Morgunblaðið - 18.07.1998, Page 4
4 LAUGARDAGUR 18 . JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/RAX
Ferðamenn í fótbolta
KNATTSPYRNA hefur verið
ofarlega á dagskrá hjá mörg-
um undanfarnar vikur enda
hávertíð hjá íslenskum knatt-
spyrnumönnum og skammt um
liðið frá því menn gátu notið
þess að sjá landsliðin kljást
um heimsmeistaratitil í
Frakklandi. Þessir ungu og
verðandi meistarar unna
sér ekki hvfldar frá knatt-
spyrnu þótt á ferðalagi
séu en þeir voru nýverið
við Skaftafell.
Héraðsdómur Norðurlands eystra um ökuleyfis-
sviptingu vegna hraðaksturs
Akvörðun staðfest en
gildi reglugerðar vefengt
HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands
eystra staðfesti á þriðjudag ákvörð-
un sýslumannsins á Akureyri um
bráðabirgðasviptingu ökuleyfis
öklumanns sem grunaður var um
hraðakstur. Dómarinn féllst þó á
það með lögmanni mannsins að
sviptingin yrði ekki byggð á um-
deildri reglugerð um hraðakstur
þar sem hún ætti sér ekki viðhlíU
andi lagastoð.
Ökumaðurinn sem í hlut á var
grunaður um að aka á 103 km/klst
hraða á Drottningarbraut, þar sem
hámarkshraði er 50 km/klst.
í úrskurði Freys Ófeigssonar,
dómstjóra Héraðsdóms Norður-
lands eystra, segir að dómarinn
fallist á rök Tómasar Jónssonar
hrl., lögmanns ökumannsins, fyrir
því að svipting ökuréttinda til
bráðabirgða verði ekki byggð á
umdeildri reglugerð dómsmála-
ráðuneytisins nr. 280/1998 þar sem
hún eigi sér ekki lagastoð að því
leyti.
Gerðir lögreglustjóra í málinu
hafi hins vegar verið byggðar á
ákvæðum 103. og 101. greinar um-
ferðarlaga en ekki reglugerðinni og
skipti gildi hennar því ekki máli við
úrlausn málsins.
Vítaverður hraðakstur
„Samkvæmt lögregluskýrslu
þeirri er frammi liggur í málinu,
mældist hraði sóknaraðila 103
km/klst þar sem leyfður hámarks-
hraði er aðeins 50 km/klst. Hraði
bifreiðar sóknaraðila var því helm-
ingi meiri heldur en heimilt var skv.
umferðarlögunum. Verður almennt
að telja að slíkur hraðakstur sé
mjög vítaverður í skilningi 101. gr.
umferðarlaga hvernig sem aðstæð-
ur til aksturs annars eru, en sam-
kvæmt lögregluskýrslunni voru
þær góðar í umrætt sinn. Er niður-
staða dómsins þá sú að lögreglu-
stjóra hafi verið rétt að svipta sókn-
araðila ökuleyfi til bráðabirgða í
umrætt sinn og ber að staðfesta þá
ákvörðun hans,“ segir í úrskurðin-
um.
Morgunblaðið/Arnaldur
Nefnd skoðar stjórnsýslu bifreiðamála
Umferðarmál
hugsanlega falin
einni stofnun
Skoðanakönnun DV á fylgi stjórn-
málaflokka og framboða
Sverrir Hermannsson
fengi 6 menn kjörna
Félagatal Alþýðu-
bandalagsins tekur
breytingum
135 úr
flokknum
og 112 inn
FRÁ því að aukalandsfundur Al-
þýðubandalagsins var haldinn 4.
júlí sl., þar sem samþykkt var að
flokkurinn tæki þátt í sameiginlegu
framboði með Alþýðuflokki og
Kvennalista, hafa 135 félagsmenn
sagt sig úr flokknum. Á sama tíma-
bili hafa 112 gengið í flokkinn, að
sögn Heimis Más Péturssonar,
framkvæmdastjóra Alþýðubanda-
lagsins.
Heimir Már sagði að íyrir lands-
fundinn hefði forystan ekki velt því
mikið fyrir sér hvað margir kynnu
að segja sig úr flokknum eftir fund-
inn og því væru vangaveltur um
hvort þessi niðurstaða væri í sam-
ræmi við það sem búist hefði verið
við marklausar. Hann sagði að það
væri leiðinlegt að sjá á eftir góðum
félögum úr flokknum og miður að
þeir sæju ekki þörf fyrir samfylk-
ingu vinstrimanna eins og meiri-
hluti flokksmanna gerði.
Heimir Már sagði að það væri
hins vegar gleðilegt hvað margir
hefðu gengið til liðs við flokkinn
eftir landsfundinn. Margir sem
hefðu dregið sig út úr flokksstarf-
inu hefðu haft samband við flokks-
skrifstofuna og óskað eftir að taka
þátt í starfí flokksins á ný. Þetta
væri fólk sem styddi samfylkingu
vinstrimanna og vildi stuðla að því
að hún yrði að veruleika.
---------------
Tveir í 45
daga síbrota-
gæslu
TVEIR menn voru handteknir í
fyrradag eftir innbrot í fyrirtæki og
bfla í Reykjavík, Kópavogi og Hafn-
arfirði. I ljósi ferils þeirra óskaði
lögreglan eftir síbrotagæslu og
voru þeir úrskurðaðir í 45 daga
gæslu.
Mennirnir voru handteknir að
morgni fimmtudags en þeir voru
grunaðir um aðild að innbrotum á
nokkrum stöðum þá um nóttina.
Varð héraðsdómari við kröfu lög-
reglunnar um síbrotagæslu vegna
fyrri afbrota mannanna.
Síðdegis í gær gerði lögreglan
húsleit í Reykjavík og fundust 60
grömm af hassi og á annan tug
gramma af amfetamíni. Kona var
handtekin á staðnum en henni
sleppt að lokinni yfirheyrslu.
NEFND sem fjallar um fyrirkomu-
lag á stjómsýslu bifreiðamála hefur
nýlega tekið til starfa en hún er
skipuð af dómsmálaráðherra. Er
hlutverk hennar að setja fram tillög-
ur um hvemig heppilegast er að
fella sem stærstan hluta af stjórn-
sýslu mála er varða bfla undir eina
stofnun.
Nefndarmenn em Stefán Eiríks-
son, deildarstjóri í dómsmálaráðu-
neytinu, sem er formaður hennar,
Haukur Ingibergsson, skrifstofu-
stjóri í fjármálaráðuneytinu, og
Ágúst Jónsson verkfræðingur. Stef-
án Eiríksson segir nefndina þegar
hafa hist og ráðið starfsmann tíma-
bundið til að safna ákveðnum gögn-
um og upplýsingum.
„Við munum einkum skoða þrjá
möguleika í þessum efnum,“ sagði
Stefán í samtali við Morgunblaðið.
„í fyrsta lagi hvort málum skuli
skipað eins og þau eru nú, að Skrán-
ingarstofa hf. og Umferðarráð starfi
áfram í óbreyttri mynd og ákveðin
verkefni verði áfram í ráðuneytinu. I
öðru lagi hvort rétt sé að steypa
þessum verkefnum saman í eina
stofnun sem verði eins konar Um-
ferðarmálastofnun og í þriðja lagi
hvort heppilegt væri að aðrar stofn-
anir sinntu þessum verkefnum, t.d.
Vegagerðin, sem sinnir í dag ýmsum
málum.“
Starfsemi Skráningarstofu
hætt?
Stefán Eiríksson segir nefndina
skoða allar þessar leiðir og eiga til-
lögur hennar að liggja fyrir 1. októ-
ber næstkomandi. I skipunarbréfi
nefndarinnar segir m.a. að hún eigi
að setja fram tillögur um hvemig
heppilegast sé að fella gerðarviður-
kenningu, búnað, skráningu og við-
skipti undir eina stofnun, svo og
ýmis verkefni er varða bíltækni,
bíla og umferð. Skal nefndin kanna
hvernig flytja megi starfsemi sem
nú er sinnt hjá Skráningarstofu hf.
til slíkrar stofnunar og hvort eða
hvernig sé heppilegt að ljúka starf-
semi fyrirtækisins eftir að það er
komið úr ríkiseign.
Þá segir að nefndin skuli einnig
taka til skoðunar hvort og að hvaða
marki megi fella undir slíka stofnun
umsýslu með tölvukerfum, einkum
eftirlit og vinnslu gagna sem nú eru
í notkun hjá ráðuneytinu og undir-
stofnunum þess.
FRAMBOÐ á vegum Sverris
Hermannssonar, fyrrverandi
bankastjóra, fengi sex þingmenn
kjöma, ef marka má skoðana-
könnun DV, sem birt var í blaðinu
í gær, á fylgi stjórnmálaflokka og
framboða sem búist er við að
bjóði fram til Alþingis næsta vor.
Sameiginlegt framboð Alþýðu-
flokks, Alþýðubandalags og
Kvennalista fengi 14 menn kjörna
og yrði næststærsti flokkurinn á
þingi ef kosið yrði nú, en fylgi
stjómarflokkanna myndi minnka
lítillega.
Könnunin var gerð á miðvikudag
og fimmtudag og var úrtakið 600
manns, jafnt skipt milli höfuðborg-
arsvæðisins og landsbyggðarinnar
og milli karla og kvenna. Spurt var:
„Hvaða lista myndir þú kjósa ef
þingkosningar fæm fram núna og
valið stæði einnig um ýmis ný
framboð?"
Sé einungis tekið mið af þeim
sem afstöðu tóku, styðja 42,2%
Sjálfstæðisflokk, 14,1% Framsókn-
arflokk, 6,6% Alþýðubandalag,
3,8% Alþýðuflokk, 0,8% Kvenna-
lista, 0,3% Þjóðvaka, 22,3% sam-
eiginlegt framboð Alþýðuflokks,
Alþýðubandalags og Kvennalista,
Gott ár
fyrir tré
TRÉ hafa vaxið vel í hlýindum
sumarsins. „Þetta er mjög gott
ár fyrir tré hér í Reykjavík,“
segir Lára Jónsdéttir garð-
yrkjufræðingur hjá Blómavali.
„Það hafa ekki verið neinir
skaðar af vindi og vorið var
ágætt.“ Lára segir þurrkinn
sennilega hafa hamlað aðeins
trjávexti en hann sé þó vel í
meðallagi.
Lára segir gróður í höfuð-
borginni almennt í góðu
ástandi. „Rósir eru t.d. farnar
að blómstra sem er fyrr en í
meðalári og almennt flnnst
mér garðar mjög þrifa-
legir.“
Strákarnir á myndinni voru að
snyrta limgerði á Háskólalóð-
inni.
8,9% framboð Sverris Hermanns-
sonar og 1% framboð Steingríms J.
Sigfússonar.
Óákveðnir voru 27,3% og 7,5%
vildu ekki svara spumingunni.
Töluvert færri eru óákveðnir nú en
í könnun DV í maí sl. en þá voru
óákveðnir 35,9%.
Sameiginlegt vinstra framboð
fengi 14 menn
Miðað við þessa niðurstöðu fengi
sameiginlegt framboð Alþýðu-
flokks, Alþýðubandalags og
Kvennalista 14 menn kjörna,
Sverrir 6 menn, Steingrímur 1,
Sjálfstæðisflokkur 27, Framsókn-
arflokkur 9, Alþýðubandalag 4 og
Alþýðuflokkur 2.
Þegar fylgi við framboð Sverris
er greint eftir kynjum kemur í
ljós að helmingi fleiri karlar en
konur styðja það en aftur á móti
nýtur sameiginlegt framboð Al-
þýðuflokks, Alþýðubandalags og
Kvennalista áberandi meiri stuðn-
ings meðal kvenna en karla.
Framboð Steingríms J. Sigfús-
sonar virðist njóta stuðnings
þorra þeirra sem kosið hafa Al-
þýðubandalagið í Norðurlands-
kjördæmi eystra.
>
\
i
i
I
i
I
i
>
i
i
>
i