Morgunblaðið - 18.07.1998, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 1998 9
Fólk
FORMAÐUR LFÍ og forseti LUX
Europa. Gísli Jónsson t.v. tekur
við af Pieter Walraven t.h.
*
Islendiiigur
forseti Lux
Europa
Á STJÓRNARFUNDI Evrópsku
ljóstæknisamtakanna LUX
Europa, sem haldinn var í
Reykjavík þann 26. júní s.l. tók
Gísli Jónsson prófessor, formaður
Ljóstæknifélags Islands, við sem
forseti og mun gegna því næstu 4
árin. Gísli tók við af Hollendingn-
um Pieter Walraven, sem verið
hefur forseti s.l. 4 ár. Jafnframt
tók Ólafur G. Guðmundsson augn-
læknir, ritari Ljóstæknifélags Is-
lands, við sem ritari LUX
Europa.
Gísli hefur átt sæti í stjórn
samtakanna síðan 1994 en hann
tók við af fyrrverandi foi-manni
LFI, Agli Skúla Ingibergssyni
verkfræðingi, sem nú á sæti í ráð-
gjafanefnd LUX Europa. Ljós-
tæknifélag Islands er einn af
stofnaðilum LUX Europa.
Ráðstefna í Reykjavík
árið 2001
LUX Europa eru samtök fé-
laga, stofnana og nefnda á sviði
ljóstækni í löndum Evrópu og á
hvert land rétt á aðild í gegnum
eitt félag, stofnun eða nefnd.
Samtökin halda ráðstefnur fjórða
hvert ár í hinum mismunandi að-
ildarlöndum. Síðasta ráðstefna
var haldin í Amsterdam árið 1997
en sú næsta verður haldin í
Reykjavík árið 2001. Yfírstjórn
samtakanna er í höndum ráðs,
sem skipað er einum fulltrúa, frá
hverju aðildarlandi. Við kosningar
hefur hver fulltrúi ráðsins eitt at-
kvæði og hafa því fámennustu
löndin eins og Island sama vægi
og þau fjölmennustu. Ráðið kýs
10 manna stjórn LUX Europa
sem fer með framkvæmdavald
samtakanna og er forseti jafn-
framt formaður hennar. Auk að-
ildar í ráðinu á hvert aðildarland
fulltrúa í svokallaðri ráðgjafa-
nefnd, sem er stjórninni til að-
stoðar og ráðgjafar.
Fylgstu meö nýjustu
fréttum á fréttavef
Morgunblaösins
www.mbl.is
FRÉTTIR
ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN?
Veiði að
glæðast
ÖLFUSÁ hefur verið að gefa
frá sextán og upp í nítján laxa á
dag undanfarið, að sögn Ágúst-
ar Morthens í Veiðisporti á Sel-
fossi. Síðastliðinn miðvikudag
voru menn að veiðum í Ölfusár-
ósi og sáu þá vöðu af laxi ganga
upp ána. Höfðu þeir aldrei séð
þvflíkt áður og voru þó vanir
veiðimenn.
Veiðidagur fjölskyldunnar
var haldinn á Selfossi síðastlið-
inn sunnudag. Veitt var í Ölf-
usá og gekk það mjög vel að
sögn Ágústar. Sextíu stangir
voru í vatninu þegar best lét
og komu sex laxar á land,
fimm sjóbirtingar og sá stærsti
þeirra fimm pund. Daginn eft-
ir fékk Bogi Karlsson úrsmið-
ur sjö laxa, þann stærsta tutt-
ugu pund.
Ágúst segir Baugstaðarós
liafa verið að gefa upp undir
ellefu físka á dag undanfarið.
Hann nefndi að Jón Gunnar
Ottósson hefði verið drjúgur
við veiðar þar og meðal annars
fengið tólf punda sjóbirting og
tíu punda lax.
Reykjadalsá og
Eyvindarlækur
Laxveiði í Reykjadalsá og
Eyvindarlæk í S-Þingeyjarsýslu
er heldur farin að glæðast eftir
þurrka og vatnsleysi það sem
af er sumri, að sögn Ragnars
Þorsteinssonar, formanns
Veiðifélags Reykjadalsár og
Eyvindarlækjar. Hann segir
vatn í ánni hafa heldur vaxið
síðustu daga og þá hafi laxinn
farið að ganga.
GUNNAR Þorláksson fékk
þennan fallega 10 punda lax f
Magnúsarstreng í Sandá í Þis-
tilfirði í hyrjun mánaðarins.
Laxinn tók 18 gramma bláan
Toby-spón.
Þann 16. júlí voru komnir
18 laxar á land, sem er heldur
skárra en undanfarin ár. Aðal-
lega veiddist á svæði 2 og
helst í Halldórshyl og við
Stekkjarhól en lax hafði sést
um alla á. Stöngum á vatna-
svæðinu hefur verið fækkað
og nú er einungis veitt að
jafnaði á tvær stangir á dag.
Nokkur silungsveiði er einnig
í Reykjadalsá og Eyvindarlæk
en hann er ekki skráður. Að
sögn Ragnars má ætla að 5-10
silungar komi á stöng hvern
veiðdag.
Með íellihýsi
eða pallhús
í
r
Frábæru hollensku fellihýsin eru komin aftur. Nytt utlit. Algjor paradis!
Við leik
og störf.
Pallhús frá
Starcraft
eru fyrir flestar
gerðir pallbíla,-
Sterk, með-
færileg og verðið
er mjög gott!
Úrval af viðlegubúnaði s.s. ferðaklósett, gasvörur o.m.fl.
Gísy JÓNSSON ehf
Bíklshöfða 14,112 Reykjavík, sími 587 6644.
Málið gegn eiganda
Gallerís Borgar
Neitar sak-
argiftum
PÉTUR Þór Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri og eigandi Gallerís
Borgar, kvaðst saklaus af öllum
þeim sakargiftum sem fram koma í
ákæru ríkislögreglustjóra þegar
málið, sem höfðað hefur verið gegn
honum, var þingfest í Héraðsdómi
Reykjavíkur í fyrradag.
Valtýr Sigurðsson, héraðsdómari,
hefur fengið málið til meðferðar.
Við þingfestingu málsins var ákær-
an lesin upp og sakborningurinn
spurður um afstöðu til hennar. Að
öðru leyti var meðferð málsins
frestað. Pétur er m.a. ákærður fyrir
sölu falsaðra málverka.
Þakdúkar og
vatnsvarnarlög
Þakdúkar og
vatnsvarnarlög á:
► þök
► þaksvalir
► steyptar
rennur
► ný og gömul hús
- unnið við öll veðurskilyrði
FAGTÚN
Brautarholti 8 • sími 562 1370
Útsalan er hafin
Opið virka daga 9—18,
laugardaga 10—14.
TBSS
neðst við Dunhaga,
sími 562 2230.
Borðstofuborð
ogstólar
ntíH
-Utofnnö munír
Ljósakrónur
íkonar
FuII búð fágætra muna
Anlík ininir, Klapparstíg 40, síni 552 7977.
Leitin að réttu eigninni
hefst hjá okkur
www.mbl.is/fasteignir
Lokað í dag og mánudag
Útsalan
hefst þriðjudag kl. 9.00.
tískuverslun
Rauðarárstíg 1, sími 561 5077