Morgunblaðið - 18.07.1998, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 18.07.1998, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 18 . JÚLÍ 1998 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Japönsku forsætisráðherraefnin kynna stefnu sina Skattalækkun og- upp- stokkun í bankakerfinu Reuters KEIZO Obuchi, utanríkisráðherra Japans, sem gefið hefur kost á sér til formennsku í Frjálslynda lýðræðisflokknum, ræðir við heilbrigðisráð- herrann Junichiro Koizumi, sem búist er við að bjóði sig einnig fram. Tókýó. Reuters. HARÐUR slagur er í vændum um forsætisráðherrastólinn í Japan en í gær skýrðu tveir helstu keppinaut- arnir frá þeim úrræðum, sem þeir vilja grípa til í efnahagsmálunum. Þá er líklegt, að þriðji maðurinn ákveði að sækjast eftir embættinu. Keizo Obuchi, utanríkisráðherra Japans, tilkynnti um framboð sitt og sagðist mundu gera allt sem í sínu valdi stæði til að efla efnahagslífið í Japan og allri Suðaustur-Asíu. Kvaðst hann mundu frysta fyrirhug- aðar umbætur í fjármálum ríkisins, sem ætlað er að draga úr fjárlaga- hallanum; lækka skatta á fyrirtæki og einstaklinga um rúmlega 3.000 milljarða ísl. kr. og leggja fram aukafjárlög upp á rúmlega 5.000 milljarða kr. á þessu ári til að fjörga efnahagslífið. Áherslan á bankana Obuchi hafði hins vegar lítið að segja um umbætur í bankakerfinu en það er á brauðfótum vegna mik- illa, tapaðra útlána og talið helsti þröskuldurinn í vegi efnahagslegrar viðreisnar. Obuchi hefur stuðning stærstu fylkingarinnar innan Frjáls- lynda lýðræðisflokksins. Seiroku Kajiyama, sem er 72 ára að aldri, staðfesti einnig, að hann ætlaði að sækjast eftir leiðtogaemb- ættinu í flokknum og þar með for- sætisráðherraembættinu. Nýtur hann stuðnings margra í fjármálalíf- inu vegna róttækrar steftiu í efna- hagsmálum og í gær kvaðst hann mundu stokka upp í fjármála- og bankakerfinu næði hann kjöri. Vill hann, að allir bankar verði skyldaðir til að leggja fé til hliðar vegna tapaðra útlána og hann skor- aði á bankamenn að greina frá öllum útistandandi lánum, sem talin eru glötuð, til að unnt sé að ákveða hvar hið opinbera eigi að koma tO skjal- anna. Þá sagðist hann mundu auka lánveitingar hins opinbera til bank- anna til að koma í veg fyrir lánsfjár- skort. Einnig vOl hann lækka skatta á fyrirtæki og einstaklinga en út- skýrði það ekki frekar. Talið er, að þriðji maðurinn, Jun- ichiro Koizumi heObrigðisráðherra, muni blanda sér í baráttuna en hann nýtur fyrst og fremst stuðnings „ungu“ mannanna í Frjálslynda lýð- ræðisflokknum. Obuchi reynslulítill í efnahagsmálum Obuchi er af flestum lýst sem fremur litlausum manni og ekki með mikla reynslu af efnahagsmálum en þar gegnir öðru máli um Kajiyama. Hann hefur verið hlynntur róttæk- um umbótum í japönsku efnahags- og fjármálalífi en samt er fullyrt, að hann vOji, að ríkið hafi áfram alla þræði í hendi sér, jafnt í efnahags- sem samfélagsmálum. Koizumi er einna kunnastur fyrir umdeOda tO- lögu um að einkavæða póstþjónust- una í landinu og einnig fyrir að vOja draga verulega úr afskiptum rfldsins af efnahagslífinu. Mið-Austurlönd Fundur háttsettra Jerúsalem. Reuters. YITZHAK Mordechai, varnar- málaráðherra Israels, mun eiga fund með háttsettum palest- ínskum embættismanni, Ma- hmoud Abbas, á morgun, í því augnamiði að koma friðarum- leitunum af stað, að því er ísra- elska varnarmálaráðuneytið greindi frá í gær. Fundurinn verður haldinn í Tel Aviv og sagði fulltrúi ráðu- neytisins í gær að hann kæmi í kjölfar ófoimlegra viðræðna Israela, Palestínumanna og Bandaríkjamanna, en þeir síð- asttöldu hafa haft frumkvæði að sáttaumleitunum í deilu hinna tveggja. Talsmaður varnarmálaráðu- neytisins sagði að Mordechai vænti þess að á fundinum myndi nást sátt um grundvall- aratriði sem friðarviðræður gætu byggst á. „Mordechai tel- ur að allir aðilar þurfi að sýna sveigjanleika,“ sagði talsmað- urinn Holland Tvennt í haldi eftir líkfund HOLLENZKA lögreglan greindi frá því í gær, að hún hefði handtekið tvennt í tengsl- um við fund fjögurra líka úti í skógi utan við borgina Tilburg í suðurhluta landsins. Talsmaður lögreglunnar sagði að lfldn, sem ætti eftir að bera kennsl á, hefðu fundizt eftir að nafnlaus ábending um þau barst lögreglunni. 28 ára kona búsett í TOburg og 37 ára karlmaður frá nágrannabænum Oisterwijk væru nú til yfir- heyrslu vegna málsins. Að svo komnu máli voru ekki gefnar upp nánari upplýsingar um líkin en að þau hefðu öll verið af fullorðnum. Yfirgefinn bíll fannst nálægt þeim, sem að líkindum tOheyrði einum hinna látnu. Dúman hafnar mikilvægiim þáttum efnahagsáætlunar Kíríjenko segir erfítt tímabil framundan . Moskvu. Reuters. DÚMAN, neðri deild rússneska þingsins, lauk í gær aukafundi sín- um um efnahagsáætlun stjómarinn- ar og fór í sumarleyfi eftir að hafa hafnað eða breytt mUtílvægum þátt- um þeirra aðgerða sem stjórnin tel- ur nauðsynlegar tfl að afstýra efna- hagshruni og tiyggja ný lán frá Al- þjóðagjaldeyrissjóðnum (IMF). Sergej Kíríjenko forsætisráðherra varaði við því að erfiðir tímar væru framundan fyrir Rússa þar sem þær aðgerðir, sem dúman samþykkti, dygðu ekki tfl að rétta efnahaginn við. Dúman hafnaði frumvörpum um nokkra nýja skatta og Kíríjenko sagði það valda mikilli efnahagslegri óvissu í Rússlandi. Hann kvaðst skilja að dúman vfldi hlífa Rússum við skattahækkunum og sparnaðar- aðgerðum í ríkisfjármálum en leyndi ekki vonbrigðum sínum. „Það verða engin kraftaverk," sagði hann. „Við stöndum frammi fýrir því að næstu tveir til þrír mánuðir verða mjög erfiðir.“ Kíríjenko sagði að ákvarðanir dúmunnar þýddu að tekjur ríkisins og héraðsstjórna myndu aðeins aukast um þriðjung þess sem stjórn- in hafði stefnt að. „Ég get þess vegna fullyrt að við getum ekki fyllt upp í fjárlagagatið. Við ætlum að reyna að gera það sem við getum með reglugerðum og forsetatilskip- unum.“ Forsætisráðherrann bætti við að stjórnin kynni t.a.m. að gefa út reglugerð um samræmdan virðis- aukaskatt, sem dúman hafði hafnað. Samkvæmt stjórnarskránni hefur stjómin þó takmarkað vald til að breyta sköttum. Kíríjenko sagði að stjórnin myndi óska eftir öðrum aukafundi í dúmunni í byrjun næsta mánaðar. Stjórnin hafði samið við Alþjóða- gjaldeyrissjóðinn um ný lán að and- virði 22,6 milljarða dala en þau voru að hluta skilyrt því að efnahagsáætl- un stjórnarinnar yrði samþykkt á þinginu. Kíríjenko var bjartsýnn á að Rússar fengju lánin þrátt fyrir ákvarðanir dúmunnar. Líklegt er að samþykktir dúmunnar valdi Alþjóðagjaldeyris- sjóðnum vonbrigðum en ekki var ljóst hvort þær fullnægðu skflyrðum sjóðsins. Stjórn hans kemur saman í Washington á mánudag til að taka ákvörðun um fyrsta lánið, að and- virði 5,6 milljarða dala. Anatolí Tsjúbajs, samningamaður Rúss- lands í viðræðunum við IMF, verður á fundinum. Evrópuþingið samþykkir ný ESB-lög N eytendavernd flugfarþega bætt Brussel. Reuters. EVRÓPUÞINGIÐ samþykkti í gær áætlun, sem ætlað er að þvinga evr- ópsk flugfélög til að greiða meira í skaðabætur til flugfarþega, sem ekki fá sæti vegna yfirbókana. Meðlimir þingsins, sem eru kjörn- ir beinni kosningu i öllum aðildar- ríkjum Evrópusambandsins (ESB), samþykktu ályktun sem ekki aðeins studdi, heldur útfærði tillögu sem framkvæmdastjóm ESB hafði lagt fram um málið í ársbyrjun. Flugfélög tíðka að yfirbóka flug til að tryggja hámarkssætanýtingu, því oftast mæta ekki nokkrir farþegar í flug sem þeir eiga bókað sæti í. Áætlunin þarf nú að hljóta sam- þykki ráðherraráðs sambandsins, skipað samgöngumálaráðherrum að- ildarríkjanna, en kemur að því loknu aftur til umfjöllunar í Evrópuþing- inu, áður en hún getur gengið í gildi sem ný ESB-lög. Samkvæmt tillögu framkvæmda- stjómarinnar eiga bætur til farþega sem ekki fá að fara um borð í flugvél sem þeir eiga bókað far með, hvort sem um er að ræða leigu- eða áætl- anaflug, að hækka úr 150 ECU (um 12.000 kr.) í 185 ECU (tæplega 15.000 kr.) fyrir flug að vegalengd allt að 3.500 kílómetrum. Fyrir EVRÓPA^ lengri ferðir eiga bæturnar að hækka úr 300 í 370 ECU (tæplega 30.000 kr.). Þingið samþykkti allnokkrar breytingartOlögur við tOlöguna, þar á meðal að skýrt verði kveðið á um skyldu flugfélaga til að greina frá þeim reglum sem gilda er farþegi fær ekki aðgang að yfirbókuðu flugi, á skýru og auðskiljanlegu máli. Talsmaður brezkra íhaldsmanna á þinginu, Anne Mclntosh, sagði að löngu hefði verið orðið tímabært að bæta neytendavernd flugfarþega. „Flugfélög eiga ekki að komast upp með að virða réttindi neytenda að vettugi í því skyni að ná hámarks- hagnaði og þessar nýju reglur munu hindra misferli," sagði hún. Níu farast í flugslysi í Erítreu NÍU manns fómst í gær þegar flutningaflugvél af gerðinni Iljúshín IL-78 hrapaði nálægt Asmara, höfuðborg Erítreu. Flugvélin var í eigu ríkisflug- félags í Úkraínu en fyrirtæki í Búlgaríu hafði teldð hana á leigu í febrúar. Vélin var á leiðinni frá Svartahafsborginni Burgas í Búlgaríu til Asmara. Havel tilnefn- ir Zeman VACLAV Havel, forseti Tékk- lands, samþykkti í gær afsagn- arbeiðni bráðabirgðastjórnar Josefs Tosovskys og tilnefndi Milos Zeman, leiðtoga tékk- neskra jafnaðannanna, næsta forsætisráðherra. Forsetinn bað stjórn Tosovskys að starfa áfram þar til stjóm jafnaðar- manna tekur við, en búist er við að það verði á miðvikudag- inn kemur. Kúrdísk börn snúa aftur KÚRDÍSKI blaðamaðurinn Mahmut Baksi kveðst hafa ör- uggar heimildir fyrir því að 17 kúrdísku barnanna 35, sem hurfu í Svíþjóð í byrjun júlí, séu á leið aftur til Svíþjóðar. Foreldrar barnanna 17 höfðu lýst eftir þeim og búist er við að hin börnin verði áfram í Kúrdistan þar sem fjölskyldur þeirra í Sviþjóð hafa ekki lýst eftir þeim. Líklegt þykir að börnin hafi farið til Kúrdistans til að taka þátt í skæruhernaði Kúrda gegn Tyrkjum. Hjálparbeiðni vegna flóða ÓTTAST er að allt að 600 manns hafi látið lífið af völdum flóða í Mið-Asíulýðveldinu Ús- bekistan í vikunni sem leið. Stjórnvöld í Úsbekistan hafa óskað eftir aðstoð hjálpar- stofnana vegna flóðanna. Víkinganý- lendur við Miðjarðarhaf? NORSKA dagblaðið Aften- posten hefur eftir Svein Hal- vorsen, lektor í Ósló, að fom arabísk rit renni stoðum undir þá kenningu að víldngar hafi stofnað nýlendu á Kanaríeyj- um. Spænskir og arabískir annálar bendi einnig til þess að víkingar hafi stofnað nýlendur við strönd Portúgals og á nokkrum stöðum við Miðjarð- arhaf. Þeir hafi t.a.m. gert árás á Sevilla á Spáni árið 844 á 108 skipum. Stækkun NATO flýtt? ATLANTSHAFSBANDALA GIÐ útilokar ekki að inngöngu Póllands, Ungverjalands og Tékklands í bandalagið verði flýtt. Gert hefur verið ráð fyrir því að löndin gangi formlega í NATO á leiðtogafundi banda- lagsins í Washington í aprfl.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.