Morgunblaðið - 18.07.1998, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 1998 41
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
<
<
(
ÞORGRÍMUR Pálsson sýnir lóðavinnu og Steinar Axelsson
sýnir netabætingu.
Starfsdagur í Sjó-
minjasafni Islands
STARFSDAGUR í Sjóminjasafni
Islands, Vesturgötu 8, Hafnarfírði,
verður sunnudaginn 19. júlí.
Steinar Axelsson og Þorgrímur
Pálsson, fyiTverandi sjómenn, sýna
ýmis handbrögð við sjómennsku.
Meðal annars verður sýnd vinna við
lóðir, net, hnúta og splæsingar og
gefst gestum kostur á að þjálfa
handtökin. Þórður Marteinsson
leikur á harmonikku meðan á opnun
stendur.
í forsal safnsins stendur yfir sýn-
ing á ljósmyndum eftir Helga Ara-
son frá um 1915-1930. Nú er hægt
að kaupa sameiginlegan afsláttar-
miða að Sjóminjasafninu og
Byggðasafni Hafnarfjarðar, en
þetta er í fyrsta skipti sem söfnin
hafa með sér slíka samvinnu.
Fram til 30. september er
Sjóminjasafnið opið alla daga frá kl.
3-17. Aðgangur er 200 kr., ókeypis
fyrir börn og eldri borgara.
Islendingur doktor
í koptískum fræðum
DR. Jón Ma. Ásgeirsson cand. theol
varði í dymbilviku á sl. vori, doktors-
ritgerð í koptískum fræðum, við Há-
skólann í Claremont í Suður-Kali-
forníu. Doktorsritgerð Jóns, sem
ber heitið „Doublets and Strata:
Towards a Rhetorical Approach to
the Gospel of Thornas", („Endur-
tekningar og þáttaskil. Tómasar-
guðspjall í Ijósi hellenískrar ræðu-
listar“), fjallar um eðli og samningu
Tómasarguðspjalls og einkum eins
þáttar þess, sem heyrir undir loka-
stig samsetningar guðspjallsins.
Tómasarguðspjall er varðveitt í
heild á koptískri tungu, þ.e.a.s.,
þeirri tungu egypskri, sem síðast var
töluð í Egyptalandi, áður en arab-
íska varð þar hið almenna tungumál.
Fáein handritabrot af guðspjallinu
hafa einnig varðveist á grísku, en
hvort tveggja, handritabrotin og hin
koptíska þýðing guðspjallsins, fannst
1 Egyptalandi. Tómasarguðspjall er
tvímælalaust frægasta rit úr fundi
handritasafns, sem kenndur er við
bæinn Nag Hammadi í Suður-Eg-
yptalandi, og gerður var af fátækum
bændum þar i landi árið 1945.
I Tómasarguðspjalli er einkum
að finna safn munnmæla Jesú, en
slíkar munnmælageymdir eru tald-
ar varðveita einhver elstu boð og
kenningar meistarans frá Nasaret,
sem kirkjan játar vera hinn
frelsandi Krist. Dr. Jón sýnir í
rannsóknum sínum á Tómasarguð-
spjalli hvernig textann verður að
skilja frá sjónarhorni þeirrar
ræðu- og rittækni, sem var uppi-
staðan í menntakerfi fornalda
hinna síðari - menntunarkerfi sem
rætur á í hinum eldra gríska menn-
ingarheimi og arfi, sem einkenndi
menntun á Vesturlöndum allt fram
á upplýsingaröld. Dr. Jón tekur
i'yi'ir eitthvert umdeildasta fyrir-
bæri Tómasarguðspjalls, sem felst
í endurtekinni og ummyndaðri
notkun fáeinna ummæla Jesú í
guðspjallinu og færir rök að notk-
un þeirra í ljósi hvors tveggja,
þeirrar rittækni sem hellenísk rit-
un byggir á, jafnt og félagslegs
umróts sem rekja má og ætlað
verður að staðið hafi að baki þeim
breytingum sem á textanum verða
á löngu samningarskeiði guð-
spjallsins. Loks skýrir dr. Jón
hvernig þetta ferli
í samningu
Tómasarguð-
spjalls gengur í
berhögg við ferli
það, sem greina
má í skyldasta
verki Tómasar-
guðspjalls, en það
er annað safn um-
mæla Jesú, sem
varðveitt er í guðspjöllum Matteus-
ar og Lúkasar í Nýja testamentinu.
Rannsókn dr. Jóns leiðir í ljós svo
óyggjandi sé, að Tómasarguðspjall
byggir á hellenískum hugsjónum
sem verða gi’undvöllur að róttækri
þjóðfélags- og einstaklingsgagn-
rýni Jesú.
I samanburði við munnmæla-
geymd Jesú, sem varðveitt er í
Nýja testamentinu og telja verður
að hefjist á sama róttæka boðskapn-
um, þá víkur Tómasarguðspjall
aldrei af þeirri braut eins og loka-
þáttur guðspjallsins, sem dr. Jón af-
markar í rannsókn sinni, sannar.
Sagnageymd Nýja testamentisins
víkur hinsvegar smátt og smátt af
þeirri braut og tekur að umtúlka
spámannahefð Gamla testamentis-
ins í nýju ljósi, sem kirkja hins róm-
verska og austurlenska arfs gerði
að markmiði heimsins.
Dr. Jón Ma. Asgeirsson er sonur
hjónanna Sigríðar heitinnar Jóns-
dóttur húsfreyju, Hjartarsonar
kaupmanns í Reykjavík og Ásgeirs
Magnússonar fyrsta flugvélstjóra
Flugfélags íslands hf., Halldórsson-
ar bónda frá Innri Fagradal í Dala-
sýslu og síðar á Hólmavík. Dr. Jón
og Hrólfur Jónsson slökkviliðsstjóri
í Reykjavík eru bræðrasynir. Dr.
Jón og Benedikt Jónsson sendi-
herra Islands hjá Evrópusamband-
inu og Sigi’ún Jónsdóttir óperu-
söngkona eru systkinabörn í móður-
ætt.
Dr. Jón, sem er guðfræðingur frá
Háskóla Islands, hefur um árabil
starfað sem framkvæmdastjóri
Fornfræðistofnunar Háskólans í
Claremont, en hann býr í borginni
Alta Loma að Heiðlöndum á Gimli.
Þess má geta að lokum, að íslensk
þýðing dr. Jóns á Tómasarguð-
spjalli, er væntanleg á markað á Is-
landi nú í haust.
FRÉTTIR
Á ári hafsins 1998,
nið’r á höfn ...
REYKJAVÍKURHÖFN stendur
fyrir kynningu á hugmyndum sem
bárust í samkeppni Sjávarútvegs-
ráðuneytisins um veggspjald með
textanum: Hafið - líf á okkar
ábyrgð. Þetta var gert í tilefni af
Ári hafsins. Björn Jónsson grafísk-
ur hönnuður sigraði í samkeppn-
inni.
Kynningin sem er í tjaldi á
Fræðslutorginu á Miðbakka verður
opin frá kl. 13-19 alla daga til 27.
júlí. I tjaldinu verður hægt að
spreyta sig á að þekkja helstu nytja-
fiska okkar eftir stuttri lýsingu.
Um helgina sýnir Fiskkaup h/f
saltfiskverkandi einnig framleiðslu
sína í tjaldinu en fyrii’tækið vinnur
ýmsar aukaafurðir til neyslu úr því
sem fer venjulega í fiski-
mjölvinnslu eða er fleygt. Verðlaunaspjaldið.
Morgunblaðið/Sig. Fannar.
ÁRNI brýnir ljáinn.
Sveitahátíð
að hætti Texasbúa
og Flóamanna
Selfossi. Morgunblaðið.
Á SUNNUDAGINN verður slegið
upp á Selfossi, sveitahátíð að hætti
Texasbúa og Flóamanna. Hátíðin er
haldin í samvinnu við Sumar á Sel-
fossi, sem er félagsskapur verslun-
areigenda og hagsmunaaðila á
svæðinu um aukna afþreyingu og
sumargleði á Selfossi.
Sveitahátíðin hefst kl. 14:00, en
þá verður sýndur leikþátturinn
Kirkjuferðin sem er ærslaleikur frá
öldinni sem leið. Þá verður einnig
haldið íslandsmeistaramót í slætti
þar sem miklar kempur bregða
ljám í grænan svörð. Fyrstu verð-
laun eru Eylandsljárinn, verðlauna-
gripur gefinn af Gunnari í Horninu.
Á svæðinu verða kaupamenn og
kaupakonur að raka, snúa og binda
á hesta og eru allir hvattir til þess
að koma og taka þátt í heyskapn-
um.
Fegurðarsamkeppni kúa
Hljómsveitin Farmalls spilar
gömlu góðu lögin og félagar úr
harmonikkuunnenda á Selfossi
verða með nikkurnar í flekknum.
Einstök fegurðarsamkeppni fer
einnig fram en þá verður valin feg-
ursta kvíga Suðurlands. Helstu
þættir sem metnir verða eru
geðslag og framkoma, mittis-,
brjósta- og lendarmál, hæð til hnés
og göngulag. Vegleg verðlaun eru í
boði fyrir kvíguna sjálfa og eiganda
hennar. Dómari verður Jón Guð-
brandsson, héraðsdýralæknir.
ELVAR Þór Karlsson.
LEIÐRÉTT
Myndir víxluðust
ÞAU leiðu mistök urðu í veiðiþætti í blað-
inu í gær að myndir af ungum veiðimönn-
um víxluðust. Um leið og myndirnar birt-
ast aftur biðst blaðið velvirðingar á þessum
mistökum.
ELVAR Örn Friðriksson.
Opið hús í sum-
arbúðum barna
NU ERU sumarbúðir í Reykjavík
fyrir 11 ára krakka. Það eru Alþjóð-
legar sumarbúðir barna - CISV á
Islandi - sem reka þessar búðir, en í
þeim eru börn og unglingar frá
Bandaríkjunum, Brasilíu, Bret-
landi, Danmörku, Frakklandi,
Færeyjum, Hollandi, íslandi, Ítalíu,
Japan, Lúxemborg, Mexíkó, Nor-
egi, Svíþjóð og Þýskalandi.
Búðirnar eru í Klébergsskóla á
Kjalarnesi og verður opið hús
sunnudaginn 19. júlí frá kl. 15-18.
Þá munu börnin koma fram í þjóð-
búningum, dansa, syngja og farið
verður í leiki. Einnig verða kaffi-
veitingar.
CISV eru alþjóðleg friðarsamtök,
óháð stjórnmálum, trúarbrögðum
eða kynþáttum. Dr. Doris T. Allen,
bandarískur bamasálfræðingur,
stofnaði CISV árið 1951, en hug-
mynd hennar var sú að börn frá
ólíkum löndum kæmu saman og
lærðu að lifa í sátt á grundvelli um-
burðarlyndis og jafnréttis, lærðu að
hugsa og draga ályktanir í anda al-
þjóðavitundar og vinna þannig að
friði í heiminum.
Ár hvert sendi CISV á íslandi
böm, unglinga og fullorðið fólk víðs
vegar um heiminn til þátttöku i hinni
fjölbreyttu starfsemi sem CISV
stendur fyrir á alþjóðavettvangi.
----------------
Shellstöðin á
Kúpavogshálsi
flyst í Smára-
hverfi
SKELJUNGUR hf. hefur nú lokað
Shellstöðinni á Kópavogshálsi.
Akvörðunin vai- tekin af Skeljungi hf -
til að auðvelda bænum að Ijúka end-
anlegum frágangi við hina nýju
Menningarmiðstöð bæjarins. Shell-
stöðinni á Kópavogshálsi var lokað
10.júlí s.l.
I samvinnu við Kópavogsbæ var
ákveðið að flytja stöðina í Smára-
hverfi Kópavogs og var Shellstöðin
við Fífuhvammsveg opnuð föstudag-
inn 17. júlí s.l. Áætlað er að opna Sel-
ect hraðverslun í Smárahverfinu á
næsta ári, en þangað til verður
Shellstöðin í bráðabirgðahúsnæði.
------♦♦-♦------
Okeypis kynn-
ing’arnámskeið í
hugleiðslu
KYNNINGARNÁMSKEIÐ í hug-
leiðslu á vegum Sri Chinmoy-mið-
stöðvarinnar verða haldin í dag og á
morgun 18. og 19. júlí. Á námskeið-
unum eru undirstöðuatriði einbeit-
ingar og hugleiðslu útskýrð og lýst
hver áhrif hugleiðslunnar eru.
I framhaldi af kynningarnám-
skeiðunum er boðið upp á fjögurra
vikna ókeypis framhaldsnámskeið
þar sem farið verður ítarlegar í
grunnatriði hugleiðslunnar, yoga-
heimspeki, hlutverk andlegra meist-
ara svo fátt eitt sé nefnt.
Á námskeiðunum verða til sölu
bækur tengdar efni námskeiðanna
og tónlist til hugleiðsluiðkunar.
Námskeiðin fara fram í Sri Chin-
moy-miðstöðinni, Skúlagötu 61b, 105
Reykjavík. Nemendur Sri Chinmoy
eru leiðbeinendur á námskeiðunum.
Þau eru haldin laugardags- og
sunnudagseftirmiðdag kl. 14-16.
Tekið skal fram að það nægir að
koma á annað þessara námskeiða.
------♦♦-♦------
Sýning í
Gallerí Geysi
SMASH og Gallerí Geysir kynna
sýningu á hjólabrettalist í Gallerí
Geysi, Hinu Húsinu við Ingólfstorg í
dag laugardag kl. 16-18.
D.J. verður á staðnum og léttar
veitingar í boði.
Sýningin stendur til 2. ágúst og er
opin alla virka daga frá kl. 8-19.