Morgunblaðið - 18.07.1998, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 1998 5
FRÉTTIR
Ríkislögreglustjóri
Sérútbúin bifreið
gegn brotlegum
ökumönnum
hraðakstri og ölvunarakstri. Öku-
menn eru hvattir til að sýna sam-
stöðu með lögreglunni í því að ná
markmiðum umferðaröryggisáætl-
unarinnar. „Aukið eftirlit og sam-
starf lögregluliðanna í landinu hefur
skilað þeim árangri að umferðar-
hraði hefur almennt minnkað,“ seg-
ir í tilkynningunni.
Síðan segir að ríkislögreglustjór-
inn muni áfram nýta þennan búnað
og leggja áherslu á umferðareftirlit
um verslunarmannahelgina. Auk
hefðbundins eftirlits og viðbúnaðar
lögreglu í hverju umdæmi geti öku-
menn vænst þess að þessi sérstaki
tækjabúnaður verði í notkun hvar
sem er á landinu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á HORNI Sólvallagötu og Hofsvallagötu var í gær unnið að því að helluleggja eitt af mörgum 30 kílómetra
hliðum sem sett verða upp í vesturbænum.
Skerpt á reglum um hámarkshraða í eldri hverfum borgarinnar
Gamli vesturbærinn afmark-
aður með 30 km hliðum
VEGFARENDUR í vesturbænum
í Reykjavík hafa veitt fram-
kvæmdum við gatnamót athygli að
undanförnu. Verið er að reisa
svokölluð 30 km hlið til að skerpa á
reglum um hámarkshraða, sam-
kvæmt upplýsingum frá gatna-
málastjóra.
„Það er búin til smáalda með
mislitri steinlögn við gatnamót
viðkomandi gatna. Þetta er
þrenging frá báðum hliðum sem
afmarkar innkeyrslu inn í götun-
ar,“ sagði Guðbjartur Sigfússon,
yfirverkfræðingur hjá gatnamála-
stjóra.
Þegar hafa slíkar þrengingar
verið settar upp víða í Hlíðahverf-
inu og meðal þess sem nú er verið
að vinna að er afmörkun gamla
vesturbæjarins með 30 km hliðum.
„Hingað til hefur eitt skilti við göt-
urnar bent mönnum á þetta en með
þessum hliðum viljum við skerpa á
þessari umferðarreglu en gamli
vesturbærinn hefur verið 30 km
svæði nokkuð lengi."
UNDANFARINN mánuð hefur
sérútbúin bifreið ríkislögreglu-
stjóra til notkunar við hraðamæl-
ingar á þjóðvegum staðið 600 öku-
menn að hraðakstri á þjóðvegum
landsins.
Búnaður í bifreið lögreglustjóra
til þess að taka öndunarsýni vegna
ölvunaraksturs hefur verið notuð í
málum 27 ökumanna og reyndust 18
þeirra vera með áfengismagn yfir
leyfilegum mörkum í blóðinu.
Guðmundur H. Jónsson, aðstoð-
aryfirlögregluþjónn hjá embætti
ríkislögreglustjóra, sagði við Morg-
unblaðið að þessir 27 ökumenn
hefðu fengið svör um stöðu sína
samdægurs, 18 hefðu verið sviptir
ökuréttindum, en 9 strax fengið að
vita að ekki yrði um frekari aðgerð-
ir gegn þeim að ræða.
Hin sérútbúna bifreið ríkislög-
reglustjóra, þar sem myndavél er
notuð til að sanna hraðakstur, er
viðbót við þann búnað sem einstakir
lögreglustjórar hafa yfir að ráða og
er notuð í öllum umdæmum.
Umferðarhraði
hefur minnkað
í fréttatilkynningu frá ríkislög-
reglustjóra segir að það sem af er
sumri hafi starf að því að ná mark-
miðum umferðaröryggisáæætlunar
ríkisstjórnarinnar til ársins 2001
gengið vel og tækin hafi nýst lög-
reglunni vel í baráttu gegn
Kviknaði í
þvottavél
ELDUR kom upp í þvottavél
á verkstæði á Egilsstöðum um
hálftíuleytið í gærkvöldi.
Slökkvilið og lögregla voni
kölluð á staðinn en að sögn
lögreglu var eigandinn búinn
að slökkva eldinn sjálfur þeg-
ar slökkviliðið kom á staðinn.
Orsök eldsins var ókunn í
gærkvöldi.
Hvílíkur sælureitur!
Daihatsu Applause
Gamall Islandsvinur
Bílarfrá Daihatsu, elsta bílaframleiðanda í Japan,
hafa reynst sérlega vel við íslenskar aðstæður.
Þúsundir (slendinga þekkja hagkvæman rekstur,
góða endingu og auðvelda endursölu þeirra. Allir
bílar frá Daihatsu eru með þriggja ára almenna
ábyrgð og sex ára ryðvarnarábyrgð á yfirbyggingu.
Búnaður í himnalagi
Staðalbúnaður Applause stenst samaburð við
mun dýrari bíla. Nefna má vökvastýri, rafdrifnar
rúður og spegla, samlæsingu, hæðarstillingu
aðalljósa, snúningshraðamæli, útvarp og segul-
band, ABS hemlabúnað, höfuðpúða í aftursæti,
álfelgur, tvo loftpúða og styrktarbita í hurðum.
Beinskiptur frá kr. 1.348.000.-
Sjálfskiptur frá kr. 1.468.000.-
Ánægja á ferðinni
Applause er vandaður bíll sem gerir allan akstur
auðveldan og ánægjulegan. Vélin er 100 hestöfl,
með beinni innspýtingu og 16 ventlum. Sjálfstæð
MacPherson fjöðrun á öllum hjólum gefur mjög
góða aksturseiginleika. Applause er auk þess fimm
dyra og farangursrýmið má stækka í 764 lítra.
O
z
•8
BRIMB0RG
Faxafeni 8 • Sími 515 7010
Brimborg-Þórshamar I Bllasala Keflavíkur I Bíley I Betri bílasalan I Tvisturinn
Tryqqvabraut 5 • Akureyri Hafnargötu 90 • Reykjanesbæ Búöareyri 33 • Reyðarfirði Hrísmvri 2a • Selfossi Faxastig 36 • Vestmannaeyjum
Simi 462 2700 I Sími 4214444 | Sfmi 474 1453 | Sími 482 3100 I Sfmi 481 3141
DAIHATSU
fínn í rekstri