Morgunblaðið - 13.08.1998, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1998
/
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Morgunblaðið/Björn Gíslason
SLÖKKVILIÐSMENN skoða verksummerki að Hömrum II, þar sem
eldur kom upp í fyrrakvöld.
Eldur að Hömrum II á Akureyri
Tjónið töluvert
Hita- og vatnsveita Akureyrar borar rannsóknarholur
Ein hola var boruð
við höfuðstöðvarnar
Morgunblaðið/Björn Gíslason
FRIÐRIK Ingi Ágústsson og Friðfinnur K. Daníelsson frá Alvari,
Franz Árnason, framkvæmdastjóri Hita- og vatnsveitu Akureyrar, og
Árni Árnason, sem hefur umsjón með niðurdælingarverkefni HVA í
Eyjafirði, við borinn á lóð veitnanna á Rangárvöllum.
TÖLUVERT tjón varð á húsnæði
og innanstokksmunum er eldur
kom upp í gömlu íbúðarhúsi að
Hömrum II, norðan Kjamaskógar,
í fyrrakvöld. Drengur hafði sett
saltpétur í pott sem stóð á eldavél
og gaus eldur upp við það og læsti
sig í innréttingu hússins. Ekki
urðu slys á fólki.
Húsnæðið er í eigu Akureyrar-
bæjar en Skátafélagið Klakkur
AKSJON
Fimmtudagur 13. ágúst
21.00Þ-Sumarlandið Þáttur
fyiir ferðafólk á Akureyri og
Ákureyringa í ferðahug.
hefur haft það til umráða og m.a.
nýtt það sem útilífsskála undan-
farna vetur, auk þess sem útilífs-
skóli Klakks hefur haft þar að-
stöðu.
Ásgeir Hreiðarsson hjá skátafé-
laginu sagði að til hafi staðið að
gera breytingar á húsnæðinu að
innan en að á þessari stundu sé
óvíst með framhaldið. Framtíðar-
tjaldsvæði bæjarins verður að
Hömrum og sagði Ásgeir að stefnt
væri að því að nýta húsið sem
þjónustuhús í tengslum við það.
Hann sagði þetta óhapp ekki
hafa áhrif á starfsemi skátafélags-
ins en að atvikið væri engu að síð-
ur óheppilegt og hefði alltaf ein-
hvern kostnað í fór með sér.
ÞESSA dagana er verið að bora
rannsóknarholur, svokallaðar hita-
stigulsholur, fyrir Hita- og vatns-
veitu Akureyi'ar. Borað er víða í
bæjarlandinu og allra næsta ná-
grenni en alls verða boraðar 20-30
holur, 50-100 metra djúpar, á
svæðinu frá Kjarnaskógi og norður
að Hörgá. I gær var verið að bora
sjöundu holuna og svo skemmti-
lega vill til að hún er boruð á lóð-
inni við höfuðstöðvar Hita- og
vatnsveitunnar á Rangárvöllum.
Franz Árnason framkvæmda-
stjóri Hita- og vatnsveitu sagði að
ekki væri um neinar vísbendingar
að ræða en með þessum fram-
kvæmdum væri verið að leita að
fráviki frá náttúrulegu hitastigi
bergsins.
Hita- og vatnsveitan samdi við
fyrirtækið Alvar ehf. um þessar
boranir og til viðbótar um boranir
á tveimur til fjórum 300-400 metra
djúpum holum á Laugalandi á
Þelamörk. Friðfínnur K. Daníels-
son hjá Alvari sagði verkið ganga
nokkuð vel. „Við höldum áfram
fram til 25. ágúst en þá förum við
með borinn austur á Hérað og til
Seyðisfjarðar og fórum í jarðhita-
og kaldavatnsleit þar. Að því loknu
fórum við að bora dýpri holurnar á
Þelamörk.“
Volgur sjór á
Hjalteyri
Friðfinnur var að bora eftir sjó
fyrir Fiskeldi Eyjafjarðar á Hjalt-
eyri nýlega og hann sagði að þar
hefði náðst nokkuð athyglisverður
árangur sem þó ætti eftir að skoða
betur. „Við komum niður á 10
gi’áða heitan hreinan sjó á um 40
metra dýpi, sem þýðir að líklega
höfum við rekist á jarðhita þar.
Fiskeldi Eyjafjarðar hefur fram að
þessu dælt sjó úr firðinum í lúðu-
eldið og hitað hann aðeins en þarna
fundum við hreinan volgan sjó fyrir
utan dyrnar hjá þeim.“
Friðfinnur hefur farið víða um
land með bor sinn og borað eftir
bæði heitu og köldu vatni og hann
segist sjá verkefni vel fram á
næsta ár. Hann sagði að eftir að
farið var að bora rannsóknarholur
með minni borum við jarðhitaleit
hafi kostnaðurinn verið mun við-
ráðanlegri. í kjölfarið hafi svo ver-
ið boraðar vinnsluholur með
stærri verkfærum.
Friðfinnur nefndi til dæmis að
borun á vinnsluholum á stöðum
eins og Árskógsströnd, Drangs-
nesi og í Varmahlíð, þar sem ekki
hafi verið neinar vísbendingar um
jarðhita, hafi verið óframkvæman-
leg nema með því að bora tilrauna-
holur fyrst.
Nokkrir af þekktustu leikurum landsms í leiksýmngum á Akureyri
A sama tíma að
ári og Fjögur
hjörtu á Renni-
verkstæðinu
Morgunblaðið/Björn Gíslason
LEIKMYNDIRNAR sem notaðar eru í leikritin Á sama tíma að ári og
Fjögur hjörtu, komu til Akureyrar í gær, í 40 feta gámi frá Reykjavík.
Hér situr Kristján Sverrisson við spilaborðið sem notað er í leikritinu
Fjórum hjörtum.
RÚRIK Haraldsson og Árni Tryggvason í hlutverkum sfnum í Fjórum
hjörtum. Árni hefur litið á aðstæður á Renniverkstæðinu og leist mjög
vel á, að sögn Kristjáns.
NÆSTU tvær helgar verða fimm
sýningar á leikritinu Á sama tíma að
ári, eftir Bemard Slade, á Renni-
verkstæðinu á Akureyri. Leikarar
verksins eru hinir landskunnu lista-
menn Tinna Gunnlaugsdóttir og Sig-
urður Sigurjónsson. í vor voru 11
sýningar á verkinu á Renniverk-
stæðinu fyrir fullu húsi. Þá verður
leikrit Ólafs Jóhanns Ólafssonai',
Fjögur hjörtu, tekið til sýningar á
Renniverkstæðinu síðar í þessum
mánuði.
í því verki sýna fjórir af farsæl-
ustu leikurum íslands allar sínar
bestu hliðar, þeir Bessi Bjarnason,
Árni Tryggvason, Rúrik Haraldsson
og Gunnar Eyjólfsson. Bæði verkin
hafa verið sýnd í Loftkastalanum í
Reykjavík og notið mikilla vinsælda.
Leiksýningar og
tónleikar
Leikfélag Akureyrar hóf leiksýn-
ingar á Renniverkstæðinu en sl. vor
tók Kristján Sverrisson, veitinga-
maður á Bing Dao, húsnæðið á
leigu, sem er undir sama þaki og
veitingastaðurinn við Strandgötu á
Akureyri.
Kristján sagði í samtali við Morg-
unblaðið að tilgangurinn með því að
taka Renniverkstæðið á leigu væri
að halda uppi menningarstarfsemi í
húsinu og jafnframt að tengja rekst-
urinn veitingastaðnum. „Við bjóðum
upp á mat og miða í leikhús, sem hef-
ur komið vel út og þetta er m.a. svar
við harðnandi samkeppni í veitinga-
rekstri í bænum.
Hér hafa verið leiksýningar og
tónleikar og um verslunarmanna-
helgina voru hér dansleikir. Það er
ekki grundvöllur fyrir því að bjóða
upp á leiksýningar yfir hásumarið en
leikritið Á sama tíma að ári, sem
sýnt var hér í vor, fékk fekilega góð-
ar viðtökur. Ég á ekki von á öðru en
það sama verði upp á teningnum nú
og eins er mikill áhugi fyrir leikrit-
inu Fjögur hjörtu.“
Kristján sagði að höfundurinn,
Ólafur Jóhann Ólafsson, hafi boðað
komu sína frá Bandaríkjunum á
frumsýningu verksins á Akureyri 27.
ágúst nk. Hann sagði að samið hafi
verið um 12 sýningar á verkinu en
tíminn yrði að leiða í ljós hvort þær
yrðu fleiri. Kristján sagðist ekki síð-
ur hafa orðið var við mikinn áhuga
fyrir þessum leiksýningum frá fólki í
nágrannasveitarfélögunum og hann
á von á fjölda gesta til bæjarins í
tengslum við þær.
Bjartsýnn á
framhaldið
Aðspurður um framhaldið, sagðist
Kristján hafa einnig verið í sam-
bandi við Þjóðleikhúsið, Iðnó og
Kaffileikhúsið. „Ég vonast eftir góðu
samstarfí við þessa aðila og að hing-
að komi enn fleiri sýningar frá
Reykjavík. Ég er heldur ekki í
neinni andstöðu við Leikfélag Akur-
eyrar og þar er mikið af góðu fólki
sem gæti sett upp verk hér og það
hefur verið til umræðu. Og ekki bara
fólk í LA, heldur margir fleiri hér í
bæ. Þá var haft samband frá Sjón-
leikhúsinu í Þórshöfn í Færeyjum en
á þeim bæ var áhugi fyrir því að
setja upp sýningu hér í sumar en af
því gat ekki orðið að þessu sinni en
kannski síðar.“
Því fylgir mikill kostnaður að setja
upp sýningar og hafa fjölmargir aðil-
ar lagt Kristjáni lið og gert þetta
mögulegt. „Það komu margir að máli
við mig, sem vildu ekki að þetta leik-
hús legðist af og hafa lagt þessu njáli
lið sem er mjög gleðilegt. Ég hef
fengið mikla hvatningu og maður tví-
eflist við það. Ég er því bjartsýnn á
framhaldið og ef maður væri ekki
bjartsýnn gerðist aldrei neitt.“
Hlynur sýnir
á almenn-
ingssalerni
bæjarins
HLYNUR Hallsson opnar sýn-
ingu á almenningssaleminu
undir kirkjutröppunum á Akur-
eyri laugardaginn 15. ágúst nk.
Sýningin nefnist Klósett og
samanstendur af minnismiðum,
textum og litlum teikningum.
Almenningssalemið er í
Listagilinu og í næsta nágrenni
era Listasafnið á Akureyri,
Ketilhúsið og Deiglan þar sem
gjarnan eru settar upp sýning-
ar. Sýningin er bæði á kvenna-
og karlaklósettinu en eðlilega
hafa konur eingöngu aðgang að
hluta sýningarinnar og karlar
að hinum hlutanum, segir í
fréttatilkynningu frá Gilfélag-
inu.
Við íyrstu sýn virðast ein-
stakir þættir sýningarinnar
ekki eiga mikið sameiginlegt
en þegar nánar er skoðað kem-
ur í ljós að allir hlutirnir
tengjst saman á einn eða ann-
an hátt þannig að sýningar-
gesturinn er tilneyddur til að
skoða sjálfan sig í samhengi við
aðstæðurnar.
Hlynur vinnur oftast með
innsetningar, aðstæður, gjörn-
inga, texta, teikningar og
myndbönd. Að þessu sinni hef-
ur hann sett sig í spor þeirra
sem þurfa að fara á klósettið
og reynt að persónugera heim-
sóknina, segir ennfremur í
fréttatiikynningunni.
Sýningin er opin á hefð-
bundnum opnunartíma salern-
isins, mánudaga til fóstudaga
frá kl. 9-21 og um helgar frá kl.
10-20. Allir era velkomnir og
aðgangur er ókeypis.