Morgunblaðið - 18.07.1998, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 18.07.1998, Blaðsíða 36
36 LAUGARDAGUR 18 . JÚLÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ ÁSLAUG STEINSDÓTTIR + Áslaug Aðal- heiður Steins- dóttir, húsfreyja á Úlfsstöðum í Borg- arfjarðarsýslu, var fædd á Tannstöðum í Miðfirði í V-Húna- vatnssýslu 5. sept- ember 1907. Hún lést á heimili sínu 11. júlí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Steinn Ás- mundsson, bóndi á Spena (Litla- Hvammi) í Torfu- staðahreppi, og kona hans Valgerður Jónasdótt- ir. Systkini Aslaugar voru: 1) Friðjón, f. 1904, d. 1941, kona: Guðrún Hjörleifsd. 2) Vilhelm, f. 1909, d. 1995. K. 1. Iðunn Kri- stjánsd. K. 2. Hólmfríður Þor- steinsd. 3) Áslaug, sem hér er kvödd. 4) Kristín, f. 1910, d. 1997. M. Kristian Oterhals. 5) Eyjólfur K., f. 1911, d. 1952. K. Laufey Árnad. 6) Ágúst G., f. 1912. K. Helga Ágústsd. 7) Her- dís, f. 1914. M. Baldur Jónsson. 8) Sigrún S., f. 1916, d. 1988. M. 1. Haukur Eyjólfsson. M. 2. Hörður Runólfsson. 9) Jónas, f. 1918, d. 1967. K. Erna Miiller. 10) Gunnhildur B., f. 1919. 11) Halldór G., f. 1920. 12) Fjóla, f. 1923. M. Vladimir Mileris. 13) Skúli A., f. 1924, d. 1980. K. Þegar ég kom í fyrsta sinn að Úlfsstöðum í Hálsasveit, í janúar 1951, var mér svo vel tekið af þeim hjónum þar, að ég dvaldist þar viku- langt. Enda fannst mér geðþekk að- koman: Maður sat við skrifborð og var að endurrita eitthvað um mál- efni sem hann taldi mikilsverð. Voru það reyndar þau efni sem höfðu beint mér á þennan stað. Húsfreyja var í stofu eitthvað að iðja og tvær unglingsstúlkur hjá henni. Gömul kona var á loftinu og vel fyrir henni séð. En það sem ein- kenndi þessi híbýli öðru fremur var það frábæra hreinlæti sem stafaði úr hverju skoti. Það sagði Áslaug mér síðar, að ég hefði þama verið skemmtilegur og glaðlyndur ungur maður, og þótti mér það ekki lítið hrós. Síðar varð þessi sama kona tengdamóðir mín og margt er nú að þakka að leiðarlokum hennar hér á jörð, þó að flest verði ósagt. Oft átti ég eftir að undrast og dást að því sem einkenndi dagfar Gyða Brynjólfsd. Dætur Áslaugar eru: Steingerður, f. 1928, m. Þorsteinn Guðjónsson, Reykjavík. Guðrún Elsa, f. 1933, m. Sveinn Þ. Víkingur, Úlfsstöðum. Ragn- hildur, f. 1936, bú- sett á tílfsstöðum. Ásdís, f. 1938, d. 1994, m. Þorsteinn Þorsteinsson, Skálpastöðum. Bamabörnin eru 11, barnabarnabörn eru orðin 18. Maður Áslaugar var Þor- steinn Jónsson bóndi, skáld og heimspekingur, f. 1896, d. 1991. Þau Þorsteinn byrjuðu reglu- legan búskap í Geirshlíðarkoti (nú: Giljahlíð) vorið 1935; tóku við hálfum tílfsstöðum 1936 og síðar öllum. Þau byggðu þar nýtt íbúðarhús árið 1938, en það brann á nýársdag 1952. Þau endurreistu tílfsstaði, íbúðar- hús, Qós og fjárhús, sumarið eftir bmnann, 1952. Þau höfðu þar kúabú og fjárbú til ársins 1984. Áslaug hélt uppi garð- rækt, blómarækt og smábúskap allt til dánardægurs. títför Áslaugar verður gerð frá Reykholtskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Áslaugar, enda kom það því betur í ljós sem ástæður hennar bötnuðu. Hún blessaði sífellt sólina og sól- skinið og hina góðu tónlist, sem var mjög um hönd höfð á bænum, og þegar hún eltist fór hún að lesa bækur meir en áður höfðu gefíst stundir til; hún las meðal annars Nýalana og komst þar vel að efninu, því sem mestu varðar. Þegar Þor- steinn fór í ferðir sínar í þágu þess málefnis var aldrei neinn bilbugur á stuðningi hennar, þó að hún yrði stundum að auka sér erfiði að mun. Það var ekki auðvelt að koma sem fátæk vinnustúlka í Borgar- fjörð á fýrstu kreppuárunum, en tvennt var það sem bjargaði Ás- laugu. Það var vinnugetan, jafn- framt samviskusemi og einurð í skapi. Þau kynntust og tóku saman Þorsteinn Jónsson og Áslaug og sagði hún mér svo síðar að ekki hefði verið spáð vel fyrir því sam- bandi! Ekki var auðvelt að fá jarð- næði á þeim árum. En vorið 1935 + Móðir okkar, tengdamóðir og amma, FJÓLA LÚTHERSDÓTTIR frá Bláfeldi, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánu- daginn 20. júlí kl. 13.30. Jóhannes Lúther Gíslason, Erla Hafdís Steingrímsdóttir, Sæmundur K.B. Gíslason, Erla Sigvaldadóttir og barnabörn. Ástkær móðir okkar og amma, MARGRÉT GÍSLADÓTTIR, Hátúni 4, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 20. júlí kl 15.00. Gísli Jón Helgason, Sigurður Ellert Sigurðsson, Einar Bjarg Sigurðsson. MINNINGAR gátu þau byrjað búskap í Geirshlíð- arkoti, og þá fór allt að ganga betur, þrátt íyrir mæðiveikina, sem skildi eftir 14 ær þar sem verið höfðu 80. Og árið eftir fluttust þau að Úlfs- stöðum og bjuggu þar saman til æviloka hans - 56 ár. Ekki voru húsakynni mjög vistleg í gamla torfbænum á Úlfsstöðum, en árið 1938 byggðu þau þar stein- hús, gott eftir því sem þá gerðist, og bjuggu þau þar næstu 14 árin. En það hús brann á nýársdag 1952 með öllum eignarhlut sem inni var, en fólkið bjargaðist. Ekki var nein uppgjöf í þeim hjónum og var fljót- lega tekið að efna í annan bæ og var nú byggt niðri við veginn. Tókst það með ágætum, því að fyrir haustið var komið upp fjós og hlaða og þriggja hæða íbúðarhús sem síðan hefur prýtt þann reit. þar hafa Ás- laug og dætur hennar ræktað garða nokkra, blómreiti og trjáreiti, sem gefa staðnum þokka og prýði. Garð- rækt og heilsurækt var hennar líf, og varð hún með hinum fyrstu til að kaupa rit eins og Heilbrigt líf og Heilsuvemd, þegar þau fóru að koma út. Enda hefur heilsufar verið gott hjá þeim, sem nutu matargerð- ar hennar. Það sem mér fannst einkenna Ás- laugu öðm fremur var í fyrsta lagi hver mannvinur hún var, og þó ekki síður dýravinur - enda sá ég oft merki þess hve samhuga þau Þor- steinn vom um það að láta dýmnum líða vel. En alveg sérstaklega var hún bamavinur, enda hændust þau að henni. Það vora bæði hennar eig- in böm og bamaböm, og síðast bamabamabörn, sem standa mér nú fyrir hugskotssjónum eins og hópur umhverfis hana. En einnig era þar sumarböm eins og þá tíðk- aðist í sveitum - sem mörg urðu á langri ævi hennar - og allt framundir þetta hefur fólk, sem einu sinni var „hennar böm“, verið að koma að þakka íyrir sig, á einn og annan hátt. Það er sjónarsviptir að Áslaugu Steinsdóttur. Hún var, á sinn hljóð- láta hátt, eins og miðdepill þeirrar ættar sem frá henni er komin, og jafnframt ættrækin til systkina sinna og skyldmenna. Minningar frá Úlfsstöðum hafa mörgum orðið kærar og gott er það ævistarf sem slíkt skilur eftir sig. Sístarfandi var Áslaug til hinstu stundar, og er það einkennandi um hana, að hún hneig síðast út af frá verki sínu og var þá látin. Ekki mundi Áslaugu tengdamóð- ur minni líka við mig, ef ég léti þess ógetið sem var hennar höfuðsann- færing, en það er, að lifað er eftir dauðann líkamlegu lífi. Og ég ætla að bæta því við frá sjálfum mér, að ég efa ekki að nú hefur hún enn bet- ur komist að því sem rétt er í því efni. Þorsteinn Guðjónsson. Sólbjartan morgun fýrir viku síð- an gekk gömul kona til verka sinna á bæ í Borgarfirði eins og svo oft áður. En í þetta sinn lauk hún þeim ekki eins og ævinlega, þar vantaði nokkuð á. Þessi kona var Áslaug Steinsdóttir amma mín og mér þótti ósköp vænt um hana. Þegar ég var bam var ég sendur í sveit til ömmu og afa, sumar eftir sumar. Störfin voru eins og við er að búast, kúa- og kindasmölun, girðingarvinna, heyvinna og annað sem starfað er við til sveita. Og eftir á að hyggja, þá finnst mér eins og að þungamiðja lífsins á bænum hafi verið hún amma. Fyrst á fætur á morgnana og alltaf sístarfandi. Víst var skemmtilegra að tala við afa. Hann sagði sögur af Gretti og Þor- geirsbola, fór í krók við stráka og leyfði þeim að skjóta úr kindabyssu. En auðvitað var það amma sem sinnti daglegum þörfum allra heim- ilismanna og ég held að búsorgimar hafi jafnvel fremur hvílt á henni heldur en afa. Skap hennar dró þá oft dám af því hvernig bústörfin gengu og mikið var hún amma mín glöð þegar vel hafði heyjast. Þá fengum við að heyra að við hefðum unnið fýrir mat okkar og vel það. Ef eitthvað einkenndi hana ömmu öðra fremur, þá var það starfssemi. Alveg fram í andlátið var hún sí- starfandi. Hún losaði loftið úr pott- ofnunum á hverjum degi, gaf hænsnum og köttum að éta og sinnti bæði gróðurhúsinu sínu og matjurtagarðinum. I gróðurhúsinu ræktaði hún skrautjurtir og gladdi okkur í sumarbústaðnum með rósa- vöndum þegar við vorum þar. En úr matjurtagarðinum fékk hún þann mat sem henni þótti bestur. Fyrir löngu barst náttúrulækn- ingastefnan til hennar ömmu eftir einhverjum krókaleiðum. Maga- kvillar höfðu hijáð hana, enda var mataræði þess tíma fremur einhæft. Með grænmeti, sem hún ræktaði sjálf og grautum og brauðum úr grófu komi læknaði hún sig sjálf og alla tíð síðan matbjó hún þannig fyrir aðra. Nú er að alast upp í ætt- inni kynslóð barna, sem finnst engin brauð jafnast á við langömmubrauð. Hún amma átti auðvelt með að hæna að sér böm. Með hlýlegu við- móti, leikfongum við hæfi og stöku kandísmola var víst að þau sæktu til hennar meðan á heimsóknum í sveitina stóð. Aðspurður um það eftir slíka heimsókn, hvað langamma væri að gera núna, þá + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, BERNÓDUSAR Ö.G. FINNBOGASONAR, Laugarnestanga 60, síðast til heimilis á Hrafnistu Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunar- deildar Hrafnistu. Kristín M. Helgadóttir, Grétar Bernódusson, Guðrún Eyjólfsdóttir, Kristin Benný Grétarsdóttir, Davíð Héðinsson, Óskar Eyjólfur Grétarsson, Grétar Atli Davíðsson, Gunnar Atli Davíðsson. Hjartans þakkir til þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar móður minnar og tengdamóður, SIGURBJARGAR E. LEVY. Sérstakar þakkir færum við hjúkrunar- og starfsfólki á Dvalarheimilinu Seljahlíð fyrir einstaklega góða umönnun. Edda Levy, Helga María Stefánsdóttir. svaraði einn stubburinn því hiklaust til, að nú væri hún langamma að borða súkkulaði. Þótt að mörg verkin hennar ömmu væra smá, þá gat hún líka beitt sér fýrir viðameiri verkefnum. Og hún vildi skilja vel við. Þess vegna lét hún ryðja burt tæplega hálfrar aldar gamalli branarúst, sem áður var heimili hennar, þótt allir aðrir en gestir væra löngu hættir að taka eftir þessu lands- lagslýti. Og húsið hennar er nýupp- gert nú þegar hún er öll. Hún amma mín hafði nefnilega góð tök á tilver- unni. Á veggnum hjá mér hanga tvær myndir af ömmu. Önnur er svört- hvít, af uppábúinni alvöragefinni og jafnvel áhyggjufullri konu um þrí- tugt. Þessa konu þekkti ég ekki. En á nýlegri litmynd sést lítil og lotin brosandi kona í þvottahúsinu sínu, umkringd barnabörnum sem vora að vaxa henni yfir höfuð. Og mér er Ijóst að þó að hún amma mín hafi ekki lokið sínu síðasta verki, þá skdl- aði hún áleiðis því sem máli skiptir. Góðu veganesti fýrir afkomendur sína. Gautur Þorsteinsson. Móðursystir okkar, Áslaug Steinsdóttir er látin. Við andlát hennar langar okkur systkinin að minnast hennar með örfáum orðum. Við urðum þeirra gæfu aðnjótandi sem börn að fá að dveljast í nokkur sumur á Úlfsstöðum. Þar var gott að vera í sveit. Við eigum aðeins góðar minningar frá þeim tíma. Viðmót heimilisfólks og viðurgemingur allur var eins og best verður á kosið. Frá fýrstu tíð og allt fram á þennan dag hefur verið mikil og góð vinátta með fjölskyldum okkar, skyldleikinn og samkennd batt okkur saman í æsku og hefur það haldist æ síðan. Áslaug var næstelst 13 systkina og þurfti því snemma að taka til hendinni á mannmörgu heimili. Hún var bráðrösk til allra verka, vinnusöm og þrifin og fóru henni öll störf vel úr hendi. Á þeim tíma var menntun munaður fárra útvalinna og hörð lífsbarátta hlutskipti flestra. Hún fór því snemma að vinna fýrir sér og var hún ýmist í vistum eða kaupavinnu, þar til hún kynntist manni sínum, Þorsteini Jónssyni, og hófu þau búskap á föðurleifð hans. Þau eignuðust fjórar dætur. Á fyrstu búskaparáram voru efni ekki mikil, en með ráðdeild og fýrirhyggju urðu þau vel bjargálna eftir því sem alþýðufólk getur orðið með vinnu sinni einni saman. Þau urðu fyrir þungum búsifjum, er hús þeirra brann á nýársdag 1952 og björguðust þau naumlega út. Þau létu þó mótlætið og erfiðleikana ekki draga úr sér kjarkinn heldur hófust handa við byggingu nýs íbúðarhúss og reistu tvílyft steinhús á jörð sinni. Það var mikill gestagangur á Úlfsstöðum og tekið á móti öllum af mikilli rausn og hlýhug og gestunum fannst þeir vera svo innilega velkomnir. Áslaug lifði ekki háværu eða áberandi lffi. Hún ræktaði garðinn sinn og bára matjurtimar og ekki síst rósimar í glerhýsi sunnan við hús natni hennar og umhyggju fagurt vitni. Eitt helsta hugðarefni hennar var velferð fjölskyldunnar. Hún bjó við mikið bamalán og var stolt af afkomendum sínum og uppskar ást þeirra og virðingu. Þorsteinn lést fýrir sjö árum í hárri elli. Eftir lát hans hélt Áslaug heimili með Ragnhildi dóttur sinni. Á Úlfsstöðum ólst einnig upp Áslaug Ragnarsdóttir, dóttir Ragnhildar. Guðrún Elsa og Sveinn, maður hennar, reistu sér íbúðarhús á Úlfsstöðum og gat Áslaug því eytt ævikvöldinu í skjóli dætra sinna. Andlát hennar bar að í dagsins önn eins og hún hefði trúlega sjálf kosið. Við kveðjum góða frænku, sem ætíð lét okkur finna að við stæðum henni nær. Lóa Gerður Baldursdóttir, Jón Birgir Baldursson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.