Morgunblaðið - 18.07.1998, Síða 40
40 LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Smáfólk
CHARLE5, PATir THINK5
'f'OU PON'TCALL HER
BECMJSE 5HE
I5N'T CUTE..
Kalli, Kata heldur að
þú hringir ekki í
hana af því að hún
er ekki sæt...
Af því að hún er freknótt
og með stórt nef.
Af því að hún er freknótt
og með stórt nef.
Er það þess vegna sem
þú hringir ekki í hana?
Er það þess vegna sem
þú hringir ekki í hana?
Þetta gengur ekki, er það?
Hann sagði að hann væri að
missa af uppáhaldsþættinum
si'num ...
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Peningaplokk í Mennta-
skólanum í Kópavogi
Frá Eyrúnu Jónsdóttur og Pétri
Ólafssyni:
OLLUM tilvonandi bóknámsnem-
um Menntaskólans í Kópavogi (hér
eftir MK) hefur nú borist gíróseðill
frá MK fyrir haustönn 1998 sem
hljóðar upp á 7.700 kr. Þessar 7.700
kr. eru sundurliðaðar í:
Skóskápagjald: 1.000 kr.
Innritunargjald: 3.000 kr.
Nemendafélagsgjald: 2.500 kr.
Skjólasj. 2., 3. og 4. ársnema
1.200 kr.
Fyrir neðan stendur einungis að
lögum samkvæmt sé heimilt að
hafna aðild að nemendafélagi. Eng-
in skýring er gefin á skóskápa-
gjaldinu né á skólasj. 2., 3. og 4.
ársnema.
Þær nýjungar eru núna að skó-
skápagjaldið er rukkað samhliða
innritunargjaldi en síðustu ár hefur
það verið venja að borga um 1.000
kr. fyrir skápinn að hausti og síðan
er u.þ.b. helmingur af upphæðinni
endurgreiddur að vori þegar lyklin-
um er skilað. Við nánari athugun
komumst við að því að þetta er gert
til hagræðingar fyrir skólann og
500-600 kr. af þessum 1.000 kr.
verða endurgreiddar þegar lyklin-
um er skilað að vori. Þetta fyrir-
komulag á eflaust eftir að skila sér
vel í framtíðinni en að sjálfsögðu
hefði átt að kynna þetta fyrir nem-
endum í skólalok. Það skal tekið
skýrt fram hér að lögum sam-
kvæmt er heimilt að hafna skó-
skápagjaldi.
Skólasj. 2., 3. og 4. ársnema hef-
ur aldrei áður verið innheimtur síð-
an við byijuðum í skólanum. Engin
skýring er gefin á þessum nýja
kostnaðarlið og finnst stjómendum
skólans þá sjálfsagt eðlilegt að allir
borgi í þennan nýja skólasj. 2., 3. og
4. ársnema. 12., 3. og 4. bekk reikn-
um við með að það verði um sjö
hundruð manns ef allir í áðurnefnd-
um bekkjum borga. Þá fær skólinn
um 720.000 kr. í sinn vasa fyrir ut-
an það að hjá nýnemum er einnig
svokallað tölv.- og vél.gjald sem
nemur 2.000 kr. Þar sem nýnemar
eru um tvö hundruð fær MK auka-
lega 400.000 kr. Eftir samtal við
fjármálastjóra skólans kom í ljós að
hún heldur að skólasj. standi fyrir
pappírskostnað og kostnað fyrir
ýmsum verklegum æfingum. MK
fær því rúmlega 1,1 milljón í sinn
vasa fyrir eins konar efnisgjald, s.s.
fyrir pappír, tölvuaðstöðu og fleira.
Samkvæmt framhaldsskólalögum
er heimilt að rukka efnisgjald en
þar sem þetta er ekki titlað sem
slíkt og engar útskýringar fylgja
þessum skólasj. er í raun heimilt,
lagalega séð, að hafna greiðslu í
umræddan sjóð. Gíróseðillinn barst
nemendum í kringum 10. þessa
mánaðar og gjalddagi og eindagi
var 15. þessa mánaðar.
Þar af leiðandi geta nemendur
sem hafa greitt í skólasj. krafist
endurgreiðslu á skrifstofu skólans.
Eðlilegt er að fólk reyni að leita
sér svara við þessum nýju greiðsl-
um og hringi á skrifstofu skólans
en einu svörin sem fást þar eru að
skrifstofan er lokuð vegna sumar-
leyfa til 5. ágúst. Þetta er mjög
hentugt vegna þess að ef nemandi
hefur ekki greitt skólagjaldið fyrir
1. ágúst nk. er litið á það sem svo
að hann hafi hafnað skólavist í MK.
Með því að gefa engar upplýsing-
ar um það hvað nemendur eru að
borga er einfaldlega verið að stíla
inn á það að foreldrar nemendanna
taki gíróseðilinn eins og hann legg-
ur sig og borgi allt saman. Aðrar
leiðir væri hægt að fara í þessu
máli, t.d. gefa út lítinn fréttapésa til
kynningar á þessu nýja fyrirkomu-
lagi. Vinnubrögð þessi eru ófag-
mannleg og koma flatt upp á marga
nemendur vegna þess að MK hefur
jafnan verið þekktur fyrir vönduð
vinnubrögð og góða stjórnun.
Greinarhöfundar eru sammála um
að þetta sé ekkert annað en pen-
ingaplokk og er það skömm að
skólameistari MK, Margrét Frið-
riksdóttir, sem einnig er formaður
Skólameistarafélags Islands, skuli
standa á bak við þetta.
EYRÚN JÓNSDÓTTIR,
Asbraut 2a,
PÉTUR ÓLAFSSON,
Heiðarhjalla 25,
nemendur í Menntask. í Kópavogi.
Oviðeigandi!
Frá Erling Ó. Aðalsteinssyni:
ÞAÐ VAR mikill fógnuður hjá
bömunum mínum þegar Tívolíið
var sett upp við hafnarbakkann nú í
sumar. Þess er beðið með mikilli
eftirvæntingu ár hvert. Stefnan var
sem sagt sett á hafnarbakkann
þann 14. júh', kl. 17.30 í sól og sum-
aryl.
Er inn var komið blasti við mikið
líf og fjör. Margir foreldrar með
böm sín og þó nokkuð af ungling-
um.
Miðar voru keyptir og tækin
mæld út. Ákveðið var að byrja á
einfóldu bamatæki, bílahringekju.
Sú sem sarfaði við það tæki var ung
stúlka, á að giska 13-14 ára gömul.
Hún sá um að ganga til barnanna
og taka við miðum af þeim, og síðan
gangsetja tækið. Það sem mér
blöskraði og er tilefni þessa bréfs
er að stúlkan var með sígarettu í
munninum er hún bograði yfir
börnunum.
Eg gaf mig á tal við hana og
sagði henni að mér þætti mjög óvið-
eigandi að hún væri að reykja þeg-
ar hún væri að vinna með bömun-
um. Hún umlaði eitthvað en hélt
áfram að reykja. Ég tók síðan eftir
því að margt af starfsfólkinu reykti
við vinnu sína.
Ekki veit ég hvaða reglur gilda
hjá starfsfólkinu sem bæði er ís-
lenskt og enskumælandi (stúlkan
sem ég gerði athugasemd við er ís-
lensk). En það er grundvallaratriði
að fólk sem vinnur með börnum sé
ekki að reykja yfir þeim. Einnig
vona ég að fólk láti í sér heyra, en
horfi ekki þegjandi á.
ERLING Ó.
AÐALSTEINSSON,
Nýlendugötu 45,
Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.