Morgunblaðið - 18.07.1998, Side 8

Morgunblaðið - 18.07.1998, Side 8
8 LAUGARDAGUR 18 . JÚLÍ 1998 FRÉTTIR ÉG á nú að klippa núna af því að ég gerði svolítið leyndó á bakvið tjöldin, Halldór minn. Morgunblaðið/Ásdís UNNIÐ við uppskipun skipseininganna í Hafnarfjarðarhöfn en alls var um að ræða 140 tonn af forsmíðuðu stáli. Raðsmíðaverkefni Óseyjar hf. Helmingi ódýrara en að smíða heima SKIPASMÍÐASTÖÐIN Ósey hf. er að hefja vinnu við fjögur raðsmíða- verkefni en fjórum forsmíðuðum skipseiningum, sem byggðar voru í Póllandi fyrir Ósey hf., var skipað upp úr flutingaskipi frá Samskipum í Hafnarfjarðarhöfn í fyrradag. Með þessu fyrirkomulagi er verið að reyna að tryggja íslenskum skipaiðnaði hlutdeild í endumýjun strandveiðiflotans, segir í fréttatil- kynningu frá Ósey hf. Verð skipseininganna, sem em um 140 tonn af forsmíðuðu stáli, er 28 milljónir króna en heildarverkið kostar um 200 milljónir króna. Verkefnið er fyrsta raðsmíðin af bátum yfir 30 tonn sem farið hefur fram á Islandi í nær 20 ár, segir einnig í fréttatilkynningunni. Bátarnir sem smíðaðir verða eru fjölveiðibátar sem útbúnir verða fyrir troll, dragnót, net og línu- veiðar og eru byggðir fyrir eftir- farandi aðila: Ragnar Guðjónsson, Hellissandi, Feng ehf., Ólafsvík, og Lárus Guðmundsson, Grundar- firði. Aætlað er að smíði sldpanna taki 11 mánuði og við smíðina vinni 50 starfsmenn. Samningar að nást um tvö skip í viðbót Að sögn Hallgríms Hallgrímsson- ar, framkvæmdastjóra Óseyjar, verður framhald á þessu fyrirkomu- lagi enda em skipseiningamar um helmingi ódýrari hingað komnar en ef þær væm smíðaðar hér á landi. Samningar standa nú yfir við pólska skipasmíðafyrirtækið um smíði tveggja annarra skipa. „Við vonumst til að smíði skipseininganna geti hafist fyrir haustið og þá myndi vinnu við þær Ijúka í Póllandi í mars-apríl á næsta ári. Þetta verða stærri bátar en þeir sem nú vora að koma til landsins, 6,80 metrar á breidd, 22 metrar á lengd og 140 tonn að þyngd,“ sagði Hallgrímur í samtali við Morgun- blaðið. Hallgrímur segir að ástæða þess að menn smíði ekki fleiri skip með þessum hætti hér á landi en raun ber vitni, hljóti að vera sú að málið hafi verið skoðað í einhverjum hálf- kæringi hingað til, eins og hann orð- ar það. Hann sagðist ekki vita til þess að fleiri íslenskir aðilar væra að láta smíða fyrir sig skipseiningar í Póllandi. „Menn verða að bera sig eftir því sem er ódýrast til að vera sem sam- keppnishæfastir. Samstarf okkar og Pólverjanna gengur vel og allar tímasetningar, skilatími og annað, hafa staðist,“ sagði Hallgrímur. MORGUNBLAÐIÐ Tillögur forvinnuhóps um tungumálanám Virk og skap- andi málnotkun fái aukið vægi Auður Hauksdóttir Forvinnuhópur vegna endurskoðun- ar aðalnámskráa á grann- og framhaldsskóla- stigi á námsviði erlendra tungumála leggur til rót- tækar breytingar á tungu- málanámi og -kennslu. Þar er m.a. lagt til að fag- menntun tungumálakenn- ara verði stórefld, að ensku- og dönskunám hefj- ist fyrr, að nám í þriðja er- lenda máli, þ.e. í frönsku, spænsku og þýsku, verði stóreflt og að einstakir skólar sérhæfi sig í að kenna mál sem ætla má að hafi vaxandi gildi fyrir ís- lendinga t.d. japönsku, kín- versku og rússnesku. Hópurinn var skipaður í febrúar 1997 og í honum áttu sæti sex kennarar af grunn-, framhalds- og háskóla- stigi, fjórir tilnefndir af fagfélög- rnn kennara og tveir skipaðir af menntamálaráðherra. Auk þess starfaði með hópnum faglegur umsjónarmaður. Auður Hauks- dóttir var skipuð af ráðherra og jafnframt formaður hópsins. - Hvemig var starfí hópsins háttað? „í erindisbréfi var hópnum í fyrsta lagi falið að rökstyðja þörf og tilgang námssviðs og náms- greina innan þess. I öðra lagi að setja fram tillögur um lokamark- mið tungumálanáms á grunn- og framhaldsskólastigi og í þriðja lagi að gera tillögur, ef ástæða þætti til, um breytingar á skipulagi eða uppbyggingu námsins. Við byrjuð- um á því að gera eins konai- þarfa- greiningu, það er að glöggva okkur á því hver væri þörf Islendinga fyrir kunnáttu í erlendum málum og í hvaða samhengi þeir þyrftu að nota erlend mál. Við reyndum þannig að gera okkur grein fyrir því hvert væri mikilvægi mála- náms fyrir viðskipti og atvinnulíf, svo sem ferðaþjónustu, eða fyrir einstaklinga með tilliti til frekara náms, lesturs til gagns og gamans eða hvers konar samskipta við aðr- ar þjóðir. Þá höfðum við að leiðar- Ijósi að íslendingar þyrftu að kynnast öðram menningarheimum og að tungumálakunnátta væri lykillinn að þeim. Tekið var mið af tillögum stefnumótunamefndar, en þær fólu í sér að enska skyldi verða fyrsta erlenda málið í stað dönsku og að málanám hæfist fyrr en nú er.“ - Hvaða tillögur gerðuð þið til úrbóta? „I fyrsta lagi má nefna nýjung- ar varðandi framsetningu náms- markmiða og tilhögun námsmats, til dæmis leggjum við til að prófað verði í talmáli á samræmdu prófi. Einnig leggjum við áherslu á breytta kennsluhætti sem felst fyrst og fremst í því að virk og skapandi málnotkun fái aukið vægi, sérstaklega talmál, og að nemendur fái miklu meiri mögu- leika á því að nota málið sjálfir til tjáskipta. Áhersla er lögð á að kennslan fari fram á hinu erlenda máli og gert ráð fyrir aukinni ábyrgð og virkni nemenda. Þá er lagt til að ensku- og dönskukennsla byrji enn fyrr en lagt er til í skýrslu stefhumótunamefndar, að kennsla í þriðja erlenda máli verði stórefld og að nemendum standi til boða að læra fleiri mál t.d. japönsku, kínversku og rússnesku. Þá leggjum við til að einstakir skólar sérhæfi sig í að kenna ís- lensku sem erlent mál og að sér- ► Auður Hauksdóttir fæddist í Reykjavík árið 1950. Hún lauk stúdentsprófi frá Kennaraskól- anum árið 1972, BA-prófi í dönsku og heimspeki frá Há- skóla íslands árið 1977, upp eld- is- og kennslufræði til kennslu- réttinda í HÍ árið 1980 og cand.mag.-prófi í dönsku frá Kaupmannahafnarháskóla árið 1986. Hún hefur unnið að viða- mikilli rannsókn á dönsku- kennslu á íslandi sem er liður í doktorsnámi í dönsku við Kaup- mannahafnarháskóla. Auður kenndi lengst af við Flensborg- arskóla í Hafnarfirði og hefur verið lektor við Kennaraháskóla fslands síðastliðin þrjú ár. Hinn 1. janúar síðastliðinn tók hún við stöðu lektors í dönsku við Háskóla Islands. Hún var for- maður forvinnuhóps á námssviði er lendra tungumála í endur- skoðun aðalnámskrár. Auður er gift Ingvari J. Rögnvaldssyni varaskattsfjóra í Reykjavík og eiga þau tvö börn. stök rækt verði lögð við að við- halda tungumálakunnáttu bama og unglinga sem hafa dvalið í út löndum. Síðan má nefna tillögur um stóreflingu fagmenntunar tungumálakennara á grunn- og framhaldsskólastigi og breyttar áherslur í kennsluréttindanámi, þar sem aukin áhersla verði lögð á kennslufræði viðkomandi tungu- máls. í tillögum forvinnuhóps er gert ráð fyrii’ að tungumálakenn- ai-ar á grunnskólastigi hafi að baki a.m.k. 45 eininga nám á há- skólastigi í viðkomandi tungumáli í stað 12,5 nú, en kennarar á framhaldsskólastigi 90 einingar. Einnig leggjum við áherslu á aukna notkun nýrra miðla við kennslu svo sem myndbanda og tölva, að mat á skólastarfi verði aukið og rannsóknir á tungumála- námi og -kennslu efldar. Þetta eru megintillögumar í örstuttu máli.“ - Hefur ekki verið lögð nægi- leg áhersla á tjáskiptahæfni í tungumálakennslu til þessa? , jUmennt virðist of oft vera lögð einhliða áhersla á lestur, hlustun og málfræði í mála- kennslunni, en skapandi þættir málsins einkum talmálsþjálfun hefur verið of lítill gaumur gefinn. Við teljum brýnt að nýta styrkleika þeirrar hefðar sem fyrir er, en gera átak í því að gera íslendinga enn hæfari til þess að nota erlend mál sem lif- andi tjáskiptatæki, hvort heldur er í námi, leik eða starfi. Þannig teljum við hag einstaklinga og þjóðfélagsins í heild best borgið.“ Fagmenntun kennara verði stórefld

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.