Morgunblaðið - 13.08.1998, Síða 41

Morgunblaðið - 13.08.1998, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ + Gunnar Maríus- son fæddist á Árgötu 8 (Mara- húsi) á Húsavík hinn 17. október 1906. Hann lést á Sjúkrahúsi Þingey- inga hinn 9. ágúst síðastliðinn. For- eldrar Gunnars voru Maríus Bene- diktsson og Helga Þorgrímsdóttir. Bræður Gunnars voru Benedikt, Héð- inn, Þráinn, Þor- grímur og Hákon, sem allir eru látnir. Hinn 23. mars árið 1932 kvæntist Gunnar Elínu Málfríði Jónsdóttur frá Móbergi á Húsa- vík, f. 11. sept. 1911, d. 15. des. 1990. Börn þeirra eru: 1) Sigur- hanna, f. 21.12. 1932, gift Jóni Einari Hjartarsyni, búsett á Læk í Ölfusi. 2) Jón Bergmann, f. 31.8. 1934, kvæntist Asu Jó- hannesdóttur sem nú er Iátin og er í sambúð með Guðrúnu Mánadóttur, búsett á Húsavík. 3) Helga, f. 16.10. 1935, gift Bjama Siguróla Jakobssyni, bú- sett á Húsavík. 4) Hlaðgerður, f. 27.10. 1936, giftist Gunnari í hverju litlu bæjarfélagi á lands- byggðinni var fjárrétt sem sauð- fjárbændurnir í sveitarfélaginu ráku fé sitt til á haustin. Svo hagaði til í minni heimabyggð, Húsavík, er ég var að alast þar upp, að fjárrétt- in var sunnantil í bænum og því auðvelt fyrir okkur krakkana að fylgjast með rekstrinum að réttinni og því þegar bændumir drógu féð í dilka sína. Réttardagurinn var merkisdagur og í mínum huga og margra annarra ungmenna var þetta mikilvæg samkoma sem ekki mátti missa af. Þarna var gott and- rúmsloft, glaðværð, utan smáhnipp- inga ef mörk voru óskýr og stund- um var tappi skrúfaður af pela þeg- ar önnum var lokið. Það var við þessar aðstæður sem ég man fyrst eftir Gunnari Maríus- syni, löngu áður en nokkum grun- aði að við yrðum síðar tengdafeðg- ar, og nú er tengdafaðir minn, Gunnar Maríusson frá Hlöðum eða Marahúsi, eins og allir kunnugir kalla það hús jafnan, látinn eftir til- tölulega stutta sjúkdómslegu. Hann var þó um allmörg ár búinn að vera óvinnufær vegna svima eða jafn- vægisleysis, en að öðru leyti frísk- ur, glaðvær, skrafhreifinn og stálminnugur á jafnt gamalt sem nýtt, allt til síðustu stundar. Aldrei hitti ég tengdaföður minn öðruvísi en hann spyrði frétta, hvaðan ég kæmi og hvert ferð væri heitið og hvað væri efst á baugi. Við ræddum ekki stjórnmál í smáatriðum, studdum ekki sama stjórnmála- flokk, en áttum þó í raun að mestu sameiginlegar hugsjónir og áhuga- mál. Gunnar var mikill áhugamaður um ættfræði og vildi vita hverra manna viðmælandinn væri og var ótrúlega fljótur að rekja saman ættir fólks og segja sögur af mönn- um og málefnum, sem gjarnan tengdust á einn eða annan hátt þeim sem rætt var við hverju sinni. Einnig var Gunnar mikill fjöl- skyldumaður og ótrúlegt hvað hann fylgdist vel með stórum hópi afa- og langafabarna, en afkomendur eru nú 131 og alltaf spurði hann um veru þeirra og líðan. En því rakti ég í upphafí minn- ingar mínar frá réttardeginum, að Gunnar Maríusson var fyrst og fremst bóndi. Hann stundaði á yngri árum sjó með föður sínum og bræðrum og sá um landbúnaðar- þátt útvegsbóndans Maríusar Benediktssonar, sem var nauðsyn- legur þáttur í rekstri á stóru heim- ili, sem þar að auki var mjög gest- risið og opið jafnt háum sem lágum, Húsvíkingum og nærsveitamönn- um, enda móðir Gunnars, Helga Halldórssyni, sem nú er látinn, búsett á Húsavík. 5) Björg, f. 11.1. 1939, gift Ingvari Hólmgeirs- syni, búsett í Kópa- vogi. 6) Marfus, f. 13.12. 1939, kvænt- ur Erlu Jóhanns- dóttur, búsett í Sandgerði. 7) Guð- rún Matthildur, f. 1.2.1941, gift Gunn- steini Sæþórssyni, búsett í Prest- hvammi í Aðaldal. 8) Sigurlaug, f. 1.10. 1943, gift Davíð Eyrbekk, búsett í Keflavík. 9) Vigdís, f. 21.12. 1944, gift Guðmundi Bjarnasyni, búsett í Reykjavík. 10) Inga Kristín, f. 8.9. 1946, gift Baldvin Jónssyni, búsett í Reykjavík. 11) Benedikt, f. 4.1. 1948, kvæntur Guðbjörgu Bjarnadóttur, búsett í Sandgerði. 12) Hákon, f. 23.5. 1949, kvæntur Snæfríði Njáls- dóttur, búsett í Árbót í Aðaldal. Barnaböm Gunnars Maríusson- ar em 40 talsins og bamabarna- böm 79. Útför Gunnars fer fram frá Húsavíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Þorgrímsdóttir, mikil féragsmála- manneskja sem margir vildu ræða við. Gunnar keypti síðan ásamt konu sinni, Elínu Jónsdóttur, að- stöðu til sauðfjárbúskapar á jörð- inni Bakka norðan Húsavíkur árið 1958 og ráku þau þar myndarlegt bú meðan heilsa Gunnars leyfði. Aldrei fluttu þau í Bakka en höfðu þar þó dvöl yfir sauðburð og hey- skapartíma í nokkur ár, en annan tíma gekk Gunnar alla daga úr Marahúsi og út í Bakka til gegn- inga. Eg þekkti tengdaföður minn því fyrst og fremst sem bónda að atvinnu, fyrst á réttardeginum, þar sem hann lét gjaman til sín taka, síðar sem góðan og gegnan heið- ursborgara á Húsavík, sem allir þekktu og var hlýtt til. Það var svo árið 1964, eftir að við Vigdís kona mín, ein af tólf börnum Gunnars og Elínar, hófum búskap, að ég kynntist þeim hjónum per- sónulega svo og hinni stóru fjöl- skyldu þeirra. Þau kynni hafa öll verið ánægjuleg og aldrei minnist ég þess að skugga hafí borið á í samskiptum okkar Gunnars. Það var einkar ánægjulegt að eiga við Gunnar samræður, hlýða á þennan fróða og minnuga mann segja frá liðinni tíð, en ekki síður að veita því athygli hversu vel hann fylgdist með atburðum líðandi stundar. Hann spurði um útgerðar- hætti og aflabrögð og afkomu í landbúnaði og alltaf vissi hann góð deili á því sem var að gerast hjá þeim börnum hans sem í dag stunda þær atvinnugreinar. Það hefur ekki alltaf verið auðvelt að sjá stórum hópi farborða hjá heið- urshjónunum í Marahúsi, en enginn leið skort, tólf börn komust upp og eiga nú myndarlegar fjölskyldur. Eg veit að þau Gunnar og Elín voru stolt af stórum hópi afkomenda og ég tel að þau hafi mátt vera það. Þessi fátæklegu orð eru sett á blað til að þakka tengdaföður mín- um, Gunnari Maríussyni, fyrir sam- fylgdina. Við hjónin, dætur okkar, Jakobína, Arna og Silja Rún, tengdasonur Thor og litli Erling vottum öðrum aðstandendum dýpstu samúð. Guðmundur Bjarnason. Þrátt fyrir stóra fjölskyldu á nú- tíma mælikvarða hefur alltaf verið nóg pláss í Marahúsi fyrir stóra sem smáa, því húsi sem alla tíð hef- ur verið eins konar kjölfesta í lífi Gunna afa. Þar fæddist hann, þar bjó hann alla sína tíð og þar vildi gamli maðurinn helst fá að dvelja á sumrin síðustu æviárin þótt annars MINNINGAR hafi hann verið á sjúkrahúsi síðast- liðin tvö ár. Það skipti hann hins vegar engu máli á vorin þegar hann lét þau boð út ganga til dætr- anna átta að nú yrði tekið á móti ráðskonuumsóknum í Marahúsi. Þeim systrum veitti örugglega ekki af smá „upplyftingu". Og auðvitað réð karlinn hann afi því sem hann vildi ráða. Hann var nefnilega húmoristi og hafði einstakt lag á því að fá vilja sínum framgengt án hávaða og láta. Hann var blíður og góður maður, sem skipti sjaldan skapi, elskaði börn, ýtti frekar undir darraðar- dansinn en að sussa liðið niður og gerði fyrst og fremst kröfur til sjálfs sín. Það er í raun erfitt fyrir okkur barnabörnin að ímynda okk- ur þá útsjónarsemi, sem afi Gunni og Ella amma hafa þurft að út- hugsa í daglega lífinu og amstri dagsins, eigandi tólf börn á sextán árum. Minningar okkar barnabarnanna um Gunna afa eru í einu orði góðar og þrátt fyrir annir við búskap á Bakka á Tjörnesi, þangað sem hann fór fótgangandi hvern einasta dag þar sem hann lærði aldrei á bíl, þreyttist hann aldrei á því að segja okkur sögurnar af Búkollu, Loðin- barða, Grámanni í Garðshorni og Grímseyjarævintýri. Hann hafði einstaka frásagnargáfu með til- heyrandi látbragðsleik og náði svo sannarlega að halda athygli yngstu kynslóðarinnar þar til ævintýrin voru úti. Það var ekki síður gaman að fara í hjólatúr út í Bakka til að kíkja á lömbin, taka þátt í heyskap, busla í læknum, búa og fá kannski eins og einn nýfæddan hvolp undan henni Týru lánaðan í bæinn. Honum var þá gjarnan stungið innan undir úlpufald áður en lagt var í’ann með þeim afleiðingum að viðkomandi varð fljótt hlandblautur eftir fer- fætlinginn. En það skipti engu máli í þá daga. Við höldum að afí Gunni hafi ver- ið hamingjusamur maður í lifanda lífi þótt í þessu tilviki verði ham- ingjan kannski ekki mæld í verald- legum auðæfum. Afkomendur Gunnars Maríussonar og konu hans Elínar Jónsdóttur, sem lést hinn 15. desember 1990, eru nú 131 tals- ins, þar af eru börnin 12 talsins, bamabörnin 40 og barnabarna- börnin 79. Eitt er það áhugamál afa Gunna sem fylgt hefur honum alla tíð og er það ættfræðin. Segja má að hann hafi kunnað skil á flestum frænd- görðum þessa lands og fór gjaman á mikið flug ef hann komst í slíkar samræður við menn. Það var því alltaf viðkvæðið hjá honum afa þeg- ar við barnabömin fómm að fá hvolpavitið og fómm eitt af öðru að kynna fyrir honum nýja kærasta eða kærustur: „Hverra manna ert þú, vinur/vina?“ Elsku afi, við þökkum þér sam- leiðina og allar góðu stundirnar, sem við höfum átt saman. Megir þú hvfla í friði eftir erfíðan vinnudag. Barnabömin. Maramenn vom þeir jafnan nefndir feðgar, Maríus Benedikts- son, útvegsbóndi á Húsavík, og synir hans fimm. Móðir þeirra bræðra og kona Maríusar hét Helga Þorgrímsdóttir af Hraunkot- sætt, kunn baráttukona í verka- lýðsmálum á Húsavík fyrr á tíð. Héðinn, Þorgrímur, Þráinn, Gunn- ar og Hákon hétu synimir en Bene- dikt, þann elsta, höfðu hjónin misst ungan að aldri. Nöfn bræðranna fimm leiða hug- ann óneitanlega að kunnum nöfnum úr fornsögum svo og heiti hússins sem hjónin byggðu 1904 og nefndu Hlaðir, þótt jafnan gengi það undir nafninu Marahús. Allir vora bræð- urnir garpai’, dugnaðarforkar, vel á sig komnir, vanir margs konar störfum í uppvexti og lærðist snemma að ekki dygði að slóra. Harðsnúið lið til sóknar og varnar þótt með nokkuð öðrum hætti væri en hjá nöfnum þeirra fornköppum forðum daga. Þorgrímur hleypti heimdragan- GUNNAR MARÍUSSON FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1998 41* um og veiddi með Norðmönnum hvali í norðurhöfum og gerðist heim kominn mikill veiðimaður um sína daga. Héðinn var aflakló hin mesta og skaut sel sem Þorgrímur og hæfðu þeii’ bræður betur en margur sem slíkt lagði fyrir sig. Þráinn var glíminn og iðkaði ýmsar íþrótth', sótti sjó, Hákon fengsæll sjómaður og gat valið um skipsrúm fyrir vaskleika sakir og svo fjár- glöggur að eigi þurfti að líta í markaskrár fremur en Gunnar bróðir hans sem nú kveður síðastur þeirra Marabræðra á 92. ári. Gunnar fæddist í Hlöðum og átti þar heima til dánardægurs. Ungur að ámm vandist hann á að taka til hendinni á sjó og landi líkt og bræður hans, undir stjórn föður síns, Maríusar. Um 1930 festi Gunnar ásamt bræðrum sínum, Þráni og Þor- grími, kaup á mótorbátnum Agli sem þeir gerðu út á Húsavík til hausts 1934 þegar báturinn sökk á legunni í aftakaveðri og fannst aldrei. Ekki lögðu þeir bræður þó árar í bát heldur keyptu trillu sem Geysir hét og gerðu út um árabil. Jafnframt sjósókn höfðu þeir þó jafnan einhvern búskap, einkum Gunnar sem löngum var hneigður til búskaparstarfa og oft látinn gegna þeim störfum þegar hinh’ vom á sjó. Maríus átti stórt tún sunnan Hlaða og skammt frá húsinu var fjárhús, fjós og hlaða Maríusar. I nánd vom hjallar þar sem héngu spyrðubönd á rám, hertur fiskur og siginn, á haustin rjúpnakippur svo og kjötskrokkar í gálga í sláturtíð. Þótti mörgum þá matarlegt um að litast í hjöllum þein’a Maramanna sem iðnir vom að draga björg í bú og fengsælir mjög. Árið 1935 keypti Gunnar hluta úr Bakkalandi og hafði eignast stóran hluta ræktaðs lands í Bakka laust fyrir 1960. Um svipað leyti lauk af- skiptum hans af bátaútgerð og stundaði hann eftir það eingöngu búskap allt fram á áttræðisaldur. Gunnar keypti á sínum tíma dráttarvél til nota við búskap sinn en aldrei settist hann upp á slíkt tæki, lét syni sína og síðan barna- börn, er þau komu til sögunnar, stýra tækjunum en sjálfur stjórnaði hann verki og notaði einatt orf sitt og ljá. Hann festi og kaup á jeppa, r 3lómabw3in > öa^ðsKom l v/ T-ossvogskiríUjugaríð y Símú 554 0500 H H H H H H H H H H Erfidrykkjur H H H H H H H H H H u Sími 562 0200 u riiiixixiixi: tók þó aldrei bflpróf og snerti ekki gripinn. Fékk þó tvívegis viður- kenningu fyrir tjónlausan akstur um árabil. Af því hafði Gunnar gaman. Árið 1932, 23. mars, gekk" Gunnar að eiga Elínu Málfríði Jónsdóttur Gunnarssonar frá Mó- bergi á Húsavík. Elín var atorku- mikil kona og lét sér ekki allt fyrir brjósti brenna enda kom það sér vel því að 12 börn eignaðist hún með Gunnari. Má rétt geta sér til um hvað á henni hvfldi er hún varð að stjórna hinu stóra heimili og Gunnar tímunum saman daglangt fjam heimilinu sökum starfa sinna. Það var út af fyrir sig afrek að koma upp þessum stóra barnahópi. Öil era þau enn á lífi, Sigurhanna^ Jón Bergmann, Helga, Hlaðgerður, Björg, Maríus, Matthildur, Sigur- laug, Vigdís, Inga Kristín, Benedikt og Hákon, allt hið mesta dugnaðar- fólk. Elín, kona Gunnars lést 15. desember 1990. Barnabörn þeirra hjóna eru 40 og barnabamabörn 79. Afkomendur alls 131. Gunnar Maríusson var heilsu- hraustur mestan hluta ævi sinnar. Hélt sér vel lengi, léttur í spori og kvikur í hreyfingum, beinn í baki enda líkaminn þrautþjálfaður eftir að Gunnar hafði árum saman geng- ið tvisvar á dag, um þriggja km leið út að Bakka til að hirða um skepn- ur sínar. Gunnar var einstaklega geðgóður, léttlyndur og skrafhrei@*» inn, langminnugur og sögufróður. Síðustu misseri hefir hann dvalið á sjúki’ahúsinu á Húsavík en verið heima við og við í umsjá dætra sinna sem skipst hafa á um að ann- ast föður sinn á þvi heimili sem honum var kærast alls og stundum hefir hann skotist til dóttur sinnar í sveitinni um sauðburð og farið í réttir á haustin. Minni hans hefir verið furðu trútt til skamms tíma og hann hefir haft frá mörgu að segja og verid*. létt um mál. Oft hefi ég leitað til Gunnars og forvitnast hjá honum um sitt hvað frá fyrri tið og aldrei komið að tóm- um kofunum. Það skal hér þakkað þegar vinur er kvaddur. Blessuð sé minning Gunnars Maríussonar. Sigurjón Jóhannesson. egsfeinar Lundi . v/Nýbýlaveg SÓLSTEINAR 564 4566 Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Áralöng reynsla. Sverrir Olsen, útfararsljóri Sverrir Einarsson, útfararstjóri Útfararstofa Islands Suðurhlíð 35 ♦ Síxni 581 3300 Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/ LEGSTEINAR í rúmgóðum sýningarsölum okkar eigum við ávallt fyrirliggjandi margar gerðir legsteina og minnisvarða úr íslenskum og erlendum steintegundum. Verið velkomin til okkar eða hafið samband og fáið myndalista. IB S.HELGASON HF I 11SIEINSMIÐJA 1 SKEMMUVEGI 48 200 KÓP.,SÍMI:557-6677/FAX:557-8410

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.