Morgunblaðið - 18.07.1998, Blaðsíða 52
Windows 98
W
www.ejs.is
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Morgunblaðið/Auðunn
SKIPVERJAR á Antares hafa búið um slasaðan félaga sinn á sjúkrabörum og allt er klárt til hífingar.
TF-LIF flaug 570 milur eftir slösuðum sjómanni á loðnumiðunum
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF,
sótti slasaðan sjómann um borð í nótaskipið
Antares frá Vestmannaeyjum í gær, þar
sem það var á loðnuveiðum 145 sjómflur
norðnorðvestur af Horni.
Líðan mannsins er eftir atvikum góð en
hann hlaut alvarlega höfuð- og brjósthols-
- — áverka, að sögn Þórarins Guðmundssonar,
læknis á vakt á skurðdeild Sjúkrahúss
Eitt lengsta
sjúkraflugið
Reykjavíkur. Maðurinn var með hjálm á
höfði við vinnu sína þegar slysið varð og
telur Þórarinn að hjálmurinn hafí gert
gæfumuninn.
Þetta sjúkraflug er með þeim lengri sem
Landhelgisgæslumenn hafa farið í, eða alls
um 570 mflur, að sögn Auðuns Kristinsson-
ar, sigmanns og stýrimanns. Lagt var af
stað frá Reykjavík kl. 12.34 og lent við
Sjúkrahús Reykjavíkur kl. 18.34 og gekk
flugið mjög vel.
Myndir tekn-
ar af 600 við
hraðakstur
SÉRÚTBÚIN bifreið ríkislögreglu-
stjóraembættisins sem notar
myndavél til þess að sanna
hraðakstur hefur verið notuð gegn
600 grunuðum lögbrjótum síðastlið-
inn mánuð.
Guðmundur H. Jónsson, aðstoðar-
yfírlögregluþjónn hjá ríkislögreglu-
stjóra, segir að auk þessa hafi ófáir
ökumenn verið kærðir fyrir
hraðakstur við venjulegar hraða-
mælingar lögreglunnar.
Auk 600 hraðakstursmála hefur
áhöfn sérútbúna bílsins haft afskipti
af 27 ökumönnum vegna gruns um
ölvun við akstur. 18 þeirra voru
sviptir ökuleyfi samstundis en 9
reyndust hafa áfengismagn undir
leyfilegum mörkum í blóðinu og
fengu þeir allir vitneskju um stöðu
málsins samstundis.
■ Sérútbúin bifreið/4
--------------
Rúta bilaði
á leið tír
Lakagígum
HOPUR Litháa sem er á ferðalagi
um ísland lenti í því óhappi á leið úr
Lakagígum að rútan, sem hópurinn
ferðast í, bilaði og lokaði veginum
um tíma. Hópurinn hafði engin fjar-
skiptatæki en svo vel vildi til að veg-
farandi sem átti leið hjá var með
síma og kallaði á lögreglu að ósk
hópsins.
Þegar lögreglumenn komu á stað-
inn hafði ferðalöngunum tekist sjálf-
um að gera við bílinn og sagði lög-
reglan á Kirkjubæjarklaustri líklegt
að steinn hefði valdið skemmd á ol-
íupönnu. Hópurinn, sem ferðast á
mjög gamalli nítu, frá sjöunda ára-
tugnum eða þar um bil, hugðist aka
á næsta verkstæði og láta líta á grip-
inn áður en lengra yrði haldið. Ekki
þótti búnaður ökutækisins eða
ferðalanganna henta til fjallaferða.
Hörð samkeppni á matvörumarkaðnum
Matarliður vísitölu
lækkar um 2,2%
BÓNUS heldur sæti sínu og er
ódýrust matvöruverslana í verð-
könnun ASÍ, BSRB og Neytenda-
" '■samtakanna frá því 8. júlí sl. A
hæla Bónusi koma KEA Nettó á
Akureyri, 10-11 og Hagkaup.
Mesta verðlækkunin varð í tveimur
síðartöldu verslununum. Lækkunin
hefur haft áhrif á verð í öðrum
verslunum og valdið því að matar-
liður framfærsluvísitölunnar hefur
jdækkað um 2,2%.
Ef miðað er við að matarkarfa
kosti 10.000 kr. á landsvísu kostar
sama karfa 7.400 í Bónus, 8.300 kr.
í KEA Nettó, 8.700 í 10-11 og 8.900
í Hagkaup. Sama karfa myndi
kosta 10.200 í Nóatúni og Nýkaup.
Dýrust myndi karfan verða í KEA
í Hrísey eða 11.600 kr. Könnunin
náði til 8 matvöruverslana á höfuð-
borgarsvæðinu, 11 verslana á
Eyjafjarðarsvæðinu og 2 á ísa-
firði.
■ Mesta lækkunin/19
Tekið fyrir imlflutning, ódýrrar merkjavöru til ESB
Dómstólar ESB og
EFTA ósammála
EVRÓPUDÓMSTÓLLINN kvað
upp þann dóm síðastliðinn fimmtudag
að eigandi þekkts vörumerkis gæti
komið í veg íyrir að varan væri keypt
á niðursettu verði utan Evrópusam-
bandsins og flutt inn á hinn sameigin-
lega markað. EFTA-dómstóllinn hafði
með dómi í desember síðastliðnum
skýrt sömu tilskipun Evrópusam-
bandsins á þveröfugan hátt. Búast má
við samningaviðræðum ESB og
EFTA til að leysa úr þeim vanda, sem
þannig er upp kominn, en gert er ráð
fyrir að sömu reglur verði að gilda á
öllu Evrópska efnahagssvæðinu.
Fyrirtæki sem framleiða þekkta
merkjavöru hafa viljað standa vörð
um þann rétt sinn að verðleggja
hana eftir kaupgetu markaðarins og
ráða nokkru um í hvers konar versl-
unum hún er seld. Þannig gerðist
það að Silhouette-fyrirtækið sem
framleiðir gleraugu hafði selt stóran
lager af umgjörðum, sem komnar
voru úr tísku, til Búlgaríu. Verslana-
keðja í Austurríki keypti lagerinn og
bauð hann til sölu í samkeppni við
verslanir sem voru á samningi hjá
Silhouette.
I forúrskurði dæmir Evrópudóm-
stóllinn að skýra verði tilskipun
Evrópusambandsins frá 1989 um
vörumerkjarétt á þann veg að aðild-
arríkjunum sé óheimilt að takmarka
rétt eiganda vörumerkis á þann veg
að hann verði að sæta slíkum inn-
flutningi frá utanaðkomandi ríkjum.
Nauðsynlegt sé að sama réttará-
stand sé í öllum aðildarríkjunum, og
þá á þá lund að binda lok vöru-
merkjaverndar við það að vara sé
komin á markað í sáttmálaríki. I úr-
skurðinum nefnir dómstóllinn sér-
staklega að réttarvernd vörumerkis
fjari út um leið og varan sé komin
inn á Evrópska efnahagssvæðið.
Getur hækkað vöruverð
Forsvarsmenn neytenda hafa
gagnrýnt dóminn mjög og segja að
hann komi í veg fyrir lækkun vöru-
verðs á tísku- og merkjavöru, en
stórmarkaðir, m.a. hér á landi, hafa
margir keypt vöruna beint frá
Bandaríkjunum og Asíu framhjá um-
boðsmannakerfi framleiðenda. Leif
Pagrotsky, viðskiptaráðherra Sví-
þjóðai', harmar þessa niðurstöðu í
samtali við Svenska Dagbladet í gær
og segir hana munu hafa neikvæð
áhrif á verðlag í landinu.
EFTA-dómstóllinn dæmdi í hlið-
stæðu máli er varðaði norskt fyrir-
tæki, 3. desember síðastliðinn, áður
en Evrópudómstóllinn hafði tekið af
skarið. Komst hann þá að þveröfugri
niðurstöðu og vísaði til þess að þegar
viðkomandi tilskipun var tekin upp í
EES-samninginn mátti ekki ráða af
dómaframkvæmd Evrópudómstóls-
ins að óheimilt væri að hafa í innan-
landsrétti svokallaða reglu um al-
þjóðlega tæmingu vörumerkjaréttar.
Slík regla væri auk þess í þágu neyt-
enda þar sem hún stuðlaði að frjálsu
vöruflæði um allan heim og sam-
keppni. Henni yrði ekki breytt nema
með ákvörðun löggjafans eða dóm-
stóla í EFTA-ríkjunum.
■ Hag neytenda/11