Morgunblaðið - 18.07.1998, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 1998 37
i
i
(
(
<
i
i
(
(
i
(
(
í
(
i
i
(
(
(
(
(
(
(
4
(
(
(
(
(
PETUR
EIRÍKSSON
+ Pétur Magnús
Eiriksson var
fæddur í Reykjavík
31. júlí 1917. Hann
lést á heimili si'nu í
Reykjavík hinn 5.
júlí síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru Elísabet Eyj-
ólfsdóttir, f. á
Bfldudal 5.10. 1896,
d. 31.5. 1988, og Ei-
ríkur Eiríksson frá
Minni-Völlum á
Landi, f. 12.5. 1882,
d. 7.4. 1963. Pétur
var elstur í hópi sex
systkina, hin eru: 1) Eyjólfur,
prentari f. 13.10. 1919, d. 30.5.
1996, hann bjó mestan hluta ævi
sinnar í Bandaríkjunum. 2)
Grétar, tæknifræðingur, f. 7.7.
1923. 3) Gunnar , f. 13.11. 1925,
en hann lést úr berklum á
barnsaldri. 4) Hulda, húsmóðir í
Garðabæ, f. 22.3. 1931. 5) Ólaf-
ur, tæknifræðingur, f. 5.7. 1933,
d. 3.3. 1998.
Pétur kvæntist 7. júní 1945
Mörtu Finnbogadóttur, f. 5.3.
1922. Hún andaðist að írafossi í
Grímsnesi 18. júlí 1981. For-
eldrar hennar voru Finnbogi
Guðmundsson, smiður, lóðs og
síðar starfsmaður Húsasmiðj-
unnar, og Þórunn Gunnlaugs-
dóttir, húsfreyja, þau bjuggu í
Flatey á Breiðafirði, í
Grundarfirði og í
Reykjavík.
Börn Péturs og
Mörtu eru: 1) Þórunn
Gunnvör, aðstoðar-
maður, f. 23.11. 1943,
hennar maður er
Guðbjörn Pétursson,
vélfræðingur, f. 5.3.
1940, þeirra börn
eru: I. Guðrún Hrönn,
f. 4.5. 1962, m. Sig-
urður Þorsteinsson,
þeirra börn: Þórunn
og Elín, II. Dröfn, f.
21.2. 1966, m. Sverrir
Ingibjartsson, þeirra börn: Anna
Hlín og íris. 2) Sigríður Eyjólfs.,
starfstúlka á Slysadeild, f. 23.10.
1946, hennar maður er Sigurfinn-
ur Þorsteinsson, húsasmiður, f.
30.1. 1944, þeirra börn eru I. Þor-
steinn Örn, f. 5.7. 1964, m. Vigdís
Hauksdóttir, þeirra börn; Hlynur
og Sólveig, II. Marta, f. 16.9.
1965, hennar sonur Sigurfinnur
Bjarkar, III. Pétur Már 22.5.
1979. 3) Elísabet, sjúkraliði, f.
4.12. 1948, hennar maður er Þór
Jónsson, vélfræðingur, f. 19.11.
1941, þeirra börn eru I. Hulda, f.
10.7. 1967 m. Sigurður Örn Ein-
arsson, þeirra sonur Arnar Þór,
II. Kristín Þórsdóttir, f. 13.10.
1970, m. Sveinbjörn Þormar,
þeirra börn: Þór og Gunnar, III.
Guðríður, f. 17.1. 1977. 4) Eirík-
ur, rannsóknarlögreglumaður,
f. 26.7. 1954, dóttir hans er
Marta , f. 14.6. 1985, fósturson-
ur er Haraldur Agnar, f. 28.12.
1976, móðir þeirra er Soffía
Haraldsdóttir. 5) Finnbogi,
listamaður, f. 19.11. 1959, hans
kona er Kristína Ragnarsdóttir,
kennari, f. 10.7. 1962, þeirra
börn eru I. Bergur f. 6.11. 1982,
II. Anna, f. 4.3. 1986, III. Stefán,
15.3. 1992, IV. Marta f. 27.5.
1994.
Pétur var fæddur í Reykja-
vík. Hann fékk almenna barna-
skólamenntun. Pétur útskrifað-
ist sem fiskmatsmaður 1948 en
vann aðallega sem hleðslusljóri
á saltfiski og skreið á vegum
Skreiðarsamlagsins og SÍF.
Pétur vann mörg afrek í
sundíþróttinni en hann keppti
fyrst 1932. Hann hlaut sund-
þrautarmerki ISI 1934, synti Við-
eyjarsund 1936, í Engey 1936
og 1939, Drangey 1936, Odd-
eyrarál 1938, Eyjafjarðarsund
1938, yfir Hafnarfjörð 1939, úr
Klettshelli í Vestmannaeyjum
1939 og yfir Siglufjörð 1945.
Pétur synti nokkrum sinnum
boðsund og keppti þá einn gegn
tíu eða fimmtán manna sveitum.
Hann var ennfremur aðstoðar-
maður Eyjólfs Jónssonar o.fl.
sundmanna á ýmsum þolsund-
um.
Pétur verður jarðsunginn í
dag frá Frfldrkjunni í Reykja-
vík og hefst athöfnin klukkan
10.30.
Eitt sinn skal hver deyja og nú er
komið að leiðarlokum hjá þér, kæri
afi minn. Þú tókst þessu með karl-
mennsku og notaðir tímann til að
ganga frá öllum lausum endum með
sama hætti og hefur einkennt þig.
Rólega og örugglega.
Þú varst ekki maður mikilla orða
en lést verkin tala og tókst því með
ró þegar gert var grín að því sem
kallað var sérviska í þér. Þú tróðst
þér alltaf fremst til að taka myndir
og ýttir jafnvel fólki frá, og lfkaði
það ekki öllum. En eins og þú sagðir
mér sjálfur fyrir ekki alllöngu: „Ég
náði alltaf bestu myndunum“, enda
liggur eftir þig fjársjóður mynda, úr-
klippur úr blöðum sem þú sýndir
mér fyrir fáum árum og hreyfimynd-
ir tókst þú líka. Allt til að við gætum
átt og munað sögu fjölskyldu okkar.
Þú lést mann vita ef þig var farið
að lengja eftir heimsóknum okkar
og drifum við Vigga okkur þá til þín,
þáðum kaffi og stöku vínarbrauð og
síðan sýndir þú okkur eins og 2.000
skyggnur á breiðtjaldi og má segja
að þú hafir kynnt henni lífshlaup
mitt frá fæðingu.
Þú varst iðinn við að fara með
okkur börnin í skemmtiferðir og
skiptir aldrei skapi, sama hvað á
gekk. Aldrei gat ég þó skilið af
hverju þú vildir ekki fara með mig í
Laugarnar en ég geri ráð fyrir því
að þú hafir verið búinn að synda
nægju þína um ævina.
Ég var eini strákurinn í fjölskyld-
unni í 15 ár og ég veit að við áttum
eitthvað sérstakt saman, við tveir
niitt f öllum stelpnahópnum. Svo
þegar bróðir minn fæddist breyttist
eitthvað og skildi ég að þú varst að
vonast eftir nafna og kippti mér ekki
upp við þetta að ráði, þekkti þig bet-
ur en það. Ég man þegar Pétur var
skírður, þú stóðst hjá prestinum,
hallaðir þér fram og þegar nafnið
kom brá þér svo mikið að þú varst
nærri dottinn í skímarskálina.
A efri árum kynntist ég þér sem
fullorðinn maður þegar ég og Vigga
keyptum búðina. Þú gerðir þér tíðar
ferðir í búðina til okkar og fannst
mér stundum nóg um. Neftóbak út
um öll gólf og allt í einu varstu far-
inn að bjóða mér í nefið. Við vorum
alltaf dús.
Mamma sagði mér að þegar hún
var rétt komin að því að eiga mig
hafir þú bent henni á að 4. júlí væri
þjóðhátíðardagur Bandaríkjanna en
S. júlí væri afmælisdagur Óla bróður
þíns. Ég fæddist 5. júlí. Nú 34 árum
seinna stóðst þú frammi fyrir sama
vali með öfugum formerkjum þó.
Þetta var ekki afmælisgjöf sem ég
vildi en ákveðinn léttir þó sorgin
sem ég ber í brjósti sé mikil. Ég veit
að þú ert sáttur við að vera farinn.
Ég bið að heilsa ömmu.
Þorsteinn Sigurfinnsson.
Þegar ég heyrði um andlát þitt,
minn kæri vinur, þá komu upp í
huga mér ótal minningar frá liðnum
árum sem ég mun aldrei gleyma.
Mér finnst það ótrúlegt að liðin
eru rúm 40 ár frá því við kynntumst
fyrst og rennur þá upp fyrir manni
sú tilhugsun hve tíminn líður hratt
og æviskeiðið er senn á enda runnið,
allt of fljótt, og án þess að maður
komi nokkrum vörnum við.
Það var mikið lán fyrir mig að fá
að kynnast þér á sínum tíma og fá
að eiga þig að vini í öll þessi ár, sem
nú virðast alltof fá. Það er margs að
minnast og margar voru glaðar
stundirnar þegar þú komst úr þín-
um mörgu lestunarferðum um land-
ið og sagðir okkur um allt sem kom-
ið hafði upp á í hverri ferð. Alltaf
komst þú kátur og hress, byrjaðir á
að taka í nefið, bauðst okkur að
sjálfsögðu líka, og skildir aldrei í
aumingjaskapnum í okkur hinum að
neita góðri hressingu.
Sögur þínar af hringferðunum
um landið og myndir sem þú sýndir
okkur af ólíklegustu stöðum á iand-
inu, en þú varst óþreytandi að taka
myndir af öllu sem gerðist á ferðum
þínum, og ekki síður frásagnir af
sundafrekum á þínum yngri árum
og nú á síðustu árum um Spánar-
ferðir sem þú hlakkaðir til allan
veturinn að komast í eru ógleyman-
legar og harma ég að geta ekki
fengið að njóta frásagnargleði þinn-
ar lengur.
Þú varst þéttur á velli og léttur í
lund og eftir þér var tekið hvar sem
þú komst. Þú varst fljótur að afla
þér vina, enda geislaði frá þér góð-
vildin og kærleikurinn. Þú varst
ávallt tilbúinn að hjálpa öðrum og
miðla þeim af reynslu þinni á öllum
sviðum.
Ég mun sakna þín, minn kæri
Pétur, um ókomin ár og ég þakka al-
góðum guði fyrir að hafa fengið að
starfa með þér og njóta samskipta
við þig bæði í vinnu og utan hennar.
Börnum þínum og fjölskyldum
þeirra sendi ég mínar innilegustu
samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning þín.
Hannes Hall.
KARL HALLDÓR
ÁGÚSTSSON
+ Karl Halldór
Ágústsson
fæddist í Reykjavík
29. nóvember 1932.
Hann lést í Skorra-
dal 4. júlí síðastlið-
inn og fór útför
hans fram frá Víði-
staðakirkju 14. júlí.
Kæri Kalli. í mörg ár
hefur þú unnið með
okkur sem fram-
kvæmdastjóri í fyrir-
tækinu Baader Island
og hefðum við öll óskað
þess að fá að njóta ráða
þinna lengur. Saman höfum við ferð-
ast víða, um ísland til að heimsækja
viðskiptavini okkar, til Þýskalands á
sýningar og til höfuðstöðva Baader-
fyrirtækisins í Lubeek. A þessum
árum urðum við góðir vinir. Fag-
kunnátta þín í fiskvinnslu og sam-
skipti þín við viðskiptavini okkar
voru alltaf til fyrirmyndar. Þú hafðir
ávallt jafnaðargeð, varst rólegur og
án yfirlætis. Þú naust mikillar virð-
ingar bæði hjá okkur í fyrirtækinu
og hjá viðskiptavinum okkar.
Það eru bara nokkr-
ir mánuðir síðan þú
hættir störfum til að
njóta ávaxta vinnu
þinnar. Það er ekki
langt síðan dóttir mín
hitti þig hressan og
kátan á Kanaríeyjum
og ætlaðir þú þá að
drífa þig í að læra
spænsku
Aldrei hef ég upplif-
að þig öðruvísi en
hraustan, þannig að
fréttin um andlát þitt
kom mér og vinum þín-
um í fyrirtækinu mjög
á óvart og snerti okkur djúpt. Þú
sofnaðir hinsta svefni eftir góða og
árangursríka ævi. Guð gaf þér mild-
an dauðdaga en af hverju hann tók
þig svo snemmma til sín veit enginn
nema hann.
Við munum heiðra minningu þína.
Uppbygging og þróun Baader fs-
lands mun ávallt vera tengd nafni
þínu. Við syrgjum þig öll og vottum
eiginkonu þinni og aðstandendum
þínum okkar dýpstu samúð.
Ulrich Marth.
MESSUR Á MORGUN
S3
■ 1
% E! m I
Skálholtskirkja.
Guðspjall dagsins:
Réttlæti faríseanna.
(Matt. 5)
ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.00
Léttur hádegisverður eftir messu.
Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11.00. Organisti Guðni Þ. Guðmunds-
son. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.00. Alt-
arisganga. Prestur séra Jakob Á.
Hjálmarsson. Organisti Kjartan Sigur-
jónsson. Dómkórinn syngur.
VIÐEYJARKIRKJA. Messa kl. 14.00
Prestur sr. Jakob Á. Hjálmarsson.
Organisti Kjartan Sigurjónsson. Báts-
ferð úr Sundahöfn kl. 13.30.
GRENSÁSKIRKJA: Messa kl. 11.00.
Altarisganga. Organisti Ámi Arin-
bjamarson. Prestur sr. Kjartan Öm
Sigurbjömsson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa og
barnasamkoma kl. 11.00. Félagar úr
Mótettukór Hallgrímskirkju syngja.
Organisti Douglas A. Brotchie. Sr.
Sigurður Pálsson. Orgeltónleikar kl.
20.30. Jörg Sondermann frá Þýska-
landi, organisti við Hveragerðiskirkju,
leikur.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.00.
Sr. Gylfi Jónsson.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.00.
Sr. Gylfi Jónsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Messa kl. 11.00.
Prestur sr. Jón Helgi Þórarinsson.
Organisti Jón Stefánsson. Kaffisopi
eftir messu.
LAUGARNESKIRKJA: Vegna sumar-
leyfa starfsfólks Laugarneskirkju er
bent á guðsþjónustu í Áskirkju.
NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11.00. Organisti Reynir Jónasson.
Prestur Guðmundur Oskar Ólafsson,
fyrrverandi sóknarprestur Neskirkju.
SELT JARNARNESKIRKJA: Messa
kl. 11.00. Organisti Sigrún Stein-
grimsdóttir. Prestur sr. Solveig Lára
Guðmundsdóttir.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta í
Safnaðarheimili Árbæjarkirkju kl.
11.00. Organleikari Kristín G. Jóns-
dóttir. Prestamir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Messur falla
niður vegna sumarleyfa starfsfólks
og uppsetningar orgels til ágústloka.
Bent er á guðsþjónustur í öðrum
kirkjum í prófastsdæminu.
DIGRANESKIRKJA: Messur falla
niður frá 1. júlí til 9. ágúst vegna
sumarleyfa starfsfólks.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs-
þjónusta - helgistund kl. 20.30.
Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústs-
son. Organisti Peter Máté. Prestamir.
GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Prestur sr. Anna Sigriður
Pálsdóttir. Einleikur á víólu: Bryndís
Bragadóttir. Kór Grafarvogskirkju
leiðir safnaðarsöng. Organisti Hörður
Bragason. Prestarnir.
HJALLAKIRKJA: Vegna fram-
kvæmda í Hjallakirkju og sumarleyfa
er fólki bent á helgihald í öðrum kirkj-
um prófastsdæmisins. Prestarnir.
KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11.00. Félagar úr kór Kópavogs-
kirkju syngja. Organisti Kári Þormar.
Ægir Fr. Sigurgeirsson.
SELJAKIRKJA: Kvöldguðsþjónusta
kl. 20.00. Sr. Ágúst Einarsson prédik-
ar. Þorvaldur Halldórsson syngur ein-
söng í guðsþjónustunni. Organisti
Gróa Hreinsdóttir. Sóknarprestur.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA. Hátíðar-
messa verður sunnudag kl. 14.00 á
Skálholtshátíð. Sr. Sigurður Sigurðar-
son vígslubiskup prédikar. Sr. Egill
Hallgrimsson, sr. Guðmundur Oli
Ólafsson og biskup íslands, herra
Karl Sigurbjömsson, þjóna fyrir altari.
Skálholtskórinn, Kristjana Stefáns-
dóttir, Soffía Stefánsdóttir og Voces
Thules syngja. Jóhann Stefánsson
leikur á tromþet. Organisti: Guð-
mundur Sigurðsson. Söngstjóri:
Hilmar Örn Agnarsson.
FRÍKIRKJAN, Rvik.: Fermingar-
messa kl. 14.00. Fermd verða Guð-
rún Rósa Hólmarsdóttir og Daníel
Jónsson. Síðasta guðsþjónusta fyrir
sumarleyfi. Organisti er Kristin Guð-
rún Jónsdóttir. Allir hjartanlega vel-
komnir. Hjörtur Magni Jóhannsson
safnaðarprestur.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía:
Brauðsbrotning kl. 11.00. Ræðumað-
ur Vörður L. Traustason. Almenn
samkoma kl. 20.00. Ræðumaður
Gylfi Markússon. Allir hjartanlega vel-
komnir.
KLETTURINN, Bæjarhrauni 2,
Hafnarfirði: Samkoma kl. 20.00.
Stefán Ágústsson predikar. Drottinn
læknar öll þín mein. Allir velkomnir.
MESSÍAS-FRÍKIRKJA: Rauðarárstig
26, Reykjavík. Guðsþjónusta sunnu-
dag kl. 11 og fimmtudag kl. 20.
Prestur sr. Guðmundur Örn Ragnars-
son.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
KRISTSKIRKJA, Landakoti: Messur
sunnudaga kl. 10.30, 14. Messa kl.
18 á ensku. Laugardaga og virka
daga messur kl. 8 og 18.
MARÍUKIRKJA, Raufarseli 8:
Messa sunnudag kl. 11. Messa laug-
ardag og virka daga kl. 18.30.
GARÐABÆR, Holtsbúð 87: Messa
sunnudag kl. 10.
JÓSEFSKIRKJA, Hafnarfirði:
Messa sunnudag kl. 10.30. Messa
virka daga og laugardaga kl. 18.
KARMELKLAUSTUR, Hafnarfirði:
Messa sunnudaga kl. 8.30. Messa
laugardaga og virka daga kl. 8.
BARBÖRUKAPELLA, Keflavík:
Messa sunnudag kl. 14.
STYKKISHÓLMUR, Austurgötu 7:
Messa sunnudag kl. 10. Messa laug-
ardag og virka daga kl. 18.30.
RIFTÚN, Ölfusi. Messa sunnudag kl.
17.
FÆREYSKA SJÓMANNAHEIMILIÐ:
Samkoma á morgun kl. 17.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Messur um
helgina 18. og 19. júlí. Sunnudag kl.
19.30 bænastund. Kl. 20.00 hjálp-
ræðissamkoma. Kafteinn Miriam
Óskarsdóttir talar. Allir hjartanlega
velkomnir.
LÁGAFELLSKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11.00
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11.00. Kór Víðistaðasóknar syng-
ur. Organisti Úlrik Ólason. Fermd
verða: Alis Gisela Heiðar, búsett í
Bandaríkjunum, Jón Elías Kolbeins-
son, Vesturbraut 24, og Snævar Njáll
Albertsson, Suðurvangi 6. Sigurður
Helgi Guðmundsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Sjá
guðsþjónusta í Víðistaðakirkju. Sókn-
arprestur.
HVERAGERÐISKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11.00 með þátttöku gesta á
norrænu vinabæjamóti. Jón Ragnars-
son.
SELFOSSKIRKJA: Sunnudagaskóli
kl. 11. Messa kl. 14. Hádegisbænir kl.
12.05 þriðjudag til föstudag. Les-
hringur kl. 20 fimmtudag. Kvöldbænir
kl. 21.30. Sóknarprestur.
BORGARPRESTAKALL: Messa í
Borgameskirkju kl. 14. Messa í Akra-
kirkju kl. 17.
ÞINGVALLAKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 14. Organleikari Ingunn Hildur
Hauksdóttir. Sóknarprestur.
STRANDAKIRKJA: Helgistund kl.
14. Sóknamefnd.