Morgunblaðið - 13.08.1998, Qupperneq 6
6 FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
eríins betvjimtesfer Arat mi
jívirAtitosohneKot
Urtoubsírarro j
uberk'anc !
Berlins beriihmfestei
I punktur )mit2Söhner
'i ;,| abgestiirz
Morgunblaðið/Þorkell
FLUGKORT úr vélinni liggur fremst en fyrir aftan liggrur flakið í brattri skriðu í gili. í baksýn grillir í klettavegg sem snýr í vestur.
Vettvangsrannsókn rannsóknarnefndar flugslysa lokið
Lík mannanna þriggja
flutt af slysstað í gær
VETTVANGSRANNSÓKN rann-
sóknarnefndar flugslysa á slysstað
flugslyssins á Vesturhorni fór fram í
gær. Er vettvangsrannsókn var lok-
ið, upp úr hádegi, var hafíst handa
við að flytja Iík mannanna þriggja til
Hafnar, en því lauk klukkan hálfsex í
gær. Að sögn lögreglu á Höfn var
það vandasamt verk, enda aðstæður
erfíðar. Það voru fjórtán meðlimir
Flugbjörgunarsveitarinnar sem báru
líkin niður, eitt í einu, þannig að
þfíjár ferðir þurfti til að koma þeim
niður. Ekið var með líkin til Reykja-
víkur í gærkvöldi og sá Björgunarfé-
lag Hornafjarðar um flutninginn.
Hópurinn sem fór á slysstað í gær
lagði af stað í bítið i gærmorgun.
Auk Skúla Jóns Sigurðssonar og
Steinai’s Steinarssonar frá rann-
sóknarnefnd flugslysa fóru á slys-
stað Haraldur Árnason og Sven
Richter frá kennslanefnd Ríkislög-
reglustjóra. Þeim til aðstoðar voru
meðlimir úr Flugbjörgunarsveitinni
og lögreglumenn frá Höfn.
Flugu beint á klettavegginn
Skúli Jón sagði í samtali við Morg-
unblaðið að Ijóst sé að flugvélih hafi
flogið nánast beint inn í lóðréttan
klettavegginn, sem er hátt í 200 m, í
Vesturhorni, töluvert fyrir neðan
brúnina. Við það hafi vélin splundr-
ast, kviknað í henni og hún fallið nicb
ur í gil og skriðu og brunnið þar. í
brunnu flakinu voru lík mannanna
þriggja sem í henni voru og segir
Skúli ekki leika vafa á að mennirnir
hafi látist samstundis, líklegt sé að
þeir hafi aldrei séð þennan klettavegg
þar sem hann var hulinn skýjum.
Að sögn Skúla er næsta skref að
halda áfram gagnasöfnun, hér og er-
lendis. „Það líður nokkuð langur tími
þar til við látum eitthvað frá okkur
fara um þetta mál.“
Kennslanefnd hóf störf á slysstað í
gær, en að sögn Gísla Pálssonar, for-
manns nefndarinnar, er stefnt á að
ljúka störfum hennar í dag eða á
morgun í Reykjavík. „Vinnan byrjaði
á vettvangi að svo miklu leyti sem
það var hægt, en aðstæður á slysstað
voru slæmar." Kennslanefnd ber
kennsl á látna menn sem farast t.d.
af slysförum, ef ekki er hægt að gera
það eftir venjubundnum leiðum.
Að sögn Eddu Símonardóttur
staðgengils sýslumannsins á Höfn
verður flakið fjarlægt þegar aðstæð-
ur leyfa.
FRAMDEKK og vængur eru í töluverðri fjarlægð frá flakinu.
Fjallað um
flugslysið
í dagblöð-
um í Berlín
DAGBLÖÐ í Berlín fjölluðu í
gær um flugslysið í Vesturhorni.
Blöðin B.Z. og Bertíner Kurier
segja bæði frá slysinu, leit ís-
lensku björgunarsveitanna að
flakinu og deili á feðgununum,
einkum föður piltanna, læknin-
um Manfred Jaschke.
I blöðunum kemur fram að
Manfred Jaschke hafi verið mjög
þekktur í Berlín sem nála-
stungulæknir og að hann hafi
rekið fyrstu stofu í Berlín sem
sérhæfir sig í kínverskum lækn-
ingum. Jaschke bjó tíu ár í Kína,
nam þar hefðbundnar kín-
verskar lækningar og var einnig
gestapi’ófessor við læknadeild
Pekingháskóla.
Samkvæmt B.Z. lagði Jaschke
stund á guðfræði, heimspeki og
læknisfræði í Tiibingen og
Wiirzburg frá 1978-1982. Þá
vann hann í tvö ár sem læknir á
átakasvæðum í Líbanon. Að því
loknu hélt hann til Kina, en þar
kynntist hann eiginkonu sinni,
Xiu-Rong Sun. Þau áttu, auk
yngri piltsins sem lést í slysinu,
árs gamlan son og býr Xiu-Rong
ásamt honum í Kína. B.Z. segir
eiginkonu Jaschke frænku síð-
asta keisarans í Kina, Pu Yi.
Manfred Jaschke var 46 ára
gamall, eldri sonur hans, Tobias,
20 ára og sá yngri, Georg, 12
ára.
Ársskýrsla rannsóknarnefndar flugslysa sýnir stöðuga fjölgun slysa frá 1993
TÍÐNI dauðaslysa í íslensku einka-
flugi er há og hún er meira en tvö-
falt hærri en tíðnin fyrir öll Norður-
löndin, þ.e.a.s. 7,4 slys á 100.000
flugstundir miðað við 2,9 slys á
Norðurlöndum. Þetta kemur fram í
greininni „Greining flugslysa og al-
varlegara flugatvika í íslensku
flugi,“ sem birt er í ársskýrslu rann-
sóknarnefndar flugslysa fyrir árið
1997 sem kom út í apríl sl. Einnig
segir að úrbóta sé þörf hér á landi í
öllum flokkum flugs, þó að einka-
flug sé mest áberandi.
I greiningunni er m.a. birtur
samanburður á slysatíðni einstakra
þátta íslensks flugs og samsvarandi
flugs á Norðurlöndum í heild tíma-
bilið 1987 til 1996 og er miðað við
tíðni á 100.000 flugstundir. Sam-
kvæmt samanburðinum er slysa-
tíðni í íslensku flugi meiri í öllum
gerðum af flugi nema þjónustuflugi
en undir það fellur t.d. sjúkraflug
Tíðni dauðaslysa
tvöfalt meiri en
á Norðurlöndum
og björgunarflug. Aðrir flokkar eru
kennsluflug, verkflug, einkaflug,
leiguflug og áætlunarflug.
20 slys og alvarleg
atvik 1997
I greininni segir einnig að fjöldi
slysa og alvarlegra atvika í íslensku
flugi hafi vaxið stöðugt frá 1993 og
verið meiri en nokkru sinni áður í
fyrra en þá urðu 20 slys og alvarleg
atvik. Þar af voru 11 í flokki at-
vinnuflugs og eitt dauðaslys í verk-
flugi.
Til alvarlegra atvika teljast atvik
sem fela í sér kringumstæður sem
benda til að legið hafi við flugslysi.
Til slysa teljast atvik þegar loftfar
verður fyrir verulegri skemmd eða
broti, þegar loftfar týnist eða
ómögulegt er að ná til þess eða þeg-
ar einhver lætur lífið eða slasast al-
varlega um borð í loftfari eða vegna
snertingar við hluta loftfars eða
verður fyrir útblæstri þotuhreyfils.
I greininni segir ennfremur að
rannsóknarnefnd og flugslysanefnd
meðan hún var hafi gert margar til-
lögur um úrbætur í flugöryggismál-
um sem flugmálayfirvöldum beri að
taka til formlegrar afgreiðslu, síðan
segir: „Hvað svo sem þeim úrbótum
líður er ljóst að allir sem, hlut eiga
að máli verða að gera betur ef duga
skal til að bæta öryggi í íslensku
flugi.“
Skúli Jón Sigurðsson, formaður
rannsóknamefndar flugslysa, sagði
í samtali við Morgunblaðið að til-
gangur rannsókna nefndarinnar
væri að komast að því hvers vegna
slys eigi sér stað og koma svo með
tillögur til úrbóta til að koma í veg
fyrir sams konar eða svipuð slys.
„Við erum ekki að leita að söku-
dólgi, við leitum úrbóta," segir Skúli
Jón. ,Ársskýi-slunni er dreift víða
til að menn læri af mistökunum."