Morgunblaðið - 18.07.1998, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 18.07.1998, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 1998 11 FRÉTTIR Vernd vörumerkis mismunandi á Evrópska efnahagssvæðinu RÉTTARHALD í Evrópudómstólnum í Lúxemborg. Hag neytenda betur borgið utan ESB? Evrópudómstóllinn kvað í vikunni upp umdeildan dóm sem torveldar innfiutning ódýrrar merkjavöru á hinn sameiginlega markað. Dómurinn hefur ekki áhrif hér á landi, að sögn Páls Þórhallssonar, vegna þess að í desember síðastliðnum dæmdi EFTA-dómstóllinn á þveröfugan veg. Athyglisverðar spurningar vakna þá hins vegar um réttareiningu á Evrópska efnahagssvæðinu. NIÐURSTÖÐU Evrópudómstóls- ins í málinu Silhouette Inter- national Schmied GmbH & Co. KG gegn Hartlauer Handesges- ellschaft GmbH, sem kunngjörð var í fyrradag, hefur verið beðið með eftirvæntingu vegna þess hve mikil áhrif hún getur haft á hag neytenda. Pað var Hæstiréttur Austurríkis sem leitaði forúrskurð- ar um skýringu á tilskipun ráðsins 89/104/EB um vörumerki. Fyrir- tækið Silhouette Intemational Schmied hafði krafíst lögbanns við því að Hartlauer Handelsges- ellschaft seldi í Austurríki ódýrar Silhouette-gleraugnaumgjarðir sem keyptar höfðu verið í Búlgar- íu. Það er stefna Silhouette að framleiða hágæðagleraugu í dýrari kantinum og hafði fyrirtækið ekki viljað að Hartlauer-keðjan dreifði þeim því það gæti skaðað þessa ímynd. Hæstiréttur Austum'kis beindi þeimi spurningu til dómstólsins hvort skýra bæri 1. mgr. 7. gr. fyrrgreindrar tilskipunar á þann veg að í vemd vörumerkis fælist rétturinn til að koma í veg fyrir að þriðji aðili flytti vöm undir sama merki inn frá ríki utan sáttmála- svæðisins. Dómstóllinn svarar því til að aðildarríkjunum sé óheimilt að viðhalda í innanlandsrétti regl- unni um svokallaða alþjóðlega tæmingu réttarvemdar. Sú regla, sem er meðal annars talin gilda í norrænum rétti, felur í sér að um leið og vara hefur verið sett á markað, hvar sem er í heiminum, með samþykki eiganda vömmerk- is, geti hún gengið frjálslega kaup- um og sölum milli landa án hans af- skipta. Dómstóllinn einskorðar gildi slíkrar reglu við sáttmála- svæðið. Það gangi ekki að aðildar- ríkin hafi svigrúm til mismunandi reglna í þessu efni. Slíkt gæti getið af sér viðskiptahindranir milli ríkja innan svæðisins. Hærra verð merkjavöru Viðbrögð við þessari niðurstöðu hafa verið mjög harkaleg. Hún er talin geta leitt til hærra verðlags merkjavöm því lögð er blessun yfir markaðsstefnu framleiðenda sem kjósa að viðhalda háu verði inni á ESB-markaðnum en lægra verði á öðram mörkuðum. Dómurinn hefur hins vegar ekki áhrif á svokallaðan samhliða innflutning innan ESB- markaðssvæðisins. Afram verður þvi hægt að flytja vöm óhindrað milli ESB-ríkja án afskipta eig- anda vöramerkis. Sams konar mál Fyrrgreind tilskipun var tekin upp í EES-samninginn á gmnd- velli 2. mgr. 65. gr. hans. Svo merkilega vill til að hliðstætt mál Silhouette-málinu kom fyrir EFTA-dómstólinn síðastliðinn vet- ur. Málavextir vora þeir að fyrir- tækið Mag Instrament Inc. krafð- ist þess fyrá' norskum héraðsdómi í Fredrikstad að Califomia Trad- ing Company yrði bannað að selja í Noregi svokallaðar Maglite-luktir. Luktirnar höfðu verið fluttar inn frá Bandaríkjunum. Fyrirtækið Viking International Products A/S hefur einkaumboðssamning um sölu vörannar í Noregi. I ráðgefandi áliti frá 3. desember 1997 segir EFTA-dómstóllinn að ekki liggi fyrir dómar Evrópudóm- stólsins varðandi úrlausnarefnið, þótt tekið sé fram að tvö mál bíði þar úrlausnar (þ.e. Silhouette-mál- ið og Wrangler Germany GmbH gegn Metro Selbstbedienungs- Grosshandel GmbH). Hins vegar sé reglan um alþjóðlega tæmingu vöramerkjaréttar í þágu frjálsra viðskipta og samkeppni og þar með í þágu neytenda. Miðað við dóma- framkvæmd Evrópudómstólsins fram að gildistöku EES-samnings- ins verði ekki ályktað að aðildar- ríkjunum sé skylt að hverfa frá þessari reglu í þágu hagsmuna eig- anda vöramerlds. Auk þess er undirstrikað að EES-samningurinn feli ekki í sér tollabandalag heldur stofnun frí- verslunarsvæðis. EES-samningur- inn taki ekki til frjáls flæðis vöra sem upprannin sé utan sáttmála- svæðisins. Þess vegna sé það í valdi EFTA-ríkjanna, löggjafarþing- anna eða dómstólanna, að ákveða hvort innleiða eigi eða viðhalda reglunni um alþjóðlega tæmingu réttarvemdar vöramerkja. Tekið er skýrt fram að þessi skýring við- komandi greinar fyrmefndrar tU- skipunar sé í EES-samhengi. Afleiðingin af þessum dómi er því sú að í Noregi, á fslandi og í Li- echtenstein ber ekki að túlka EES- samninginn þannig að aðUdarríkjun- um sé meinað að draga þau mörk vörumerkjavemdar að hún fjari út um leið og vara hefur verið sett á markað með samþykki eiganda vöramerkis hvar sem er í heiminum. Ýmsar spurningar í kjölfar þessara tveggja mis- munandi dóma rísa fjölmargar at- hyglisverðar spurningar. Kunnugir segja að það sé algengt hér á landi að stórverslanir flytji inn merkja- vöra beint frá Bandaríkjunum og Asíu og selji hana á lægra verði en sérverslanir og sérstakir umboðs- menn hér bjóði upp á. Þetta verður sem sagt ekki stöðvað. En er hugs- anlegt að ísland og Noregur vei'ði stökkpaUur fyrir ódýra merkja- vöra inn á ESB-markaðinn? Ekki er gott að svara því. EFTA-dóm- stóllinn undirstrikar að EES- samningurinn tryggi ekki fijálst flæði vöra sem upprunnin er utan EES og réttareining sé því ekki endilega nauðsynleg. Evrópudóm- stóllinn segir hins vegar í sínum dómi að réttarvernd vöramerkisins fjari út um leið og varan er komin inn á Evrópska efnahagssvæðið og gefur þannig til kynna að sömu reglur verði að gilda á öllu sátt- málasvæðinu, þar með talið á ís- landi og í Noregi. Það má búast við því að teknar verði upp samningaviðræður í kjöl- farið milli Evrópusambandsins og EFTA-ríkjanna þriggja til þess að leysa úr þessum vanda sem upp er kominn. Þær samningaviðræður gætu reynst mjög erfiðar því túlk- un Evrópudómstólsins kemur aug- ljóslega niður á neytendum. Norska ríkisstjórnin lagðist einnig eindregið gegn slíkri túlkun vöra- merkjatilskipunarinnar í málflutn- ingi sínum fyrir EFTA-dómstóln- um. Það er ekki síður athyglisvert út frá réttarpólitísku sjónarmiði að Evrópudómstóllinn skuli ekki fylgja EFTA-dómstólnum heldur dæma á þveröfugan hátt. Niður- staða í takt við dóm „litla bróður" hefði girt fyrir fyrrgreind vanda- mál og tryggt réttareiningu en hef- ur væntanlega verið óviðunandi af pólitískum ástæðum. Til að varpa ljósi á hinn pólitíska bakgrann málsins má benda á að ríki eins og Bretland, Þýskaland, Frakkland og Ítalía nýttu öll heimild til að leggja orð í belg í málinu og mæltu með túlkun eiganda vöramerkis í vil. Svíþjóð var eina ríkið sem lagð- ist gegn slíkri skýringu. Evrópu- dómstóllinn sýnir hér hvar valdið liggur. Framtíðin leiðir hins vegar í ljós hvort EFTA-ríkjunum verður stætt á því að standa vörð um neyt- endavæna túlkun vöramerkjarétt- arins. Það á einnig eftir að koma í ljós að hve miklu leyti niðurstaða þessi hafi þýðingu fyrir aðrar greinar hugverkaréttarins eins og einkaleyfarétt. Umboðsmaður barna svarar dómsmálaráðherra Omakleg viðbrögð við áliti um fanga UMBOÐSMAÐUR bama, Þórhild- ur Líndal, telur viðbrögð Þorsteins Pálssonar dómsmálaráðherra gagn- vart álitsgerð hennar um málefni ungra fanga ómakleg. í máli ráð- herrans í Morgunblaðinu í gær kom fram að ólíkra vinnubragða gætti hjá umboðsmanni Alþingis og um- boðsmanni bama. Gætti umboðs- maður Alþingis þess að bera um- kvörtunarefni undir þá sem hlut ættu að máli áður en álit væri látið uppi. „Mér finnst þetta ómakleg við- brögð af hálfu ráðherra vegna þess að ég tel mig starfa fullkomlega í samræmi við ákvæði laga um um- boðsmann barna. Mér ber ekki skylda samkvæmt lögum að leita umsagnar heldur segir beinlínis að mitt hlutverk sé að eiga frumkvæði að opinberri umræðu um málefni barna. Þannig er starf umboðs- manns bama ólíkt starfi umboðs- manns Alþingis sem ber skv. lögum að leita umsgagnar þess stjórnvalds sem kvörtun beinist að áður en hann gefur út álit sitt,“ segir Þór- hildur. Faglega staðið að verki Jafnframt vill Þórhildur taka fram að við undirbúning á fyrrgreindri álitsgerð hafi verið mjög faglega staðið að verki. „Við vinnslu skýrsl- unnar var farið mjög ítarlega í alla þá þætti sem tengjast málinu. Til dæmis heimsótti ég Litla-Hraun og Hegningarhúsið og sá með eigin augum hvemig aðbúnaði ungra fanga er háttað og ræddi við þá. Einnig var farið yfir lög og mann- réttindasáttmála og unnin upp úr þeim mjög ítarleg álitsgerð þar sem öll atriði eru rökstudd. í þessari álitsgerð er ekki bara gagnrýni held- ur era þama einnig tillögur til úr- bóta. Alitsgerðina boðsendi ég ráð- herra 9. júlí svo hann gæti kynnt sér efni hennar og þann 14. júlí sendi ég fjölmiðlum íréttatilkynningu þar sem ég kynnti helstu niðurstöður en mikið hafði verið spurt um þetta mál hjá embættinu," sagði Þórhildur. Þrír bændur í Borgarfírði sameinast um vélakaup Stórbagga- binding á Hvítár- völlum ÞRÍR bændur í Borgarfirði hafa sameinast um kaup á vélasam- stæðum til að binda stórbagga, bæði fyrir sjálfa sig og aðra sem áhuga hafa á slíkri bindingu, í stað rúllubagganna. Bændumir Ólafur Davíðsson Hvítárvöllum, Jón Blöndal Lang- holti og Þórhallur Teitsson Grímarsstöðum hafa keypt stór- baggavél, 132 hestafla dráttar- vél, pökkunarvél og múgavél sem allar eru mun stórvirkari og afkastameiri en aðrar sam- bærilegar í héraðinu. I þurrkinum 14. júlí vom þess- ar vélar við bindingu á túninu á Hvítárvöllum. Bundið var á fjög- urra ha. vel sprottnu túnu og tók verkið ekki nema 33 mínút- ur og vom þá komnir 80 bagg- ar, 250 kg hver. Múgavélin tók Morgunblaðið/Davíð Pétursson STÓRBAGGAVÉLIN sem bændumir þrír hafa sameinast um kaup á. rúmlega 7 m breiðan skára og rakaði sérlega vel. Síðan kom bindivélin, sópaði múganum upp í sig á 10-15 km hraða, en hún þarf aldrei að stoppa á meðan bagginn er bundinn, eins og gera þarf á rúllubaggavél. Við bestu aðstæður getur þessi stórvirka vél bundið um 150 bagga á klst, sem er hey- magn af 6-7 ha.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.