Morgunblaðið - 18.07.1998, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 18.07.1998, Blaðsíða 44
44 LAUGARDAGUR 18 . JÚLÍ1998 MORGUNBLAÐIÐ , * Sýningar hefjast kl. 20.00. Ósóttar pantanir I kvöld, nokkur sæti laus • föstudaginn 24. júlí • laugardaginn 25. júll. Sýningar hefjast kl. 20. Miðasala sími 551 1475. Opin alla daga kl. 15-19. Símapantanir frá kl. 10 virka daga og frá kl. 13 um helgar. Tilkynning frá fógetanum í Nottingham 25.000 gullpeningar í boði fyrir þann sem handsamar útlagann Hróa hött Hrói höttur cr í sirkustjaldinu í Húsdýragarðinum Sýnt miðv. - föstud. kl. 14:30 Lau. - sun. kl. 14:00 og Miðapantanir • Nótt&Dagur • 562 2570 Miðayerð: 790,- (640,- fyrir hópa) Innifalið í verði er aðcöngumioi á Hróa hött. aðgöngumiði í Fjölskyldu- og Húsdýragarðinn og frítt í öll tæki f garðinum Beethoven á Rás 1 ÞJÓNN í s ú p u n n i lau. 18,7 UPPSELT sun. 19/7 UPPSELT fim. 23/7 UPPSELT fös. 24/7 UPPSELT lau. 25/7 UPPSELT sun. 26/7 UPPSELT fim. 6/8 örfá sæti laus fös. 7/8 örfá sæti laus Sýningamar hefjast kl. 20.00 Miðasala opin kl. 12-18 Ósóttar pantanir seldar daglega Miðasölusími: 5 30 30 30 Leikfélagið Regina „Northern Lights“ eftir Frederick Ham'son í Möguleikhúsinu v/Hlemm Frumsýn. lau. 18.7 kl. 20.30 2. sýn. sun. 19.7. kl. 20.30. 3. sýn. fim. 23.7. kl. 20.30. 4. sýn. fös. 24.7. kl. 20.30. 5. sýn. lau. 25.7. kl. 20.30. 6. sýn. sun. 26.7. kl. 20.30. Flutt á ensku/Performed in english Miðasala í síma 562 5060 flíyjsajh-iia Gamanleikrit í leikstjórn Sigurðar Sigurjónssonar lau. 18/7 kl. 23 fim. 23/7 kl. 21 Miöaverö kr. 1100 fyrir karla kr. 1300 fyrir konur Vðrðufélagar Ll fá 30% afslétt Sýnt I Islensku óperunni Miðasölusími 551 1475 Ingólfur Guðbrandsson fjallar um lífshlaup og tónsmíðar Beethovens næstu laugardaga kl. 16.08. FOLK I FRETTU EKKI er farið dult með það að Strandvarðaþættirnir eru fyrst og fremst kroppasýningar. PAMELA And- erson og David Charvet voru fyrst ráðin í Strandverði. DiCaprio fengi ekki hlutverk í Strandvörðum RIFLEGA 10 þúsund manns hafa farið í Ieikprufu íyrir þætt- ina Strandverði á lítilli skrífstofu í Marina del Rey í Kaliforníu, að sögn Susie Glicksman og Fern Oren- stein sem sjá um prufurnar. Allir vonast til þess að verða næstu David Char- vet eða Pamela Anderson, fyrstu leikararnir sem ráðnir voru í þættina. Tvíeykið var tekið tali af bandaríska blaðinu People og fyrsta spurningin var hvort væri mikilvægara, leikhæfdeikar eða líkamlegt atgervi. „Ef einhver getur komið tveim setningum saman og lítur vel út kem ég honum eins og skot í leiklistartíma. Það hefur nokkrum sinnum komið fyrir,“ svarar Glicksman. Vísið þið einhvern tíma fólki á dyr um leið og það gengur inn? „Nei, allir fá að lesa texta,“ svarar Glicksman. Hvað ef fólk hefur stóran rass? P „Við leyfum því að minnsta kosti að lesa pinulitið. Við eruni ekki vondar," svarar Giicksman. Þurfa leikkonur að mæta í leikprufur í sundbolum? „Nei, en þær verða að klæða sig þannig að vöxturinn sjáist," svarar Glicksman. Hver er stefna þáttarins hvað varð- ar brjósta- og varastækkun? „Er nokkuð athugavert við það ef það bætir útlit leikaranna og engin ör eru sjáanleg. Þetta er nú einu sinni Los Angeles," svarar Glicksman. Hafa einhverjir frægir leikarar sótt um að komast að í þáttunum en verið hafnað? „Við höfnuðum Aliciu Silver- stone [sem neitar að hafa far- * í leikpmfu], Dean Cain og Neve Campbell," svarar Glicksman. Af hverju réðuð þið ekki Neve? „Mér fannst hún ekki nafa rétta útlitið fyrir Strandverði. Svo er hún of fölleit. Það myndi aldrei ganga upp,“ svarar Orenstein. Mynduð þið ráða Leo DiCaprio? „Hann yrði líklega að fara í ræktina og íoma sér í form. Ef það tækist myndi hann ralda því.“ NEVE Camp- bell þótti of „fölleit“ fyrir Strandvarða- sundbolinn. Stöð 2 ► 13.15 Villimenn við dyrnar (Barbarians at the Gate, ‘93), er víðkunn og vel gerð sjónvarpsmynd. byggð á samruna Nabisco og R.J. Reynolds. James Gamer fer myndar- lega með aðalhlutverkið í kaldhæðnis- legri framvindu auðhringjamyndana og spákaupmennsku á torgi hinna himnesku hlutabréfa. Með Jonathan Pryce. ★★★. Stöð 2 ► 15.00 Disneynmyndin Jám- vilji (Ironwill, ‘93), greinir frá ungum dreng sem misst hefur fóður sinn og grípur til þess ráðs að taka þátt í hunda- sleðakapphlaupi til að geta haldið áfram á menntabrautinni. Þokkaleg fjölskyldu- mynd með Kevin Spacey. ★★Viá Stöð 2 ► 21.10 Jane Eyre, (‘95), er byggð á sígildri ástar- og örlagasögu eftir bresku skáldkonuna Charlotte Bronte, sem hefur oft verið kvikmynduð áður. Með bestum árangri 1944, með Jo- an Fontaine og Orson Welles. Hérfara þau William Hurt og Charlotte Gainsbo- urg með hlutverk elskendanna, sem stéttarskipting og fortíð stía ísundur. Breska tímaritið Empire gefur þessari LAUGARDAGSMYNDIR SJONVARPSSTÖÐVANNA búningamynd, sem að þessu sinni er leikstýrt af Franco Zeffírelli, ★★★, en segir hana einfaldaða útgáfu sem beri sterkan keim af frægustu mynd leik- stjórans, Rómeó og Júlíu. Sjónvarpið ►21.10 Umhverfis jörð- ina (The Great Race, ‘65). Sjá umfjöll- iin í ramma. Stöð 2 ► 23.05 Kafbátaæfingin (Dawn Periscope, ‘96), nýtur góðs af sjónvarps-gamanleikaranum góðukunna, Kelsey Grammer, sem að þessu sinni leikur skipstjóra á afdönk- uðum kafbát. Grammer er kostulegur, annað ekki. ★★. Sjónvarpið ► 23.45 Sjónvarps- spennumyndin Engum að treysta (The Gang in Blue, ‘96), tekur á kyn- þáttamisrétti innan lögreglunnar, gerð af baráttumanninum Melvin Van Pebbles, með syni hans, Mario í aðal- hlutverki.. Ádeilan ristir líklega ekki djúpt, því IMDb gefur nánast fallein- kunn, 5.6. Það er til bóta að gæðaleik- arinn J.T. Walsh kemur við sögu. Sýn ► 24.00 Hana hefur áður borið á góma, spennumyndina A ystu nöf (Cliffhanger, ‘93)93, talsvert mikilfeng- leg, og á köflum taugatrekkjandi mynd, prýdd Stallone og Klettfjöllun- um. ★★★ Stöð 2 ► 0.40 Vatnaveröld (Wa- terworld, ‘95), var dýrasti og frægasti skellur síðari ára, uns stjarna hennar, Kevin Costner tók sig til og bætti um betur, með hörmunginni The Postman á síðasta ári. Við hliðina á henni er Vatnaveröld hreinasta perla. I raun þokkalegasta skemmtun, en langdreg- in framtíðarsýn um Móður Jörð á kafí í vatni, og góða menn og vonda. Með Dennis Hopper. ★★Vá Stöð 2 ► 2.25 Hugarflug (Altered States, ‘80), ★★★, er frá þeim tíma sem Ken Russell gerði skemmtilega geggjaðar myndir. Spennandi og hroll- vekjandi, um tilraunir vísindamanns (William Hurt), á mannshuganum und- ir áhrifum meskalíns, umluktur vatni. Þær enda með ósköpum. Sérstaklega drungaleg, dularfull og eftirminnileg, Russell á vondu „trippi", í orðsins fyllstu metrkingu. Einstök á sinn hátt, með frábærum Hurt. Fræknir menn á flottum bílum Sjónvarpið ►21.10 Um- hverfis jörðina (The Great Race), er svo sannarlega óvæntur gestur, sem maður hefur ekki séð né heyrt síðan á barnsaldri. Þá var hún svar Wamerbræðra við hinni feikivinsælu Foxmynd, Those Magnificent Men in Their Flying Machines. Báð- ar farsakenndar, stjörnumprýddar, fokdýrar, langar og ofhlaðnar gaman- myndir, um keppni og ósvíf- in bellibrögð. I Úmhverfís jörðina er baráttan komin niður á jörðina, kapphlaupið stendur um hver verður fyrstur á tryllitæki sínu (árið er 1908), frá New York til Parísar. Meðal keppenda era Tony Curtis, Natalie Wood, Jack Lemmon, Peter Falk, og gamli góði Keenan Wynn, það yndislega óféti. Myndin átti sí ágætu augna- blik og stjörnurnar skinu glatt undir stjórn Blake Ed- wards. Spurningin er hvern- ig aldurinn hefur leikið hana. ★★★ Sæbjörn Valdimarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.