Morgunblaðið - 13.08.1998, Síða 47

Morgunblaðið - 13.08.1998, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 1998 47 Helgi Ass annar í Gausdal Helgi Áss Jonny Guðfríður Lilja Grétarsson Hector Grétarsdóttir SKAK Gausdal, Noregi MINNINGARMÓT UM ARNOLD J. EIKREM Þriðja mótið í norrænu VISA bikarkeppninni 1998-99 var haldið í Gausdal. Svúnn Jonny Hector sigraði, en Helgi Áss Grétarsson varð í öðru sæti. 1.-9. ágúst _ STÓRMEISTARINN Helgi Áss Grétarsson náði öðru sæti á alþjóðlega skákmótinu í Gausdal í Noregi sem lauk á sunnudag- inn. Mótið hafði töluverða þýð- ingu þar sem það var þriðja skákmótið í stórbikarkeppni VISA á Norðurlöndum. Með frammistöðu sinni hefur Helga Áss tekist að blanda sér í barátt- una um sæti í lokamóti stórbik- arkeppninnar. Mótið í Gausdal var haldið til minningar um norska skákfrömuðinn Arnold J. Eikrem, sem íslenskir skákmenn eiga mikið að þakka. _ Athyglisverðasti sigur Helga Áss á mótinu var gegn sterkasta skákmanni Norðmanna, Simen Agdestein. Skákin var bráð- skemmtileg og vel tefld af Helga hálfu, en hún birtist hér í skák- þættinum í síðustu viku. Annar íslendingur, Áskell Öm Kárason, tók einnig þátt í mótinu. Hann fór vel af stað og var kominn með fjóra vinninga eftir 6 umferðir. í síðustu þrem- ur umferðunum gekk honum hins vegar flest í óhag og hann endaði með 4'Æ vinning og lenti í 19.-22. sæti. Sænski stórmeistarinn Jonny Hector sigraði á mótinu, hlaut 7'á vinning í níu umferðum. Eins og áður segir varð Helgi Áss í öðru sæti. Hann hlaut 6'Æ vinn- ing. Torbjörn R. Hansen (Sví- þjóð) og stórmeistarinn Heikki Westerinen (Finnlandi) urðu jafnir Helga að vinningum, en lægri á stigum. Röð efstu manna: 1. Jonny Hector (Svíþj.) SM 2510 7'Æ v. 2. Helgi Áss Grétarsson SM 2480 (>'Æ v. 3. Torbjöm R. Hansen (Noregi) 2060 6V4 v. 4. Heikki Westerinen (Finnl.) SM 2435 6V4 v. 5. -8. Ralf Akesson (Svíþj.) SM 2510, Simen Agdestein (Noregi) SM 2545, Einar Gausel (Npregi) SM 2540, Yair Kraidman (ísrael) SM 2335 6 v. Frábær árangur Lilju Það er af ýmsu að taka þegar fjalla á um góðan árangur ís- lenskra skákmanna á alþjóðleg- um skákmótum um þessar mundir, eins og fram hefur kom- ið í skákþáttum Morgunblaðsins að undanförnu. Eitt af því sem gleður skákáhugamenn er að sjá að það eru ekki einungis karl- mennirnir sem standa sig vel. Þannig náði Guðfríður Lilja Grétarsdóttir einhverjum besta árangri á skákferli sínum á al- þjóðlegu kvennamóti sem lauk í Stokkhólmi á sunnudag. Lilja fékk 5 vinninga í 9 umferðum og lenti í 5.-7. sæti. Hún var ein tveggja þátttakenda sem ekki voru með alþjóðleg skákstig fyi’- h- mótið og því er óhætt að segja að þetta sé mun betri árangur en vænta mátti fyrirfram. Lilja tefldi við 8 andstæðinga með skákstig og árangur hennar svarar til u.þ.b. 2.170 skákstiga. Þess er því væntanlega ekki langt að bíða að hún birtist á stigalista Alþjóðlega skáksam- bandsins, FIDE, en til þess þarf að tefla 9 skákir gegn andstæð- ingum með alþjóðleg skákstig. Góður árangur Lilju á alþjóð- legum vettvangi þarf kannski ekki að koma á óvart, en hún hefur náð bestum árangri ís- lenskra skákkvenna undanfarin ár. M.a. hefur hún náð þeim ótrúlega árangri að verða níu sinnum íslandsmeistari kvenna, síðast í iyrra. Arnar og Bragi ofarlega í Badalona Alþjóðlega skákmótinu í Ba- dalona á Spáni er nú lokið. Fimm íslenskir skákmenn tóku þátt í mótinu. Tefldar voru 9 um- ferðir. Árangur Islendinganna var með ágætum. Þegar síðast fréttist átti eftir að reikna út stig, en útlit var fyrir að þeir Arnar E. Gunnarsson og Bragi Þorfinnsson hefðu náð verð- launasæti. Þeir fengu báðir 6'Æ vinning. Arnar gerði jafntefli í síðustu umferð, en Bragi sýndi mikla keppnishörku og sigraði eftir að hafa fengið heldur verra tafl. Hinir þrír Islendingarnir voru ekki langt undan. Þeir Bergsteinn Einarsson Jóhann H. Ragnarsson og Jón Viktor Gunnarsson fengu aliir 6 vinn- inga. Aiexander Panchenko, Úkra- ínu, sigraði á mótinu, fékk 8 vinninga. Þeir Arnar, Bergsteinn og Jó- hann eru væntanlegir til lands- ins 15. ágúst, en Bragi og Jón Viktor ætla að taka þátt í öðru skákmóti á Spáni. Magnús Orn sigrar á fjölmennu atkvöldi Magnús Örn Úlfarsson sigraði örugglega á fjölmennu atkvöldi Hellis sem haldið var á mánu- dag. Hann lagði alla sex and- stæðinga sína að velli. I 2.-5. sæti urðu Þór Stefánsson, Gunn- ar Björnsson, Stefán Kristjáns- son og Guðjón Heiðar Valgarðs- son með 4lÆ vinning. Alls voru keppendur 31. Efstir urðu: 1 Magnús Öm Úlfarsson 6 v. af 6 2.-5. Þór Stefánsson, Gunnar Bjöms- son, Stefán Kristjánsson og Guðjón Heiðar Valgarðsson 4'Æ v. 6.-7. Sigurður Páll Steindórsson og Pétur Atli Lárusson 4 v. 8.-15. Þorvarður F. Ólafsson, Grímur Grímsson, Valdimar Leifsson, Vigfús Óðinn Vigfússon, Þröstur Þráinsson, Bjami Magnússon, Ómar Þór Ómars- son og Gunnar Nikulásson 3'Æ v. o.s.frv. Skákstjórar voru Gunnar Björnsson og Vigfús Óðinn Vig- fússon. Næsta atkvöld verður haldið 7. september n.k. Ný heimasíða Hellis Taflfélagið Hellir hefur nú hleypt nýrri heimasíðu af stokk- unum á alnetinu. Þar er að finna margvíslegar hagnýtar upplýs- ingar um félagið, auk þess sem daglega er fylgst með þeim al- þjóðlegu og innlendu skákmót- um sem félagsmenn taka þátt í. Slóðin er www.simnet.is/heliir. Borgarskákmótið á þriðjudag Borgarskákmótið 1998 verður haldið í Ráðhúsi Reykjavíkur á afmælisdegi borgarinnar þriðju- daginn 18. ágúst. Mótið hefst kl. 16 eða klukkustund seinna en tíðkast hefur fram að þessu. Fyrsta Borgarskákmótið var haldið á 200 ára afmæli Reykja- víkurborgar árið 1986 og hefur verið haldið á hverju ári síðan og er þetta því í 13. skipti sem mót- ið fer fram. í fyrra tóku 75 skák- menn þátt í mótinu, þar á meðal flestir sterkustu skákmenn landsins. Tefldar verða 7 umferðir eftir Monrad-kerfi og umhugsunar- tími er 7 mínútur á skák. Þátt- taka í mótinu er ókeypis. Áhorf- endur eru velkomnir. Keppt er um farandbikar, sem Reykjavíkurborg gaf til keppn- innar. Auk þess eru peninga- verðlaun fyrir þrjú efstu sætin. Fyrstu verðlaun eru kr. 12.000, önnur verðlaun kr. 7.000 og þriðju verðlaun kr. 5.000. í fyrra sigruðu Gras-Efnavörur, en Arnar E. Gunnarsson tefldi fyrir þeirra hönd. Rétt er að vekja athygli á því að fjöldi þátttakenda er tak- markaður og þeir sem skrá sig fyrst ganga fyrir með þátttöku. Gunnar Björnsson (sími 581 2552) og Ríkharður Sveins- son (sími 568 2990) taka við skráningum í síma. Einnig er hægt að skrá sig með tölvupósti í gegnum heimasíðu Hellis: www.simnet.is/hellir. Eins og undanfarin ár halda Taflfélag Reykjavíkur og Taflfé- lagið Hellir mótið í sameiningu. Svæðismót í Danmörku í haust Svæðismót Norðurlanda í skák verður að þessu sinni hald- ið í Munkebo í Danmörku dag- ana 10.-19. september. Þátttak- endur á mótinu verða 24 og skiptast þannig á milli landa: Danmörk 5 þáttt. Finnland 3 þáttt. Færeyjar 1 þáttt. ísland 5 þáttt. Noregur 4 þáttt. Svíþjóð 6 þáttt. Mótið verður með útsláttar- fyrirkomulagi og fá 3 keppendur rétt til þátttöku í heimsmeist- arakeppni FIDE sem væntan- lega verður haldin í Las Vegas fyrir lok ársins. Dagskrá svæðis- mótsins er þannig: 1. umf. 10.-12.9 24 þáttt. (12 einvígi) 2. umf. 13.-15.9 12 þáttt. (6 einvígi) 3. umf. 16.-18.9 6 þáttt. (3 einvígi) 4. umf. 19.9 Lokaúrslit Daði Örn Jónsson Margeir Pétursson FRÉTTIR Dagur dráttarvél- anna á Hvanneyri I ÁR eru 80 ár síðan dráttarvélarn- ar námu land hérlendis. Sú fyrsta kom til landsins hinn 12. ágúst 1918. Af þessu tilefni er efnt til dags dráttarvélanna á Hvanneyri laug- ardaginn 15. ágúst. Þar á að halda upp á tímamótin en minna um leið á sögu dréttarvélanna og hlutverk þeirra í nútíma landbúnaði. Boðið er upp á ýmis dagskráratriði á tímabilinu kl. 11-18. Ökusýning forndráttarvéla verð- ur kl. 13.30, 15 og kl. 16.30. Öku- maður í broddi fylkingar kl. 13.30 verður Guðmundur Bjarnason, landbúnaðan-áðherra. Islandsmót í dráttarvélaakstri fer fram, búvéla- innflytjendur sýna flestar nýjustu dráttarvælarnar, sögusýningin verður í sumarhótelinu - Dráttar- vélar á íslandi í 80 ár, búvélasafnið verður opið og vörubílar Fornbíla- klúbbsins koma í heimsókn. Ullarselið verður að venju opið. Boðið verður upp á kerruferðir og fleira verður til dægrastyttingar. Veitingasala veður í sumarhótelinu. Aðgangseyrir er 500 kr. fyrir fullorðna en aðgangur er ókeypis fyrir gesti yngri en 15 ára. Að degi dráttarvélanna standa Bændaskólinn á Hvanneyri og Bú- vélasafnið með samstarfi við Bú- tæknideild RALA. Skotleikar ‘98 í Reykjavík SKOTLEIKAR Hins íslenska byssuvinafélags verða haldnir í samvinnu við Skotfélag Reykjavík- ur á skotsvæði SR í Leirdal laugar- daginn 15. ágúst nk. og hefjast klukkan 10 árdegis. Skotleikarnir eru orðnir árviss viðburður í dagskrá Hins íslenska byssuvinafélags og nú haldnir í sjö- unda sinn. í leikunum reynh- á al- hliða skotfimi og á meðal keppenda eru jafnt skotíþróttamenn og skot- veiðimenn. Eins og nafnið bendir til er ekki síður um leik en keppni að ræða. Keppt er í þremur greinum. Skotið er með 22. cal. LR-rifflum með sjónauka úr standandi stöðu á málmmyndir á 40 og 60 metra færi, 10 skot á hvoru færi. Þá er skotið með stórum rifflum (centerfire) í standandi stöðu á sérútbúna skot- skífu á 100 metra færi Loks eru skotnar 50 leirdúfur með hagla- byssu með veiðiþrengingu (lág- mark 'Æ, MOD). Ekki þarf að taka þátt í öllum gi-einum. Skráning verður á staðnum og eru keppendur beðnir að mæta ekki seinna en klukkan 9.30. Öllum skotmönnum er heimil þátttaka, þátttökugjald er 2.500 kr. Verðlaun verða veitt í öllum greinum. Einnig verður veittur farandbikar, Veiði- hússbikarinn, fyrir bestan saman- lagðan árangur. YOGAKENNARARNIR Guðjón Bergmann, Ilallgrímur Óskars- son og Birgir Jóakimsson. Yogakennslan hefur störf YOGAKENNSLAN verður með kynningarkvöld í félagsmiðstöðinni Árseli í Árbæ 14. ágúst kl. 20. Að- gangur er ókeypis. Meðal þess sem þar verður kynnt er grunnnám- skeið í hatha yoga, sem er dagana 15. og 16. ágúst í Árseli milli kl. 9 og 13. I Árseli verða opnir tímar í hatha yoga sem hér segir: mán., þri., mið., fim., fós. kl. 18.25-19.25 og þri. og fim. kl. 7.30-8.30. Til þess að stunda hatha yoga í opnum tímum er mælt með því að fólk taki grunnnámskeið eða hafi grunnþekkingu á líkamsstöðum hatha yoga. Áhugasamir geta feng- ið einn frían kynningartíma ef þeir komast ekki á kynningarfundinn, segir í fréttatilkynningu. Á næstunni mun Yogankennslan opna aðstöðu í IR húsinu á móti Landakotsspítala fjórum sinnum í viku. www.mbl.is SMAAUGLVSINGAR FÉLAGSLÍF FERÐAFÉLAG ® ÍSLANDS MÖRKINNI6 - SlMI 568-2533 Laugardagur 15. ágúst kl. 8.00: Yfir Eyjafjöll. Ný gönguferð yfir vestanverð Eyjafjöll. Verð 2.500 kr. Ný helgarferð 14. —16. ágúst: Álftavatn — Öldufellsleið. Ökuferð með styttri- og lengri gönguferðum. Pantið strax. Fullbókað í Skagfjörðsskála um helgina en næg tjald- stæði í Þórsmörkinni. Kynnið ykkur sumarleyfisferðirnar, m.a. „Laugavegur" trússferð (með kjötsúpuveislu) 14,— 19. ágúst og öku- og skoðun- arferð um Mið-Austurland og óbyggðir 15.—21. ágúst. Sunnudagur 16. ágúst kl. 13: Ketilstígur — Seltún — Krísu- vík, gömul þjóðleið. ATViNNA Heimilishald úti á landi Óska eftir manneskju (með elli- laun/ellistyrk), sem vill halda heimili með bónda úti á landi. Hringið í síma 478 8981. Einkatímar í yoga! Viltu læra grunnlíkamsstöður hatha yoga eða bæta við þær? Læra um slökun, öndun og mat- aræði? Eða bara stunda yoga undir handleiðslu einkakennara? Guðjón Bergmann, yogakennari, býður upp á einkatíma sniðna að þínum þörfum. Nánari upplýsingar og tímapant- anir í síma 544 8070. Hjálpræðis- herinn Kirkjustræti 2 Lofgjörðarsamkoma kl. 20.30. Kafteinn Miriam Óskarsdóttir talar. ÝMISLEGT || Stjörnukort m Persónulysing, framtíðarkort, samskiptakort, einkatímar. Gunnlaugur Gudmundsson. Uppl. í síma 553 7075. Sendum í póstkröfu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.