherja fyrir Lotus Notes MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 RBYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: R1TSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 SUNNUDAGUR 12. JÚLÍ 1998 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Búnaðarbankinn semur við erlenda banka 16 millj- - arða lán til endurfjár- mögnunar BÚNAÐARBANKINN hefur lokið útboði vegna tæplega 16 milljarða lántöku hjá 23 erlendum bönkum. Lánið sem er án ríkisábyrgðar mun vera stærsta erlenda lán sem ís- lenskur aðili hefur tekið að frátöld- um ríkissjóði. Lánið verður notað til að greiða upp 11,6 milljarða erlend lán bank- ans sem eru með ríkisábyrgð og er ii*áætlaður sparnaður bankans vegna endurgreiðslu 103 milljónir á láns- tímanum. 4,3 milljarðar af láninu verða nýttir til útlána. Fjölmyntalán veitt til fímm ára Lánið er fjölmyntalán og er til fimm ára. Það er veltilán og er bankanum heimilt að greiða það niður eftir þörfum á lánstímanum. Sólon R. Sigurðsson bankastjóri og Guðmundur Gíslason, fram- tCJk kvæmdastjóri fyrirtækjasviðs, sömdu um lánið fyrir hönd bankans og segja þeir að mikill áhugi hafí verið fyrir lántökunni á erlendum lánsfjármörkuðum. Sumitomo Bank hafði umsjón með lánveitingunni og er þetta í fimmta sinn á ellefu árum sem hann hefur milligöngu um útvegun á er- lendu láni fyrir bankann. ■ Sparar/4 KiS|§tÍlSSÍ Morgunblaðið/Golli UMFERÐ var hleypt í Hval- fjarðargöngin í gær en þau voru opnuð formlega við hátíð- Iega athöfn klukkan 14. Þar var viðstaddur fjöldi boðsgesta en athöfnin fór fram bæði við syðri og nyrðri gangamunna. Sunnanmegin lék Lúðrasveit Akraness og ávörp fluttu Páll Fjölmenni við opnun Hvalfj arðarganga Sigurjónsson, stjórnarformað- Davíð Oddsson forsætisráð- ur Fossvirkis, og Gísli Gísla- herra opnaði síðan göngin. son, stjórnarformaður Spalar. Gestir héldu síðan norður um göngin og þeim megin tók Karlakór Reykjavíkur á móti gestum með söng. Anton Ottesen, oddviti Innri-Akra- neshrepps, bauð gesti vel- komna norður fyrir. Þar fluttu einnig ávörp ráðherrarnir Ingibjörg Pálmadóttir og Hall- dór Blöndal. Hjónum og tveimur börn- um bjargað úr eldsvoða Morgunblaðið/Kristinn HELGA Guðrún Eiríksdóttir bjargaði tíu mánaða stúlkubarni úr þessu herbergi í fyrrinótt. Nágranni hennar, sem vakti foreldrana og kom þeim út úr íbúðinni, lá enn á spitala með reykeitrun í gærdag. FRÆKILEGT björgunarafrek var unnið í fyrrinótt þegar karlmaður og kona björguðu hjónum og tveimur börnum, 10 mánaða og tveggja ára, úr eldsvoða í þriggja hæða fjölbýlis- húsi við Reyrengi í Grafarvogi. Eldur kom upp í sófa í íbúð á annarri hæð hússins og lagði af hon- um mikinn reyk. Karlmaður sem býr fyrir ofan fólkið vaknaði rétt fyrir klukkan fjögur um nóttina og varð var við brunalykt. Hann fór þá niður -~^pg vakti Helgu Guðrúnu Eiríksdótt- ur og Ólaf ísleifsson sem búa beint á móti íbúðinni þar sem eldurinn kom upp. Helga, sem kom til dyranna, og nágranninn fóru fram á gang og heyrðu þá í reykskynjara frá íbúð- inni. „Við fundum líka brunalykt, þannig að það fór ekki á milli mála að það var logandi eldur inni,“ segir Helga. „Nágranni okkar hljóp strax niður stigann, út í garð og klifraði upp á svalirnar. A meðan lá ég á bjöllunni og reyndi að vekja fólkið. Eftir augnablik var hann kominn að dyrunum innanfrá og opnaði." Niðamyrkur í íbúðinni vegna reyks Svo vildi til að Helga hafði verið að gæta bama hjá nágrönnum sínum fyrr um kvöldið, og var það í fyrsta sinn frá því að þau Ólafur fluttu inn í íbúðina fyrir um einum og hálfum mánuði. „Það var algert myrkur inni íbúðinni vegna reyksins, nema hvað logar sáust til vinstri í stofunni. Ég þurfti sem betur fer engan leiðarvísi að vöggu litlu stelpunnar sem var við hliðina á hjónarúminu innst í íbúð- inni. Um leið og ég kom inn öskraði ég á hjónin til að reyna að vekja þau. Reykurinn hefur verið farinn að segja til sín þannig að þau rumskuðu ekki. Ég greip stúlkuna og hljóp með hana yfir í okkar íbúð og lét hana á sófa þar. Svo tók ég símtólið og hringdi á neyðarlínuna, henti tólinu síðan frá mér, hljóp aftur inn í hina íbúðina og sótti hitt barnið, sem var í öðru herbergi í íbúðinni.“ A meðan á þessu stóð tókst ná- grannanum að vekja hjónin sem lágu í reykjarkófinu, og koma þeim fram. Helga segir að ef hún hefði ekki verið að passa bömin fyrr um kvöld- ið hefði hún varla fundið þau, því ekki hefði sést handa skil. „Ég var eins og kolakarl í framan eftir þetta. Hárið á mér, sem venjulega er ljóst, er ennþá dökkt af ösku þó að ég sé búin að þvo það,“ sagði Helga í sam- tali við Morgunblaðið í gærmorgun. Mátti ekki muna hálfri minútu Helga segir að atburðarásin hafi verið mjög hröð. „Ég hugsa að það hafi ekki mátt muna hálfri mínútu. Ég held að þeir sem að málinu komu hafi brugðist hámétt við, en það er kraftaverk að allir skuli vera lifandi og heilir." Mikinn reyk lagði um stigagang- inn og sérstaklega inn í íbúð Helgu og Ólafs meðan verið var að bjarga fólkinu út. Allir íbúar fjölbýlishúss- ins sem vora heima við vora sendir á sjúkrahús eftir atburðinn til að kanna hvort þeim hefði orðið meint af. Hjónin sem bjuggu í íbúðinni þar sem eldurinn kom upp og nágrann- inn, sem vakti þau, höfðu orðið fyrir reykeitrun en aðrir gátu farið heim til sín i gærmorgun. Konan fékk svo að fara heim skömmu fyrir hádegi í gær, en samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á Sjúkrahúsi Reykjavikur átti að halda þeim tveimur sem eftir voru á sjúkrahús- inu að minnsta kosti fram eftir degi. í íbúðinni þar sem eldurinn kom upp býr átta manna fjölskylda, hjón með sex dætur, sú elsta tólf ára. Svo vildi til að fjögur eldri börnin vora stödd í sumarbúðum en komu heim í gærdag. Aukið aðhald í Eyjafirði Um 200 ökumenn teknir síð- ustu daga ANNRÍKI hefur verið hjá lög- reglunni á Akureyri, meðal annars vegna aukinnar um- ferðar kringum landsmót hestamanna. Um tvö hundruð ökumenn hafa verið teknir fyr- ir hraðakstur í Eyjafírði, Öxna- dal og í bænum síðustu daga, en lögreglan hefur haft uppi hert eftirlit. Vegna landsmóts hesta- manna var hámarkshraðinn lækkaður tímabundið á kaflan- um milli Hrafnagils og Mel- gerðismela úr 90 í 70 km. Segir lögreglan það bæði vegna stór- aukinnar umferðar og hins að vegurinn á þessum kafla er ekki í fullri breidd. Lögreglan hefur lagt áherslu á að veita aðhald í umferðinni og stöðvað um 200 ökumenn sem ekki hafa virt mörk um hámarks- hraða. Hafa margir verið tekn- ir á fyrrgreindum kafla þar sem hámarkshraðinn vai- lækk- aður en einnig í Öxnadalnum svo og í bænum. Hefur umferð- in gengið slysalaust fyrir sig og þakkar lögreglan það meðal annars auknu eftirliti.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.