Morgunblaðið - 13.08.1998, Page 4
4 FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1998
MORGUNB LAÐIÐ
FRÉTTIR
Þorsteinn Pálsson gagnrýnir ummæli
um þátt fslendinga í NAMMCO
Segir Fiskaren
reisa gagnrýni á
sleggjudómum
STEINAR Andersen, fræðimaður
við stofnun Fridtjof Hansen-stofn-
unina í Noregi, segir í viðtali við
norska blaðið Fiskaren að Island sé
í dag helsta hindrun þess að hval-
veiðar í atvinnuskyni geti hafist að
nýju. Hann segir Islendinga skorta
pólitískan kjark til að hefja hvalveið-
ar. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra vísaði þessum fullyrðing-
um á bug í gær.
ísland átti frumkvæðið að stofnun
N orður-Atlantshafssj ávarspendýr a-
ráðsins, NAMMCO, árið 1992 og
segir Andersen að síðan þá hafi ver-
ið stofnaðar ótal nefndir til að fjalla
um hvalveiðar en þær hafi ekki skil-
að neinum árangri. Andersen sagði
á alþjóðlegri hafréttarráðstefnu,
sem haldin var í Ósló, það vera
vandkvæðum háð að taka upp hval-
veiðar í atvinnuskyni á ný í ljósi al-
þjólegu samninganna um hafréttar-
mál og viðskipti með afurðir dýra í
útrýmingarhættu. Hann sagði Is-
lendinga því óttast pólitískar og
efnahagslegar afleiðingar þess að
taka upp hvalveiðar að nýju.
Andersen telur stöðu íslands
ólíka stöðu Norðmanna þar sem ís-
lendingar hafi ekki mótmælt hval-
veiðibanninu sem sett var á 1982 og
síðar sagt sig úr Alþjóða hvalveiði-
ráðinu. Islendingar taki auk þess
mark á hótunum Bandaríkjamanna
og Grænfriðunga. Hann á von á að
Bandaríkjamenn grípi til einhverra
aðgerða gagnvart Norðmönnum
auki þeir hvalveiðar sínar.
Milliríkjaviðskipti
skilyrði fyrir veiðum
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra telur gagnrýni Andersen á
afstöðu íslendinga í NAMMCO
byggða á miklu þekkingarleysi þar
sem það séu Norðmenn sem hafi
verið dragbítar á að NAMMCO sam-
þykkti að stjóma hvalveiðum. Þor-
steinn segir Islendinga hafa knúið á
að NAMMCO útvíkkaði sitt verk-
svið, miðað hafi hægt og bítandi í þá
átt en engar beinai- stjórnunará-
kvarðanir hafi verið teknar og það sé
fyrst og fremst vegna þess að Norð-
menn hafi staðið í vegi fyrir því.
Þorsteinn segir einnig að líta
þurfi til ólíkra aðstæðna Islendinga
og Norðmanna, þar sem þeir hafi
mótmælt hvalveiðibanninu og séu
óbundnir af því en íslendingar hafi
mun lakari þjóðréttarlega stöðu þar
sem þeir mótmæltu því ekki. „Norð-
menn hafa síðan all verulegan
heimamarkað og olíupening til að
fjármagna veiðar án þess að um
milliríkjaviðskipti á afurðunum sé að
ræða. Við gætum ekki hafið veiðar
öðruvísi en að milliríkjaviðskipti
væru opin,“ sagði Þorsteinn Pálsson
í samtali við Morgunblaðið. Hann
segir að horft hafi verið til þess að af
Norðmenn væru tilbúnir til að flytja
hingað hvalafurðir þá gæti það brot-
ið ísinn í þessum efnum, íslendingar
hafi lýst sig reiðubúna til að kaupa
af þeim hvalafurðir en norska
stjómin hafi hafnað því þrátt fyrir
áskoranir norskra hvalveiðimanna.
„Staðhæfingar Andersen eru því
miður sleggjudómar,“ segir Þor-
steinn.
Hvalaskoðun arðbærari
en hvalveiðar
I Fiskaren er einnig rætt við Ket-
il Sigurjónsson sem tók þátt í fyrr-
nefndri hafréttarráðstefnu. Hann
segir að andstaða við hvalveiðar hafi
aukist á meðal íslendinga síðustu ár
þar sem vinsældir hvalaskoðunar-
ferða hafi aukist gríðarlega. Hvala-
skoðun sé orðin arðbær atvinnu-
grein og skili meiri teljum í ríkis-
kassann en hvalveiðar. Ketill segir
einnig ljóst að hefji íslendingar
hvalveiðar á ný megi búast við hörð-
um aðgerðum af hálfu Bandaríkja-
manna en þær myndu brjóta í bága
við alþjóðlega viðskiptasamninga
um Alþjóðaviðskiptastofnunina,
WTO.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjömsson
Pramminn reyndist
lyftaranum ofviða
ísafjörður. Morgunblaðið.
ÓHLAPP varð þegar lyftari frá
Básafelli á Isafirði átti að hifa
málningarpramma upp úr sjó við
höfnina í gær. Pramminn reynd-
ist þyngri en afturendi lyftarans,
sem steyptist fram fyrir sig, en
stöðvaðist með óskiljanlegum
hætti við bryggjukantinn. Bíl-
stjórann, Gfsla Skarphéðinsson,
sakaði ekki. Þegar Gfsla var skip-
að að drífa sig út úr lyftaranum
áður en hann færi í höfnina brást
hann hinn rólegasti við og sagðist
ætla að drepa á honum fyrst.
Hannes Hlífar sigr-
aði á skákmóti
Gerir
mikið fyr-
ir sjálfs-
traustið
HANNES Hlífar Stefánsson
stóð einn uppi sem sigurvegari
á sterku skákmóti sem lauk á
sunnudaginn
í Antwerpen í
Belgíu. Alls
voru 120
keppendur í
A flokki og
voru 16 stór-
meistarar
þar á meðal.
Að sögn
Hannesar
gekk mótið
vonum fram-
ar og spiluðu þar inn í góðar
aðstæður á keppnisstað.
„Það var rosalega gaman að
vinna þetta mót og þetta gerir
mikið fyrir sjálfstraustið. Þá
kemur þetta stigalega mjög vel
út og gefur mér byr undir báða
vængi,“ sagði Hannes í samtali
við Morgunblaðið í gær. Að-
spurður segir hann að erfiðasta
skákin hafi verið við ísraels-
manninn Boris Avrukh en eftir
sigurinn á honum gerði hann
sér grein fyrir að hann gæti
sigrað á mótinu.
Var ekki boðið
Sigurlaunin fyrir þetta mót
voru 200.000 belgískir frankar
eða um 370.000 íslenskar krón-
ur en frá dregst ferðakostnað-
ur, mótsgjald og uppihald sem
Hannes greiðir sjálfur þar sem
hann var ekki meðal þeirra 10
sem boðið var til mótsins.
„Ég og Helgi Ólafsson tók-
um ákveðna áhættu með því að
fara á þetta mót og fá engin
verðlaun en margir aðrir fá all-
an sinn kostnað greiddan.
Þetta gekk núna upp hjá mér
en slíkt er að sjáfsögðu ekki
gefið í atvinnumennsku í skák.
Hins vegar er ég núna öruggur
um að verða boðið næsta ár,“
sagði Hannes að lokum.
Hannes Hlífar
Stefánsson
Lög, sem sett voru á Alþingi um breytingu á bifreiða- og vörug;jaldi í vor, gagnrýnd
Líklegt að mestu
hækkanirnar verði
endurskoðaðar
✓
Oánægja ríkir vegna hækkunar, sem Alþingi ákvað á
bifreiðagjöldum í vor. í ákveðnum tilvikum getur hún
numið rúmlega 500%. Gunnlaugur M. Sigmundsson al-
þingismaður, sem situr í efnahags- og viðskiptanefnd
og vann að lagasetningunni, sagði í gær að ekki væri
litið á hana sem endanlega lausn.
NY LÖG um bifreiðagjald, sem samþykkt
voru frá Alþingi í vor, fela í sér hækkun bif-
reiðagjalds og lækkun vörugjalds. Bifreiða-
gjaldið var hækkað til að mæta tekjutapi
vegna helmingslækkunar vörugjalds.
Samkvæmt nýju lögunum hefur hámarks-
bifreiðagjald verið afnumið, en áður var há-
marksgjaldið 26.750 krónur, sem greitt var
tvisvar á ári. Fer nú bifreiðagjaldið eftir eig-
inþyngd bifreiðar og nemur hækkunin á sjötta
hundrað prósenta ef dæmi er tekið af 71 tonns
krana. Pétur Jóhannsson hjá GP-krönum í
Reykjavík greiddi 26.750 krónur í bifreiða-
gjald af hverjum krana sínum fyrir tímabilið
1. janúar til 30. júní og nú hljóða reikningar
frá Tollstjóra fyrir tímabilið 1. júlí - 31. des-
ember upp á 163.180 krónur fyrir 71 tonns
kranann.
„Fyrir 46 tonna krana er bifreiðagjaldið
111.180 krónur og fyrir 37 tonna krana er það
95.180 krónur,“ segir hann. Hann segir að
vörugjaldslækkunin komi ekki nægilega til
móts við hækkun bifreiðagjalds og rökstyður
þá staðhæfingu með eftirfarandi dæmi:
„Vörugjaldið af 11 milljóna króna krana í inn-
kaupi lækkar úr 1.650 þúsund krónum í 825
þúsund krónur. Mismunur á bifreiðagjaldi
fyrir og eftir breytingar nemur 148 þúsund
krónum eiganda kranans í óhag og sé þeirri
tölu deilt með 825 þúsundunum fæst sú niður-
staða, að eftir fimm og hálft ár borgi sig að
endumýja kranann til að lækkun vörugjalds-
ins jafni út hækkun bifreiðagjaldsins. Ending-
artími krana er að lágmarki hinsvegar um
tuttugu ár þannig að það verður ekki annað
séð en að bifreiðagjaldið sem greitt yrði eftir
fimm og hálft ár væri óbeinn skattur."
Það sem Pétri svíður þó mest er að bifreiða-
gjaldið hækkar einnig á átta krönum hans,
sem hann hefur þegar greitt 15% vörugjald
af. „Ég er heldur ekki sáttur við þessa aftur-
virkni laganna sem ég túlka ekki með neinum
öðrum hætti en skattlagningu."
Ekki endanleg lausn
Að sögn Gunnlaugs M. Sigmundssonar al-
þingismanns, sem situr í efnahags- og við-
skdptanefnd og vann að lagasetningunni er
hún ekki endanleg lausn, enda segist hann
vera þeirrar skoðunar að afnema eigi vöru-
gjaldið að fullu og helmingslækkunin nú sé
áfangi á þeirri braut. Hann segir að þegar lög-
in voru í smíðum hafi aldrei komið til greina
að hafa tvöfalt kerfi, á þann veg að þeir sem
hefðu fjárfest í bifreið fyrir gildistöku nýju
laganna og greitt hefðu 15% vörugjald, gætu
áfram greitt bifreiðagjöld undir 26.750 króna
þaki, en hinir, sem fjárfest hefðu á gildistíma
nýju laganna, notið lækkunar vörugjaldsins
og hækkunar bifreiðagjalds. „Þetta er áfangi
á þeirri leið að afnema opinber gjöld önnur en
virðisaukaskatt við innflutning á vinnutækj-
um. Menn hafa verið sammála um að það
verði ekki gert í einu stökki.“ Gunnlaugur
segir að fjöldi hagsmunaaðila hafi fylgst með
vinnu nefndarmanna og reki hann ekld minni
til þess að neinn hafi sérstaklega minnst á
þyngstu kranana, sem munu vera um áttatíu
talsins. „Þegar við unnum að málinu í vor vor-
um við allir þess meðvitaðir að það væri allt
eins líklegt að við þyrftum að taka málið aftur
upp á vetrarþinginu og það var rætt í nefnd-
inni að til þess myndi koma,“ segir Gunnlaug-
ur.
Undirbúa aðgerðir
Landssamband vörubifreiðastjóra undirbýr
nú aðgerðir vegna laganna og segir Unnur
Sverrisdóttir framkvæmdastjóri, að hækkun-
in sé á milli 100-160% á bifreiðagjaldi félags-
manna á 12,5 til 25 tonna vorubifreiðum og
jafnar hækkuninni við skattlagningu. „Þessi
hækkun er ekki í neinu samræmi við skatt-
lagningu á aðrar atvinnugreinar og við mun-
um mótmæla þessu harkalega strax og þing
kemur saman að nýju,“ segir Unnur. Hún seg-
ir að þótt vörugjald lækki úr 15% i 7,5% komi
það ekki til með að nýtast bifreiðastjórum
sem stunda atvinnurekstur, heldur þeim sem
fjárfesta í nýrri vörubifreið. „Þeir eru fáir sem
hafa ráð á því innan okkar vébanda og að
mínu mati er það rangt að tengja saman vöru-
gjald og bifreiðagjald," segir Unnur.
Einangrað fyrirbæri
í huga Árna Jóhannssonar hjá Samtökum
iðnaðarins er hin mikla hækkun bifreiðagjalds
á þyngstu krönunum einangrað fyrirbæri,
sem sátt muni vonandi nást um án mikillar
fyrirhafnar. „Ég lít svo á að mistök hafi átt
sér stað þegar ekki var gert ráð fyrir viðun-
andi útkomu fyrir eigendur þyngstu kran-
anna,“ segir Ánii. „Þeir þyngstu, sem vega
70-80 tonn og eru á fimmta tuginn lenda illa í
þessu, en lagasetningin er að öðru leyti fagn-
aðarefni fyrir eigendur léttari bifreiða því hún
gerir þeim betur kleift að endurnýja tækja-
kost sinn.“