Morgunblaðið - 13.08.1998, Side 40

Morgunblaðið - 13.08.1998, Side 40
-ylO FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1998 SKOÐUN MORGUNBLAÐIÐ UM „DROG AÐ FRUMVARPI TIL LAGA UM GAGNAGRUNN Á HEILBRIGÐISSVIÐI“ HEILBRIGÐISRAÐUNEYTIÐ hefur nú lagt fram ný drög að frum- varpi um gagnagrunn á heilbrigðis- sviði. Þrátt fyrir metnaðarfulla Vvinnu, og ásetning um að reyna að sætta ólík sjónarmið, hefur megin- forsendum frumvarpsins ekki verið breytt. Áfram verður um miðlægan gagnagrunn að ræða og gert ráð fyrir einkaleyfi, eins og forstjóri Is- lenskrar erfðagreinngar (IE) hefur sagt að verði að vera til staðar, vegna viðskiptahagsmuna. I allri umræðu um frumvarp þetta er það eftirtektavert að umfjöllunaraðilar fá ekki mörg tækifæri til skoðana- skipta við stjórnvöld, heldur verður forstjóri IE jafnan fyrii- svörum! Hver er kjarni málsins? Taka á upplýsingar um heilsufar og einkahagi sem aðallega hafa ver- ^fð veittar læknum, í trúnaði og í ákveðnum tilgangi, og flytja þær yfir í miðlægan gagnagrunn: Gagnagrunninn á einkaaðili að reka og hefur hann einkarétt á umsýslu og meðferð upplýsinganna. Upplýs- ingamar sem taka á úr núverandi gagnagrunnum heilbrigðisstofnana verða dulkóðaðar. Málið er margþætt og flókið og hefur umræðan tilhneigingu til að fara út um víðan völl. Þetta er að sínu leyti gott en torveldar umræð- j*ana um kjarnaatriði. Tæmandi um- ræða er mjög tímafrek. Okkur, og þjóðinni, er stillt upp við vegg, af vel smurðri fjölmiðlavél, þegar gef- ið er í skyn að skammur tími sé til stefnu. Að öðrum kosti verði þjóðin af miklum verðmætum ef ákvarð- anir verða ekki teknar strax. Ekki er allt sem sýnist! Samkvæmt skilgreiningum frum- varpsins á „persónuupplýsingum" annars vegar og „persónugreinan- Guðmundur Björnsson Gísli Einarsson legum einstaklingi" hinsvegar virð- ist mega álíta að upplýsingamar séu ekki lengur persónuupplýsing- ar þegar þær eru komnar í hinn miðlæga gagnagrunn. Hér koma þegar upp tvö alvarleg álitamál. Hið fyrra er að ekki gerð- ur greinarmunur á „dulkóðuðum upplýsingum" og aftengdum upp- lýsingum. Grundvallarmunur er á þessu tvennu þar sem í fyrra tilvik- inu má rekja sig til baka til viðkom- andi einstaklings með aðgangi að lykli að dulkóðuninni, (eða með ólögmætum hætti ráða í dulkóðun- ina). í síðara tilvikinu hafa upplýs- ingarnar endanlega og óafturkall- anlega verið aftengdar persónum. Um þessi grundvallaratriði hefur ekki verið fjallað í íslenskri um- ræðu um þetta mál. Ollum má ljóst vera að til þess að gagnagrunnurinn geti orðið nýtan- legur og þar með verðmætur má ekki aftengja hann. Það verður að vera hægt að rekja sig til baka til einstaklinganna bak við upplýsing- arnar til að framkvæma nýjar rannsóknir, samkeyrslur upplýs- Haustútsala á lacoste vörum - 30-50% afsláttur inga og annað sem í ljós kemur að geti reynst gagnlegt. I nýlegri sam- þykkt framkvæmda- ráðs samvinnusam- taka bandarískra læknaskóla, (Associ- ation of American Medical Colleges, AAMC, Executive Council, February 27, 1997) kemur fram að í langflest- um læknisfræði- rannsóknum þurfa rannsakendur að geta leitað frekari upplýsinga eða rakið áhugaverða þætti hjá a.m.k. hluta sjúklingahópsins, borið nýjar, hugsanlega óvæntar upplýsingar saman við aðra hópa eða aðra innan hópsins o.s.frv. Þetta skapar al- gjöra nauðsyn á því að kóðun per- sónusérkenna hvers einstaklings sé þannig úr garði gerð að hún sé órjúfanlega tengd honum og rekj- anleg til hans aftur. I áðurnefndri samþykkt AAMC segir að þessi staðreynd sé ekki vel þekkt meðal almennings eða löggjafa „sem oft eigi erfitt með að skilja hvers vegna allt efni úr sjúkraskýrslum sem nota á í rannsóknum sé ekki ein- faldlega hægt að aftengja endan- lega þannig að ekki sé mögulegt að rekja það til einstaklings". Kóðun með þessum hætti er að sjálfsögðu hugmynd væntanlegs starfsleyfís- hafa sem ætlar að selja upplýsingar úr grunninum til fyriitækja í heil- brigðis- og tryggingaþjónustu og hefur jafnframt í hyggju að selja áskrift að upplýsingunum í gagna- grunninum. Læknar, sem gert er að safna saman og bera samkvæmt lögum ábyrgð á að varðveita trún- iðarupplýsingar um heilsufar og einkamálefni skjólstæðinga sinna, koma ekki til með að hafa stjórn á því lengur hvert upplýsingarnar fara eða með hvaða hætti þeim er „dreift". Petta mætti hugsanlega fallast á ef upplýsingarnar væru raunverulega aftengdar en svo er ekki. Umræða um þessi atriði hefur þegar farið fram í mörgum löndum og þar hefur niðurstaðan ætíð orðið sú að það sé grundvallaratriði að dulkóðaðar upplýsingar verði að fara með á sama hátt og persónu- upplýsingar. Þetta þýðir að eigi að gera rann- sókn með því að nota upplýsingar um sjúklinga sem ekki vissu að upplýsingar þeirra yrðu notaðar í nákvæmlega þá rannsókn, verður rannsakandinn að gera áætlun um rannsókn sína, fá hana samþykkta hjá tölvunefnd og viðkomandi vís- indasiðanefnd, hann verður síðan, eftir að t.d. tölvunefnd, (handhafí dulkóðalykils), aðstoðar hann við að fínna nöfn þeiiTa einstaklinga sem þykja athyglisverðir í gagnagrunn- inum vegna rannsóknarinnar, að hafa samband við þessa einstak- linga og fá s.k. upplýst samþykki þeirra til rannsóknarinnar. Með þessum hætti eru reglurnar nú en Læknirinn sem hefur heitið því að gæta trún- aðar í meðferð upplýs- inganna getur ekki lengur ábyrgst þann trúnað, segja Guð- mundur Björnsson og Gísli Einarsson, sem hefur verið fluttur í hendur þriðja aðila. munu ekki verða ef gagnagrunns- frumvarpið verður samþykkt. Síðara alvarlega álitamálið tengt meðferð upplýsinga er að verði dulkóðun nú talin jafngilda afteng- ingu og að þar með séu upplýsingar um einstaklinga þá sem safnað verður í hinn miðlæga gagnagrunn ekki lengur persónupplýsingar, þá þarf ekki lengur atbeina tölvu- nefndar til frekari meðferðar þess- ara upplýsinga út úr gagnagrunnin- um. Tölvunefnd hefur ekki með aðrar upplýsingar en persónuupp- lýsingar að gera. Einokun læknis- fræðirannsókna? Það skiptir íslenska lækna miklu máli með hvaða hætti þeir sjálfír fá aðgang að hinum miðlæga íkki kútýöýn Fákafeni 9 sími 5682866 ÚTILÍFV HS QLÆSIBÆ ■ SÍMI §812822 Nýr og glæsilegur haust- og vetrarlisti Fæst í öllum helstu bókaverslunum Sími 565 3900 Fax 565 2015 gagnagrunni. Forstjóri ÍE, sem iðulega hefur orðið fyrir svörum fyrir íslensk heilbrigðisyfirvöld, hefur sagt að svo verði að vera. Þegar hinsvegar er leitað svara með hvaða hætti verður málið óljóst. Það er þó ljóst að telji starfsleyfishafí að viðskiptahags- munum sínum sé hætt fæst ekki aðgangur. IE hefur þegar gert stóran samstarfssamning við er- lent stórfyrirtæki um rannsóknir á 12 sjúkdómum. Geta íslenskir læknar fengið að nota gagna- grunninn til rannsókna á þessum sjúkdómum? Geta þeir rannsakað sömu sjúkdóma með því að vinna saman með t.d. gagnagrunna Rík- isspítala og Sjúkrahúss Reykjavík- ur og búa til úr þeim einn gagna- gi’unn um þessa 12 sjúkdóma? Hvað ef annað erlent lyfjafyrir- tæki styrkir slíkar rannsóknir? Hvað ef IE semur um 12 sjúkdóma til viðbótar eða 24? Hver á upp- götvanirnar þegar þær liggja fyrir þegar starfsleyfið er útrunnið? Hver á sjúkdómana? Islensk erfðagreining? Áhætturfj árfestar IE? Sjúklingarnir? Heilbrigðis- stofnanir? Ríkið? Heilbrigðisráðu- neytið? Landlæknisembættið? Landsvirkjun? Samtök kvótaeig- enda? Hin síðastnefndu dæmi eru kannski ekki svo fráleit. Þar eru til miklir fjármunir og hví ekki tengja læknisfræðirannsóknir öðrum öfl- ugum hátækniiðnaði sem hefur að- gang að miklu fjármagni? Það hef- ur verið aðairöksemdin fyrir frum- varpinu að Islensk erfðagreining hafi aðgang að miklu fé þannig að eðlilegt sé að IE „eigi“ a.m.k þessa 12 sjúkdóma og kannski alla sjúk- dóma sem fyrirtækinu þóknast að slá eign sinni á verði frumvarpið að lögum. Gamanlaust er það mikilvægt atriði hver á aðgang að upplýsing- unum í gagnagrunninum. Áðgengi að upplýsingum er grundvallarat- riði í nútíma upplýsingaþjóðfélagi. Eigi að takmarka þetta aðgengi verða að liggja til þess mjög gildar ástæður og spurning er hvort þær eru yfirleitt til þar sem halda má því fram að slíkt aðgengi sé grund- vallaratriði sem ekki verði samið um í frjálsu þjóðfélagi. Niðurstaða Undirritaðir sjá því eftirfarandi höfuðatriði snúa að læknum varð- andi gagnagrunnsfrumvarp það sem heitið hefur verið að sam- þykkt verði fyrir 20. október í haust: Upplýsingar sem gefnar hafa verið læknum í trúnaði og í ákveðnum tilgangi verða teknar og þær dulkóðaðar til nota í hverjum þeim tilgangi sem starfsleyfíshafi miðlægs gagnagrunns og heil- brigðisráðherra semjá um. Upplýs- ingarnar eru ekki aftengdar og má því rekja til baka til einstakling- anna sem þær gáfu. Læknirinn sem hefur heitið því að gæta trún- aðar í meðferð upplýsinganna get- ur ekki lengur ábyrgst þann trún- að sem hefur verið fluttur í hendur þriðja aðila og læknirinn veit auk þess ekki með hvaða hætti eða í hvaða tilgangi upplýsingarnar verða nýttar. Á þessu er sérstaklega hnykkt með því að svo virðist sem nú séu upplýsingarnar ekki lengur per- sónuupplýsingar og þar með ekki lengur nauðsynlegt að hafa leyfi tölvunefndar til ráðstöfunar þeirra. Læknar vita ekki fyrirfram hvort þeim verður mögulegt að rannsaka vísindalega það sem hug- ur þeirra stendur til varðandi þá sjúkdóma/sjúklinga sem þeir hafa með höndum jafnvel þótt þeir upp- fylli til þess öll formleg skilyrði samfélagsins um meðferð persónu- upplýsinga og til vísindarannsókna. Álvarleg umræða um þetta mál er rétt að hefjast. Stórum siðferði- legum spurningum er enn ósvarað. Guðmundur er formaður Læknafélags íslands. Gísli er yfirlæknir og formaður umfjöllunamefndar LÍ um gagnagrunn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.