Morgunblaðið - 18.07.1998, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 18.07.1998, Blaðsíða 30
- . 30 LAUGARDAGUR 18 . JÚLÍ 1998 SKOÐUN MORGUNBLAÐIÐ Pissað upp í vindinn / Halda Islendingar e.t.v. að bannað sé að eiga afgang? Hagfræðikenningin úr hinni helgu bók er enn í fullu gildi: að nýta beri góðu árin til þess að safna í sarpinn til þeirra mögru. Stundum var haft á orði þar sem ég var í sveit drengur að verkfræð- ingar pissuðu upp í vindinn; ekki vegna haturs á þeirri tilteknu stétt manna, heldur var ástæðan sú, ef ég skildi rétt, að bændumir töldu fólk sem alla sína visku hafði af bóknámi ef til vill ekki svo hyggið, þegar öllu var á botninn hvolft (og einhverra hluta vegna urðu verkfræðing- arnir fyrir valinu). Það pissaði því upp í vindinn - en allir ættu að gera sér grein fyrir því hvaða afleiðingar það hefur. Halda mætti VIÐHORF Eftir Skapta Hallgrímsson að íslenska þjóðin væri verkfræði- menntuð í fjár- málum. Við- skiptahalli þjóðarinnar stefnir í 24 milljarða á þessu ári, skv. fréttum, þrátt fyrir mikla efna- hagslega velgengni. Eða - og það er líklega mergurinn máls- ins - vegna efnahagslegrar vel- gengni. Svo fer sem sagt líklega að Islendingar kaupi vörur frá útlöndum fyrir 24 milljörðum króna meira en þeir selja úr landi. Það eru tveir milljarðar á mánuði að meðaltali. Við virð- umst nefnilega vilja eyða öllu okkar fé um leið og þess hefur verið aflað. Þetta er raunar ekki alveg sannleikanum samkvæmt; stundum jafnvel áður en því hef- ur verið aflað. Eg man ekki bet- ur en eitt árið, að minnsta kosti, um leið og auknum þorskafla var spáð, hafi flestar sólarlanda- ferðir selst upp, sölumenn nýrra bíla setið með sveitta skalla við að taka niður pantanir og þar fram eftir götunum. Líklega er ekki hægt að fetta fingur út í það þó fólk eyði pen- ingum sem fyrir hendi eru. Skynsamlegra hlýtur þó að vera að halda einhverju til haga - „eyða í spamað," eins og segir í auglýsingunni - þar til harðnar á dalnum, sem alltaf virðist ger- ast annað veifið, í stað þess að auka ætíð neysluna þegar færi gefst. Það hljómar eins og gömul lumma þegar stjómmálamenn tala um að lækka beri erlendar skuldir en þetta er ekki í gríni sagt, og mun nota bene hafa tekist í örlitlum mæli síðustu misseri. Það dugar hins vegar skammt þó þeir sem kosnir em til að stjóma landinu tali á þess- um nótum ef fólkið hagar sér alltaf eins. Islenska þjóðin er með eindæmum dugleg að styðja við bakið á þeim sem eiga um sárt að binda, það hefur margoft sýnt sig í landssöfnun- um af hinu og þessu taginu - það má hún eiga - en ekki nær nokkurri átt að fólk haldi stans- laust áfram að safna handa kom- andi kynslóðum. Altso, skuldum. Fjármálaráðherrann getur auð- vitað ekki bannað fólki að bmðla; það verður að átta sig sjálft á því að það hagar sér ekki skynsamlega. Góð vísa er hins vegar aldrei of oft kveðin og landsfeðumir gera rétt með því að bjóða áfram upp á lummuna gömlu. En þá verða þeir sjálfir og allir á þeirra vegum vitaskuld að vera til fyrirmyndar. Miðað við fréttir og umræður síðustu vikna virðist sem einhvers stað- ar í kerfinu megi draga saman seglin, spara krónu eða tvær. Það er stundum erfitt að vera fátækur, en getur verið fólki hollt. Þjóð sem færðist jafn hratt inn í nútímann og okkar virðist ekki enn kunna að eiga peninga. Henni liggur svo á að eyða þeim; eignast allt sem er í boði. Ekki ætla ég að halda því fram að gott sé að vera fátækur, en ég þekki fólk sem hefur lært af því. Lært að umgangast pen- inga. Ekki veit ég hvort Islending- ar em einir um að bmðla svo í jólainnkaupum að raðgreiðslum er varla lokið fyrr en nánast er komið að næstu jólum? Eða halda í sumarfrí í útlenda sól og þeim raðgreiðslum lýkur ekki fyrr en að nokkmm ámm liðn- um? Einir eða ekki einir, skiptir ekki máli, en gáfulegt er það ekki. Og kaupæði íslendinga er þekkt víða um lönd; kaupmenn brosa hvarvetna sínu breiðasta þegar landinn mætir. Það kostar nefnilega ekkert að versla með krítarkorti. Ekki fyrr en seinna. Eitt er að vera nirfíll, annað að vera skynsamur. Ætli fólki liði nokkuð verr þó það sparaði eitthvað örlítið við sig jólagjaf- imar í svo sem eitt, tvö ár eða jafnvel lengur? Þetta minnir á manninn sem færði tengdamóð- ur sinni tugi kílóa af svampi í jólagjöf. Hvers vegna? Nú, vegna þess að hann fékk svamp- inn á svo góðum kjömm! Nema hvað. Halda Islendingar e.t.v. að bannað sé að eiga afgang? Hag- fræðikenningin úr hinni helgu bók er enn í fullu gildi: að nýta beri góðu árin til þess að safna í sarpinn til þeirra mögm. Þetta er hins vegar nokkuð sem allt of fáir íslendingar virðast muna eftir. Sá sem hér ýtir á takka tölvuborðsins hefur aldrei lagt stund á hagfræði, en það nám á ekki að vera fólki nauðsynlegt til að lifa af. Hafa ber í huga einfalt atriði til að lifa af: að eyða ekki fleiri krónum en aflað er. Eg veit að það getur verið, og er, erfitt á Islandi þar sem verð á ýmsum hlutum er því miður enn fáránlega hátt og laun margra allt of lág. Og það er heldur varla láglaunafólkið, a.m.k. ekki nema í litlum mæli og af veikum mætti, sem vinnur nú að því hörðum höndum að steypa þjóð- inni í skuld upp á tvo milljarða við útlönd á mánuði hverjum! Ef ekki er hægt að spara, greiða skuldir sínar og safna jafnvel í sarpinn í góðæri, hvenær þá? Er gáfulegt að halda áfram að safna skuldum og færa börnum okkur í vöggu- gjöf? Vitur maður pissar ekki upp í vindinn, en enn síður er stór- mannlegt að víkja sér snöggt undan og láta bununa lenda á barni sínu. ISLANDSGLIMAN1998 (BELTISGLÍMAN) , IÞROTTAHUS Kennaraháskóla Islands hýsti þessa keppni um Grettisbeltið, en sú fyrsta var háð á Akureyri 1906. Glímulög eða reglur höfðu verið samdar um Grettisbeltið, sem Glímufélagið Grettir á Akureyri hafði látið gera og birta. Þær voru ekkki prentaðar fyrr en 1907. Þegar við framkvæmd fyrstu Is- landsglímunnar komu fram óánægjuraddir t.d. sú ákafasta að viðureign var látin hefjast úr kyrrstöðu það er að segja strax hafin glíma en ekld stigin glímustígandi áð- ur en merki var gefið til sóknar bragða. Þá var ekki síður deilt meðan glímd var þriðja Islandsglíman svo að fáir luku keppninni og ennþá hærra var rif- ist í blöðum að mótinu loknu. Þessi átök breyttu ýmsu í „reglugjörð" um Islandsbeltið. Meðal annars var þessu ákvæði bætt inní: „Þegar keppendur taka saman skulu þeir hreyfa sig léttilega, en bregða mega þeir ekki, íyr en dómnefnd gefur merki.“ Samkvæmt þessu ákvæði glímt, t.d. á Akureyri, í Reykjavík og um allt land til 1916 að því best er vitað, enda um gamla glímuvenju að ræða. Eigi er vitað af hverju stjórn ÍSÍ, 1913 og 1916 ákvað upphaf glímu þannig: „Ekki skulu keppi- nautar beitast brögðum fyr en dómnefnd gefur þeim merki til at- göngu.“ Skilja má það á þann veg að ekki væri bannað að stíga en hér var raunin sú, að viðfangsmenn stóðu í kyrrstöðu og biðu merkis dómnefndar. Akvörðun þessi mun að líkindum eiga rætur í glímu- fræðum Jóhannesar Jósefssonaar 1908 og að viðbrögð í keppni nú- tíma íþrótta voru úr kyrrstöðu. Undravert hve gömul glímuvenja tekur snarlegri breytinu. Af þessu kyrrstöðuákvæði er tekinn allur vafi með ákvæðum í glímulögum ÍSÍ 1928. Arið 1951 tókst loks að ná fram miklivægum breytingum á glímu- lögum. Meðal þeirra, að kveðið var á um glímustígandi við upphaf virðureigna og milli þess að brögð voru sótt. Náðist þetta fyrir blaða- skrif og umræður, þar sem álit Suður-þingeyinga til að mynda Péturs Sigfússona frá Halldórs- stöðum vó þungt. I 2. útg. kennslubókar í glímu 1968 var glímustígandin skýrð með teikningum, ljósmyndum og lýsing- um. Höfundarnir 5 höfðu æft, sýnt, keppt og kennt glímu í 5 áratugi allt frá 1908 einn þeirra. Þeir eyddu ærnum tíma í rannsókn á stígandinni áður en þeir birtu nið- urstöður í bókinni. Lýsingar um glímustígandina hefir aldrei verið kveðið á um í glímulögum. Hið mesta að hún skyldi vera hring- hreyfing sólarsinnis. Eg tók 1978 að meta stígandi keppenda í % jafnframt því sem ég taldi brögð sem viðureignir unnust á. Tökum 4 dæmi: Þorsteinn Einarsson andi 25/100; lágbrögð 20 (55,6%); hábrögð 9 (25,0%). Versnandi stíg- andi. Fjölgandi lágbrögð sigur- brögð. Eg tel þessa breytingu að kenna lakari glímustígandi,. Hún hafi leitt af sér aukna sókn lágbragða og af þeim í vaxandi mæh ut- anfótarhælkróka. Breytingin felst í að stigið er aftur eða fram, til hhða, hoppað til hliða en hiinghreyf- ing réttsælis er nær hverfandi nema í upp- hafi. Rétt stígandi veit- ir aðstöðu til sóknar allra bragða en stig aft- ur eða fram auðveldar ásteytingu lágbragða og þá ekki síst utanfót- ar. Einnig eins og glöggt bar við augum að sækjandi, vegna vöntunar á snúningi eða sveiflu, náði viðfangsmanni að lærhnútu og þar hékk hann eins og baggi á klakki. Jón Birgir Valsson varð fyrir þessu 13 sinnum hjá 3 kepp- endum, Olafur Helgi 5 sinnum við einn andstæðing. Glímustígandma þarf að taka tökum með æfingum og skilgreiningum, svo hún verði hringhreyfing sólarsinnis, létt hpur og sæmilega hröð. Ríkjandi hreyf- ing í hverri viðureign. Mót þetta var hátíðlegt, því það heiðruðu með nærveru sinni forseti íslands og frú hans ásamt forseta ÓL/ÍSÍ og framkvæmdastjóra. Formaður GLÍ setti mótið með ræðu. Undir þjóðfánanum gengu 10 glímumenn inn á keppnissvæðið. Stjórnaði þeirri göngu, kynningu og mótinu Jóhanna Kristjánsdótt- ir. Mótið naut dómaranna Rögn- valdar Ólafssonar, Kjartans Lárus- sonar og Péturs Yngvasonar. I upphafi keppni meiddist Helgi Kjartansson (KR), Tóku sig upp meiðsli í hné og gekk hann úr leik. Keppendur urðu 9 og því aðal- keppni 36 viðureignir. Sex félög sendu glímumenn. Frá Umf. Mý- vetningi voru feðgarnir Kristján Eðvard Yngvason og Ólafur Helgi. Var þetta í 19 sinn sem Kristján var með í Íslandsglímu. Hafði hann lýst yfir að þetta yrði sú síð- asta og heiðraði GLI hann og þakkaði. Frá Umf. Hvöt í Gríms- nesi hafði verið búist við að kæmi Helgi Kjartansson, sem hafði ver- ið áberandi og sigursæll í glímum vetrarins, en inflúensa hélt honum rúmföstum. Viðureignir urðu 36. 20 unnust með lágbragði (55.6%), 9 unnust með hábragði (25.0%), 7 urðu jafnglími (19.4 %). I Íslandsglímunni 1997 urðu jafnglími 11 (23.9%) en fleiri urðu þau í Skjaldarglímu Ánnanns 1998 24.0% og sá sem varð annar átti jafnt úr 4 af 7 viðureignum. Líkt gerðist nú, að sá sem varð þriðji gerði jafnt í 5 viðureignum af 8. í 50 ár 1943-1993 í 19 mótum voru hliðstæðar niðurstöður: 362 viðureignir unnust á hábrögðum (58.0%) 221 viðureign vannst á lágbrögðum (35.4%) 41 viðureign jafngllmi (6.6 %) 624 viðureignir 100.0% Sjónvarpsglíma 1978 Skjaldarglíma Ármanns, 1984 Skjaldarglíma Ármanns, 1989 Íslandsglíma, 1993 stígandi metin 85/100; stígandi metin 75/100; stígandi metin 50/100; stígandi metin 75/100; Iágbrögð 17; hábrögð 14. lágbrögð 13; hábrögð 17. lágbrögð 10; hábrögð 4. lágbrögð 6; hábrögð 20. Ég mat stígandi Íslandsglímu 1997 aðeins 33/100. Þó að 10 viður- eignir af 46 hefðu unnist á frábær- um brögðum, þá unnust flestar á lágbrögðum og voru flest utanfótar (sjá C-blað Mbl. 3. júlí ‘97). Islandsglíman 1998: mat á stíg- Hér kemur enn tölulega fram við samanburð að lágbrögð eru að verða ráðandi við að koma við- fangsmanni af fótunum og það áhrif frá stígandi sem glatað hefur niður hringhreyfingunni. Níu bragðtegundir hinna 20 lág- bragða færðu sigur en fjórar teg- undir hinna 9 hábragða eða 13 hinna 23 algengustu tegunda eða 56.5%. Hliðstæðar tölur frá 19 mótum 1943-1963 eru 110 og 43,5, svo fábrögðóttir voru glímumenn- irnir ekki. Skemmtilegt var það og þeim til sóma. Þrír keppenda beittu sjö bragðfléttum. Sex glímumannanna lögðu viðfangs- menn sína á ellefu frábærlega teknum brögðum. Gult spjald var veitt einum glímumannanna tvisvar. Það er framfór þegar minnst er, að í Íslandsglímu ‘97 hlutu 6 keppendur af níu 10 gul spjöld. Samkvæmt samanburði hliðstæðra talna þessara tveggja móta mætti ætla að mikill munur hefði verið á framferði glímumann- anna. Samanburður er haldbetri þegar þess er gætt, að yfirdómari, annar meðdómara, voru þeir sömu við bæði glímumótin og sjö glímu- mannanna. Dómnefndin vann vel sín störf, Fyrsta keppnin um Grettisbeltið var háð á Akureyri árið 1906. Þorsteinn Einarsson fjallar um Islands- glímuna 1998. en hún hefði mátt „oft“ taka á að keppendur stigu eigi sólarsinnis í hring milli sókna bragða. Kveðjur og framkoma glímumanna voru betri nú en í ísl.gl. 1997. Ingibergur Sigurðsson (Umf.V. Rvík) vann Grettisbeltið í 3. sinni við að sigra sjö viðfangsmenn sína og gera jafnt við einn (7 1/2) stig. Stígandi í viðureignum þeirra Ingibergs, Ólafs Helga og Sig- mundar var sómasamleg. Að vísu var snúningur í stígandi við Ólaf Sigurðsson en stór stig. Við Arn- geir og Kristján vék hann til vinstri. Þeir Kristján streittust nokkuð við, því að báðir vildi leita út á vinstri hlið. Reisn og fram- koma til fyrirmyndar. Þessi brögð urðu sigurbrögð hans: utanf. hælkr. hægri á vinstri (nálgaðist að teljast leggjar- bragð); sniðglíma fyrir báða (2); ristarbragð (krækja) úr sniðgl.; hælkrókur fyrir báða (gat eins verið utanfótar hælkr.); leggjar- bragð; lausamjöðm. Jafnglími varð við Jón Birgi. Leituðu báðir til vinstri og öðrum fæti langt aft- ur í stigi. I viðtali við lok mótsins lét Ingibergur í ljós þá ætlun að hvíla sig á glímunni næsta vetur og æfa júdó, sem hann hefur verið virkur iðkandi í að undanförnu. Náði í sínum flokki í þriðja sæti í Norðurlandamóti í júdó í Finn- landi á nýliðnu vori. Glíman má ekki við því að hann leggi hana al- veg til hliðar, þó ekki væri nema um sinn. Ólafur Sigurðsson (Umf. Laug- dæla, HSK) lagði sex keppinauta sína á: hælkrók hægri á vinstri og einnig á hægri; hælkrók fyrir báða (3); - og hárri lausamjöðm; - gerði jafnt við Jón Birgi eftir að hafa sloppið úr hárri lausamjöðm. Hlaut því 6 1/2 stig í öðru verð- launasæti. Reisn Ólafs er góð og sópar að framgöngu hans. Stígandi hans er of tröllsleg stig; treg bæði við Sigmund og Jón Birgi en í fangi Kristjáns fór hann víða um völlinn án stígandi. í þriðja verðlaunasaeti varð Jón Birgir Valsson (K.R. ÍBR). Hann hlaut 3 stig við að bylta þremur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.