Morgunblaðið - 18.07.1998, Side 45
LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 1998 45
I
MORGUNBLAÐIÐ
gns
erum við“
TOIVLIST
Goisladiskur
GREASE
Lög úr söngleiknum Grease sem
fluttur er í Borgarleikhúsinu nú
um stundir. Flytjendur eru fjöl-
margir söngvarar, þeirra helstir
Rúnar Freyr Gíslason, Selma
Björnsdóttir, Baldur Trausti
Hreinsson, Vilhjálmur Goði og Jó-
hanna Vigdís Arnardóttir. Hljóð-
færaleikarar eru Jón Ólafsson,
Halldór Þorsteinsson, Ólafur Hólm
Einarsson, Stefán Hjörleifsson,
Guðmundur Pétursson, Óskar
Guðjónsson og fleiri. 38,50 mín.
Skífan gefur út.
SUMARIÐ er orðið helsti vett-
vangur fyrir áhætturekstur á Is-
landi; það er á sumrin sem menn
hætta flestu til þess að eiga söng-
leikinn sem slær í gegn líkt og
Hárið á sínum tíma. Grease gengur
aftur af því tilefni og ekki nema
gott eitt um það að segja; umstang-
ið í kringum verkið er gott útaf fyr-
ir sig.
Margir minnast og Grease-æð-
isins, sumir með velþóknum og
hlýju en aðrir með óhug og hryll-
ingi. Hryllingurinn er líklega
vegna ofmettunar á sínum tíma,
því lög úr frægri mynd sem byggð
var á verkinu glumdu um allt og
þau John Travolta og Olivia
Newton John urðu menning-
arminjar áttunda áratugarins sem
ekki verður litið framhjá þegar
áratugurinn er metinn. Tónlistin í
verkinu var og er samsuða af
rokktónlist, sem búið var að dauð-
hreinsa af allri spennu og lífi og
söngleikjasulli, og inntak myndar-
innar þótti mörgum óviðkunnan-
legt; það var ekki fyrr en Sandy
breyttist úr siðprúðri stúlku í hálf-
gerða vændiskonu, lagaði sig að
óskum karlasamfélagsins, að mál-
unum var reddað.
Eins og getið er er tónlistin í
Grease dauðhreinsað vagg og velta
sem hljómsveitin endurskapar eft-
ir megni undir styrkri stjórn Jóns
Ólafssonar á plötunni sem hér er
gerð að umtalsefni. Það tekst og
bærilega, því miður, því fyrir vikið
er yfírbragð plötunnar alltof slétt
og fellt og uppreisnarunglingarnir
sem trylltust af frumskógartaktin-
um á sínum tíma enn ótrúverðugri
anno 1998. Var ekki á bætandi.
Víða er þó vel að verki staðið, til að
mynda í laginu Sandy, að frátöldu
sérkennilegu slagverki, en innblás-
inn gítarleikur í því lagi og streng-
ir fallast mjúklega í faðma. Einnig
er vel að verki staðið í Yktri eld-
ingu, sem hefði orðið enn betra
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
BRUCE Willis og Liv Tyler á Kvikmyndahátíðinni í Cannes.
Liv Tyler ekki ábyrg
fyrir skilnaðinum
SKILNAÐUR Bruce Willis og
Demi Moore hefur leitt til enda-
lausra vangaveltna gulu pressun-
ar um það hvað hafi ráðið úrslit-
um. Sum þeirra hafa komist að
þeirri niðurstöðu að hann hafi
ekki verið allur þar sem hann
var séður í ástarmálum og
National Enquirer er engin und-
antekning.
I vikunni var forsíðumynd af
parinu ásamt mótleikkonu
Bruce Willis í Armageddon, Liv
Tyler. Fyrirsögnin var
„Þokkadísin sem kom upp á
milli Bruce & Demi“. Móðir Liv
Tyler er æf yfír fréttaflutningn-
um og segir að hann sé „fárán-
legur. Þetta er svo ósanngjarnt
gagnvart Liv og kærasta hennar
til þriggja ára, Joaquin Phoenix.
Þetta er líka ósanngjarnt gagn-
vart Bruce.“
Hún fullyrðir að ekkert sé
hæft í fréttinni og að Bruce hafi
tekið tillit til þess að Liv væri í
sambandi við Joaquin. „Ég held
að hann hafí hvort eð er engan
áhuga á að draga krakka á tál-
ar,“ bætir hún við. „Þar að auki
var faðir Liv [Steven Tyler,
söngvari Aerosmith] viðstaddur
frumsýninguna og hann hefði
lumbrað á Bruce ef einhverjar
grunsemdir hefðu vaknað hjá
honum.“
FÓLK í FRÉTTUM
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
„SELMA Björnsdóttir er stjarna plötunnar ef ekki sýningarinnar,“ segir í dómi Arna Matthíassonar.
með píanóið framar í hljóðblöndun.
Góðir sprettir eru í Eg ætla að
næla í þig. Öllu síðri eru lög eins
og Sumarnóttin fræga þar sem
kórinn er að drepast úr leiðindum
yfír frásögninni. Vonandi er hann
spenntari á sviðinu. Förum í fjörið
hljómar líka frekar sem vögguvísa
en baráttusöngur skemmtana-
sjúkra bældra ungmenna og kór-
inn spillir einnig Eg ætla að næla í
Þig-
Einsöngvarar standa sig yfirleitt
vel, sérstaklega Selma Bjömsdótt-
ir sem er stjama plötunnar ef ekki
sýningarinnar, en aðrir eru líka
góðir, þó Vilhjálmur Goði sé mis-
tækur, til að mynda er hann til
skiptis bráðgóður og afleitur í
Heillandi hljómum.
Það er mikið vandaverk að þýða
annað eins verk og Grease, en Vet-
urliði Guðnason kemst framúrskar-
andi vel frá verkinu. Hann lendir
reyndar í erfiðleikum með hluti
eins og hand-jive, sem hefði
kannski mátt kalla eitthvað annað.
Það kemur og óneitanlega sér-
kennilega fyrir að heyra sungið af
móð „grís á sér stað, á sér stund, á
sér tísku, grís erum við...“ þótt
annað komi í ljós þegar rýnt er í
textablað. Einnnig fínnst mér hann
draga nokkuð úr örvæntingunni í
þýðingunni á Hopelessly Devoted
to You, enda er öllu meinlausara að
emja: „mín von og þrá er ástin til
þín“.
Umslag plötunnar er vel heppn-
að og hönnun og frágangur til fyr-
irmyndar.
Árni Matthíasson
n eru nær en þig grunan
Njóttu lífsins og fáðu þér
það sem þig Uingar í.
^VOKIN f^
I tilefni affrumsýningu
stórmyndarinnar
ARMAGEDDON
í Sambíóunum
ætlum við að bjóða
uppá MEGA MAC,
fjórfaldan Mega
hamborgara
sem þú hefur aldrei
séð áður.
El |iú kaupir IVIEGA IVIAC liainborgarann og
framvísar Gjalaitiiða Irá Sambfóunum áltu
möguleika á að eignasl ARMAGEDDON bol
eða liútu. eða ARMAGEDDON geisladisk
á meðan hirgðir endast.
McDonalds
„Vökum ul lisl"
# Munið Menningarnótt 22. ágúst 1998
l