Morgunblaðið - 18.07.1998, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 18.07.1998, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 1998 17 ERLENT Reuters Morðið hverrar krónu virði Sýrlandsforseti ræðir við forseta Frakklands í París Segir tímamóta- samkomuiag' ekki í sjónmáli París. Reuters. Munir úr Bond- myndum á uppboð LEIKMUNIR úr James Bond- myndum verða seldir á uppboði hjá Christie’s í Lundúnum inn- an skamms. Meðal þess sem boðið verður upp eru forláta bifreiðir og gullbyssan úr myndinni Maðurinn með gylltu byssuna. Christopher Lee, sem lék þar illmennið, sýndi byss- una í gær. Starfsmenn Christie’s eiga von á því að líf verði í tuskunum á uppboðinu og þykjast vita að margir verði um hituna, en þetta er í fyrsta sinn sem leikmunir úr hinum vinsælu Bond-myndum eru boðnir upp. Njósnari 007 í þjón- ustu hennar hátignar á 18 kvik- myndir að baki en fyrst sást til hans á hvíta tjaldinu árið 1962. Umdeilt lyf á markað LYFJAEFTIRLIT Bandaríkj- anna hefur leyft sölu lyfsins thahdomide, sem bannað var ár- ið 1962 vegna hrikalegra auka- verkana sem því geta fylgt. Lyf- ið, sem var m.a. gefið við morg- unógleði, olli fæðingargöllum í bömum. Sum böm fæddust al- varlega vansköpuð, t.d. án út- hma. Leyfið er veitt svo það megi gefa holdsveikisjúklingum. Læknum sem vísa á thalidomide er gert að lúta ströngum reglum Lyfjaeftirlitsins en andstæðing- ar leyfisins telja hættu á að það komist samt sem áður í almenna umferð. Jafnaðarmenn með örugga forystu NIÐURSTÖÐUR nýrra skoð- anakannana í Þýskalandi sýna að Jafnaðarmannaflokkurinn nýtur meira fylgis en Kristileg- ir demókratar undir forystu Helmuts Kohl kanslara. Sam- kvæmt könnununum er fylgi jafnaðarmanna 42% en fylgi kristilegra demókrata 37%. Frjálsir demókratar og Græn- ingjar mælast með 5% fylgisins hvor flokkur, en talið er líklegt að jafnaðarmenn reyni að mynda stjóm með þeim síðar- nefndu að loknum kosningum 27. september næstkomandi. Fjórir hand- teknir í Ballymoney LÖGREGLAN á Norður-ír- landi hefur handtekið fjóra menn grunaða um aðild að eldsprengjuárásinni í Bally- money, segir í fréttaskeyti frá AP. Alls eru þá sjö menn í haldi vegna málsins. Þrír bræður létu lífið í árásinni, níu, tíu og ellefu ára gamlir. Móðir drengj- anna er kaþólsk en bjó með þeim í hverfi mótmælenda í Ballymoney. PATRIZIA Reggiani Gucci, fyrr- verandi eiginkona ítalska tísku- risans Maurizios Gucci sem var myrtur árið 1995, sagði fyrir rétti í Mílanó í gær að hún hefði verið kúguð til að greiða 500 milljónir lfra (um 20 milljónir ís- lenskra króna) fyrir morðið, en að það hefði verið hverrar krónu virði. Patrizia, sem hefur verið upp- nefnd „Svarta ekkjan", sést á myndinni ráðfæra sig við lög- mann sinn í réttarsalnum, um- kringd öryggisvörðum. Hún bar fyrir réttinum að vinkona sín, spákonan Pina Auriemma, hefði skipulagt morðið vitandi það að intra Skolvaskar Intra skolvaskamir eru framleiddir á vegg eða innfelldir í borð. Stærðir: 48 x 38 x 19 cm 34 x 45 x 23 cm hún óskaði Maurizio dauða, og hefði síðan sent sér reikninginn. „I fyrstu áleit ég mig fórnarlamb fjárkúgunar, en svo sá ég björtu hliðamar: þau framkvæmdu það sem ég hafði alltaf óskað mér“, sagði hún stilltum rómi við vitna- leiðslur í málinu. Ekkjan káta hefur viðurkennt að hafa beðið nær alla sem hún þekkti um að útvega sér leigu- morðingja til að ráða eiginmann- inn fyrrverandi af dögum, en hún neitar því að hafa gefið beinar skipanir þar að lútandi. Vinkon- an hefur viðurkennt að hafa skipulagt morðið, en segir Pat- riziu hafa fyrirskipað það. HAFEZ al-Assad, forseti Sýrlands, sagði í gær eftir viðræður við Jacques Chirac Frakklandsforseta í París að Sýrlendingar tækju nýjum tillögum Frakka um friðarviðræður við ísraela með opnum huga en bætti við að ekkert tímamótasam- komulag væri í sjónmáli. Assad var í fyrstu ferð sinni til Vesturlanda í 22 ár og sagði að fund- urinn með Chirac hefði verið mjög gagnlegur. Frakkar væru að reyna til þrautar að blása lífi i friðarum- leitanimar en þær tilraunir hefðu ekki enn borið tilætlaðan árangur. Assad sagði að stjóm Sýrlands myndi taka þátt í friðarumleitunum „svo fremi sem þær em í samræmi við grundvallarafstöðu hennar“ og skírskotaði til kröfu Sýrlendinga um að ísraelar afsöluðu sér Gólan- hæðunum, sem þeir náðu á sitt vald árið 1967. Chirac og Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, hafa hvatt til þess að efnt verði til nýrrar ráðstefnu um frið í Miðausturlöndum. Assad var tregur til að fallast á þá tillögu en gaf til kynna á blaðamannafundi að Sýrlendingar léðu máls á slíkri ráð- stefnu síðar „þegar réttar aðstæð- ur“ hefðu skapast. Assad óttast að ráðstefnan geri stjórn Israels kleift að beina friðarviðræðunum frá þeirri tilhögun að ísraelar láti land- svæði af hendi til að tryggja frið við araba. Frakkar láti meira til sín taka Assad vill að Frakkar og Evrópu- sambandið láti friðarumleitanirnar meira til sín taka til að knýja á ísra- ela um að hefja samningaviðræður að nýju og fallast á að afsala sér landsvæðum. Chirac áréttaði áð ekki væri hægt að semja um frið í Miðausturlönd- um án þátttöku Sýrlendinga. Fréttaskýrendur sögðu að Assad væri óánægður með að Bandaríkja- menn hefðu ekki knúið Israela til að fallast á að láta Gólan-hæðirnar af hendi og hann hefði því ákveðið að hefja nýja sókn með Frökkum og Evrópusambandinu. Hann hyggst einnig fara til Moskvu í haust. Assad lagði áherslu á að aukin þátttaka Evrópuríkjanna í friðar- umleitunum ætti ekki að grafa und- an stöðu Bandaríkjamanna, sem hafa haft milligöngu um samninga- viðræðumar. Sakaðir um mannréttindabrot Franskir fjölmiðlar voru gagn- rýnir á stjóm Sýrlands í umfjöllun sinni um heimsóknina, birtu fréttir um mannréttindabrot, pólitíska fanga og ásakanir um að þýski stríðsglæpamaðurinn Alois Branner hefði fengið hæli í landinu. Bmnner var aðstoðarmaður Adoifs Eich- manns, eins af forystumönnum þýskra nasista. Assad sagði Chirac í gær að Bmnner væri ekki í Sýrlandi en franski forsetinn óskaði eftir því að sýrlensk yfirvöld svömðu beiðni fransks dómara um að málið yrði rannsakað, að sögn talsmanns Chiracs. Mannréttindasamtök segja að a.m.k. 2.000 pólitískir fangar séu í Sýrlandi, þeirra á meðal margir Lí- banir sem sýrlenskar hersveitir og bandamenn þeirra hafa handtekið í Líbanon. Sjö sýrlenskir blaðamenn væm einnig í fangelsi og hefðu ver- ið pyntaðir. Til í svörtu, hvítu, rauðu og brúnu. Mjög áferðarfallegt og auðvelt í uppsetningu. Gott verð 20% afsláttur 10 ára ábyrgð. Öll blikk- og jámsmíói Þakkantar - þaktúður - þakstál - loftræstingar. BLIKKSMIÐ|A GYLFA m. Bíldshöfða HI ♦ 112 Rcykjavík ♦ Símí .'5674222 Fæst í bygoingavöruverslunum um land allt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.