Morgunblaðið - 13.08.1998, Side 12
12 FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Resurrection Band spilar í Broadway í kvöld
„Höfum fengið köllun
guðs til að hjálpa öðrum“
BANDARÍSKA rokkhljóm-
sveitin Resurrection Band
heldur tónleika á Broadway í
kvöld og annað kvöld og lýkur
Evrópuferð sinni í ár með tón-
leikunum hér. Hljómsveitin er
ekki einungis þekkt fyrir að
spila rokktónlist, heldur vinn-
ur hún mikið líknarstarf innan
hins kristna safnaðar Jesus
People USA í Chicago.
„Reynsla okkar af starfi
með fátækum, heimilislausum,
vændiskonum, börnum í
áhættuhópum og eiturlyfja-
neytendum kemur
skýrt fram í textum
okkar,“ segir Glenn
Kaiser, söngvari, gíta-
leikari og lagasmiður
rokksveitarinnar.
„Enda er annað ekki
hægt því starf sem
þetta hefur mikil áhrif
á mann. En við skiljum
upplifanir þessa fólks
því áður vorum við í
svipaðri aðstöðu. Eg
var á kafi í dópi, seldi
það og bjó nánast á
götunni. En ég var
frelsaður af Jesú,“ seg-
ir Kaiser sem nú er
prestur í söfnuðinum
Jesus People í
Chicago. Hann segir
að hann og aðrir sem
starfi með Jesus
People hafí fengið
köllun til að hjálpa
öðrum og láta gott af
sér leiða.
Taka á móti öllum sem
til þeirra leita
Kaiser segir að höf-
uðstöðvar Jesus People séu í
mjög slæmu hverfi í Chicago
þar sem úi og grúi af fólki frá
öllum þjóðum. Þar séu tvö
gengi sem kljást sín á milli og
þau skapi íbúum hverfisins
mikla hættu. Gistiskýli Jesus
People í Chicago er eitt
þriggja skýla í borginni sem
tekur við einstæðum mæðrum
og bömum þeirra svo sjá má
að söfnuðurinn vinnur gífur-
lega óeigingjarnt starf og tek-
ur á móti öllum sem aðstoð
þurfa. Milli fjögur og fimm
hundrað manns starfa meðal
Jesus People sem er samfélag
sem spratt upp úr kommúnu
hippatímans. Kommúnan hefur
stækkað töluvert, en allir pen-
ingar sem samfélagið vinnur
sér inn eru settir inn á sameig-
inlegan bankareikning sem
síðan er deilt árlega milli allra
í samfélaginu.
Jesus People hefur aðsetur í
tíu hæða háhýsi fyrir starfsemi
sína í Chicago. Söfnuðurinn
stendur m.a. fyrir fimm daga
tónlistarhátíð ár hvert sem
nefnist Cornerstone. Þar treð-
ur fjöldi hljómsveita upp en
markmiðið með hátíðinni er að
sögn Kaisers að koma ungling-
um og afvegaleiddum út úr
borginni, frá ofbeldinu og eit-
urlyQunum.
Eiginkona Glenns Kaisers er
Wendi Kaiser og er hún söng-
kona hljómsveitarinnar. Hljóm-
sveitin hefur starfað frá 1972
og hefur gefið út 19 hljómplöt-
ur og geisladiska. Nýjasti
geisladiskurinn sem þau hafa
gefið út er „órafmagnaður" og
verða tónleikarnir allir með
því móti.
A tónleikaferð
um Evrópu
Hljómsveitin spilar rokktónlist
en sum lögin nálgast að vera
blús, segir Kaiser. Hljómsveit-
in er vel þekkt, sérstaklega
innan hins trúarlega tónlistar-
geira í Bandaríkjunum. I Evr-
ópuferð sinni í ár hafa þau
komið víða við og má nefna
Ítalíu, Þýskaland, Sviss og að
lokum Island.
Ffladelfíu-söfnuðurinn bauð
hljómsveitinni að koma til
landsins og segir Kaiser að
söfnuðirnir tveir séu eins og
„sálufélagar", eins og hann
komst að orði.
Morgunblaðið/Arnaldur
ROKKSVEITIN Resurrection Band, frá vinstri eru Roy Montroy bassaleik-
ari, Stu Heiss gítarleikari, Glenn Kaiser, söngvari og gítarleikari, John
Herrin trommuleikari og Wendi Kaiser, söngkona sveitarinnar.
Sýknudómur í máli vegna kæru á
hendur dyraverði
Ekki vís-
vitandi
líkamsárás
DYRAVÖRÐUR sem kærður var
fyrir líkamsárás í janúar sl. var
sýknaður af ákæru í dómþingi
Héraðsdóms Reykjavíkur 11.
ágúst sl. Málið var höfðað með
ákæru Lögreglustjórans í Reykja-
vík á hendur ákærða fyrir líkams-
árás með því að hafa ýtt harkalega
við kæranda svo hann féll utan í
steinvegg og síðan í götuna svo
kærandi hlaut skurð á hvirfli sem
sauma þurfti saman. Þess var
krafist að ákærði væri dæmdur til
refsingar.
í dómnum eru málsatvik rakin
og kemur þar fram að í janúar sl.
hafí verið tilkynnt um það til lög-
reglunnar í Reykjavík að maður
lægi í götunni við veitingastaðinn
Gauk á Stöng. Lögreglumenn hafi
farið á staðinn og lá kærandi í göt-
unni og blóðpollur við höfuð hans.
Hann var færður á slysadeild og
honum veitt aðhlynning. í vottorði
læknis segir að kærandi hafi verið
ofurölvi við komu á slysadeild og
með skurð í hársverði sem saumað-
ur hafi verið saman með nokkrum
sporum.
Ákærði neitaði sök og dyraverð-
ir vitnuðu um að kærandi hafi
sofnað áfengissvefni fram á borð
inni á veitingastaðnum og brugðist
illa við er hann var vakinn, veist að
þeim og reynt að slá til dyravarð-
ar. Eftir það hafi hann verið færð-
ur út og kærandi lent í stymping-
um við dyraverði úti. Dyraverðir
segjast ekki hafa séð hvernig hann
kom niður eða hvernig hann skall
niður.
I dómnum segir að kærandi
kannist við að hafa verið ölvaður en
ekki ofurölvi og segir ekki rétt að
honum hafi verið hent út af veit-
ingastaðnum og hann hafí hvorki
verið með hávaða né lent í átökum
inni á staðnum. Hann segist ekki
hafa beitt neinu afli til að komast
inn. Hann segir dyravörð hafa
meinað sér inngöngu og verið mjög
reiður, þrifið í boðungana á sér, og
segist hann ekki muna eftir sér
fyrr en hann lá í götunni og blóðið
lagaði úr honum.
Vitni sem statt var á kaffi Am-
sterdam segist hafa séð dyraverði
koma með ölvaðan mann út af veit-
ingastaðnum. Einn dyi-avörðurinn
hafi tekið ölvaða manninn og skellt
honum upp að vegg, tekið í brjóst
mannsins og ýtt honum og gæti
það hafa verið að óvilja hans að
maðurinn skall og datt. Sama vitni
hafði í lögregluskýrslu sagt að
ákærði hafi lyft manninum upp og
skellt uppað veggnum og svo aftur
ýtt á andlit hans og skellt höfðinu
upp að veggnum.
Annað vitni sem einnig var statt
á kaffi Amsterdam segir dyravörð
hafa rokið á manninn þegar hann
sótti inn í húsið. Hann hafi ýtt
manninum upp að húsveggnum,
skellt honum upp að veggnum svo
höfuð hans skall í. Síðan hafi mað-
urinn fallið í götuna og dyravörður-
inn haldið í jakka hans og höfuð
mannsins aftur skollið í götuna,
vitnið segist telja þetta allt hafa
verið viljaverk af hálfu dyravarðar-
ins;
I dómsniðurstöðu segir að
sannað sé með skýrslum vitna
sem njóti stuðnings læknisvott-
orðs að kærandi hafi verið of-
urölvi inni á Gauki á Stöng og því
fyllilega réttmætt að vísa honum
út þaðan og meina honum inn-
göngu aftur. Með hliðsjón af ölv-
unarástandi kæranda og neitun
ákærða er talið varhugavert að
ákærði hafi ýtt svo harkalega við
kæranda að það verði talin vísvit-
andi líkamsárás. Ákærði var
sýknaður af ákærunni og allur
sakarkostnaður, þar með talin
málsvarnarlaun til Jóns Egilsson-
ar héraðsdómslögmanns, 40.000
krónur, lögð á ríkissjóð. Dómur-
inn var kveðinn upp af Pétri Guð-
geirssyni héraðsdómara.
Landssíminn býður viðskiptavinum sveigjanleg gjöld
Lægri kvöld- og helgar-
taxti innanlands
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmir í
máli vegna umferðarlagabrots
Sviptur öku-
rétti í mánuð
DÓMUR var kveðinn upp í Héraðs-
dómi Reykjavíkur hinn 11. ágúst í
máli sem höfðað var með ákæru
Lögreglustjórans í Reykjavík á
hendur ákærða fyrir umferðarlaga-
brot. Var hann sagður hafa ekið á 64
km hraða á klst. suður Njarðargötu í
Reykjavík á vegarkafla frá Berg-
staðastræti að Smái-agötu þar sem
leyfður hámarkshraði var 30 km á
klst.
I dómnum segir að kærði hafi
neitað að hafa ekið á 64 km hraða en
lögreglumenn hafi staðfest mæling-
una fyrir dómi og ekkert hafi þótt
koma fram í málinu sem gerði mæl-
inguna tortryggilega. I dómnum seg-
ir einnig að ákærði hafi verið sektað-
ur sjö sinnum fyrir of hraðan akstur
frá árinu 1989 og í eitt skipti verið
sviptur ökuréttindum. Því þyki hæfi-
legt að dæma hann til 25.000 króna
sektar.
Dómurinn taldi sér bera að svipta
ákærða ökuleyfi í mánuð þar sem
mjög vítavert er að aka á ríflega
tvisvar sinnum meiri hraða en leyfi-
legt er. Vísað var til lagagreinar um-
ferðarlaga um að svipta skuli þann
mann rétti til þess að stjórna vél-
knúnu ökutæki sem ökuskírteini
þarf til ef hann hefur orðið sekur um
mjög vítaverðan akstur slíks öktæk-
is. _
Ákærði var dæmdur til að greiða
25.000 króna sekt í ríkissjóð og komi
sjö daga varðhald í stað sektarinnar
ef hún greiðist ekki innan fjögurra
vikna frá dómsuppsögn. Ákærði var
sviptur ökurétti í einn mánuð frá
dómsbirtingu og jafnframt til að
greiða allan sakarkostnað, þar með
talin saksóknaralaun í ríkissjóð
40.000 krónur og málsvarnarlaun til
verjanda síns, Tómasar Jónssonar
hæstaréttarlögmanns, 40.000 krón-
ur. Dóminn kvað upp Pétur Guð-
geirsson héraðsdómari.
LANDSSÍMINN mun frá 1. sept-
ember bjóða viðskiptavinum sínum
25% lægri kvöld- og helgartaxta í
almenna símakerfinu innanlands
gegn 300 króna viðbótargjaldi á
mánuði.
Þetta lækkar símreikning þeirra
viðskiptavina sem nota símann
mikið á kvöldin og um helgar,
hvort sem er fyrir venjuleg símtöl
eða Internet-notkun. Þessi nýjung
nefnist Frístundir Símans og þeir
sem skrá sig í hana fá mínútuna á
59 aura í staðinn fyrir 78 aura sem
er venjulegt gjald eftir kl. 19 á
kvöldin og um helgar. Mínútugjald
á dagtaxta verður sem fyrir 1,56
kr.
„Þeir spara sem að jafnaði nota
símann 26 klst. eða meira á mánuði
að kvöldi til og um helgar. Fyrir þá
sem nota símann minna er hins veg-
ar hagstæðara að vera áfram á
sama mínútugjaldinu og nú gildir
sem er 78 aurar á kvöld- og helgar-
taxta.
Alnets-notendum hefur fjölgað
jafnt og þétt og stór hópur þeirra
notar símann mjög mikið, ekki síst á
kvöldin og um helgar. Landssíminn
vill koma til móts við þær óskir og
ábendingar sem þessir viðskiptavin-
ir hafa sett fram en um leið láta
aðra viðskiptamenn njóta sömu
kjara, segir í frétt frá Landssíman-
um.
Borgarráð samþykkir tillögu um Hverfísgötu
Afram tvistefna
næstu vikur
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
tillögu borgarverkfræðings um að
tvístefna verði áfram leyfð í til-
raunaskjmi um Hverfisgötu frá
Snorrabraut.
Vegna framkvæmda við Lauga-
veg í sumar, var ákveðið að heim-
ila tímabundið tvístefnu um
Hverfisgötu þó þannig að vinstri
beygja af Snorrabraut er bönnuð.
í tillögu borgai-verkfræðings er
bent á að umferð yfir sumarið sé í
lágmarki. Fram kemur að umferð
vestur Hverfisgötu frá SnoiTa-
braut hafi ekki verið mikil og að
tafir hjá SVR hafi verið óveruleg-
ar.
Til þess að öðlast reynslu af
þessu fyrirkomulagi þegar um-
ferð er þyngri er lagt til að tví-
stefnan verði óbreytt næstu fjór-
ar til átta vikur.