Morgunblaðið - 18.07.1998, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 18.07.1998, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 1998 15 Eimskip kaupir 200 nýja frystigáma 500 millj- óna króna fjárfesting á árinu EIMSKIP hefur gengið frá samn- ingum um kaup á 200 nýjum fjöru- tíu feta frystigámum. Gámamir eru frá suður-kóreska fyrirtækinu Jindo, framleiddir í Kína en búnir vélum frá Mitsubishi í Japan. Gám- amir verða afhentir félaginu í haust og bætast í flota 1.600 frysti- gáma í rekstri Eimskip. Samkvæmt fréttatilkynningu uppfylla gámarnir ströngustu um- hverfiskröfur, bæði með tilliti til notkunar á kælimiðli og einangmn. Eimskip var meðal fyrstu flutn- ingafyrirtækja í Evrópu til að fjár- festa í frystigámum með umhverf- isvænum kælimiðli en þeir voru fyrst framleiddir árið 1993. Gámafloti Eimskips, bæði frysti- gámar og þurrgámar, er alls 13.000 gámaeiningar en ein gámaeining samsvarar 20 feta gámi. Á þessu ári fjárfestir Eimskip í tæplega eitt þúsund gámum eða 1.900 gámaeiningum fyrir alls um 500 milljónir króna sem e'r mesta aukning í gámaflota félagsins á einu ári. I fréttinni segir ennfremur að auk þeirra 200 frystigáma sem nú hefur verið afráðið að kaupa, bæt- ast í flotann á þessu ári 400 tuttugu feta þurrgámar, 400 fjörutíu feta þurrgámar og 150 fjörutíu feta gaflgámar. ♦ ♦♦ Máttur hf. og Stúdíó Ágústu og Hrafns sameinast STARFSEMI heilsuræktarstöðv- anna Máttar hf. og Stúdíó Ágústu og Hrafns hefur verið sameinuð. Samkvæmt fi-éttatilkynningu mun rekstur stöðvanna verða með óbreyttu sniði fyrst um sinn en í haust er fyrirhugað að sameina stöðvamar undir nýju nafni í nýj- um húsakynnum. Framkvæmda- stjórar fyrirtækisins verða Ágústa Johnson og Hrafn Friðbjömsson. Fleiri vilja aðild að evrópskri kauphöll London. Reuters. RÁÐAGERÐUM Breta og Þjóð- verja um sameiginlega evrópska kauphöll hefur aukizt fylgi. Kaup- höllin í Madrid er sú síðasta sem hefur látið í ljós áhuga og kauphöll- in í Brasel hefur lýst því yfir að hún sé reiðubúin til viðræðna. Kauphallimar í Amsterdam og Mílanó hafa sagt að þær kunni að ganga í bandalagið, sem miðar að því að mynda sameiginlegan vett- vang fyrir viðskipti með um 300 úr- valsverðbréf þegar sameiginlegur gjaldmiðill Evrópu verður tekinn upp 1999. Um leið telur danska kauphöllin líklegt að samhæfa megi síðar fyr- irhugaða samvinnu hennar og kauphallarinnar í Stokkhólmi víð- tækari Evrópumarkaði. Hæstráðandi kauphallarinnar í Madrid, Antonio Zoido, sagði Reuters sjónvarpinu að Spánverjar mundu kanna tengsl við fyrirætl- unina, sem var kunngerð í síðustu viku, en að þeir vildu fyrst fá nán- ari upplýsingar um starfsemi sam- evrópskrar kauphallar í einstökum atriðum. Kauphöllin í Madrid er sú fjórða stærsta í Evrópu og skaut kaup- höllinni í Mflanó nýlega aftur fyrir sig. Olivier Lefebvre, yfirmaður belgísku kauphallarinnar, lét í ljós áhuga á tengslum London/Frank- furt og kvað Belga vilja kynna sér þau með opnum huga. Samstarfshópur Talsmaður kauphallarinnar í London sagði að stofnendurnir mundu nú koma á laggimar sam- starfshópi til að ákveða tengslin í einstökum atriðum á næstu þrem- ur til sex mánuðum. Óvæntur hagnaður hjá Time Warner New York. Reuters. TIME Warner Inc. hefur skýrt frá óvæntum hagnaði á öðram ársfjórð- ungi og hafði sjóðstreymi aldrei verið meira í kaplakerfum, útgáfu- starfsemi og kvikmyndaveram fyr- irtækisins. Vegna góðrar afkomu fyrirtækis- ins hafði verð hlutabréfa þess aldrei verið hærra. Um miðjan dag hafði það hækkað um 4,81 dollar í 96,06 í kauphöllinni í New York. Hæst komust bréfin í 96,44 dollara. Jafnvel hin bágborna Wamer tónlistardeild virðist hafa náð botni og vera á batavegi að dómi sérfræð- inga. Fjölmiðla- og skemmtanarisinn skilaði nettóhagnaði upp á 23 millj- ónir dollara, eða 4 sent á hlutabréf, samanborið við tap upp á 49 milljón- ir dollara, eða 9 sent, á sama tíma í fyrra. Betri en búizt var við Afkoman var betri en búizt hafði verið við í Wall Street. Almennt höfðu sérfræðingar gert ráð fyrir 4 senta tapi á hlutabréf að sögn First Call, sem, fylgist með spám sér- fræðinga. Ég er mjög ánægður með met okkar á öðrum ársfjórðungi og 17% vöxt,“ sagði Gerald Levin forstjóri í yfirlýsingu. „...Allt stefnir í annað metár.“ Sérfræðingar töldu afkomuna at- hyglisverða. ,jUlar deildir virðast á réttri leið, eða betur á vegi staddar en búizt hefur verið við,“ sagði einn sérfræðinga Lehman Brothers. * * i * Stærðir 50—100 mm Lengd rúllu 50 m Tilvalið þar sem ræsa þarf fram land. Vara sem vinnur með þér, auðveld í meðhöndlun. : * i VATNSVIRKINN ehf Ármúla 21, sími 533 2020 zzxirxizxr!, Það er ótrúlegt hve miklu fortjald bætir við fellihýsið þitt eða hjólhýsið og ef þér hefur einhvern tíman þótt bíllinn troðihn af farangri þá gleymist sú tilfinning með farangurskassa á toppnum! Munið úrval okkar af viðlegubúnaði s.s. kælibox, ferðaklósett og gasvöru. Fortjöldin frá Trio sem smellpassa á fellihýsi og hjólhýsi. Verð aðeins frá kr. 19.900,- Betra verð finnur þú ekki! CÍSLJ JÓNSSONehf Bíldshöfða 14,112 Reykjavík, sími 587 6644. BOLURNAR BURT! Nýir áhrifaríkir bóluplástrar; - þurrka upp óhreinindi úr bólum - háofnæmisprófaðir - glærir og lítt áberandi - gefa skjótan árangur VICHY • NORMADERM PEAUX JEUNES A PROBLÉMES FOR YOUNG PROBLEM SKIN \ PATCH EXPRESS NOUVIAU/NEW B»£VPri«K>SÍ rATTNTS PtNOINC SPÉCIAI BOUTONS PASniltS AUUfSIVfS INVtSIBUS. KK.-B ATKK'ATITM IOCAU ÍCSM tfAO TRCATMf NT FOR SPOTS ClfAR AOHlSlVt CATOttS fORracijt AmiCAtiONOMOiirsxiN mxAfítíctcuT ACtNJ AM tAUCItí >6!tN lARairormcwiMft ANTUUCTtRtU ACINT ASSfcCHE LES BOUTONS DES LA 1*" NUIT DRIES SPOTS fROM DAY ONE T£STÍ HYrOAlUKCtNlQUE • HYPOALURCf NIC 24 PATCHES COSMÉTlQUB COSMETIC PATCHES VICHYI LABORATOIRES HEILSULIND HÚÐARINNAR Fæst eingöngu í apótekum töppurUuvúútívUt OAKLA’ 8 manna tj; Bluse stóíl Ur áli, léttur og sterkur. Hágæðastóll. aður 5.900 SERVERSLUN FEROAFÓLKSINS CÆ9I • VRVAL • corr VERÐ @1QLAQER®I.N Eyjaslóö 7 Reykjavík sími 511 2200 nnuö DAL 4 manna tjald 4 dýnur 5 sm þy kkar vandadar með böniuliarakiæði 62.000 aður 80.200 S sm þykkar vandaóar með bómuilaráklæði aður 53.000 Leitin að réttu eigninni hefst hjá okkur Veltvangur fólks í fasteignaleit ................. V& sa .mbl.is/fasteignir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.